Morgunblaðið - 10.07.2019, Qupperneq 17
reynt að taka mér til fyrirmyndar
og mun halda áfram að reyna.
Ég kveð Möggu stórfrænku
mína, hjartavinkonu og fyrir-
mynd í svo mörgu, með sorg í
hjarta en jafnframt með miklu
þakklæti, fyrir allt.
Elsku Jón, Bjössi, Guðbjörg,
Hrafnkell, Henný, Ásgeir, amma
Lillý, mamma, Gummi og yndis-
legu barnabörnin, megi Guð
styrkja ykkur á þessum erfiðu
tímum. Dýrmætar minningar
lifa.
Þorbjörg Jensdóttir.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson.)
Margrét er látin eftir erfið
veikindi sem hún bar af full-
komnu æðruleysi. Magga var eig-
inkona æskuvinar míns, Nonna.
Lífið færði þeim myndarleg börn
og krefjandi verkefni sem ævin-
lega höfðu forgang.
Ég sé Möggu og Nonna æsku-
glöð í Sporðagrunni þegar fram-
tíðin brosti við þeim. Leiðir skildi
um hríð þegar menntun og störf
leiddu okkur í sitt hvora áttina,
austur um haf og vestur. Þegar
heim var komið var myndaður lít-
ill vinahópur og framleiðsluferli
berjadrykkja stúderað, bragð og
gæði metin blint og því fagnað
þegar kassavín hafði vinninginn á
fyrsta fundi. Við fórum í tvær
framhaldsmenntunarferðir, aðra
til Frakklands, hina til Ítalíu.
Drykkirnir voru góðir, maturinn
betri en félagsskapurinn bestur.
Í Bourgogne í Frakklandi sáum
við fyrsta kaþólska sjúkrahúsið
þar í landi, reist á miðöldum.
Rúm voru stutt og í hverju þeirra
lágu sex til átta manns, sitt á
hvað, höfuð og fætur. Sjúkrahús-
umhverfi var ekki þá fremur en í
dag heilsusamlegt. Í starfi sínu
sem hjúkrunarfræðingur brann
Margrét fyrir málum er snertu
öryggi og gæði í þjónustu við
sjúka og þegar í heilbrigðisráðu-
neytið var komið varð það mála-
flokkur hennar.
Sem læknir varð ég þeirrar
gæfu aðnjótandi að starfa með
Margréti í sviðsstjórn lyflækn-
inga-, tauga- og endurhæfingar á
Borgarspítala á síðari hluta tí-
unda áratugar síðustu aldar.
Fljótlega komu upp hugmyndir
um sameiningu Borgarspítala og
Landakots og Sjúkrahús Reykja-
víkur varð til. Þetta var talsvert
viðamikið verkefni, á margan
hátt ögrandi og tilfinningar
margra blendnar. Deildir voru
fluttar til og sameinaðar og
starfsmenn þurftu að fóta sig í
nýjum veruleika. Margrét hlust-
aði vel, vann rólega, markvisst og
af yfirvegun og fagmennsku. Í
þessu ferli var flutningur barna-
deildar frá Landakoti á Borgar-
spítala Margréti sérlega hugleik-
inn og stýrði hún því verkefni af
stakri kostgæfni.
Ég hef unnið með mörgum
góðum hjúkrunarfræðingum en
engum betri en Margréti. Hún
mætti manni með fallegu brosi og
reisn. Halda hefði mátt að Mar-
grét væri ekki til stórátaka en
ekkert var fjær sanni. Margrét
vann linnulaust. Ef það var ekki
hið mikilvæga starf utan heimilis,
þá var það móðurhlutverkið og
heimilið. Mér er nær að halda að
Margrét hafi skilað þrjátíu og sex
tíma starfi á sólarhring síðastlið-
in þrjátíu ár.
Ég minnist veiðiferðar að
hausti fyrir tveimur árum með
Möggu og Nonna og vinum. Eng-
in var veiðin en það gerði ekkert
til. Stundin og sólarlagið töfrandi
og allir glaðir. Fáeinum vikum
síðar dundi reiðarslagið. Lífs-
hættuleg veikindi greind. Nú hef-
ur lífslogi Margrétar slokknað og
sorgin tekið hús. Hugur okkar
Þórunnar Báru er hjá Nonna,
börnunum, barnabörnum, aldr-
aðri móður og systkinum. Minn-
ing Margrétar Björnsdóttur er
sveipuð heiðríkju og fegurð.
Pálmi V. Jónsson.
Á fallegri sumarnóttu þegar
sólin hneig hægt í djúpan sæ og
byrgði höfuð sitt til næturhvíldar,
kvaddi elsku Magga okkar þenn-
an heim. Þótt hennar ævi lyki þar
með fyrr en við höfðum gengið út
frá er alveg ljóst að Magga náði
því besta úr lífinu; var lánsöm
bæði í einkalífi og starfi enda vel
gefin, ósérhlífin, umburðarlynd,
umhyggjusöm og yndisleg og
ekki að undra að hún hafi verið
elskuð og virt af öllum sem hana
þekktu.
Það var áhugasamur hópur
sem hóf nám í hjúkrunarfræði við
HÍ haustið 1976. Þar lágu leiðir
okkar vinkvennanna fyrst saman
og grunnur að ævilangri vináttu
var lagður. Við vorum fjórði ár-
gangurinn til að hefja nám í nýrri
námsbraut. Því fylgdi tilhlökkun
jafnt sem áskorun því undirbún-
ingur okkar fyrir raungreinanám
var ýmiss konar og sömuleiðis
námsaginn. Við höfðum 4 ár til að
slípa hvort tveggja til og lukum
allar námi með góðum árangri á
tilsettum tíma.
Bakgrunnur Möggu eftir
margra ára ballettnám mótaði
hennar lífsstíl en hún var orðin
dansari í Íslenska dansflokknum
ung að árum. Glæsileiki, reisn og
heilsusamlegt líferni einkenndu
hana alla tíð. Við getum enda-
laust skemmt okkur við að rifja
upp snyrtilega nestispakka á
skólaárunum þar sem hugað var
að öllum næringarflokkum. Og
alltaf var hún tilbúin að deila með
okkur hinum hollustubita þegar
við drógum upp kók og prins:
„Stelpur, fáið ykkur nokkrar rús-
ínur, þær eru svo orkumiklar.
Smá ostbita? Hrökkbrauð?“
Snemma í náminu komu í ljós
hæfileikar hennar sem áttu eftir
að nýtast henni vel seinna á
starfsævinni enda fljótt valin til
ábyrgðarmikilla starfa innan
heilbrigðisgeirans og síðar
stjórnsýslunnar. Hún hafði ein-
staka yfirsýn yfir flókin mál og
gat greint hismið frá kjarnanum
á augabragði. Skipulagsgáfu
hafði hún sem og sjálfsaga, hún
gerði allt vel og af mikilli fag-
mennsku. Við sögðum stundum
okkar á milli að meðan við sæjum
kannski 2, 3 lausnir á tilteknu
máli gat Magga útlistað 10 sjón-
armið, fleiri en flestir aðrir.
Fjölskyldan stækkaði með ár-
unum, börnin urðu þrjú og barna-
börnin fimm. Það var ekkert gef-
ið eftir á þeim vettvangi og
Möggu og Jón munaði ekki um
það að fá alla stórfjölskylduna í
kvöldmat eftir langan vinnudag.
Henni þótti geysilega vænt um
öll barnabörnin sín og stolt var
hún af Bjössa, Guðbjörgu og
Hrafnkeli. Þá var hún einnig lán-
söm að eiga móður sína Þor-
björgu að.
Við þrjár og Ágústa ásamt fjöl-
skyldum okkar bundumst sér-
stökum böndum. Við höfum átt
góðar samverustundir í matar-
boðum og heimsóknum, en eigum
einnig minningar frá ferðalögum
innan lands sem utan. Ógleym-
anleg er vinkvennaferð okkar
fjögurra til Montreux í Sviss fyrir
nokkrum árum, þar sem við nut-
um þess að eiga góðar stundir við
samtöl og „gourmet“ mat í fögru
umhverfi.
Hver sælustund sem við höfð-
um hjá henni byrjar nú ljúft að
tala í hjarta okkar, eins og eitt af
skáldum okkar kvað hér forðum
og við vitum, eins og skáldið, að
fyrr en varir „röðull rís á ný og
roðinn lýsir yfir nýjum degi“.
Með þökk fyrir yndislega vin-
áttu.
Ásta Möller og Helga
Hrefna Bjarnadóttir.
Fleiri minningargreinar
um Margréti Björns-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN ÖNUNDARDÓTTIR
frá Neskaupstað,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
fimmtudaginn 27. júní. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. júlí klukkan 13.
Bjarni Gunnarsson Gerður Gunnarsdóttir
Salóme Rannveig Gunnarsd. Þorkell Guðmundsson
Kristján Gunnarsson Hrafnhildur H. Rafnsdóttir
Haraldur Gunnarsson Kolbrún Jónsdóttir
Kristjana Una Gunnarsdóttir Kristján Hjálmar Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
ÁRNI SIGURÐSSON
frá Skammdal í Mýrdal,
lést á Bæjarási í Hveragerði föstudaginn
5. júlí. Útförin fer fram frá Víkurkirkju
föstudaginn 12. júlí klukkan 14.
Guðgeir Sigurðsson
Kristín Sunneva Sigurðard. Hallur Jónsson
Sigurður Garðarsson Ármann Jón Garðarsson
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
FRÚ HEIÐRÚN SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Birkigrund 61, Kópavogi,
lést sunnudaginn 30. júní á
hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin verður
fimmtudaginn 11. júlí klukkan 13 í Hjallakirkju.
Svanur Sveinsson
Sveinn Halldór Svansson Marianne Toftdal
Freyja Svansdóttir Nanna Sigrún Georgsdóttir
Ólafur Örn Svansson Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
GUÐRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR
Ljómatúni 11, Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 15. júlí klukkan 13.30.
Ólafur Ágústsson
Lilja Ólafsdóttir, Þórólfur Steinar Arnarson og börn
Ágúst Ólafsson, Valborg Rósudóttir og börn
Þorsteinn Ólafsson, Thelma Björg Stefánsdóttir og börn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HALLVEIG ÓLAFSDÓTTIR
húsmóðir,
áður Otrateigi 4,
lést í Mörkinni fimmtudaginn 27. júní.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir til starfólks í Mörkinni fyrir góða og elskulega
umönnun síðustu árin.
Vilhjálmur Óskarsson Elínborg Proppé
Jónína Óskarsdóttir
Ólafur Óskarsson
Rannveig Óskarsdóttir Gerth Larsen
barnabörn og langömmubörn
Þann 16. júní lést elsku mamma okkar, hún
ODDNÝ LÍNA SIGURVINSDÓTTIR
Hún verður jarðsungin laugardaginn 13. júlí
klukkan 16 í Hólskirkju í Bolungarvík.
Öllum er velkomið að koma og heiðra
minningu hennar og kveðja. Lífsfögnuður
verður haldin henni til heiðurs á eftir á heimili hennar að
Hreggnasa, Bolungarvík.
Oddur Andri Thomasson Charlotta Rós Sigmundsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, vinur
og amma,
SVANHILDUR GUÐRÚN
BENÓNÝSDÓTTIR
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum við Fossvog
fimmtudaginn 4. júlí.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 11. júlí klukkan 11.
Halldór G. Guðmundsson Inga Rut Ingvarsdóttir
Helga Katrín Emilsdóttir Guðbrandur Þór Bjarnason
Emil Páll Jónsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
JAKOB ÁRNASON
Helgamagrastræti 4,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
föstudaginn 28. júní.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 12. júlí klukkan 13.30.
Jóna Jónasdóttir
börn og barnabörn
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐFRÍÐUR HERMANNSDÓTTIR
Fríða,
Austurbrún 4,
áður Miðtúni 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 26. júní.
Útför hennar fer fram í Digraneskirkju fimmtudaginn 11. júlí
klukkan 11. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Gunnar Sigurðsson
Skarphéðinn G. Þórisson Ragnhildur R. Indriðadóttir
Elsa Þ. Þórisdóttir Höskuldur Ásgeirsson
Hermann Þórisson Michéle Klein
Þórir Örn Þórisson Virginie Larue
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður,
sonar og bróður,
ODDGEIRS BJÖRNSSONAR
múrara.
Rósa Ingibjörg Jónsdóttir
Sigurður Björn Oddgeirsson
Sigrún Oddgeirsdóttir Ólafur F. Rowell
Oddgeir Hlífar Oddgeirsson
Jón L. Ólafsson
Björn B. Kristjánsson
Birna Rún Björnsdóttir
Hildur Rún Björnsdóttir
Matthías Björnsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORGEIR ÞORGEIRSSON
læknir,
til heimilis í Hafnarfirði, lést á hjúkrunar-
heimilinu Ísafold fimmtudaginn 20. júní.
Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju
föstudaginn 12. júlí klukkan 13.
Bergur Þorgeirsson Sigríður Kristinsdóttir
Lilja Þorgeirsdóttir Björn Erlingsson
Finnur Þorgeirsson Fey Teoh
Fjóla Þorgeirsdóttir Baldur Bragi Sigurðsson
og barnabörn