Morgunblaðið - 10.07.2019, Page 11
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Umsóknum um drónamyndatökur á friðlýstum
svæðum hefur fjölgað talsvert undanfarin ár að
sögn Sigrúnar Ágústsdóttur, sviðsstjóra hjá Um-
hverfisstofnun. M.a. var sótt um slíkt leyfi vegna
jarðfræðileiðangurs til Surtseyjar sem fjallað var
um í Morgunblaðinu í gær. Ekki er blátt bann við
drónamyndatökum á friðlýstum svæðum, en regl-
ur um þetta er aftur á móti að finna í stjórnunar-
og verndaráætlunum og reglugerð Samgöngu-
stofu.
Misvarlega farið eftir svæðum
„Þetta er gjarnan háð leyfi og svo förum við
alltaf mjög varlega yfir varptímann ef það er
fuglalíf á svæðinu. Þar sem mikið er um gesta-
komur hagi menn myndatökum með dróna þannig
að það sé að morgni eða mjög seint og trufli gesti
sem njóti svæðisins sem minnst,“ segir Sigrún, en
svæði á borð við Surtsey eru þó í sérflokki. Þang-
að fer enginn án þess að hafa til þess skriflegt
leyfi Umhverfsisstofnunar.
Almennt eru friðlýsingarskilmálar býsna fjöl-
breyttir. „Svæðin eru um 115 talsins og fjölbreyti-
leikinn er talsverður. Surtsey og Gullfoss eru til
dæmis gjörólík svæði. Við viljum að margt fólk
heimsæki Gullfoss og fari þangað þegar því sýnist.
Við viljum búa til góða aðstöðu þar fyrir fólk til að
njóta fossins, en við viljum aftur á móti helst ekki
að neinn fari út í Surtsey,“ segir Sigrún.
Aðspurð kveðst hún ekki muna til þess að fólk
hafi verið staðið að því að brjóta reglur um dróna-
flug á friðlýstum svæðum, en oft er í leyfum fyrir
myndatökum kveðið á um eftirlit landvarðar eða
sérfræðings gegn gjaldi. „Í Surtsey fer okkar
fulltrúi með í ferðina og eftirlit er með öllu verk-
efninu, alla leið. Á öðrum stöðum sem eru ekki
jafn viðkvæmir er eftirlitið aðeins minna og þá er
ekki setið yfir öllu verkefninu,“ segir Sigrún sem
telur fjölgun umsóknanna m.a. skýrast af auknum
fjölda dróna í eigu einstaklinga.
„Fyrirtæki sem eru að búa til kynningar- eða
auglýsingaefni sjá líka tækifæri í þessu. Dróninn
kemst á staði þar sem maður kæmist ekki með
öðrum hætti,“ segir Sigrún. „Við skiljum þetta,“
segir hún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dróni Af fljúgandi drónum getur stafað nokkur hljóð- og ljósmengun.
Umsóknum um drónaflug fjölgað
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Bann Drónar eru víða bannaðir, meðal annars í Vatnajökulsþjóðgarði.
Á vef Umhverfisstofnunar vekur
athygli umsókn um leyfi til sam-
komuhalds innan Djúpalónssands
í þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Um
var að ræða giftingu sem stóð til
að halda um síðustu helgi, þ.e. at-
höfn á útsýnispalli staðarins sem
yrði lokað meðan á henni stæði.
Leyfi var veitt með nokkrum skil-
yrðum, meðal annars að svæðið
yrði ekki notað ef það væri of
blautt og viðkvæmt. Þá var mælst
til þess að gestir legðu í stæði of-
an við vegamót að Djúpalóni ef
þar væru margar bifreiðar og tek-
ið fram að viðburðurinn hefði, til
skamms tíma, neikvæð áhrif á
upplifun annarra gesta svæðisins.
Ennfremur væri óheimilt að trufla
dýralíf og allur akstur utan vega
væri bannaður.
„Það koma öðru hverju beiðnir
frá fólki sem vill gifta sig í þjóð-
garðinum. Í reglugerðinni um
hann segir að samkomur og starf-
semi sé háð leyfi. Þannig féll
þetta undir leyfisskyldu,“ segir
Sigrún. „Ég hef ekki heyrt annað
en að þetta hafi gengið vel. Þjóð-
garðar hafa alltaf ákveðið að-
dráttarafl, ég get vel skilið það,“
segir hún.
Athöfn við
Djúpalóns-
sand
LEYFI VEITT FYRIR
GIFTINGU Í ÞJÓÐGARÐI
Forsvarsmenn fyrirtækisins Eldum
rétt ætla ekki að tjá sig frekar um
stefnu Eflingar nema fyrir dóm-
stólum, að því er mbl.is fékk staðfest
í gær.
Efling hefur stefnt Eldum rétt
fyrir hönd fjögurra starfsmana sem
stöfuðu hjá fyrirtækinu tímabundið í
gegnum starfsmannaleiguna Menn í
vinnu.
Að mati Eflingar ber Eldum rétt
lagalega ábyrgð á vangoldnum laun-
um mannanna á grundvelli keðju-
ábyrgðar og er krafist rúmlega fjög-
urra milljóna króna frá fyrirtækinu.
Upphæðin nær meðal annars til
launa, miskabóta og lögfræðikostn-
aðar.
Þá hefur Kristófer Júlíus Leifs-
son, einn stofnenda Eldum rétt, sagt
að ef fyrirtækið myndi greiða full
laun mannanna fyrir þessa fjóra
daga myndi kostnaður vera upp á
tvö til þrjú hundruð þúsund.
Forsvarsmenn Eldum rétt segja
að fyrrgreindir starfsmenn hafi að-
eins starfað samanlagt í fjóra daga
hjá fyrirtækinu en framkvæmda-
stjóri Eflingar hefur sakað fyrir-
tækið um að „skýla sér á bak við
lagatæknilega fimleika“.
Morgunblaðið/Hari
Deila Efling stefnir Eldum rétt.
Eldum rétt
tjáir sig fyrir
dómstólum
Efling krefst fjög-
urra milljóna króna