Morgunblaðið - 10.07.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2019
Spider-Man: Far FromHome, eða Kóngulóarmað-urinn fjarri heimahögum,er tíunda myndin um mið-
skólanemann Pétur Parker sem bit-
inn er af geislavirkri kónguló og öðl-
ast með því krafta áttfætlunnar.
Eru þá fyrstu sjónvarpsmyndirnar
taldar með, þessar frá árunum 1977-
81. Tom Holland er fjórði leikarinn
sem tekur hlutverkið að sér og gerir
það ágætlega en er öllu drengslegri
og meiri gelgja en fyrri leikarar,
sem er skemmtilegt. Einhver þreyta
virðist þó vera komin í Marvel-
færibandið, sem rúllar nú á meiri
hraða en nokkru sinni fyrr. Á þessu
ári hafa sex Marvel-myndir verið
frumsýndar ef nýjasta Men in
Black-myndin er talin með, en út-
gáfan sem gaf út þær myndasögur
heyrir undir Marvel. Og það er bara
júlí. Hvað varð um að skapa eftir-
væntingu og tilhlökkun? Geta ung-
menni, helstu aðdáendur Marvel-
hetjanna, hlakkað til þegar aðeins
líður mánuður milli mynda? Sem
dæmi um hversu mikil og þétt fram-
leiðslan er orðin má nefna að Samu-
el Jackson birtist nú í þriðja sinn á
þessu ári í hlutverki Nick Fury. Og
eitthvað er hann orðinn þreytulegur
í því hlutverki, sjötugur karlinn.
Þessi nýjasta mynd um
Kóngulóarmanninn er blanda tán-
inga- og ofurhetjumyndar og hafði
ég meira gaman af táningahlutanum
og hefði gjarna viljað hafa hann
fyrirferðarmeiri. Parker er orðinn
dauðþreyttur á því að vera Kóngu-
lóarmaðurinn og hlakkar til þess að
fara í frí með skólasystkinum sínum
til Evrópu, enda nýbúinn að bjarga
heiminum og syrgja föðurímynd
sína, Járnmanninn Tony Stark sem
lést í Avengers: Endgame. En ofur-
hetjur fá aldrei frí og May, frænka
Parkers, pakkar búningnum hans
niður í tösku án þess að hann viti af.
Og viti menn, degi síðar í Feneyjum
rís upp úr sæ skrímsli í manns-
mynd, mótað úr vatni, og fer að
brjóta allt og bramla. Kemur þá
fljúgandi maður með skikkju og
glerkúlu á höfði og stöðvar á end-
anum skrímslið með geislaskotum
úr höndum sínum. Er þar kominn
Mysterio, ein af fjölmörgum per-
sónum Marvel. Parker er í fram-
haldi kallaður á leynilegan fund
heimsvarnarsamtakanna
S.H.I.E.L.D. í Feneyjum þar sem
Fury kynnir hann fyrir Mysterio,
sem leikinn er prýðilega af Jake
Gyllenhaal. Segist Mysterio vera frá
einni af mörgum öðrum útgáfum
jarðarinnar og greinir viðstöddum
frá því að skrímslið hafi í raun verið
eitt af frumöflunum og að eldurinn
sé næstur og mun skæðari. Þessu
trúa allir eins og ekkert sé eðlilegra.
Skólaferðalagið heldur áfram og
er Prag næsti viðkomustaður. Þar
birtist eldskrímslið og aftur kemur
Mysterio til bjargar. Parker verður
svo hugfanginn af honum að hann
treystir honum fyrir hátæknigler-
augum sem Stark gaf honum og
veita aðgang að vopnabúri hans og
græjum. Hrindir það af stað
óvæntri atburðarás sem ætti þó
ekki að vera svo óvænt þeim sem
þekkja vel til persóna Marvel.
Bannað að segja meira en það.
Parker telur sig ekki tilbúinn að
axla sömu ábyrgð og Stark enda
bara 16 ára og ástfanginn af skóla-
systur sinni Mary Jane, eða MJ.
Hormónarnir eru alveg að fara með
hann líkt og fleiri í ferðinni og gerir
helsti keppinautur hans um ástir
MJ, Flash, honum lífið leitt. Fyrir
mistök munar litlu að Parker drepi
Flash og ýtir það enn frekar undir
þá ákvörðun hans að axla ekki meiri
ábyrgð en nauðsynlegt er. Illmenni
mikið kemur svo auðvitað við sögu
og allt endar í London í æsilegum
lokabardaga sem að þessu sinni er
heldur óspennandi og langdreginn.
Þó að handritið sé frekar þunnt
og ráðabrugg illmennisins þreytt
klisja í anda Dr. Evil í Austin Po-
wers-grínmyndunum hefur myndin
margt til síns ágætis. Sem fyrr fara
tölvuteiknarar á mikið flug og þá
sérstaklega í atriðum sem tengjast
blekkingarvef sem Kóngulóar-
maðurinn sogast inn í. Þar eru mikl-
ar sjónhverfingar á ferðinni sem
gleðja augað. Nokkur atriði eru líka
spaugileg og létta um stund af
manni fargi vitleysunnar sem
óneitanlega er nóg af í myndinni.
Spider-Man: Far From Home er
sneisafull af kjánaskap og krútt-
legheitum en þegar upp er staðið er
hún lítið annað en sumarafþreying
og stendur bestu Spider-Man-
myndunum, þeim sem Sam Raimi
leikstýrði, langt að baki. Aðdáendur
Kóngulóarmannsins ættu þó ekki að
vera sviknir og er bent á að bíða eft-
ir lokaatriðinu, því sem kemur þeg-
ar listi yfir þá sem gerðu myndina
hefur rúllað í dágóða stund. Það er
líklega besta atriðið í myndinni og
það allra óvæntasta.
Þreytuleg kónguló
Sambíóin Keflavík, Álfabakka
og Egilshöll og Smárabíó, Há-
skólabíó og Laugarásbíó
Spider-Man: Far From Home
bbbnn
Leikstjórn: Jon Watts. Handrit: Chris
McKenna og Erik Sommers. Aðal-
leikarar: Tom Holland, Jake Gyllenhaal,
Zendaya, Samuel L. Jackson, Jon
Favreau, Jacob Batalon og Tony Revo-
lori. Bandaríkin, 2019. 129 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Samstarf Kóngulóarmaðurinn tekur í spaðann á
Quentin Beck, sem kallaður er Mysterio. Tom Hol-
land og Jake Gyllenhaal fara með hlutverk þeirra.
Hatur og hefnd geta veriðbanvæn blanda. Ca-milla Läckberg, semþekkt er fyrir svo-
nefndar Fjällbacka-bækur, kann
þá list að búa til spennandi sögu-
þráð, eins og Gullbúrið ber vitni
um, og umfjöllunarefnið vekur
ýmsar spurningar, en seint verður
sagt að öll dýrin í skóginum séu
vinir.
Í Gullbúrinu tekur Camilla
Läckberg karlaveldið fyrir af full-
um þunga, þar sem söguefnið er
hatrömm barátta karla og kvenna
með „grímulausum feminískum
boðskap“, eins
og segir á bók-
arkápu. Jack er
hlaðinn öllu því
versta sem hægt
er að hugsa sér
og enginn,
hvorki karl né
kona, getur ver-
ið á bandi hans.
Faye á hins veg-
ar alla samúð og
þó að hún beiti bellibrögðum helg-
ar tilgangurinn meðalið. Konan er
með ráð undir rifi hverju og er
sterkari þegar allt kemur til alls.
Sagan endurspeglar heim ríka
fólksins eins og hann birtist gjarn-
an almúganum. Nýríka fólkið á
allt til alls, getur gert það sem
það vill og þar fram eftir götun-
um. Það er samt ekki nóg, mikið
vill meira, og þegar það verður
ljóst er of seint að berja í brest-
ina. Eina leiðin er leið konunnar,
krókur á móti bragði, stefna Faye,
hvað sem hún kostar.
Uppbygging sögunnar er þannig
að ekki er annað hægt en að vor-
kenna Faye, styðja hana og
styrkja, þó að hún sé ekki öll þar
sem hún er séð. Henni leyfist allt,
einnig það sem Jack er for-
dæmdur fyrir, og hún virðist líka
geta allt. Ósnertanleg ofurkona
sem er tilbúin að fórna öllu til að
ná settu marki.
Sagan rennur vel en er að sumu
leyti fyrirsjáanleg og ótrúverðug.
Tónninn er einóma og aldrei fer
vel á því að upphefja einn á kostn-
að annars, hvorki karl né konu.
Höfundurinn „Í Gullbúrinu tekur
Camilla Läckberg karlaveldið fyrir
af fullum þunga,“ segir rýnir.
Hinn fullkomni
glæpur
Glæpasaga
Gullbúrið bbbnn
Eftir Camillu Läckberg.
Sigurður Þór Salvarsson þýddi.
Sögur útgáfa, 2019. Kilja. 349 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Kvikmynd Elfars Aðalsteins, End of
Sentence, verður opnunarmynd
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í
Reykjavík, RIFF, í ár og er frum-
sýnd 26. september. „End of Sen-
tence er vegamynd sem segir sögu
feðga er leggja land undir fót til að
heiðra minningu móður og eiginkonu,
en hennar hinsta ósk var að ösku
hennar yrði dreift í lítið vatn á æsku-
slóðunum á Írlandi. Samband feðg-
anna er vægast sagt stirt og á vegferð
þeirra um landið kemur margt upp úr
kafinu. Myndin er í senn ljúfsár og
kómísk en umfram allt hjartnæm,“
segir í tilkynningu frá RIFF. Með
hlutverk feðganna fara John Hawkes,
sem tilnefndur hefur verið til Ósk-
arsverðlauna, og Logan Lerman, sem
hefur leikið í fjölmörgum stórmynd-
um þrátt fyrir ungan aldur.
„End of Sentence er fyrsta leik-
stjórnarverkefni Elfars í fullri lengd,
en stuttmynd hans Sailcloth hlaut
verðlaun sem besta íslenska stutt-
myndin á RIFF árið 2011 auk þess að
vinna Edduverðlaunin, sem stutt-
mynd ársins 2012, ásamt því að kom-
ast í lokaúrtak BAFTA- og Óskars-
verðlauna það árið,“ segir í
tilkynningu. Þar kemur fram að End
of Sentence hafi nýlega verið frum-
sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíð-
inni í Edinborg, þar sem hún fékk lof-
samlega dóma í virtum erlendum
fagmiðlum.
End of Sentence opnunarmynd RIFF
Feðgar John Hawkes og Logan
Lerman í hlutverkum sínum.
Sigríður Rut Hreinsdóttir hefur
opnað málverkasýningu í Kirsu-
berjatrénu, Vesturgötu 4. Verkin á
sýningunni eru unnin með olíu á
striga á árunum 2013-18 og hafa
ekki verið til sýnis áður.
„Ég sæki innblástur til náttúr-
unnar og hafa fíflar og lauf verið
mér sérstaklega hugleikin. Hafa til-
finningaleg tengsl og lærdómur um
þetta fallega blóm þróast í gegnum
myndsköpunina. Fíflalauf er eins
og manneskja, hluti af náttúrunni
og ég hugsa þau sem hamingjusamt
fólk. Þau teygja sig upp á móti birt-
unni lífsglöð og brosandi. Ég vonast
til að myndirnar hreyfi við ímynd-
unarafli áhorfandans og fái hann til
að hugsa um sjálfan sig sem hluta
af náttúrunni og um eigin ham-
ingju. Náttúru í fullu jafnvægi sem
við erum að eyðileggja og gleyma
og sumir upplifa sem illgresi,“
segir Sigríður um myndir sínar.
Sýningin stendur til 15. júlí.
Sýnir fíflalauf í Kirsuberjatrénu
Fíflar Ein mynda Sigríðar Rutar.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is