Morgunblaðið - 10.07.2019, Side 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Nýr stór humar
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa
Handknattleikskonan Harpa Sól-
veig Brynjarsdóttir, sem leikið hefur
með liði Selfyssinga undanfarin ár er
gengin í raðir danska B-deildarliðsins
Vendsyssel. Harpa er 22 ára gömul og
skoraði 58 mörk í 21 leik með Selfyss-
ingum í Olísdeildinni á síðustu leiktíð
þar sem hún var þriðji markahæsti
leikmaður liðsins. Hún er unnusta
landsliðsmannsins Ómars Inga
Magnússonar sem leikur með Aalborg
og varð danskur meistari í vetur.
Bikarmeistarar Stjörnunnar í körfu-
knattleik karla hafa samið við kanad-
íska skotbakvörðinn Kyle Johnston
um að leika með liðinu á komandi leik-
tíð. Johnston, sem er 1,95 metrar á
hæð og 31 árs gamall, er fæddur í Kan-
ada en er með breskt vegabréf. Hann
hefur leikið með landsliði Bretlands
frá 2011 og lék frá 2016 með London
Lightning þar sem hann varð tvisvar
kanadískur meistari.
Stefán Arnarson, þjálfari kvenna-
liðs Fram í handknattleik, hefur fram-
lengt samning sinn við félagið til
tveggja ára. Stefán hefur þjálfað Fram
frá 2014 en þjálfaði áður kvennalið
Vals í sex ár og undir hans stjórn varð
Valur fjórum sinnum Íslandsmeistari
og þrisvar sinnum bikarmeistari. Fram
varð Íslandsmeistari undir stjórn Stef-
áns árið 2017 og
varð bæði Ís-
lands- og
bikarmeistari
í fyrra.
Eitt
ogannað
12. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KR-ingar eru með sjö stiga forskot á
toppi Pepsi Max-deildar karla í fót-
bolta eftir vinnusigur þeirra á ÍBV í
Eyjum á laugardaginn, 2:1, og
óvæntan ósigur Breiðabliks gegn
HK í Kópavogsslagnum, 1:2, á
sunnudagskvöldið.
Þar með eru Vesturbæingarnir
orðnir að líklegum meistaraefnum
þó að Íslandsmótið sé aðeins hálfn-
að. Sjö stiga forskot getur þó vissu-
lega verið fljótt að fara. Gefum okk-
ur að KR vinni aðeins einn af næstu
fimm leikjum sínum og geri tvö jafn-
tefli, og verði þá með 34 stig þegar
fimm umferðum er ólokið. Á meðan
komist Stjarnan, Valsmenn eða FH-
ingar á flug, vinni flesta leiki sína og
verði komin með 30-32 stig. Breiða-
blik nái tíu stigum á þessum kafla og
verði þá með 32 stig. Þar með væri
þetta allt saman galopið fyrir loka-
sprettinn í deildinni.
En átta sigurleikir í röð gefa við-
komandi liði gríðarlegt sjálfstraust
og sagan er á bandi KR-inga. Frá
árinu 1985, þegar Framarar náðu
sjö stiga forystu í fyrri umferðinni
en misstu hana niður og enduðu að
lokum í fjórða sæti, hafa öll lið sem
hafa komist í svipaða stöðu á miðju
sumri farið alla leið og hampað
Íslandsbikarnum í mótslok.
Framarar lærðu af reynslunni og
urðu meistarar 1988 eftir að hafa
náð átta stiga forskoti í fyrri umferð.
ÍA var með níu stiga forskot 1995 og
FH náði níu stiga forskoti á þessum
tíma meistaraárin 2006 og 2009.
Mesta forskot sem lið hefur misst
niður er fjögurra stiga forskotið sem
FH var með á miðju sumri 2007, en
þá varð Hafnarfjarðarliðið að sjá á
eftir titlinum í hendur Vals í móts-
lok.
Fallbaráttan harðnaði heldur bet-
ur þegar HK vann Breiðablik. KA
hefur dregist niður í hana með
þremur ósigrum í röð og nú skilur
aðeins eitt stig Grindavík, KA, HK
og Víking að í áttunda til ellefta sæti.
Úr KR og ÍA til Vals
Valsmaðurinn Andri Adolphsson
var besti leikmaðurinn í 12. umferð-
inni að mati Morgunblaðsins, en
hann lék mjög vel í sigri Hlíðar-
endaliðsins á KA, 3:1, síðasta
fimmtudagskvöld. Hann lagði upp
fyrsta mark Vals fyrir Patrick
Pedersen og innsiglaði síðan sig-
urinn með þriðja markinu eftir góð-
an sprett frá hliðarlínu og inn í víta-
teig norðanmanna. Andri fékk 2 M
fyrir frammistöðu sína, eins og
Pedersen sem sneri enn og aftur til
Vals og var fljótur að setja mark sitt
á liðið og deildina.
Andri er 26 ára gamall kantmaður
sem lék með KR í yngstu flokkunum
en flutti á Akranes 12 ára gamall
sumarið 2005 og var þar í tæp tíu ár.
Andri lék fyrst 16 ára gamall með
meistaraflokki ÍA í 1. deild sumarið
2009 og spilaði í sex ár með Skaga-
mönnum. Hann gekk til liðs við Val í
ársbyrjun 2015 og hefur verið á
Hlíðarenda síðan, að undanskilinni
stuttri lánsdvöl á Akranesi vorið
2018. Andri hefur unnið tvo Íslands-
meistaratitla í röð með Val og varð
bikarmeistari með liðinu 2016. Hann
hefur gert 3 mörk í 11 leikjum í úr-
valsdeildinni í ár og samtals 9 mörk í
105 leikjum í deildinni og þar af eru
66 leikir og 7 mörk fyrir Val.
Markvörðurinn frá Suðureyri
Markvörðurinn Daði Freyr
Arnarsson úr FH var besti ungi
leikmaðurinn í 12. umferðinni að
mati Morgunblaðsins. Daði var afar
öruggur í marki FH í 1:0 sigrinum á
Víkingi og varði glæsilega frá
Kwame Quee úr besta færi leiksins.
Daði, sem er tvítugur, er frá
Suðureyri við Súgandafjörð og kom
16 ára gamall í mark BÍ/Bolungar-
víkur í 1. deild árið 2015. Hann gekk
til liðs við FH árið 2016 en lék síðan
með Vestra sem lánsmaður í 2.
deildinni 2017 og 2018 og var aðal-
markvörður liðsins bæði árin. Daði
hóf tímabilið sem þriðji markvörður
FH en fékk tækifæri eftir að Gunn-
ar Nielsen meiddist og Vignir Jó-
hannesson nýtti sitt tækifæri ekki
nógu vel. Daði, sem á að baki 15 leiki
með yngri landsliðum, hefur hins
vegar gert það í þeim fjórum leikjum
sem hann hefur spilað með FH.
Tveir með sinn 100. leik
Elfar Árni Aðalsteinsson varð
annar KA-maðurinn í sögunni til að
skora 20 mörk í efstu deild, á eftir
Þorvaldi Örlygssyni, þegar hann
gerði mark KA gegn Val á Hlíðar-
enda. Elfar lék þar sinn 100. leik í
deildinni, með KA og Breiðabliki, en
hann hefur spilað 140 leiki í neðri
deildunum með KA og Völsungi og
gert samtals 92 mörk í deildakeppn-
inni, 32 þeirra í efstu deild.
Hjörtur Logi Valgarðsson úr
FH lék einnig sinn 100. leik í efstu
deild hérlendis þegar FH vann Vík-
ing 1:0. Hann lék nákvæmlega 100
leiki í efstu deild Svíþjóðar með
Örebro og Gautaborg og 26 með
Sogndal í norsku úrvalsdeildinni.
Óskar Örn Hauksson nær sögu-
legum áföngum í hverri viku. Mark
hans í 2:1 sigri KR-inga í Eyjum
lyfti honum í 14. sætið á listanum yf-
ir markahæstu menn deildarinnar
frá upphafi með 73 mörk og hann fór
með því fram úr Pétri Péturssyni og
Steinari Jóhannssyni.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Óskar Örn Hauksson, KR 11
Ólafur Karl Finsen, Val 9
Aron Bjarnason, Breiðabliki 9
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 9
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 9
Alex Þór Hauksson, Stjörnunni 8
Ásgeir Börkur Ásgeirsson, HK 8
Guðmundur Kristjánsson, FH 8
Marcus Johansson, ÍA 8
Damir Muminovic, Breiðabliki 8
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 8
Björn Berg Bryde, HK 7
Brandur Olsen, FH 7
Helgi Valur Daníelsson, Fylki 7
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 7
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 7
Sölvi Geir Ottesen, Víkingi 7
Víðir Þorvarðarson, ÍBV 7
Leikmenn með 6 M: Andri Adolphs-
son, Val, Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki,
Ásgeir Marteinsson, HK, Einar Logi
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 8
Elfar Árni Aðalsteinsson, KA 6
Ólafur Karl Finsen, Val 5
Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 5
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 5
Valdimar Þór Ingimundarson, Fylki 5
Óskar Örn Hauksson, KR 5
Pálmi Rafn Pálmason, KR 5
Markahæstir
KR 66
Breiðablik 59
Stjarnan 56
ÍA 54
Valur 54
HK 51
Fylkir 49
KA 48
FH 47
Víkingur R. 46
Grindavík 44
ÍBV 33
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
12. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
4-4-2
Einarsson, ÍA, Elfar Árni Aðalsteinsson,
KA, Gunnar Þorsteinsson, Grindavík,
Hannes Þór Halldórsson, Val, Höskuldur
Gunnlaugsson, Breiðabliki, Jónatan Ingi
Jónsson, FH, Kolbeinn Birgir Finnsson,
Fylki, Kristinn Jónsson, KR, Marc McAus-
land, Grindavík, Pálmi Rafn Pálmason, KR
Daði Freyr Arnarsson
FH
Kári Árnason
Víkingi
Albert
Hafsteinsson
ÍA
Atli Arnarson
HK Arnþór Ingi
Kristinsson
KR
Ásgeir Börkur
Ásgeirsson
HK
Finnur Tómas
Pálmason
KR
Andri Adolphsson
Val
Patrick Pedersen
Val
Marcus Johansson
ÍA
Josip Zeba
Grindavík
3 2
3
2
2
Sagan á bandi KR-inga
Ekki gerst í 34 ár að lið hafi tapað niður slíku forskoti í deildinni Andri
Adolphsson besti leikmaður 12. umferðar og Daði Freyr besti ungi leikmaðurinn
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Bestur Andri Adolphsson lék mjög
vel með Val gegn KA.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öruggur Daði Freyr Arnarsson
stendur sig vel í marki FH.