Morgunblaðið - 10.07.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Undanfarnar vikur hefur
dómgæsla í efstu deild kvenna
í fótbolta verið nokkuð áber-
andi í þessum pistli. Einn sam-
starfsfélagi lýsti yfir að dóm-
gæslan í efstu deild kvenna í
sumar væri vægast sagt undir
meðallagi. Annar velti því fyrir
sér hvort KSÍ liti svo á að betra
væri að gera mistök í kvenna-
deildinni.
Ég var alls ekki sammála
öllu sem kom fram í þeim pistl-
um. Tilfinning mín var sú að
dómgæslan í efstu deild kvenna
hefði heilt yfir verið góð og ég
furðaði mig á þessum skrifum.
Nú hef ég reiknað meðal-
einkunn dómara í sumar sam-
kvæmt einkunnagjöf Morgun-
blaðsins. Meðaleinkunn dómara
í efstu deild kvenna er örlítið
hærri en í efstu deild karla.
Leikir eru betur dæmdir í efstu
deild kvenna að mati Morg-
unblaðsins.
Í 39 leikjum í efstu deild
kvenna í sumar er meðal-
einkunn dómara í Morgun-
blaðinu 6,97 af 10. Aðeins einu
sinni hefur dómari fengið 5 og
aldrei hefur einkunnin verið
lægri. Hæsta einkunnin er 9.
Í 60 leikjum í efstu deild
karla er meðaleinkunnin 6,8.
Fjórum sinnum hafa dómarar
fengið 5, sex sinnum 4 og einu
sinni 3. Þrisvar hafa dómarar
fengið 9 í karladeildinni. Að
sjálfsögðu er þetta ekki heilagt,
þar sem fleiri leikir eru í efstu
deild karla, en oftar eru leikir í
karladeildinni mjög illa dæmdir.
Fá dómarar og KSÍ ósann-
gjarna gagnrýni þegar það eru
mistök í kvennadeildinni? Auð-
vitað hafa verið slæm mistök í
efstu deild kvenna í sumar og
sum ráðið úrslitum. Þau eru
hins vegar ekki endilega fleiri
en í efstu deild karla.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
EVRÓPUKEPPNI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valsmenn mæta slóvensku meist-
urunum í Maribor í 1. umferð und-
ankeppni Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu á Origo-vellinum á
Hlíðarenda í dag í fyrri leik liðanna.
Síðari leikur liðanna fer fram á
Ljudski-vellinum í Maribor eftir
viku, þann 17. júlí næstkomandi.
Félagið Maribor var stofnað árið
1960 og er sögufrægasta lið Slóveníu
en liðið er frá samnefndri borg þar
sem rúmlega 94.000 manns búa.
Borgin er í norðausturhluta Slóven-
íu og er næstfjölmennasta borg
landsins á eftir höfuðborginni Lju-
bljana.
Maribor hefur fimmtán sinnum
orðið landsmeistari í Slóveníu frá því
að landið sagði skilið við sambands-
lýðveldið Júgóslavíu og lýsti yfir
sjálfstæði árið 1991. Fyrst árið 1997
og síðast í vor þegar liðið vann deild-
ina með nokkrum yfirburðum eða 9
stiga mun. Þá hefur Maribor níu
sinnum orðið bikarmeistari frá 1991,
síðast árið 2016, en liðið hefur átt
fast sæti í Evrópukeppnum allt frá
árinu 1992.
Rík hefð í Evrópukeppni
Liðið komst síðast í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar tímabilið
2017-2018 þegar liðið lagði meðal
annars FH úr Hafnarfirði á leið
sinni í riðlakeppnina. Fyrri leik lið-
anna á Ljudski-vellinum í Slóveníu
lauk með 1:0-sigri Maribor þar sem
Marcos Tavares skoraði sigurmark
leiksins á 54. mínútu. Maribor vann
svo dramtískan 1:0-sigur á Kapla-
krikavelli í seinni umferðinni þar
sem Tavares var aftur á ferðinni
þegar hann tryggði Maribor sigur.
Markið skoraði hann í uppbótartíma
eftir skyndisókn þegar Hafnfirð-
ingar höfðu fært alla sína menn
fram og freistað þess að jafna metin
og knýja fram framlengingu í ein-
víginu.
Maribor lagði svo Hapoel Beer
Sheva frá Ísrael í umspilinu þar sem
slóvenska liðið fór áfram á útivall-
armarki. Maribor dróst í E-riðil
riðlakeppni Meistaradeildarinnar
ásamt Liverpool, Sevilla og Spartak
Moskvu. Maribor endaði í neðsta
sæti riðilsins með 3 stig en liðið
gerði jafntefli við Spartak Moskvu á
bæði heimavelli og útivelli og 1:1-
jafntefli við Sevilla í Slóveníu.
Í fyrra fór liðið í undankeppni
Evrópudeildarinnar þar sem liðið
féll úr leik í 3. umferðinni eftir tap
gegn skoska liðinu Rangers. Mari-
bor lagði albanska liðið Partizani í
fyrstu umferðinni, samanlagt 3:0, og
Shikhura Sackhere frá Georgíu 2:0 í
annarri umferðinni. Steven Gerrard
og lærisveinar hans í Rangers
reyndust hins vegar of stór biti í
þriðju umferðinni þar sem skoska
liðið vann samanlagðan 3:1-sigur.
Fjölbreyttur leikmannahópur
Leikmannahópur Maribor í dag
samanstendur af bæði ungum og
efnilegum leikmönnum í bland við
eldri og reynslumeiri leikmenn.
Hryggjarsúla liðsins er skipuð
reynslumestu leikmönnum liðsins,
þeim Jasmin Handanovic, Marko
Suler, Dare Vrsic og Marcos Tav-
ares, en það er farið að síga á seinni
hlutann á ferlinum hjá þeim öllum.
Markmaðurinn Handanovic er 41
árs, miðvörðurinn Suler er 36 ára
gamall, miðjumaðurinn Vrsic verður
35 ára í september og Tavarez er 35
ára gamall.
Í hópnum eru einnig öflugir leik-
menn á borð við hinn 23 ára gamala
framherja Luka Zahovic sem skor-
aði 18 mörk í 32 leikjum í slóvensku
1. deildinni á síðustu leikíð. Miðvörð-
urinn Sasa Ivkovic er 26 ára gamall
en hann skoraði sjö mörk í 35 leikj-
um á síðustu leiktíð. Þá átti hinn 23
ára gamli Dino Hotic frábært tíma-
bil en hann skoraði 9 mörk í 29 leikj-
um fyrir Maribor í deildinni en hann
leikur sem miðjumaður.
Valsmanna bíður verðugt verkefni
að reyna að slá Slóveníumeistara
Maribor úr leik. Liðið veit upp á hár
hvað þarf til þess að ná árangri í
Evrópukeppni og reynslan í liðinu er
mikil. Að sama skapi eru Slóveníu-
meistararnir að koma beint inn í
undankeppnina eftir mánaðarlangt
undirbúningstímabil og það er eitt-
hvað sem Valsmenn verða að nýta
sér í leiknum í kvöld.
Erfitt hjá Val gegn sigur-
sælasta liði Slóveníu
Meistararnir í Maribor hafa leikið samfleytt í Evrópukeppni frá árinu 1992
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reyndur Varnarmaðurinn Aleksander Rajcevic hefur leikið með Maribor í níu ár og unnið átta meistaratitla með
liðinu og á hér í höggi við Steven Lennon í leiknum gegn FH í Kaplakrika fyrir tveimur árum.
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Stemningin í liðinu er mjög góð og
við erum spenntir fyrir komandi
verkefni. Úrslitin hafa verið að
detta með okkur upp á síðkastið og
það er létt yfir öllu liðinu þessa
dagana,“ sagði Hannes Þór Hall-
dórsson, markmaður Vals, í samtali
við Morgunblaðið í gær, en Vals-
menn mæta Maribor í fyrri leik lið-
anna í 1. umferð undankeppni
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu á Origo-vellinum á Hlíðar-
enda í kvöld.
„Það er oft þannig í þessum
Evrópukeppnum að þeim fylgir
ákveðin óvissa og þú veist ekki al-
veg hvað þú ert að fara út í. Við vit-
um samt sem áður að við erum að
mæta mjög erfiðum andstæðingum
og það verður hægara sagt en gert
að slá þá úr leik. Að sama skapi vit-
um við að það er allt hægt í fótbolta
og ef við spilum toppleik eigum við
að geta náð í úrslit gegn þeim.
Markmiðið er allan tímann að fara
áfram í næstu umferð.“
Hannes fékk smjörþefinn af
Evrópudeild UEFA á síðustu leiktíð
þar sem fyrrverandi félag hans
Qarabag fór alla leið í riðlakeppn-
ina en hann telur Maribor vera í
svipuðum gæðaflokki og lands-
meistararnir frá Aserbaídsjan.
„Þetta er að öllum líkindum mjög
svipað lið að styrkleika. Bæði lið
hafa verið fastagestir í riðlunum í
Evrópukeppnunum á undanförnum
árum en við höfum trú á okkur. Það
eru margir reynsluboltar í Valslið-
inu sem vita nákvæmlega út á hvað
þessir Evrópuleikir ganga og við
teljum okkur fullfæra um að ná í
góð úrslit.“
Í svipuðum gæða-
flokki og Qarabag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reyndur Hannes Þór Halldórsson
mætir Maribor á Hlíðarenda.