Morgunblaðið - 10.07.2019, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Mér finnst mikilvægt að þeir kynn-
ist sænskum almenningi og sænskur
almenningur kynnist þeim,“ segir
sænski sendiherrann Håkan Juholt,
sem skipulagt hefur tónleika-
ferðalag íslensku hljómsveitarinnar
Spottanna um Svíþjóð. Eggert Jó-
hannsson, söngvari og gítarleikari,
leiðir hljómsveitina en með honum
spila þeir Einar Sigurðsson á bassa,
Karl Pétur Smith á trommur og
Magnús R. Einarsson á gítar. Spott-
arnir munu halda 10 tónleika í
Suður- og Vestur-Svíþjóð. Þeir hita
upp með tónleikum í Norræna hús-
inu á morgun 11. júlí, kl. 20, áður en
haldið verður utan.
Vreeswijk í hávegum hafður
Spottarnir munu spila íslenska og
sænska vísnatónlist í bland, segir
Juholt. Á efnisskrá verður mikið af
tónlist Cornelis Vreeswijk, sem var
sænskur söngvari og lagahöfundur
af hollenskum uppruna, þekktur fyr-
ir vísnatónlist sína. Auk þess spilar
hljómsveitin íslensk þjóðlög sem og
gömul klassísk sænsk þjóðlög. Egg-
ert Jóhannsson, söngvari hljóm-
sveitarinnar, stofnaði hana í kring-
um Vreeswijk og sögu hans, að sögn
Juholts. „Ég er sjálfur mikill aðdá-
andi Vreeswijk. Ég hitti hann og sá
hann spila mikið í kringum 1980. Ég
dáist að tónlist hans, frásögnunum
og textunum, hvernig hann lýsir því
hvað það er að vera mennskur. Hann
lýsir mennskunni á ofboðslega fal-
legan máta. Tónlist hans og textar
skerpast enn frekar í meðförum
Spottanna,“ segir Juholt, sem telur
hljómsveitina gera tónlist Cornelis
Vreeswijk og annarri vísnatónlist
góð skil.
„Spottarnir eru alveg frábær
hljómsveit. Tónlistarmennirnir eru
mjög góðir og söngvarinn Eggert
gefur þjóðlögunum persónuleika
sinn og nærveru og mér þykir mikið
til þess koma,“ segir hann og bætir
við: „Spottarnir styrkja vísurnar og
frásagnirnar.“
Sendiherra kippir í Spotta
Hljómsveitin Spottarnir heldur í ferðalag um Svíþjóð Sendiherrann Håkan
Juholt skipuleggur Spila tónlist Cornelis Vreeswijk og aðra vísnatónlist
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðafélagar Sænski sendiherrann Håkan Juholt ásamt Magnúsi R. Einarssyni og Eggerti Jóhannssyni.
Juholt segir ríka ástæðu fyrir því
að Spottarnir spili í Svíþjóð, „Þar
sem vísnahefðin er sterk í Svíþjóð og
sterk á Íslandi er mikilvægt fyrir
mig, sem hef það hlutverk sem
sendiherra að styrkja tengsl tveggja
landa, að löndin uppgötvi hvort ann-
að enn frekar. Ég er mjög ánægður
með að þetta geti orðið að veru-
leika.“
Spáir nýjum aðdáendum
Sendiherrann segist vera glaður
yfir því að hafa fengið að vera með í
því að skipuleggja þessa tónleika-
ferð. „Það er mikil eftirvænting í
Svíþjóð og margir vilja hlusta á þá.
Ég held að Spottarnir muni eignast
marga nýja aðdáendur þar,“ segir
hann.
Spottarnir ljúka tónleikaferð sinni
með því að spila á stórri hátíð í
Floda, sem er utan við Gautaborg,
en það segir Juholt hljómsveitina
hafa skipulagt sjálfa. Þegar hann
komst að því að Spottarnir ætluðu
þangað fannst honum upplagt að
skipuleggja með þeim tónleikaferð
og úr varð þessi rúmlega viku langi
túr.
„Mitt hlutverk í þessu öllu er að
ég spurði Eggert hvort þeir vildu
fara í tónleikaferðalag um Svíþjóð
og hann svaraði að það vildu þeir
mjög gjarnan. Svo hafði ég samband
við skipuleggjendur, mest í þeim
hluta Svíþjóðar sem ég er frá. Ég er
frá Oskarshamn og talaði meðal
annars við fólk þar.“
Sendiherrann sjálfur fylgir band-
inu hluta leiðarinnar. Hann verður í
það minnsta með í för þegar Spott-
arnir spila í Västervik og heimabæ
hans, Oskarshamn.
Spottarnir hefja tónleika-
ferðalag sitt í Norræna húsinu
annað kvöld, fimmtudaginn 11.
júlí, kl. 20. Fyrstu tónleikar
þeirra á sænskri grundu verða
13. júlí í Linköping. Hljómsveitin
heldur því næst til Västervik og
heimabæjar sendiherrans Ju-
holt, Oskarshamn. Spottarnir
halda síðan til Hultsfred og
Karlskrona og lýkur ferðalaginu
á tónlistarhátíð í Floda 20. júlí.
Heimsækja
sex staði
TÓNLEIKARÖÐ Í SVÍÞJÓÐ
Daydreaming er heiti sýningar
myndlistarkonunnar Jelenu Antic
sem verður opnuð í Grafíksalnum,
Tryggvagötu 17, Hafnarmegin, í
dag, miðvikudag, kl. 18.
Jelena fæddist í Serbíu en hefur
búið og starfað hér á landi í fjögur
ár. Hún er með meistaragráðu í
myndlist og er einn listamannanna
sem reka Gallery Korka í Reykja-
vík.
Myndheimurinn sem Jelena skap-
ar er abstrakt og undir áhrifum af
sálrænum pælingum, heimspeki og
listheimspeki. Þetta er sjötta einka-
sýning hennar.
Jelena Antic sýnir
í Grafíksalnum
Abstrakt Hluti eins málverks Jelenu Antic
á sýningunni í sal Íslenskrar grafíkur.
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Stevie Wonder tilkynnti á tón-
leikum sem hann hélt í Hyde Park í
London í fyrradag að hann myndi
gangast undir nýrnaskipti í septem-
ber næstkomandi. Wonder er 69
ára gamall og ekki hefur áður verið
greint frá því að hann glími við
nýrnasjúkdóm. Hann kvaðst ætla
að koma fram á þrennum tón-
leikum til áður en hann tæki sér hlé
vegna aðgerðarinnar. „Ég er kom-
inn með nýrnagjafa og þetta lítur
vel út,“ sagði hann.
Stevie Wonder
þarf nýtt nýra
AFP
Vinsæll Stevie Wonder hefur samið fjölda
vinsælla laga á liðnum áratugum.
Lofsamlega er fjallað um nýja bók
um íslenskar bókmenntir eftir Erik
Skyum-Nielsen í danska dagblaðinu
Politiken og gefur bókmennta-
rýnirinn Thomas Bredsdorff bók-
inni fimm hjörtu af sex mögulegum.
Danski þýðandinn Skyum-Nielsen
hefur um langt árabil verið einn
mikilvirkasti þýðandi íslenskra
bókmennta á dönsku og þýtt yfir
hundrað bækur eftir fremstu höf-
unda landsins. Nýja bókin, sem
nefnist Islands litterære mirakel og
þýða mætti sem Íslenska bók-
menntakraftaverkið, byggist á
greinaflokki Skyum-Nielsen um
íslenskar bókmenntir sem birtist í
dagblaðinu Information.
„Að mati Skyum eru þrjár ástæð-
ur fyrir því að Ísland varð bók-
menntalegt stórveldi á miðöldum.
Íslenska ritmálið er vel hannað og
endurspeglar vel hljóðfræðina.
Ísland er innflytjendaland og það
voru ekki þeir heimskustu eða löt-
ustu sem lögðu á sig ferðalagið. Í
þriðja lagi vantar hráefni á Íslandi
fyrir aðrar listgreinar. Þannig er
enginn marmari til að höggva í eða
léreft til að mála á, en nægur tími
til að segja sögur á bóndabæjunum
á löngum vetrarkvöldum,“ skrifar
Bredsdorff. Bendir hann á að þótt
Skyum-Nielsen nálgist efnivið sinn
með akademískum hætti pakki
hann fræðimennskunni inn í
skemmtilegan og læsilegan búning
og hiki ekki við að grípa til líkinga
úr samtímanum til að útskýra mál
sitt. Þannig líki hann Laxdælasögu
við „sveitaútgáfu af franskri ástar-
kvikmynd“. „Hjá Skyum fær maður
breidd, lifandi senur, mikið efni og
fínar greiningar,“ skrifar Breds-
dorff og segist öfunda Íslendinga
að hafa fengið jafn framúrskarandi
rit um bókmenntasögu sína og bók
Skyum-Nielsen er.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Orðstír Erik Skyum-Nielsen á
Bessastöðum haustið 2015 þegar
hann hlaut viðurkenninguna Orðs-
tír fyrir þýðingar sínar á dönsku.
Öfundar Íslendinga af
nýrri bókmenntasögu
Bók Eriks Skyum-Nielsen vel tekið