Morgunblaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Sigurður Már Jónsson blaðamaðurskrifar um nýja skýrslu mann-
réttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í
pistli á mbl.is. Skýrslan byggist á
hundruðum viðtala við vitni að
mannréttindabrotum í Venesúela og
er, eins og Sigurður Már bendir á,
„þungur áfellisdómur yfir sósíal-
istastjórn Nicolas Maduro en stjórn-
völd eru þar sökuð um pyntingar,
kerfisbundnar nauðg-
anir, skefjalaust of-
beldi og ólögmæt
manndráp í til-
raunum sínum til að
halda völdum í land-
inu.“
Hann helduráfram og segir:
„Það hlýtur að vera
þungt áfall fyrir þá
mörgu sósíalista víða
um heim, sem reynt
hafa að bera blak af
sósíalistastjórn Maduro, að lesa
skýrsluna. Þar kemur fram að sér-
stakar drápssveitir stjórnarinnar
(Special Action Forces (FAES)) eru
taldar hafa drepið 5.287 manns fram
til síðustu áramóta og aðra 1.569
fram til 19. maí á þessu ári. Voru
drápin framkvæmd undir formerkj-
um sérstakra aðgerða (Operations
for the Liberation of the People) sem
þessar drápssveitir stóðu fyrir að
skipan stjórnvalda. Þetta staðfestir
grun margra en eru auðvitað sláandi
upplýsingar. Getur nokkur varið
þetta? Er enn unnt að kenna Trump
og Bandaríkjamönnum um ástandið í
Venesúela eins og margir sósíalistar
hér á landi hafa gripið til?“
Hvar sem sósíalismanum hefurverið hrint í framkvæmd hefur
hann tekið á sig mynd ofbeldis og
kúgunar.
Hvernig stendur á því að enn ertil fólk sem leggur nafn sitt við
þessa andstyggilegu stjórn-
málastefnu?
Sigurður Már
Jónsson
Sósíalismi í
framkvæmd
STAKSTEINAR
Nicolas Maduro
Verkefnastofa borgarlínu hefur tek-
ið formlega til starfa og mun sinna
undirbúningsverkefnum fyrir fyrsta
áfanga borgarlínu á höfuðborgar-
svæðinu. Verkefnastofan starfar á
grundvelli samkomulags milli Vega-
gerðarinnar og sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu, sem lagður var
grunnur að í samgönguáætlun.
Samkomulagið felur í sér að Sam-
tök sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu (SSH) og Vegagerðin skipti
með sér kostnaði vegna undirbún-
ingsvinnu árin 2019 og 2020.
Tilgangur verkefnastofunnar er
að ljúka forhönnun borgarlínu, yfir-
fara leiðakerfi almenningssam-
gangna, kostnaðarmat, skipulags-
vinna og gerð umhverfismats þannig
að hægt verði í framhaldinu að hefja
verkhönnun og undirbúa gerð út-
boðsgagna fyrir framkvæmdir.
Á verkefnastofunni eru þrír verk-
efnastjórar, þau Bryndís Friðriks-
dóttir samgönguverkfræðingur,
Hrafnkell Á. Proppé skipulagsfræð-
ingur og Lilja G. Karlsdóttir sam-
gönguverkfræðingur. Verkefna-
teymið mun njóta tilfallandi
stuðnings sérfræðinga Vegagerðar-
innar, sveitarfélaganna og Strætó
bs. Undirbúningsvinnan mun jafn-
framt vera í höndum utanaðkomandi
ráðgjafa, bæði innlendra og er-
lendra, segir í frétt á heimasíðu
Vegagerðarinnar.
BRT Planning International mun
vera til ráðgjafar í ferlinu. Fyrir-
tækið starfar í Brooklyn í New York
í Bandaríkjunum og hefur komið að
skipulagi og framkvæmdum víða um
heiminn. sisi@mbl.is
Verkefnastofa borgarlínu stofnuð
Ljósmynd/Vegagerðin
Samið Páll B. Guðmundsson, SSH, og
Bergþóra Þorkelsdóttir, Vegagerð.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýjar íslenskar kartöflur eru komn-
ar í flestar verslanir á höfuðborgar-
svæðinu. Þá eru fyrstu káltegund-
irnar farnar að fást í búðum en fullt
framboð verður þó ekki fyrr en síð-
ar í mánuðinum.
Íslensku kartöflurnar sem Sölu-
félag garðyrkjumanna (SFG) selur
fyrir bændur eru úr Hrunamanna-
hreppi og Þykkvabæ. „Þær líta bara
vel út en stærðirnar eru misjafnar
enda kartöflurnar lítið flokkaðar,“
segir Guðni Hólmar Kristinsson,
framkvæmdastjóri afurðasviðs SFG.
Best geymdar í maga
Hann segir að kartöflurnar séu
viðkvæmar og þoli illa geymslu og
flutninga og því séu þær í takmök-
uðum mæli á landsbyggðinni. „Þær
eru best geymdar í maga,“ segir
hann.
Það bætist við magnið á nánast
hverjum degi þannig að fljótlega
ætti að vera unnt að fá nýjar ís-
lenskar kartöflur alls staðar.
Margar káltegundir koma á
markaðinn í júlí, samkvæmt græn-
metisdagatalinu. „Ég reikna með að
við fáum spergilkál í þessari viku.
Við erum aðeins farnir að sjá kína-
kál og eitthvað af blómkáli. Það
verður þó ekki alvöru magn af
blómkáli fyrr en síðustu vikuna í
júlí. Gulrætur byrja að berast í
næstu viku,“ segir Guðni. Mest af
útiræktaða grænmetinu kemur frá
Flúðum og nágrenni.
Í vor og það sem af er sumri hef-
ur almennt verið góð tíð til græn-
metisræktunar. „Það lítur ágætlega
út með uppskeru og mun betur en í
fyrra. Ýmislegt getur þó ennþá
komið upp á,“ segir Guðni.
Fyrstu káltegund-
irnar á markað
Nýjar íslenskar
kartöflur komnar
í flestar verslanir
Uppskera Nýjar íslenskar kartöflur
eru komnar á markaðinn.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Bialetti mokka könnur
Hönnun: Alfonso Bialetti
Verð frá 2.590,-
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/