Morgunblaðið - 18.07.2019, Page 6

Morgunblaðið - 18.07.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Stefnt er að því að opna nýtt hótel í keðju Fosshótela við Lækjargötu og Vonarstræti í upphafi ársins 2021, en Traust verktak, eða TVT ehf., stjórnar byggingarframkvæmdum fyrir Íslandshótel, sem er eigandi Fosshótela. Hótelið er fimmta hótel- ið sem TVT reisir fyrir Íslandshótel, en 130 herbergi verða á hótelinu, sem ber vinnuheitið Hótel Reykja- vík. Ólafur Sæmundsson, byggingar- stjóri og annar eigenda TVT, tók á móti blaðamanni og ljósmyndara á framkvæmdasvæðinu í gær og lýsti gangi framkvæmdanna, meðal ann- ars ofan af svölum Vonarstrætis 4 sem verður eini hluti hótelsins sem ekki er nýbygging. „Þetta hús teiknaði Guðjón Samúelsson og það er byggt árið 1923,“ sagði Ólafur, en stíll Guðjóns er í hávegum hafður í hönnun hluta hótelsins. Hótelið er hannað af Birni Skaptasyni arkitekt og mun útlit þess hafa skírskotun í húsin umhverfis það. Þannig verða þakefni í stíl við nálægar byggingar, meðal annars þak Dómkirkjunnar við Austurvöll. Þá mun stíll Guðjóns Samúelssonar „flæða inn“ í nýbygg- inguna sem nær út í Vonarstrætið. Úthliðar Vonarstrætis 4 eru frið- aðar, en þaki þess verður lyft og sérstakir kvistir settir á það að ofanverðu upp úr þakinu, sambæri- legir þeim sem sjá má á húsi Guð- jóns við Skólavörðustíg. Þá verða gluggar hússins látnir halda sér og útlitinu að innan haldið að miklu leyti. Hótelherbergin verða í göml- um stíl í þessum hluta hótelsins. Út- hliðar annarra hluta hótelbygg- ingarinnar hafa skírskotun til bygginga frá miðri síðustu öld að sögn Ólafs, en þar verða nýtísku- legri herbergi. Yfir erfiðasta þröskuldinn Á reitnum var áður bygging sem hýsti útibú Íslandsbanka. „Hún var burðarþolslega ónýt eftir tvo elds- voða og síðan var brunareitur við hliðina þar sem hefð skapaðist fyrir því að hafa bílastæði. Þetta var eins og skarð í tanngarðinum og við er- um að fylla upp í það með fallegri fyllingu,“ segir Ólafur, en nú er að baki vinna við bílakjallara undir húsinu sem er meira en tvo metra undir sjávarmáli og búinn bílalyftu og vinna hafin við að steypa upp fyrstu hæð. Síðla vetrar 2020 er áætlað að búið verði að steypa alla bygginguna upp. „Við erum komnir upp úr jörðinni og yfir erfiðasta þröskuldinn. Hönnunarvinnu er að mestu lokið og síðan er það bara markaðssetningin. Það er engan bil- bug á þeim Íslandshótelamönnum að finna um að hér verði nóg af fólki,“ segir Ólafur. Úthlið hótelbyggingarinnar mun ná allt frá húsinu við Vonarstræti 4, út að Lækjargötu og norður eftir henni að gatnamótum Lækjargötu og Skólabrúar. Aftan við framhlið byggingarinnar við Lækjargötu rís einnig bygging þannig að inni á reitnum verður til lygn garður. Þær kvaðir eru á lóðinni sem snýr út að Lækjargötu að jarðhæð sé opin og á teikningum má sjá stórar rúður sem vísa út að götu. Þar fyrir innan verður starfræktur veitingastaður á vegum hótelsins, en hann mun ná alla leið aftur að garðinum milli bygginganna. Fornleifar fundust á byggingar- reitnum við upphaf framkvæmda, en þær verða varðveittar í norður- enda hótelsins að sögn Ólafs. „Hluti af þeim var fjarlægður og það er í geymslu. Þetta er allt skráð og númerað,“ segir hann, en þessar minjar verða til sýnis. „Landnáms- sögunni verða gerð góð skil og hún tengd við efnahagssöguna inn eftir húsinu. Einnig er til skoðunar að hafa til sýnis frímerkja- og seðla- söfn,“ segir Ólafur. Fylla senn í skarðið við Lækjargötu  Uppsteypa hafin við nýja hótelbyggingu við Lækjargötu  Hönnuð með nálægar byggingar í huga  Hugverk Guðjóns Samúelssonar í hávegum höfð  Fornleifar sem fundust á reitnum verða til sýnis Hótel Byggingarlengjan nær frá Vonarstræti og norður Lækjargötu. Hún er hönnuð með nálægar byggingar í huga, m.a. hvað varðar val á þakefni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Byggingarstjóri Ólafur Sæmundsson, byggingarstjóri og annar eigenda TVT, leiddi blaðamann og ljósmyndara um byggingarsvæðið. Hann segir gang í framkvæmdunum um þessar mundir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kjallari Vinna við kjallara hótelbyggingarinnar er að baki, en hann var erfiðasti hjallinn að sögn Ólafs. Nú rísa hæðir hótelsins ein af annarri, en áformað er að opna hótelið árið 2021. Opið virka daga kl. 11-18, lokað á laugard. í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 LISTHÚSINU Fallegt úrval af inni og úti körfum og pottum Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Það væri viturlegt að fara með eitthvað af fornum og viðkvæmum helgigripum, sem ekki eru í notkun lengur, úr kirkjum landsins í söfn sem geta varðveitt þá við betri skil- yrði. Þetta segir Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, í tilefni af þeim um- ræðum sem skap- ast hafa í kjölfar skrifa Þórs Magnússonar, fyrrverandi þjóð- minjavarðar, um öryggi kirkna og kirkjugripa. Kristján bætir við að þetta sé þó viðkvæmt mál fyrir margar sóknir og yfirleitt hafi kirkj- urnar verið taldar öruggir staðir. Hann segist þekkja dæmi um að gripir hafi horfið, t.d. hafi verið brot- ist inn í skrúðhúsið í Skálholtsdóm- kirkju fyrir áratug og þaðan stolið prestsskrúða með gylltum krossi, silfurkaleik og silfurskríni undir oblátur. Slíkir atburðir séu þó sjald- gæfir og aukinn ferðamannastraum- ur til landsins hafi ekki breytt þessu. Vígslubiskup segir að umræðan um brunavarnir og þjófavarnir í kirkjum tengist því hvort kirkjur eigi að vera opnar almenningi þegar þar fer ekki fram helgihald. Vilji sé til þess en sums staðar sé ekki mann- skapur til að fylgjast með kirkjunum við þær aðstæður. Hann segir að í Vík í Mýrdal hafi nýlega verið tekinn upp sá siður að sjálfboðaliðar úr sóknarnefnd staðarins gæti kirkj- unnar þegar hún er ekki í notkun og þannig sé hægt að hafa hana opna. Kristján bendir á að í þúsund ár hafi verið stuðst við traust kerfi til að halda reiðu á kirkjugripum. Sóknar- nefndirnar séu ábyrgar fyrir því að gripir kirknanna varðveitist og við reglulegar vísitasíur biskups og pró- fasta sé farið yfir gripaskrár og þannig tryggt að vitneskja sé um það hvort einstakir gripir séu enn á staðnum og í lagi. Sjálfur segist Kristján rétt að byrja sínar vísitas- íur í Skálholtsumdæmi og hann heyri ekki mikið um vandamál þessu tengd. Vel fylgst með kirkjugripum Kristján Björnsson  Viturlegt að fara með suma forna gripi í söfn, segir vígslubiskup í Skálholti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.