Morgunblaðið - 10.07.2019, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
KNATTSPYRNA
Pepsi Max-deild kvenna
ÍBV – Selfoss ............................................ 0:1
KR – Stjarnan........................................... 1:0
Breiðablik – Fylkir................................... 5:0
Staðan:
Valur 9 8 1 0 33:7 25
Breiðablik 9 8 1 0 27:7 25
Þór/KA 8 4 2 2 13:13 14
Selfoss 9 4 1 4 9:13 13
Stjarnan 9 3 1 5 5:14 10
ÍBV 8 3 0 5 13:12 9
KR 9 2 1 6 8:18 7
Fylkir 8 2 1 5 7:21 7
Keflavík 8 2 0 6 14:17 6
HK/Víkingur 7 2 0 5 5:12 6
Meistaradeild karla
Undankeppni, 1. umferð, fyrri leikir:
Astana – CFR Cluj ................................... 1:0
Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik-
inn með Astana.
Ararat-Armenia – AIK ........................... 2:1
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á hjá AIK
á 65. mínútu.
HJK Helsinki – HB Þórshöfn ................. 3:0
Heimir Guðjónsson þjálfar HB. Brynjar
Hlöðversson kom af bekknum á 81. mínútu.
Nömme Kälju – Shkëndija ...................... 0:1
Sarajevo – Celtic....................................... 1:3
Dudelange – Valletta ............................... 2:2
Sudeva – Rauða stjarnan......................... 0:0
The New Saints – Feronikeli .................. 2:2
Evrópudeild karla
Undankeppni, 1. umferð, fyrri leikir:
St Joseph’s – Rangers.............................. 0:4
Gzira United – Hajduk Split ................... 0:2
CSKA Sofia – OFK Titograd .................. 4:0
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu, 1. umferð:
Origo-völlur: Valur – Maribor.................. 20
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Þórsvöllur: Þór/KA – HK/Víkingur......... 18
3. deild karla:
Sindravellir: Sindri – Vængir Júpíters.... 17
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Einherji............ 19
KR-völlur: KV – Kórdrengir .................... 20
Fagrilundur: Augnablik – Álftanes ......... 20
Borgarnes: Skallagrímur – Reynir S ...... 20
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Fífan: Augnablik – FH......................... 19.15
Í KVÖLD!
EM U18 kvenna
B-keppni í Norður-Makedóníu:
Sviss – Ísland ........................................ 86:35
Ísland hefur tapað fyrstu þremur leikj-
um sínum og mætir Búlgaríu í síðasta leik
riðilsins í dag.
KÓPAVOGUR/EYJAR/
VESTURBÆR
Björn Már Ólafsson
Arnar Gauti Grettisson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Tímasetning marka getur skipt
miklu í fótbolta. Bestu mörkin koma
oftast í upphafi eða lok hvers hálf-
leiks. Tímasetning marka Breiða-
bliks var því nær fullkomin þegar
liðið vann 5:0-sigur á Fylki í 9. um-
ferð Pepsi Max-deildar kvenna í
knattspyrnu í gær því Berglind
Björg Þorvaldsdóttir kom Blikum
yfir strax á 5. mínútu. Því þurftu
Blikar ekki að sýna þolinmæði til að
brjóta niður vörn Fylkis.
Annað mark Blika kom í lok fyrri
hálfleiks og var það þungt högg fyr-
ir Fylkisliðið sem hafði barist nokk-
uð vel og skapað sér færi, þótt Blik-
arnir væru sterkari aðilinn. Strax í
upphafi seinni hálfleiks gerðu Blikar
svo út um leikinn með þremur
mörkum til viðbótar.
Fylkisliðið er í meiðslavandræð-
um líkt og þjálfari liðsins hafði orð á
eftir leik. Fyrri hálfleikurinn var
þeirra tækifæri til að skora mörk en
í þeim síðari reyndist þeim erfitt að
stíga framar á völlinn gegn vel spil-
andi Breiðabliksliði. Sérstaklega
voru þar sprækar þær Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir og Alexandra Jó-
hannsdóttir í liði Blika. Spilið fór
mest fram á hægri kanti Blika en á
vinstri kantinum sýndi Agla María
Albertsdóttir einstaklings-
frammistöðu þegar á reyndi.
Leiksins verður þó líka minnst
fyrir það hversu margar horn-
spyrnur voru og tók það eiginlega
taktinn úr leiknum á köflum að liðin
þurftu endurtekið að stilla upp í
þetta skemmtilega fasta leikatriði.
Kapphlaup Blika og Vals heldur því
áfram og eru liðin hnífjöfn með 25
stig, en mörkin voru Blikum mik-
ilvæg. Bæði hafa fengið á sig sjö, en
Valur hefur skorað 33 gegn 27 frá
Blikum. Það gæti reynst mikilvægt
þegar upp er staðið. bmo@mbl.is
Selfoss réði betur við aðstæður
Selfoss vann Suðurlandsslaginn
sem háður var í Vestmannaeyjum
þegar gestirnir unnu ÍBV, 1:0 á Há-
steinsvelli. Barbára Sól Gísladóttir
skoraði eina mark leiksins strax á
15. mínútu.
Mikill vindur var í Vest-
mannaeyjum sem gerði leikmönnum
beggja liða gríðarlega erfitt fyrir.
Það voru þó Selfyssingar sem réðu
mun betur við aðstæður og náðu að
halda boltanum vel innan liðsins í
fyrri hálfleik, þrátt fyrir mikinn
mótvind á sig, og uppskáru þær
mark eftir gott spil.
Þetta var annar 1:0-sigur Selfoss í
röð sem er gríðarlega sterkt, en það
er alltaf gott að halda hreinu og sér-
staklega nokkra leiki í röð líkt og
liðið er að gera. Með sigrinum
styrktu Selfyssingar stöðu sína í efri
hluta deildarinnar, en þær sitja í
fjórða sæti og eru tveimur stigum
fyrir ofan Stjörnukonur sem koma
næstar.
Eyjakonur eru hins vegar ekki í
jafn góðum málum, en þetta var
annar tapleikur þeirra í röð á heima-
velli og þær sitja í sjötta sætinu, nú
fjórum stigum fyrir aftan Selfoss.
sport@mbl.is
Mark sem gæti breytt öllu
KR vann afar mikilvægan 1:0-
heimasigur á Stjörnunni í Vestur-
bænum. Sigurmarkið kom á loka-
mínútunni frá Grace Maher, ástr-
ölskum miðjumanni KR-inga.
Báðum liðum hefur gengið illa að
skora í sumar og það sást í gær. Þau
skiptust á að komast í góðar stöður,
en fara svo illa að ráði sínu. Hver
efnilega sóknin á fætur annarri fór
forgörðum. Munurinn var sá að KR
komst yfirleitt nær marki Stjörn-
unnar, áður en sóknirnar runnu út í
sandinn. Ef annað liðið átti sigurinn
skilið, þá var það KR. Sóknarleikur
liðsins var aðeins kröftugri. Gloria
Douglas lítur vel út í framlínunni og
er kraftmikil og Ásdís Karen Hall-
dórsdóttir er alltaf ófeimin við að
sækja að marki andstæðinganna.
Vörn KR átti svo frekar auðveldan
dag gegn bitlausu liði Stjörnunnar.
Stjörnukonur náðu stundum fín-
um spilköflum, en svo fóru sóknar-
mennirnir á taugum þegar markið
nálgaðist. Ekkert lið hefur beðið
eins lengi eftir sigri og marki eins
og Stjarnan og liðin fyrir neðan eru
að nálgast. Liðið er aðeins fjórum
stigum frá fallsæti og þarf að hafa
varann á. KR er hins vegar að bíta
vel frá sér og ná í sterk úrslit hér og
þar. Fyrir vikið er liðið verðskuldað
komið úr fallsæti.
johanningi@mbl.is
Fimm mikil-
væg mörk í
titilbaráttunni
Blikar bættu markatölu sína vel
Allt í hnút á botninum eftir sigur KR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvenna Alexandra Jóhannsdóttir með boltann fyrir Blika, en hún skoraði
tvö mörk án þess að Stefanía Ragnarsdóttir, Fylki, næði að stöðva hana.
0:1 Barbára Sól Gísladóttir 15.
I Gul spjöldCaroline Van Slambrouck,
Clara Sigurðardóttir (ÍBV), Hólm-
fríður Magnúsdóttir, Magdalena
Anna Reimus (Selfossi).
Dómari: Gunnar O. Hafliðason, 5.
Áhorfendur: 149.
ÍBV – SELFOSS 0:1
M
Caroline Van Slambrouck (ÍBV)
Helena Jónsdóttir (ÍBV)
Emma Kelly (ÍBV)
Anna María Friðgeirsd. (Selfossi)
Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi)
Grace Rapp (Selfossi)
Hólmfríður Magnúsd. (Selfossi)
Kelsey Wys (Selfossi)
1:0 Berglind Björg Þorvaldsd. 5.
2:0 Agla María Albertsdóttir 44.
3:0 Alexandra Jóhannsdóttir 52.
4:0 Berglind Björg Þorvaldsd. 53.
5:0 Alexandra Jóhannsdóttir 68.
I Gul spjöldKyra Taylor (Fylki).
MM
Karólína Lea Vilhjálmsd. (Breið.)
BREIÐABLIK – FYLKIR 5:0
M
Alexandra Jóhannsdóttir (Breið.)
Andrea Rán Hauksdóttir (Breið.)
Ásta Eir Árnadóttir (Breiðablik)
Berglind B. Þorvaldsdóttir (Breið.)
Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylkir)
Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylkir)
Stefanía Ragnarsdóttir (Fylkir)
Dómari: Gunnar F. Róbertsson, 7.
Áhorfendur: 363.
1:0 Grace Maher 90.
I Gul spjöldLaufey Björnsdóttir, Grace
Maher (KR), Edda María Birgisdóttir,
Sigurður Már Ólafsson liðsstjóri
(Stjörnunni).
Dómari: Steinar Berg Sævarsson, 6.
Áhorfendur: 223.
KR – STJARNAN 1:0
M
Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR)
Birna Kristjánsdóttir (KR)
Gloria Douglas (KR)
Grace Maher (KR)
Lilja Dögg Valþórsdóttir (KR)
Berglind Hrund Jónasd. (Stjörn.)
Anna María Baldursd. (Stjörnunni)
María Sól Jakobsdóttir (Stjörn.)