Morgunblaðið - 10.07.2019, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Tilboð/útboð
Auglýsing
Auglýsing á deiliskipulagstillögu í
Narfastaðalandi.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á
fundi sínum þann 28. maí 2019 að auglýsa
deiliskipulagstillögu fyrir Narfastaðaland 4.
no.2A í Hvalfjarðarsveit sbr. 1.mgr. 41.gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir
garðyrkjubýli, þ.e íbúðarhús, geymslu og
gróðurhús. Stærð landsins er 28.3 ha en
deiliskipulagið nær yfir hluta þess, þ.e.
6.036 m².
Deiliskipulagstillagan liggur fammi á skrif-
stofu Hvalfjarðarsveitar og einnig
á heimasíðu sveitarfélagsins
www.hvalfjardarsveit.is.
Kynningarfundur verður á skrifstofu Hval-
fjarðarsveitar föstudaginn 12.júlí á milli
10:00 – 12:00
Athugasemdum skal skilað til skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar, að Innrimel 3, 301
Akranesi, eða netfangið
skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt
”Narfastaðaland”. fyrir 26. ágúst 2019.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar
Bogi Kristinsson Magnusen
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9 - 12. Opin smíðastofa kl. 9-
15. Bridge kl. 12.30. Opið hús, t.d. vist og bridge kl. 13-15. Opið fyrir
innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala
kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og blöðin við hringboðið kl.
8:50. Listasmiðja opin kl. 9-16. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16.
Hádegismatur kl. 11:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Miðvikufjör Jóhanna
Elísa kemur og skemmtir okkur kl. 11:50. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir
velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Postulínsmálun kl. 9. Göngutúr um
hverfið kl. 13. Opið hjá okkur alla virka daga. Heitt á könnunni fyrir
hádegi. Hádegismatur frá 11:30 til 12:30 alla daga vikunnar og kaffi frá
14:30 til 15:30 alla virka daga. Farið verður í minigolf í Skemmti-
garðinum í Grafarvogi fimmtudaginn 11. júlí. Nánari upplýsingar í
síma 411-9450. Verið hjartanlega velkomin á Vitatorg.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi
kl. 13:00.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45 og
hádegismatur kl. 11.30. Gönguferð um hverfið kl. 13.30 og etir-
miðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag, gengið frá Borgum. Opið hús í dag í
Borgum frá kl. 13 til 16; félagsvist, hannyrðir, spjallhópur og gleðileg
samvera, kaffi á könnunni og kaffimeðlæti. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45,
viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11,
hádegisverður kl. 11.30, félagsvist kl. 13.30, síðdegiskaffi kl. 14.30,
Bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl. 16.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10:30, botsía í salnum
skólabraut kl. 10:00, upprifjunarnámskeið fyrir spjaldtölvur kl. 13:00,
vatnsleikfimi ísundlaug seltjarnarness kl. 18:30. Krakkarnir í ungmen-
naráði Seltjarnarness ætla að halda árlaga harmonikkuballið við
smábátahöfnina á fimmtudaginn í næstuviku (18.júlí)
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hit-
tist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkom-
nir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá
Korpúlfsstöðum Mosfellsbæ kl. 10.00. Kaffistaður Bakaríið Mos-
fellsbæ eftir göngu. Strætó til baka leið 7.
Smá- og raðauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is✝
Andrea Guð-
rún Tryggva-
dóttir fæddist í
Reykjavík 17. júlí
1929. Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Fossheimum,
Selfossi, 25. júní
2019.
Andrea var dótt-
ir hjónanna Jó-
hanns Tryggva
Jónssonar og Ólaf-
íu Margrétar Andrésdóttur sem
búsett voru lengst af í Hafnar-
firði. Systkini hennar eru Jón
Valur, f. 1931, Sigurður Rúnar,
f. 1935, d. 2015, og Guðrún Mar-
grét, f. 1946.
Andrea giftist Sigurði Þórð-
arsyni, f. 4. apríl 1928, d. 21.
nóvember 2016, þann 12. janúar
1951. Hann var sonur hjónanna
Þórðar Eyjólfssonar og Þuríðar
Salóme Salómonsdóttur sem
bjuggu á Brúsastöðum í hraun-
inu vestan byggðarinnar í Hafn-
arfirði.
Andrea og Sigurður eign-
uðust fjögur börn. 1. Ólafíu, f.
12. júlí 1950. Hún er gift Þor-
varði Hjaltasyni, f. 1951. Þau
Alexöndru Eir Andrésdóttur.
Þau eiga tvo syni. b) Andrea
Guðrún, f. 1989. Börn Bjargar
úr fyrra hjónabandi eru; Sara, f.
1979, Helga, f. 1981, Stefán, f.
1983, og Ester, f. 1988 4. Guð-
rún, f. 30. ágúst 1964, gift Sig-
urði Inga Ásgeirssyni, f. 1959.
Þeirra börn eru: a) Ásgeir
Andri, f. 1986, b) Sigþór Ingi, f.
1989, c) Kristín Sóley, f. 1993,
sambýlismaður hennar er Karl
Sigtryggsson, og d) Arnór Val-
ur, f. 1998.
Andrea og Sigurður hófu bú-
skap í Hafnarfirði 1950 og
bjuggu þar til ársins 1970. Þá
fluttu þau til Kollafjarðar þar
sem Sigurður starfaði sem
stöðvarstjóri Laxeldisstöðvar
ríkisins. Árið 1986 tóku hjónin
sig upp og fluttu austur fyrir
fjall og settust að á Selfossi og
bjuggu þar allar götur síðan.
Andrea var gagnfræðingur frá
Flensborgarskóla en gat ekki
haldið áfram námi vegna heyrn-
arskerðingar þrátt fyrir góðar
námsgáfur. Eftir að börnin
komust á legg starfaði Andrea
við ýmis störf, verslunarstörf, á
kjúklingabúi og á saumastofu.
Andrea hafði yndi af söng og
söng með kórum bæði á Kjal-
arnesi og á Selfossi.
Útför Andreu fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 10. júlí
2019, og hefst athöfnin klukkan
13.
eiga þrjá syni. Þeir
eru: a) Guðjón
Björgvin, f. 1971,
kvæntur Helgu
Dögg Sigurðar-
dóttur, þau eiga
tvo syni. b) Hjalti, f.
1973, kvæntur Jó-
dísi Ástu Gísladótt-
ur, þau eiga tvo
syni. c) Sigurður
Andrés, f. 1978.
Sambýliskona hans
er Brynhildur Fjóla Hallgríms-
dóttir. Þau eiga fjórar dætur. 2.
Kristján Tryggvi, f. 14. október
1954. Hann er kvæntur Ingi-
björgu Jóhönnu Erlendsdóttur,
f. 1958. Þau eiga tvo syni. Þeir
eru: a) Sigurður Árni, f. 1991,
sambýliskona hans er Guðný
Þóra Guðnadóttir. b) Kristján
Ingi, f. 1993. Sambýliskona hans
er Viktoría Hinriksdóttir. Áður
átti Ingibjörg Erlend, f. 1973,
sem er látinn. 3. Hringur, f. 30.
apríl 1958. Hann er kvæntur
Björgu Jóhannesdóttur, f. 1958.
Þau eiga sex börn. Börn Hrings
og fyrrv. eiginkonu hans Ólafíu
Láru Ágústsdóttur eru: a)
Ágúst Arnar, f. 1988, kvæntur
Við kveðjum í dag tengdamóð-
ur mína Andreu Guðrúnu
Tryggvadóttur. Hún ólst upp í
Hafnarfirði og bjó þar fram á
miðjan aldur þar til hún flutti í
Kollafjörð við Kjalarnes og síðar
á Selfoss. Ég held að hún hafi
samt alltaf litið á sig sem Hafn-
firðing. Hún veiktist ung að aldri
og bjó við varanlega heyrnar-
skerðingu síðan en fékk þó
nokkra bót meina sinna þegar
hún var komin á fullorðinsár.
Þessi veikindi mörkuðu framtíð
hennar á þann veg að hún náði
ekki að feta menntaveginn þrátt
fyrir góðar námsgáfur. Þrátt fyr-
ir þetta mótlæti tókst hún á við
lífið með sinni eðlislægu bjart-
sýni og góða skaplyndi. Hún gift-
ist ung Sigurði Þórðarsyni frá
Brúsastöðum í Hafnarfirði og
eignaðist með honum fjögur
mannvænleg börn.
Ég kynntist henni fyrir 50 ár-
um eftir að við Ollý elsta dóttir
þeirra fórum að skjóta okkur
saman. Það er stundum talað um
tannhvassar tengdamömmur en
það átti sannarlega ekki við um
hana og ég man ekki til að okkur
hafi nokkurn tíma orðið sundur-
orða á öllum þessum árum. Það
var í mesta lagi að hún segði
„jæja góði“ til að slíta umræðum
ef það var einhver meiningar-
munur. Hún var eins og áður
sagði létt í skapi og gamansöm en
hún var líka hörkudugleg og af-
kastaði miklu ef þess þurfti. Hún
var létt á fæti og kvik í hreyf-
ingum og við uppvaskið gekk
stundum svo mikið á að glertauið
var í stórhættu. Hún var afar
handlagin, prjónaði, heklaði,
saumaði út og málaði á postulín
og eins og í öðru sem hún tók sér
fyrir hendur afkastaði hún miklu
án þess að það kæmi niður á gæð-
unum. Hún var mikil fjölskyldu-
manneskja og lét sér annt um af-
komendur sína. Þess fengu synir
okkar sannarlega að njóta en þeir
vissu fátt skemmtilegra en að
fara í sveitina í Kollafirði til afa
og ömmu. Þar fengu þeir að njóta
frjálsræðis og góðs atlætis í hví-
vetna og margoft tók hún þá í
fóstur ef þeir veiktust og foreldr-
arnir bundnir í vinnu eða skóla.
Andrea átti langt og gott líf,
hefði orðið níræð nú í júlímánuði,
og kvaddi sátt við allt og alla.
Góð kona er gengin. Veri hún
kært kvödd.
Þorvarður Hjaltason.
Elsku systir, kæra kveðju
kveð ég þér á þessum degi,
almættið þig ávallt geymi
og englafjöld á himnavegi.
Allar stundir þér ég þakka,
þakka kæra bernsku mína,
seinna sumarlands á grundum
saman munum rósir tína.
Elskuleg systir mín, Andrea
Guðrún Tryggvadóttir, eða
Nunna systir, eins og ég kallaði
hana frá því ég man fyrst eftir, er
nú horfin héðan úr jarðheimi eftir
langa og viðburðaríka ævi. Það
vantaði aðeins þrjár vikur upp á
90 árin er hún lést hinn 25. júní sl.
Margs er að minnast eftir meir
en 70 ára samveru okkar, en hver
og ein minning er umvafin ást og
gleði frá þeirri ljúfu sál sem hún
hafði að geyma.
Það var 17 ára aldursmunur á
okkur systrum, hún elsta barnið í
fjölskyldunni og ég örverpið og
dekruð eftir því. Bræðurnir tveir,
Jón Valur og Sigurður Rúnar,
sáu um það ásamt Nunnu að ég
átti gleðiríka bernskudaga í litlu
íbúðinni á Skúlaskeiði 38 í Hafn-
arfirði. Það hefur þó líklega verið
þeim óvænt og sérstök lífs-
reynsla að allt í einu var mætt á
staðinn lítil manneskja sem var
bæði frek og þurfti mikla þjón-
ustu. Þeirri þjónustu sinnti
Nunna systir af einstakri alúð,
svo mikilli að sumir bæjarbúar
héldu að hún ætti sjálf þetta barn
sem hún var með úti á göngu í
vagni.
Nunna var snillingur í hönd-
unum. Ég minnist allra fallegu
fatanna sem hún prjónaði á dúkk-
urnar mínar, og seinna naut ég
sjálf góðs af snilli hennar, falleg-
ustu peysur, sjöl, dúkar og kjólar,
sem ég á enn. Ég á líka safn af út-
saumuðum jólakortum, gullfal-
legt perlusaumað jólatrésskraut,
málað jólapostulín, diska, kerta-
stjaka og platta, allt svo listilega
unnið.
En hún skildi eftir sig svo
miklu meira hjá mér. Nunna
systir var sú manneskja næst
móður minni, sem ég gat alltaf
leitað til bæði í gleði og sorg. Hún
átti einhvern veginn alltaf svör
við öllu. Löngu eftir að ég flutti til
Egilsstaða og hún á Selfoss og
vík varð milli vina áttum við oft
símtöl sem byrjuðu á setning-
unni:
„Sæl, er það frúin?“ Svo var
spjallað um heima og geima í
orðsins fyllstu merkingu, því að
við deildum miklum áhuga á and-
legum málum.
Ég á líka ljúfar minningar um
ferðir okkar systra til Boston
með dætrum okkar 2006 og 2007.
Þar stendur upp úr morgunleik-
fimi frú Andreu, sem þá var hátt
á áttræðisaldri liðug eins og kött-
ur.
Fleiri minningar sækja að um
góðar heimsóknir í Kollafjörð og
á Selfoss og heimsóknir þeirra
Sigg mágs (d. 2016) til Egils-
staða. Ég er þess fullviss að við
hittumst öll aftur á grænum
grundum sumarlandsins þar sem
vaxa fögur blóm. Ég lýk þessum
minningarorðum með línum úr
Sóldegi, ljóði Stefáns frá Hvíta-
dal:
Það er sól yfir sundum,
blærinn andar í birkilundum.
Nú brosa mér bernskunnar hallir
og dagsólardraumarnir allir.
Þeir liðast um ljómandi vegi
á sólbjörtum sumardegi.
Fyrir handan höfin blá
heiðan veit ég dag.
Þar sumarþrá mín athvarf á
eftir sólarlag.
Við fjölskyldan biðjum börn-
um Andreu og fjölskyldum þeirra
blessunar, minning um fallega og
góða systur lifir.
Guðrún Margrét
Tryggvadóttir.
Andrea Guðrún
Tryggvadóttir
✝ Magna Ás-mundsdóttir
fæddist að Ketils-
stöðum á Völlum
29. nóvember 1930.
Hún lést á sjúkra-
húsinu á Norðfirði
27. júní 2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ás-
mundur Sigmunds-
son, f. 10.12. 1874,
d. 7.11. 1957, og
Jóna Jarþrúður Jónsdóttir, f.
16.2. 1895, d. 15.4. 1978. Þá hús-
fólk á Ketilsstöðum. Systkini
hennar voru: Árni Hólm, f
15.11. 1916, d. 25.10. 1982,
bóndi að Skálanesi við Seyð-
isfjörð. Þórir, f. 10.9. 1918, d.
25.11. 1972, bóndi að Jaðri á
Völlum. Sigurveig, f. 20.4. 1920,
d. 30.12. 1980, saumakona í
Reykjavík. Guðný, f. 16.6. 1922,
d. 28.7. 1993, húsfreyja og
verkakona á Seyðisfirði. Ingi
sem þau ráku næstu árin. Eftir
það fór Magna að vinna við síld-
arsöltun, á sjúkrahúsinu og
frystihúsinu meðan þrek og
heilsa leyfði. Magna og Jón
eignuðust þrjú börn. Sambýlis-
maður hennar frá 1975 er Þór-
oddur Már Árnason vélvirki, f.
9.7. 1945 að Stálpastöðum í
Skorradal.
Börn Mögnu eru: Ása Jar-
þrúður Jónasdóttir, f. 26.3.
1949, sjúkraliði í Danmörku.
Hennar maður er Ove Kurt
Hansen vélvirki, f .4.2. 1945,
eiga þau einn son. Jóna Járnbrá
Jónsdóttir, f. 13.1. 1961, fisk-
vinnslukona á Norðfirði. Henn-
ar maður er Gísli Vigfús Ingva-
son sjómaður, f. 12.12. 1944,
eiga þau tvö börn. Ásmundur
Jónsson, f. 10.12. 1961, bifreiða-
stjóri í Garðabæ. Hans kona er
Rosemarie Barriga Jónsson
sundlaugarstarfsmaður, f.
17.10. 1972. Eiga þau tvær dæt-
ur. Jón Gunnar Jónsson bif-
reiðastjóri á Norðfirði, f. 18.7.
1963. Hans kona er Laicy Mör-
köre, f. 15.11. 1958, leikskóla-
starfsmaður á Norðfirði. Útför
hennar fór fram frá Norðfjarð-
arkirkju 5. júlí 2019.
Ragnar, f. 8.11.
1926, d. 12.4. 2006,
sjómaður og bóndi
að Skálanesi.
Þegar heimili
foreldra hennar
var leyst upp var
hún með móður
sinni í vinnu-
mennsku, mest á
bæjum í Skriðdal.
Árið 1951 festi fjöl-
skyldan kaup á
jörðinni Skálanesi og samein-
aðist aftur þar. 1949 eignaðist
hún dóttur með Jónasi Tryggva
Gunnarssyni, f. 15.7. 1927, d.
19.12. 2005, bifreiðastjóra frá
Vík í Mýrdal. Árið 1959 hóf hún
sambúð með Jóni Gunnari Sig-
fúsi Björgólfssyni matsveini, f.
29.9. 1931 á Húsvík, d. 19.4.
1971 á Norðfirði. Hófu þau sinn
búskap á Siglufirði. 1960 fluttu
svo til Norðfjarðar og tóku við
rekstri matsölunnar Matborgar
Elsku Magna. Þá er komið
að kveðjustund. Ég vil þakka
allar ánægjustundir sem við
höfum átt saman gegnum árin.
Þegar þú áttir erindi á höf-
uðborgarsvæðið þá gistir þú oft
hjá mér og settir ekki fyrir þig
þó ekkert væri gestaherbergið.
Ekki þótti þér verra þegar
Rúsla kom og kúrði hjá þér
enda voruð þið miklir mátar.
Margt var skrafað og skegg-
rætt og iðulega farið að líða á
nóttina þegar gengið var til
náða. Fróðlegt var að hlusta á
þig segja frá æsku og uppvexti
fyrir austan og hvernig lífið var
þá. Þú varst fróð og vel lesin og
kunnir að segja frá. Dvölinni
hjá ykkur bróður mínum fyrir
nokkrum árum mun ég seint
gleyma. Þegar ég kynntist svo
börnunum þínum, þá sannaðist
að sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni, hvert öðru elskulegra.
Ekki spillti fyrir okkar vináttu
sameiginlegt dálæti á kisum og
aldrei heyrðumst við öðruvísi
en að þú spyrðir hvernig mínar
hefðu það. Ég get alveg séð þig
fyrir mér í blómabrekkunni
með þín elskuðu Mjöll, Jeppa
og allar kisurnar í kring.
Elsku Magna, ég þakka þér
hvað þú varst mér hlý og góð
mágkona alla tíð, það er ómet-
anlegt.
Elsku bróðir minn, Ása,
Lilly, Ásmundur, Jón Gunnar
og fjölskyldur, ég syrgi með
ykkur. Góð kona er gengin,
minning hennar mun lifa með
okkur öllum sem þótti vænt um
hana. Við hittumst síðar, kæra
mágkona.
Helga.
Magna
Ásmundsdóttir