Morgunblaðið - 10.07.2019, Page 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga www.alno.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
kallaði Sir Kim Darroch, sendi-
herra Bretlands í Bandaríkjunum,
„hrokafullt fífl“ á twitter-reikningi
sínum í gær, en um helgina birtust í
breska slúðurblaðinu Mail on
Sunday leyniskjöl frá sendiráðinu
þar sem Darroch lýsti meðal annars
þeirri skoðun sinni að Trump væri
vanhæfur og að óreiða ríkti í Hvíta
húsinu með Trump við stjórnvölinn.
Trump réðst einnig á Theresu
May, fráfarandi forsætisráðherra,
en hún varði ummæli Darrochs í
fyrradag, og sagði þau í samræmi við
hlutverk sendiherrans.
Sagði Trump að stefna May varð-
andi útgöngu Bretlands úr Evrópu-
sambandinu hefði verið heimskuleg.
Sagðist Trump hafa veitt henni ráð
um hvernig væri best fyrir Breta að
bera sig að, en May hefði valið að
fara eigin leiðir, og niðurstaðan væri
stórslys fyrir Breta. Fagnaði Trump
því að dagar May í embætti væru
senn taldir og lýsti því jafnframt yfir
að Hvíta húsið myndi ekki eiga í
neinum frekari samskiptum við Dar-
roch.
Gagnrýnir Trump
Jeremy Hunt, utanríkisráðherra
Bretlands, svaraði gagnrýni Trumps
og sagði hann hafa á röngu á standa
um stefnu Theresu May. Þá hefðu
ummæli Trumps borið vott um virð-
ingarskort. Hunt etur nú kappi við
fyrirrennara sinn í embætti, Boris
Johnson, um það hver eigi að taka
við af May sem leiðtogi Íhaldsflokks-
ins og forsætisráðherra. Lofaði
Hunt því að Darroch yrði um kyrrt í
Washington ef hann yrði forsætis-
ráðherra.
Málið hefur sett samskipti Bret-
lands og Bandaríkjanna í nokkurt
uppnám. Boris Johnson sagði hins
vegar að hann hefði átt í góðum sam-
skiptum við stjórnvöld í Washington
í gegnum tíðina, og að hann myndi
leitast við að tryggja áfram sterk
samskipti Bretlands og Bandaríkj-
anna, næði hann kjöri sem leiðtogi
Íhaldsflokksins. „Bandaríkin eru,
hafa verið og munu um fyrirsjáan-
lega framtíð vera nánasti bandamað-
ur okkar,“ sagði Johnson.
Svarar fyrir ummælin
Trump Bandaríkjaforseti segir Darroch vera „hrokafullt fífl“ Mun ekki eiga í
frekari samskiptum við sendiherrann Hunt kemur Theresu May til varnar
AFP
Uppnám Samskipti Breta og Banda-
ríkjamanna eru sögð í uppnámi.
Safngestur Tate-nýlistasafnsins í Lundúnum
þreifar hér á mosavegg, en hann er hluti af nýrri
sýningu Ólafs sem var opnuð í gær. Eru um 40
verk eftir Ólaf til sýnis þar og sagði sýningar-
stjórinn Mark Godfrey við AFP-fréttastofuna að
Ólafur hefði meðal annars sótt innblástur sinn til
íslenskrar náttúru og upplifana sinna þar í æsku.
„Ólafur eyddi miklum tíma í æsku á Íslandi og
umhverfið, landslagið hefur haft mikil áhrif á
hann,“ sagði Godfrey. Ólafur býr meðal annars
til foss og regnboga á sýningunni sem verður op-
in fram til 5. janúar næstkomandi.
AFP
Sótti innblásturinn í íslenska náttúru
Frakkar, Þjóð-
verjar og Bretar
ásamt Evrópu-
sambandinu
þrýstu á Írani í
gær um að þeir
létu af aðgerðum
sínum sem ganga
í bága við kjarn-
orkusam-
komulagið frá
2015. Emmanuel
Macron Frakklandsforseti sendi í
gær Emmanuel Bonne, einn helsta
ráðgjafa sinn í utanríkismálum, til
Teheran í þeirri von um að hann
gæti fundið leið til þess að bjarga
samkomulaginu eftir að staðfest
var í fyrradag að Íranar væru farn-
ir að auðga úran umfram þau
3,67% sem samkomulagið leyfir
þeim.
Macron hefur á undanförnum
dögum rætt bæði við Hassan Rouh-
ani, forseta Írans, og Donald
Trump Bandaríkjaforseta í þeirri
von um að hægt væri að miðla mál-
um milli ríkjanna tveggja, en
Trump sagði í gær að Íranar þyrftu
að íhuga næstu skref sín vandlega.
Þá hermdu heimildir AFP-
fréttastofunnar að Evrópuríkin
þrjú væru treg til þess að setja sín-
ar eigin refsiaðgerðir á Íran þrátt
fyrir brot Írana á samkomulaginu,
þar sem vonir stæðu til að óttinn
við slíkar aðgerðir gætu fengið þá
aftur að samningaborðinu.
Vilja að Íranar hætti
við aðgerðir sínar
Emmanuel
Macron
ÍRAN
Vladimír Pútín
Rússlandsforseti
sagði í gær að
hann væri mót-
fallinn því að
Rússar beittu
Georgíumenn
þvingunar-
aðgerðum, en
dúman sam-
þykkti þings-
ályktunartillögu
þess efnis fyrr um daginn. Væri slík-
um aðgerðum ætlað að svara fyrir
ögranir af hálfu Georgíumanna, en
vinsæll sjónvarpsþáttastjórnandi í
Georgíu olli mikilli reiði í Rússlandi
um helgina þegar hann réðst á per-
sónu Pútíns með miklum fúkyrðum í
beinni útsendingu.
Umfangsmikil mótmæli gegn
Rússum brutust út í Georgíu í síð-
asta mánuði eftir að rússneskur
þingmaður fékk að ávarpa ráðstefnu
úr pontu þjóðþingsins. Hafa Rússar
m.a. bannað beint flug milli land-
anna í kjölfarið.
Vill ekki viðskipta-
bann á Georgíu
Vladimír
Pútín
RÚSSLAND
Jeremy Corbyn,
leiðtogi breska
Verkamanna-
flokksins, lýsti
því yfir í gær að
flokkurinn styddi
aðra þjóð-
aratkvæða-
greiðslu um út-
göngu Breta úr
Evrópusamband-
inu að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum, og að
í þeirri atkvæðagreiðslu myndi
Verkamannaflokkurinn berjast fyr-
ir áframhaldandi veru Breta innan
sambandsins.
Sagði Corbyn að flokkur sinn
myndi frekar vilja vera innan ESB
en að yfirgefa það án samnings eða
með samningi sem Íhaldsflokk-
urinn hefði samið um. Corbyn vildi
þó ekki segja hver stefna sín í út-
göngumálinu yrði ef hann yrði for-
sætisráðherra, en Corbyn hefur
þótt fremur andsnúinn ESB.
Kallar eftir annarri
atkvæðagreiðslu
BRETLAND
Jeremy
Corbyn