Morgunblaðið - 18.07.2019, Page 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
Ertu einangr-
unarsinni? Ertu
kannski genginn til liðs
við Klausturdólgana í
Miðflokknum? Góður
kunningi minn til
margra áratuga, dag-
farsprúður maður að
eðlisfari og yfirveg-
aður, hreytti þessu
framan í mig eftir að
ég hafði gerst svo
djarfur að lýsa yfir efasemdum um
þriðja orkupakkann þegar umræða
um það hvimleiða mál stóð sem hæst
í vor. Ég verð að játa að mér var
verulega brugðið yfir ofsafengnum
viðbrögðum hins geðprúða manns.
Eitt er að vera sakaður um að vera
þröngsýnn einangrunarsinni, en
verra þó að vera bendlaður við Mið-
flokkinn. Við kunningi minn höfum
verið pólitískir samherjar um árabil.
Hann alla tíð afar flokkshollur og
lætur ekki bifast hvað sem á gengur,
ég hins vegar hef rekist illa í flokki á
undanförnum árum. Eftir þennan
áfellisdóm fór ég því í
naflaskoðun og inn-
hverfa íhugun um stöðu
mína og skoðanir al-
mennt á sviði þjóðmála
og alþjóðamála.
Frjálslyndi
og víðsýni
Er ég þröngsýnn
einangrunarsinni af því
að ég hef efasemdir um
orkupakkann og er
andvígur inngöngu Ís-
lands í Evrópusam-
bandið? Talsmenn Samfylkingar og
Viðreisnar munu eflaust telja að svo
sé, en Viðreisnarfólkið klifar stöðugt
á því að það sé tákn um frjálslyndi
og víðsýni að ganga í evrópska ríkja-
sambandið og fela embættis-
mönnum í Brussel stjórn utanríkis-
mála og alþjóðaviðskipta fyrir hönd
Íslands. Gott og vel, látum það liggja
á milli hluta því um þetta snerist
klofningurinn úr Sjálfstæðis-
flokknum á sínum tíma. En þegar
grjótharðir sjálfstæðismenn, inn-
vígðir og innmúraðir, eru farnir að
saka mann um einangrunarhyggju
og jafnvel landráð fyrir það eitt að
hafa uppi efasemdir um að ráðlegt
sé að færa Brusselvaldinu yfirráð yf-
ir orkuauðlindum landsins er mér
öllum lokið. Ungt og framsækið fólk
í forystusveit flokksins virðist vera
sömu skoðunar og rökin eru þau að
með því að hafna þessum þriðja
orkupakka sé samningurinn um evr-
ópska efnahagssvæðið, EES, í upp-
námi.
Hnignun Evrópu
EES-samningurinn, sem veitti Ís-
lendingum aðgang að innri markaði
ESB, var vissulega gæfuspor fyrir
Ísland hvað varðaði utanríkis-
viðskipti og hafði í för með sér upp-
gang í efnahagslífinu og framfarir í
landinu. Evran var svo tekin upp á
evrusvæðinu laust eftir síðustu alda-
mót og ég skal viðurkenna að ég var
hallur undir aðild að ESB á þeim
tíma. En síðan hefur talsvert vatn
runnið til sjávar og ýmsar aðstæður
í Evrópu hafa tekið breytingum til
hins verra, bæði í efnahagslegu og
félagslegu tilliti. Mörg aðildarríki
ESB, einkum í suðurhlutanum, urðu
illa úti í alþjóðlegu bankakreppunni
árið 2008 og hafa enn ekki náð vopn-
um sínum, a.m.k. ekki í samanburði
við endurreisn Íslands eftir
„hrunið“.
Evran hefur heldur ekki reynst sú
töfralausn sem að var stefnt og hef-
ur ekki þótt henta hinum efnaminni
aðildarríkjum sem skyldi. Stöðnunin
í Evrópu á undanförnum árum veld-
ur því að dregið hefur úr kaupmætti
margra aðildarríkja ESB og ekki er
spáð miklum uppgangi evrópska
hagkerfisins í bráð. Þar að auki hef-
ur félagsleg upplausn gert vart við
sig í sívaxandi mæli, sem margir
telja að rekja megi til misheppn-
aðrar stefnu kanslara Þýskalands í
innflytjendamálum.
Í löndum ESB búa nú um 8% af
heildaríbúafjölda heimsins. Hin 92%
búa sem sagt fyrir utan lögsögu
ESB og eru því óháð þeim tilskip-
unum og reglugerðum sem streyma
frá Brussel. Efnahagsstórveldi eru
að rísa í öðrum heimshlutum og er
vöxturinn einkum í Asíu. Maður
spyr sig því hvort ekki sé tímabært
að beina viðskiptum okkar í auknum
mæli út fyrir túnfótinn á „litlu“ Evr-
ópu? Eða er EES-samningurinn svo
heilagur að réttlætanlegt sé að
hanga á honum eins og hundur á
roði? Er það til marks um víðsýni og
frjálslyndi að kyngja öllum tilskip-
unum og kvöðum sem koma frá
Brusselvaldinu í gegnum EES-
samninginn og að lokum að múra
þjóðina alfarið inn í Evrópusam-
bandið?
Einangrun af völdum EES
Leidd hafa verið rök að því að
EES-samningurinn sé ekki eins
hagstæður fyrir Ísland og hann var
fyrir aldarfjórðungi. Menn hafa jafn-
vel gengið svo langt að fullyrða að
samningurinn sé að einangra landið
frá eðlilegum viðskiptum við lönd ut-
an Evrópusambandsins. Ofan á
þetta bætast ýmsar kvaðir og höft
sem fylgja þessum samningi, vegna
óteljandi reglugerða og tilskipana
frá Brussel, sem margar hverjar
henta ekki hagsmunum Íslands.
Mér þykir vænt um Evrópu og
Evrópubúa og er hlynntur friðsam-
legum og eðlilegum samskiptum við
þá. En ég tel óráðlegt að einangra
okkur innan tollamúra ESB. Við eig-
um að eiga viðskipti við öll ríki, sem
vilja kaupa af okkur vöru og þjón-
ustu og forðast að taka á okkur
skerðingu á fullveldi okkar með því
að einangra okkur í tollabandalagi,
sem stýrt er af embættismönnum
með óljóst umboð.
Óæskilegur ellibelgur
Ég geri mér grein fyrir að þessar
hugleiðingar eru festar á blað af full-
komnu ábyrgðarleysi leikmanns,
sem hefur verið skákað út fyrir hlið-
arlínuna fyrir aldurs sakir. Vera má
að það sé eitthvað til í því að menn
eins og ég, sem komnir eru á eftir-
launaaldur, séu bara til óþurftar og
með þvermóðsku að þvælast fyrir
viðleitni ungs og frjálslynds fólks við
að færa landið inn í 21. öldina.
Skoðanir okkar séu úreltar og ein-
hvers staðar heyrði ég ýjað að því að
stuðningur okkar og jafnvel atkvæði
væru óæskileg fyrir frjálslynd fram-
faraöfl á 21. öldinni.
En hvað sem öðru líður finnst mér
satt að segja ekki sanngjarnt að
stimla mig þröngsýnan einangr-
unarsinna fyrir að hafa efasemdir
um orkupakkann og velta því fyrir
mér hvort ekki sé ráðlegt að staldra
aðeins við og endurskoða EES-
samninginn. Það er víðar guð en í
Görðum og mér finnst ómaksins vert
að skoða möguleikana á því að rækta
betur eðlileg og frjáls samskipti við
allar þjóðir heims, sem eru tilbúnar
til að eiga við okkur heiðarleg við-
skipti án kvaða og tilskipana. Að
mínu mati felst meira frjálslyndi og
víðsýni í slíkum hugsunarhætti en
þeirri stefnu að vilja einangra Ísland
innan tollamúra Evrópusambands-
ins.
Einangrun eða alþjóðasamvinna
Eftir Svein
Guðjónsson »Mér finnst ómaksins
vert að skoða mögu-
leikana á því að rækta
betur eðlileg og frjáls
samskipti við allar þjóð-
ir heims, sem eru til-
búnar til að eiga við
okkur heiðarleg við-
skipti án kvaða og til-
skipana.Sveinn Guðjónsson
Höfundur er blaðamaður
á eftirlaunum.
Móttaka að-
sendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendi-
kerfið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar
leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í
skráningarferlinu. Eftir að við-
komandi hefur skráð sig sem not-
anda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
þú það sem
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
m.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og fleira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi
Ef þú vilt selja, kaupa eða leigja fasteign,
hafðu samband í síma 533 4200 eða arsalir@arsalir.is
Ársalir
fasteignamiðlun
533 4200
725,2 m² – Vandað og gott atvinnuhúsnæði
sem skiptist í 515 m² á jarðhæð með tven-
num innkeyrsluhurðum og hárri lofthæð, og
210 m² á efri hæð, sem henta vel fyrir
skrifstofur og þh. Góð aðkoma og bílastæði
á lóð.
374,9 m2 – Gott 375 m² atvinnuhúsnæði
við Skútuvog í Reykjavík. Húsnæðið á
jarðhæð sem er 256 m² með hárri og góðri
innkeyrsluhurð, lofthæð ca. 4,3m Skrifsto-
fur, kaffistofa og snyrting á efri hæð, eru
119 m² allt í mjög góðu ástandi.
Til afhendingar við kaupsaming.
154,2 m² – Til sölu einstaklega vandað
sumarhús neðan við 11. brautina á einum
fallegasta golfvelli landsins, Kiðjabergi.
Húsið er á skjólsælum og fallegum útsýnis-
stað. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö
baðherbergi með sturtu. Sér geymsla. Hiti
er í öllum gólfum. Allar innréttingar eru
sérsmíðaðar og vandaðar.
Lóðin er 11.000 m² eignarlóð.
Björgvin
Björgvinsson,
löggiltur fasteignasali
Dragháls 10, 110 Reykjavík Skútuvogur 10B, 104 Reykjavík Kiðjaberg lóð 9, 801 Selfoss
Til s
ölu
Til s
ölu
Til s
ölu