Morgunblaðið - 10.07.2019, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, gerði sér lítið fyrir í gær
og skoraði þrennu í síðasta æfingaleik
CSKA Moskva fyrir keppnistímabilið í
Rússlandi. Hann gerði þrjú fyrstu
mörkin í 4:0 sigri CSKA á Rubin Kaz-
an. Keppni í rússnesku úrvalsdeildinni
hefst um næstu helgi en CSKA leikur
við Krilia Sovetov á útivelli í Samara í
fyrstu umferðinni á sunnudaginn.
Hlín Eiríksdóttir skoraði annað
mark Vals í 5:1 sigrinum á Keflavík í úr-
valsdeild kvenna í knattspyrnu í fyrra-
kvöld, ekki Margrét Lára Viðarsdóttir
eins og sagt var í blaðinu í gær.
Jóhann Berg Guðmundsson fékk
nýjan liðsfélaga hjá enska knatt-
spyrnuliðinu Burnley í gær þegar fé-
lagið gekk frá kaupunum á enska
framherjanum Jay Rodriguez frá West
Brom. Hann er 29 ára gamall og kost-
aði Burnley 10 milljónir punda.
Íslenska U18 ára landslið kvenna í
körfuknattleik tapaði þriðja leik sínum
á Evrópumótinu sem fram fer
í Norður-Makedóníu
þegar það mætti
Sviss í gær. Sviss
vann öruggan
sigur,
86:35,
en Ólöf
Rún
Óladótt-
ir fór fyrir
íslenska liðinu
með 10 stig. Ísland
mætir Búlgaríu í
dag sem einnig
hefur tapað öllum
sínum leikjum.
Eitt
ogannað
HANDBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þrjú íslensk lið, Selfoss, FH og
Haukar, taka þátt í síðustu útgáfunni
af EHF-keppni karla í handknattleik
sem hefst í lok ágúst og lýkur í maí-
mánuði vorið 2020. Þessi keppni
breytist í Evrópudeildina, European
Handball League, sem hleypt verður
af stokkunum með öðru fyrir-
komulagi haustið 2020.
Selfyssingar, sem ekki fengu að
senda lið í Meistaradeild Evrópu þar
sem ekkert löglegt keppnishús er á
Íslandi, hefja keppni í 2. umferð í
október og munu þar mæta ein-
hverju liðanna sem komast áfram úr
1. umferðinni.
Mögulega FH eða Haukum, sem
bæði spila í 1. umferðinni en þar er
FH í efri styrkleikaflokki og Haukar
í þeim neðri.
FH gæti þar m.a. dregist gegn
West Wien, liði Guðmundar Hólmars
Helgasonar í Austurríki, Winterthur
frá Sviss, Malmö frá Svíþjóð og hinu
fornfræga liði Metaloplastika frá
Serbíu, svo einhver séu nefnd.
Haukar gætu m.a. mætt Zaporoz-
hye frá Úkraínu, Vojvodina frá Serb-
íu, Riko Ribnica frá Slóveníu, Alpla
Hard frá Austurríki eða Plzen frá
Tékklandi.
Skjern í flokki með Selfossi
Í 2. umferð bíða svo, auk Selfyss-
inga, lið á borð við Skjern frá Dan-
mörku, með Patrek Jóhannesson,
Elvar Örn Jónsson og Björgvin Pál
Gústavsson innanborðs, Ademar
León frá Spáni, Arendal frá Noregi,
Gorenje frá Slóveníu og Benfica frá
Portúgal, svo einhver séu nefnd.
Sextán bestu liðin hefja keppni í 3.
umferð en í þeim hópi eru RN Löwen
(Alexander Petersson), Magdeburg,
Melsungen, Nantes, Bjerringbro/
Silkeborg (Þráinn Orri Jónsson),
Tvis Holstebro, Chambéry, Füchse
Berlín og Nimes.
Valsmenn fimmtu sterkastir
Valsmenn leika í Áskorendabikar
karla, sem breytist í EHF-bikarinn
haustið 2020. Eftir góða frammistöðu
fyrir tveimur árum eru þeir taldir
fimmta sterkasta liðið og hefja
keppni í 3. umferð um miðjan nóv-
ember en þar munu þeir mæta liði
sem fer áfram úr 2. umferð. Í þeim
hópi eru m.a. Alingsås frá Svíþjóð
(Aron Dagur Pálsson), Drammen frá
Noregi (Óskar Ólafsson), Bregenz
frá Austurríki, Karvina og Dukla
Prag frá Tékklandi, Maribor frá
Slóveníu, svo einhver séu nefnd. Níu
sterkustu handboltaþjóðir Evrópu,
samkvæmt styrkleikalista hverju
sinni, mega ekki senda lið í Áskor-
endabikarinn.
Valur gegn Hildigunni?
Eina íslenska kvennaliðið í Evr-
ópukeppni í vetur er Valur sem fer í
EHF-bikarinn en þar verður
keppnisfyrirkomulagi breytt að ári
eins og hjá körlunum.
Valskonur leika í 1. umferð í sept-
ember og eru í neðri styrkleika-
flokki. Þær geta m.a. dregist gegn
Bayer Leverkusen frá Þýska-
landi, sem Hildigunnur Einars-
dóttir gekk til liðs við í sumar,
Byåsen frá Noregi, Craiova frá
Rúmeníu, Skuru frá Svíþjóð,
Quintus frá Hollandi, Zaglebie
Lubin frá Póllandi, Besancon frá
Frakklandi og fleiri sterkum liðum.
Dregið verður til fyrstu umferð-
anna í öllum Evrópumótunum á
þriðjudaginn kemur, 16. júlí.
Fimm lið fara í Evrópukeppni
FH og Haukar fara í 1. umferð EHF-bikarsins en Selfoss beint í 2. umferð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
EHF-bikarinn Selfoss og Haukar gætu hugsanlega mæst í 2. umferðinni.
Tryggvi Snær Hlinason, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er form-
lega orðinn leikmaður Zaragoza á
Spáni en félagið kynnti hann til
leiks í gær. Tryggvi, sem er 21 árs
gamall miðherji, var samnings-
bundinn Valencia tvö síðustu ár en
var lánsmaður hjá Obradorio á síð-
ustu leiktíð. Öll þessi félög leika í
spænsku ACB-deildinni. Zaragoza
hafnaði þar í sjötta sæti á síðasta
tímabili, Valencia í fjórða sæti og
Obradorio í fimmtánda sæti af átján
liðum. Zaragoza leikur í Meist-
aradeild Evrópu í vetur. vs@mbl.is
Tryggvi staðfestur
hjá Zaragoza
Morgunblaðið/Hari
Spánn Tryggvi Snær Hlinason leik-
ur í Meistaradeildinni í vetur.
Knattspyrnukonan Guðmunda Brynja Óla-
dóttir vonast til þess að vera orðin heil heilsu
þegar lið hennar KR mætir Þór/KA í undan-
úrslitum Mjólkurbikarsins 20. júlí, en þetta
staðfesti hún við Morgunblaðið í gær. Guð-
munda var borin af velli í 1:0-sigri KR gegn
Tindastóli í átta liða úrslitum bikarkeppn-
innar á Meistaravöllum í lok júní og í fyrstu
var óttast að hún væri með slitið krossband.
„Ég fór í myndatöku í fyrradag þar sem allt
leit vel út og bæði krossbönd voru heil og lið-
þófinn leit vel út. Ég hitti lækni í gær og mun
taka því rólega á næstu dögum en mark-
miðið er að ná bikarleiknum,“ sagði Guð-
munda við Morgunblaðið. bjarnih@mbl.is
Krossböndin eru
heil hjá Guðmundu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
KR Guðmunda Brynja Óla-
dóttir meiddist í lok júní.
Tveir leikmenn voru í gær úrskurðaðir í þriggja leikja
bann fyrir „ofsafengna framkomu“ eins og það er orðað
í niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Um eru að
ræða tvo leikmenn Afríku í 4. deild karla í knattspyrnu,
Bartlomiej Broda og Lukman Abidoye, en þeir voru
reknir af velli í 10:1-tapi Afríku fyrir Hvíta riddaranum
á dögunum. Þá var félagið sektað um 10 þúsund krónur.
Þeir voru þó ekki einu leikmenn 4. deildar sem fengu
bann fyrir ofsafengna framkomu, því Richard Már Guð-
brandsson, leikmaður Úlfanna, fékk tveggja leikja bann
með þeim rökstuðningi eftir rautt spjald í tapi fyrir KM.
Tveir leikmenn í efstu deild karla voru úrskurðaðir í
eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. Guðmundur Kristjánsson,
leikmaður FH, missir af leik liðsins gegn ÍBV í Eyjum á laugardaginn og
Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindavíkur, verður fjarri góðu gamni þeg-
ar Grindvíkingar taka á móti Skagamönnum á mánudagskvöld.
yrkill@mbl.is
Þrisvar ofsafengin framkoma
Brottvísun.
Pepsi Max-deild karla í knatt-
spyrnu er rúmlega hálfnuð og 1.127
áhorfendur hafa verið að meðaltali
á leik í deildinni. 11. umferðin er sú
best sótta hingað til, en þá voru
8.207 áhorfendur á leikjunum sex.
Meistaravellir KR-inga trekkja
mest að, en þar mæta að meðaltali
1.658 manns á leik. Næst kemur
Breiðablik með 1.593 manns á
Kópavogsvelli. Leikur þeirra í
Vesturbænum er einmitt sá fjöl-
mennasti í sumar, en 3.012 áhorf-
endur voru þá viðstaddir.
Meistaravellir
trekkja að
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
KR Toppliðið hefur fengið flesta
áhorfendur það sem af er í sumar.