Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land.Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is 358,3 kíló af mat fóru til spillis á átta dögum á sex deildum hjúkrunarheimilisins Eirar. Fari jafnmikið til spillis á öllum deildum á þremur heimilum Eirar má gera ráð fyrir að um 18 tonnum af nýtanlegum mat sé sóað þar á ári hverju. Þetta kemur fram í nýlegri könnun Eirar, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi að sögn Írisar, og viðfangsefni hennar var matarsóun hjúkrunarheimilisins yfir átta daga tímabil í byrjun árs- ins 2017. Íris hvetur önnur hjúkrunarheimili til að fylgja fordæmi Eirar. „Þetta kom okkur á óvart, þar sem iðulega er talað um vannæringu eldri borgara,“ segir Íris Dögg Guðjónsdóttir, hjúkrunar- deildarstjóri á Eir, og bæt- ir við að gæði matarins séu hér orsökin fremur en magn hans. Súpur, grautar og sætmeti eru það sem fer helst til spillis og vöntun er á heitum mat í hádeginu, að því er fram kemur í athugasemdum starfsmanna Eirar sem birtar eru í rannsóknarskýrslunni. Íris segir að forstöðumenn Eirar hafi þegar hafist handa og brugðist við niðurstöðum könnunarinnar: „Við tókum strax af skarið og réðum nær- ingarfræðing sem hefur þegar hafið störf. Hann fer yfir hverja einustu máltíð þannig að hún uppfylli næringarskilyrði og sé betur fall- in fyrir eldri borgara.“ Hún segir að hjúkrunarheimilið hyggist minnka framreiðslu sætmetis, grauta og súpu, auk þess sem heitur matur verði oftar í boði í stað súpu og grauts. Aðalundirstaðan sé að gera fæðuna einstaklingsmiðaða svo fólk fái það sem það óskar eftir, þegar það vill. 22,8% af mat hent á þremur deildum Á þremur deildum var að meðaltali 22,8% matar hent. Þá var ekki einungis maturinn sem fór til spillis vigtaður, eins og á hinum deildunum þremur, heldur einnig allur matur sem barst inn á deildirnar. Hæst hlutfall só- unar mældist á deild sem er kölluð deild 3 í könnuninni, um 30,6%, en minnst var sóunin á deild 2, um 16,2%. Íris segir að mishátt hlutfall sóunar milli deilda sé vegna misjafnra þarfa heimilismanna hverrar deildar. Starfsmenn sögðu í athugasemdum að heilsufar íbúa og dagsform skipti máli, mis- jafnt væri eftir dögum hvort klárað væri af diskum og hvort heimilismenn hefðu lyst á þeim mat sem borinn væri fram. Könnunin olli vitundarvakningu innan hjúkrunarheimilisins Eirar: „Vegna þess að við gerðum þessa rannsókn urðu allir svo meðvitaðir og fóru að hugsa meira um að geyma og endurnýta. Ef það var skyr einn daginn, til dæmis, var það nýtt til að gera „búst“ daginn eftir,“ sagði Íris að lokum. Sóun nemur 18 tonnum á ári  Að meðaltali er 59,7 kg af mat hent daglega á sex deildum Eirar hjúkrunarheimilis  Samtals fara 18 tonn í ruslið á öllum þremur heimilum Eirar  Réðu næringarfræðing og endurskoða matseðilinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Matur Á þremur deildum Eirar fóru um 23% matar til spillis og hefur heilsufar og dagsform heimilisfólks þar mikil áhrif. Könnun á matarsóun hefur vakið starfsfólk Eirar til umhugsunar. Íris segir að Eir sé fyrst hjúkrunar- heimila á Íslandi til að kanna mat- arsóun. Könnunin var gerð á sex sólarhrings- deildum Eirar, í samstarfi við hjúkr- unardeild HÍ og Landspítala. Á þremur deildum var allur matur vigtaður áður en hann var borinn fyrir heimilismenn og síðan allur nýtanlegur matur, sem varð afgangs, vigtaður áður en honum var hent. Starfsmenn Eirar söfnuðu nýtan- legum mat, þ.e. þeim mat sem hægt hefði verið að neyta, í sérmerktar rusla- fötur. Allir matarafgangar, s.s. eggja- skurn, bananahýði og kaffikorgur, fóru í ruslapoka sem einnig voru vigtaðir, svo að þyngd þeirra teldist ekki með þegar matarsóunin var tekin saman. „Kannað í fyrsta sinn“ MATARSÓUN Íris Dögg Guðjónsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.