Morgunblaðið - 10.07.2019, Qupperneq 32
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
MENTORE model 3052
L 201 cm Áklæði ct. 70 Verð 389.000,-
L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
STAN model 3035
L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,-
L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Sýningar eru hafnar á seinna sum-
arleikriti Brúðubílsins, en meðal
sýningarstaða eru Klambratún á
föstudag kl. 14 og við Sundlaug
Vesturbæjar á mánudag kl. 14. Í
verkinu reynir Dúskur að kenna Lilla
að þekkja litina. Helga Steffensen
hefur starfrækt Brúðubílinn frá
1980 og á þeim tíma unnið
hug og hjörtu áhorfenda. Að
vanda er aðgangur ókeypis.
Brúðubíllinn á ferð og
flugi um borgina í júlí
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 191. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Dramatískt sigurmark KR gegn
Stjörnunni kom liðinu upp úr fall-
sæti í Pepsi Max-deild kvenna í
knattspyrnu í gærkvöld. Aðeins eitt
stig skilur að neðstu fjögur liðin í
deildinni. Á meðan heldur hnífjafnt
kapphlaup Breiðabliks og Vals
áfram um titilinn, en Blikar unnu
öruggan sigur á Fylki og bættu
markatölu sína verulega. »26
Áfram allt í einum
hnút í fallbaráttunni
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
KR-ingar eru komnir
með sjö stiga forskot
í úrvalsdeild karla í
fótbolta og það þarf
að fara hálfan fjórða
áratug aftur í tímann
til að finna lið sem
hefur misst af Ís-
landsmeistaratitlinum
eftir að hafa náð slíku
forskoti á miðju sumri.
Andri Adolphsson úr
Val er útnefndur besti
leikmaður 12. umferð-
ar af Morgunblaðinu
og Daði Freyr Arnarsson úr
FH besti ungi leikmað-
urinn. Þá má sjá úrvalslið
umferðarinnar og stöðuna
í M-gjöfinni á íþróttasíð-
um í dag. »24
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Gísli Páll Pálsson er tekinn við sem
forstjóri Grundar dvalar- og hjúkr-
unarheimilis. Hann er fjórði ætt-
liðurinn sem stjórnar sjálfseignar-
stofnuninni, en auk þess er hann
með hjúkrunarheimilin Mörk og
Ás, þvottahús og tvö fasteignafélög
á sinni könnu.
Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason,
langafi Gísla Páls, var einn stofn-
enda Grundar og var þar heimilis-
prestur. Gísli Sigurbjörnsson var
forstjóri í 60 ár og Guðrún Birna,
dóttir hans, fæddist á Grund, hefur
unnið þar nánast alla tíð og tók við
af honum 1994. Gísli Páll, sonur
hennar, fylgir nú í fótsporin. „Ég
ætlaði aldrei að fara í þessa vinnu,
ekki frekar en afi minn heitinn, en
hann og mamma „plötuðu“ mig til
að stjórna Ási í nokkurn tíma 1990,
ég lét undan og hér er ég enn.“
Gísli Páll hefur verið forstjóri
Markar í Reykjavík frá því að
Grund tók við rekstrinum 2010 og
er jafnframt í stjórn Grundar.
Hann segist gæta þess að gera ekki
alla hluti sjálfur heldur dreifa
ábyrgðinni á margar herðar. „Ég
stjórna sex fyrirtækjum en lít á þau
sem eina stóra heild og er með gott
starfsfólk.“
Hann leggur áherslu á að Grund
sé sjálfseignarstofnun og fjöl-
skyldan eigi ekkert í henni.
„Hugsunin hjá langafa mínum var
að Grund yrði óháð öllum utanað-
komandi og þannig hefur það verið,
en vissulega hefur stjórnunin verið
innan fjölskyldunnar. Það hefur
gengið vel og á meðan svo er, er
ekki ástæða til breytinga.“
Réttar ákvarðanir
Gísli Sigurbjörnsson byggði upp
Grund í Reykjavík og Ás í Hvera-
gerði. „Við höfum haldið áfram og
tókum svo réttar ákvarðanir á rétt-
um tíma með því að taka yfir rekst-
ur Markarinnar og síðan að kaupa
og byggja rúmlega 150 íbúðir,“
segir Gísli Páll. Hann bætir við að
nú sé yfir 300 manna biðlisti eftir
íbúðunum. Traustur grunnur og
réttar ákvarðanir séu lykillinn að
velgengninni. Um 700 manns vinna
hjá fyrirtækjunum, hjúkrunar-
heimilin eru með um 400 íbúa og
um 250 manns búa í íbúðunum. „Ég
hef alltaf hugsað um þetta eins og
eigið fyrirtæki þó að ég eigi það
ekki. Mér þykir vænt um það enda
hef ég ekki unnið annars staðar
nema í sumarvinnu.“
Eldskírnina fékk Gísli Páll hjá
afa sínum og nafna, byrjaði að
vinna með honum á Ási og hefur
unnið með móður sinni í um 30 ár.
„Ég er þakklátur þeim fyrir gott
samstarf. Það var gaman og lær-
dómsríkt að byrja með afa. Hann
var mikill húmoristi, eitilharður
stjórnandi af gamla skólanum, en
stjórnunarhættir hans myndu ekki
virka núna.“
Gísli Páll segir að búast megi við
einhverjum breytingum en engum
sviptingum. „Reksturinn er í góð-
um farvegi og skipurit frá síðustu
áramótum gerir einum manni kleift
að stýra þessum sex fyrirtækjum.“
Morgunblaðið/Hari
Grund Mæðginin Guðrún Birna Gísladóttir og Gísli Páll Pálsson hafa unnið saman í um þrjá áratugi.
Hefur alla þræði í hendi sér
Gísli Páll Pálsson er fjórði ættliðurinn til að stjórna sjálfs-
eignarstofnuninni Grund Fjölskyldan á ekkert í henni
Forskot eins og hjá KR
ekki tapast í áratugi