Morgunblaðið - 18.07.2019, Síða 41

Morgunblaðið - 18.07.2019, Síða 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 ✝ Guðný HelgaGeirsdóttir fæddist 29. sept- ember 1940 í Vallarkoti í Gríms- ey. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli 5. júlí 2019 eftir langvinn veikindi. Hún var dóttir Geirs Jósepssonar verkamanns og Birnu Stef- ánsdóttur verkakonu. Sammæðra bræður hennar voru Pétur Stefánsson sjómað- ur og Gunnar Ásgrímsson verkstjóri, sem er látinn. Guðný Helga ólst upp í Grímsey en 15 ára fór hún í vist til Akureyrar í einn vetur. Í tvö sumur vann hún við síld- arsöltun í Grímsey og á vetr- um í verslun á Akureyri. Hún fór til Reykjavíkur 17 ára gömul og vann þar við fata- saum, var á vertíðum og í frystihúsum. Manni sínum, Sig- urði Eggertssyni frá Smárat- úni í Fljótshlíð, kynntist hún á Þeirra börn eru: Jónína Helen, sem á tvo syni, Guðný Snædís og Eva Sóldís. 2) Ingibjörg Elfa, f. 31. des. 1966, eigandi Kaffi Langbrókar í Fljótshlíð. Hún var gift Jóni Ólafssyni f. 16. sept. 1955, d. 24. júní 2008, bónda og kvæðamanni á Kirkjulæk 3 í Fljótshlíð. Þeirra börn eru: Signý Rós, sem á tvo syni, Ómar Smári, hann á eina dóttur, og Andri Geir. 3) Stef- án Eðvald, f. 14. júlí 1968, flugstjóri hjá Atlanta, Seltjarn- arnesi, kvæntur Ingu Kristínu Guðlaugsdóttur, f. 2. des. 1967, fatahönnuði. Þeirra börn eru: Guðlaugur Vignir, Thelma Kristín og Eðvald Þór. 4) Egg- ert Ólafur, f. 19. sept. 1972, rekstrarstjóri í Svíþjóð, kvænt- ur Johönnu Margarethu Öhrnell, f. 6. júlí 1976, sálfræð- ingi í Svíþjóð. Börn þeirra eru: Klara Margaretha, Elsa Vigdís og Sigurður Olow. 5) Arndís Soffía, f. 6. júní 1978, lögfræð- ingur, staðgengill sýslumanns á Suðurlandi, gift Ívari Þor- marssyni, f. 16. nóv. 1975, matreiðslumeistara og veit- ingamanni á Hótel Fljótshlíð. Börn þeirra eru: Emma Eir, Elfar Egill og Eldey. Útför Guðnýjar Helgu fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð í dag, 18. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. vertíð í Grindavík. Þau gengu í hjóna- band hinn 28. mars 1964. Árið 1963 hófu Sigurður og Guð- ný Helga búskap á Efri-Þverá í Fljóts- hlíð. Þar bjuggu þau með bland- aðan búskap til ársins 1983 þegar þau tóku við Smáratúni, föðurarfleifð Sig- urðar. Þar héldu þau áfram búskapnum, en aðeins með kúabú. Árið 1986 hófu þau rekstur ferðaþjónustu. Árið 2002 hættu þau með kúabú- skapinn og sneru sér alfarið að ferðaþjónustunni og unnu við hana æ síðan og eftir að dóttir og tengdasonur tóku við rekstrinum. Börn Guðnýjar Helgu og Sigurðar eru: 1) Anna Bjarney, f. 21. nóv. 1963, viðskiptafræð- ingur í Reykjavík og fjármála- stjóri RÚV, gift Jóni Val Jóns- syni, f. 27. sept. 1961, húsa- smíðameistara og arkitekt. Það er óraunverulegt að hafa horft á eftir mömmu síðustu árin fjarlægjast og lokast inni í ann- arri veröld. Alltaf erfiðara og erfiðara að ná sambandi og teng- ingu. Að lokum var aðeins eitt sem hún náði tengingu við; söngurinn. „Sestu hérna hjá mér ástin mín, horfðu á sólarlagsins vonarglóð.“ Þrátt fyrir allt erum við lán- söm að hafa þó átt öll góðu árin saman. Mamma elskaði að stjana við alla í kringum sig og gefa fólki að borða. Því fleiri því betra og heimilið var oft eins og um- ferðarmiðstöð, börn og barna- börn á ferð og flugi. Sérstaklega um helgar, þá var mín í essinu sínu: „Fáðu þér nú eitthvað að borða!“ Það var alveg sama hvort fólk var að koma eða fara; óétinn færi viðkomandi ekki úr eldhúsinu hennar mömmu – og guðdómlegur var mömmumatur útbúinn undir söng að sjálfsögðu. Mamma syngjandi í eldhús- inu, mamma syngjandi að sauma, mamma syngjandi að mála, mamma syngjandi úti í garði, mamma syngjandi glöð. Það er sú mamma sem við minnumst með bros á vör. Heimakæra mamma, kalt á fótunum að horfa á Matador eða segja stjórnmála- mönnum að þegja með þjósti í gegnum sjónvarpsfréttirnar. Mjúkur faðmurinn tók á móti af- komendum og hver fékk sína kveðju: Kötturinn hennar mömmu sinnar. Truntan hennar mömmu sinnar. Skröggurinn minn og kúkurinn minn. Enginn gat sagt þetta við fólkið sitt á eins ástríkan og elskulegan hátt og mamma. Hún var einstök og hennar er sárt saknað. Hvíldin frá sjúk- dómnum sem tók hana frá okkur er henni væntanlega kærkomin og við gerum fastlega ráð fyrir því að hún hafi fundið góða söng- félaga í sumarlandinu. Við elskum þig, Arndís (Dísa), Ívar og krakkarnir. Yndislega mamma mín er bor- in til grafar í dag. Hún upplifði tímana tvenna eins og margir af hennar kynslóð. Hún fæddist í Grímsey og bjó þar ásamt mömmu sinni, afa og tveimur bræðrum í litlum torfbæ. Heim- ilið var ekki efnamikið og mamma fór snemma að vinna fyrir sér og 15 ára ferðaðist hún í fyrsta sinn til Íslands til að fara í vist hjá heldra fólki á Akureyri. Unga stúlkan þurfti því snemma að standa á eigin fótum, langt frá fjölskyldunni. Hún var svo lánsöm að eignast góða vini og síðan kynntist hún pabba, sem kom úr ólíku umhverfi, bóndasonur af Suðurlandi og átti stóra fjölskyldu. Ungu hjónin hófu búskap í Fljótshlíðinni, sveitinni hans pabba, á Efri- Þverá og á næstu fimmtán árum fæddumst við systkinin fimm. Jörðin var lítil og erfið en þau náðu samt að gera ótrúlega mik- ið úr hlutunum. Lífið hafði því breyst hratt hjá ungu stúlkunni, sem áður hafði verið mikið ein. Nú átti hún mann og hóp af börnum, sem hún umvafði um- hyggju og gleði. Mamma var ofurkona. Hún vann frá morgni til kvölds og hafði einstaka ástríðu fyrir því sem hún tók sér fyrir hendur, auk þess að vera mjög dugleg og öguð. Árum saman framreiddi hún t.d. tvær heitar tvíréttaðar máltíðir á dag fyrir fjölskylduna og heimabakaðar kökur og smurt brauð í hverjum kaffitíma. Þá saumaði hún gríðarlegt magn af fatnaði og gerði miklar kröfur til sín um vandvirkni. Við systk- inin vorum gangandi vitnisburð- ur um gæðin í jólafötum, jökkum og kápum. Eitt haustið saumaði hún 16 flíkur samhliða jólaund- irbúningi og kökubakstri sem stóðst alla góða húsmæðramæli- kvarða. Þar að auki tók hún mik- inn þátt í útiverkum á bænum. Þegar tíminn leið fór mamma að geta sinnt betur fleiri hugð- arefnum, gera upp gömul hús- gögn og rækta garðana sína, á Efri-Þverá og síðar í Smáratúni. Hún byggði þá upp af mikilli vandvirkni og fékk tvisvar við- urkenningar fyrir þá. Mamma var líka kona sem þorði að fara ótroðnar slóðir. Hún byggði upp ferðaþjónustuna í Smáratúni frá grunni, í byrjun við frekar þröngar aðstæður. Framtakið var óvenjulegt á þeim tíma en mamma var ákveðin í að nýta húsnæðið vel og gestir kunnu vel að meta matinn og blátt áfram framkomu hennar. Þrátt fyrir alla vinnuna var hún hin fullkomna mamma, alltaf til staðar til að styðja okkur systkinin, skrafa og bollaleggja. Hún var mjög hvetjandi og dug- leg að hrósa og draga fram já- kvæðar hliðar fólks. Hún lagði ofuráherslu á að mismuna aldrei systkinahópnum, þannig að ef hún t.d. saumaði flík á eina okkar systra var hún ekki sátt nema hún gæti gert eitthvað svipað fyrir hinar. Mamma var þakklát fyrir allt sem lífið færði henni og vissi að ekkert er sjálfgefið. Stundum er sagt að þakklæti sé undirstaða hamingjunnar og það átti sannarlega við í hennar til- felli. Mamma var hamingjusöm manneskja sem smitaði frá sér krafti og gleði og söng iðulega við verkin sín. Ofurkonan hún mamma hefur kvatt okkur. Ég sakna hennar mikið en er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að njóta lífsins með henni. Hvíldu í friði elsku mamma mín. Anna Bjarney Sigurðardóttir. Mamma er farin í sumarland- ið, landið sem við eigum öll eftir að heimsækja á endanum. Þar munum við hittast aftur, kátar og hressar og lausar við sjúk- dóma og áhyggjur. Mig langar að minnast hennar hér með nokkrum orðum. Mamma var fyrst og fremst dugnaðarforkur og gekk að öll- um verkum með það fyrir aug- um að gera þau vel og snyrti- lega. Þegar hún var við vinnu í garðinum, hvort sem það var uppi á Efri-Þverá eða í Smárat- úni, var vandvirknin áberandi og sýnilegt að hún vildi hafa allt fínt. Reytti arfann um leið og hann kíkti og undi sér vel í rósa- og gladíóluhafi í litlu gróður- húsunum sem pabbi smíðaði fyrir hana. Þegar við krakkarn- ir vorum að alast upp saumaði hún iðulega öll jólafötin á okkur og oft rakti hún upp sauma af því að hún vissi um einhvern hlykk eða mislöng spor. Allt þurfti að vera fullkomið. Við vorum alin upp við söng frá henni alla daga og alltaf söng hún við vinnuna með fallegri sópranrödd. Hún kunni líka mörg lög og gamla texta sem hún söng fyrir okkur og spilaði undir á gítarinn sinn. Alltaf var hún tilbúin að taka við barna- börnunum sínum og leyfa þeim að vera í kringum sig og kenna þeim ýmsa hluti sem ég veit að þau eru líka þakklát fyrir. Bakstur og eldamennska lék í höndunum á henni og þau voru samhent hjónin í sláturtíðinni að gera sem mestan mat úr hrá- efninu sem gafst. Heldur fóru þessir hæfilekar að dala upp úr 2010 þegar bera fór á þessum heilabilunarsjúkdómi sem að lokum hafði yfirhöndina hinn 5. júlí sl. þegar hún lést á Dval- arheimilinu Kirkjuhvoli södd líf- daga og frelsinu fegin trúi ég. Innilegar þakkir til starfsfólks Kirkjuhvols sem sinnti henni alltaf vel og með virðingu. Takk fyrir allt. Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir. Elsku Guðný, mig langar að minnast þín með smá og hálf fá- tæklegu bréfi. Nú eru öll þín veikindi horfin og þú komin í dýrð drottins og allt það vonda sem þú hefur þjáðst af er horfið. Ég kynntist þér fyrir mörgum árum, þegar þú komst fyrst að Smáratúni með Sigga þínum og frænda mínum. Þið Siggi frændi byrj- uðuð búskap á Efri-Þverá og þangað kom ég til ykkar á hverju sumri og alltaf tókst þú jafn vel á móti mér og minni fjölskyldu, síðan fluttuð þið að Smáratúni og börnum ykkar Sigga fjölgaði. Fyrst kom Anna, síðan Inga, Stefán, Eggert og Arndís Soffía rak lestina. Þið Siggi hafið verið heppinn með börnin ykkar, öll gott fólk og góðir þjóðfélags- þegnar. Þú varst góð söngkona og mér þótti gaman að spila fyrir þig, og þú varst dugleg að fá mig til að taka í nikkuna þegar eitt- hvað var um að vera í Fljótshlíð- inni. Ég man alltaf eftir því þeg- ar þú doblaðir mig til að spila fyrir að mig minnir kvenfélagið í einhverju húsi inni við Fljótsdal. Þar sat ég einn innan um allar konurnar sem þar voru og ég eini karlmaðurinn á staðnum með nikkuna og allar konurnar sungu. Það var ekki eins og mér líkaði þetta ekki, enda þegar ég kvaddi þetta kvöld, þá fylgdir þú mér út að bíl og ég man að þú spurðir mig hvort mér hefði ekki þótt gaman að vera einn innan um allar þessar kellingar! Þú varst alltaf svo hress og þú og hann Siggi þinn voruð hamingju- söm. Guðný mín, þegar ég sit hér og skrifa þessar línur þá rifjast svo margt upp í huga mér, en ég held að ég láti það bíða betri tíma. Ég veit að þú hefur fengið góða heimkomu í dýrðina, þang- að sem við öll förum, og frels- arinn Jesús Kristur hefur verið með opinn faðminn. Elsku Guðný, takk fyrir mig og njóttu dýraðarinnar í ríki drottins, þannig kveð ég þig að sinni en við hittumst aftur einhvern tím- ann. Elsku frændi minn, Sigurð- ur Eggertsson: Nú er þessu stríði lokið hjá Guðnýju, þér og fjölskyldu þinni og ég bið þess að góður Guð blessi og varðveiti þig, börnin þín, barnabörn og barnabarnabörn. Hann sem öllu ræður og stjórnar gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Friðrik Ingi Óskarsson. Elsku vinkona. Það er svo skrýtið með okkur, þótt við vit- um að hverju dregur þá er eins og við séum aldrei tilbúin að taka við þeim fréttum að einhver góð- ur vinur sé fallinn frá. Við vorum báðar fæddar í Grímsey og ól- umst þar upp. Þú varst góðum gáfum gædd og áttir auðvelt með að koma saman vísum, samanber braginn um Togga sem byrjar svo: „Sefur sæll í sinni hvílu, silf- urhærður námsstjórinn.“ Lengst af okkar skólagöngu vorum við þrjú í skólanum og snemma byrj- aði keppni milli okkar um hver fengi hæstu einkunn. Þá þótti prestinum sem fermdi okkur, séra Pétri Sigurgeirssyni, gaman að spyrja okkur því við stóðum í þeirri trú að við ættum að kunna kverið utan að. Meðal annars bentum við honum á að hann hefði gleymt að hlýða okkur yfir sálm sem var fremst í kverinu. Þá er minnisstæður dugnaður þinn, sama hvort þú varst að salta síld eða heyja fyrir afa þinn. Eins eru minnisstæð böllin í Grímsey, þar sem úrvalið var ekki mikið af kvenfólki. Við hlóg- um oft að Norðmönnunum tveimur sem dönsuðu við okkur mestallt kvöldið. Svo þegar ballið var búið vildu þeir endilega fylgja okkur heim og okkur grunaði að þeir ætluðu sér inn með okkur svo ég stakk upp á að við slitum okkur frá þeim og hlypum hvor til síns heima sam- tímis. Þetta tókst vel en ég rétt slapp inn og gat læst hurðinni en Nojarinn alveg vitlaus á glugganum! Það er svo ótal margt sem hægt væri að rifja upp elsku vinkona en ég læt þetta duga. Guð geymi þig. Þín gamla vinkona, Birna. Það hafa verið sólríkir dagar og sumarið í sínum besta skrúða, þegar þú kveður, kæra vinkona. Þér var ekki ætlað að njóta efri áranna sem þú áttir svo sann- arlega skilið. Aldrei féll þér verk úr hendi og alltaf hægt að finna sér verk að vinna en þú gast líka glaðst og haft gaman þegar tæki- færi gafst. Þau eru orðin mörg árin síðan við hittumst fyrst á vertíð suður með sjó. Þú ættuð úr Grímsey og ég úr sunnlenskri sveit. Svo ólíkt umhverfi og við ólíkar í eðli okkar en svo fljótt smullum við saman og urðum bestu vinkonur til hinsta dags. Verbúðarlífið var eitthvað sem enginn myndi gera sér að góðu í dag og þægindalaust að öllu leyti en við þekktum ekki annað. Fólk kynntist og gerði sér glaðan dag. Á vorin fórst þú norður að salta síld og ég fór til míns heima. Þá voru símar ekki gripnir upp, þá voru það sendibréfin sem komu með vissu millibili eins og himna- sending sem beðið var eftir. Á vetríð kynntist þú þínum góða lífsförunaut sem hefur verið þín stoð og stytta. Svo kom að því að ég festi ráð mitt og þeir skóla- bræður og sveitungar. Betra gat það ekki verið og samgangur sem aldrei fyrr. Eftir stutta dvöl í borginni var flutt í sveitina og ekki skemmdi það nú fyrir að þið fenguð þá jörð sem minn maður hafði alist upp á sem barn og unglingur. Oft var farið í heim- sókn og þegar ég lít til baka get ég dáðst að hvað þú varst fljót að tileinka þér sveitastörfin og gerðir það með sóma. Þegar við svo eignuðumst smáhús inni í Hlíð var komið flesta frí- og helgidaga, alltaf tími til að hitt- ast og gleðjast og þið önnum kaf- in með börn og bú sem óðum stækkaði. Svo kom að því að þið vilduð breyta til og þá varð óðal feðranna til staðar, stórt hús og betri jörð að öllu leyti. Og þú sást líka tækifæri sem fáum hefði látið sér detta í hug, alltaf á undan. Börnin að tínast að heim- an eitt og eitt og þá varð líka meira pláss. Þið settuð upp ferðaþjónustu sem var lítil í fyrstu en eru stoðirnar að því stóra sem nú er á hlaðinu í dag. Þegar við svo þurftum að hverfa frá okkar stað kom ekkert annað til greina en að finna okkur hreiður sem næst þér. Þú fannst okkur fallegan og skjólgóðan stað og Siggi nafnið að Smára- lind. Þau hafa verið yndisleg og góð þessi ár sem við höfum átt hér í túninu ykkar og allir þeir góðu nágrannar sem hér voru í kring. Oft labbað á milli bæja á fallegum sumarkvöldum og lagið tekið. Það skemmdi nú ekki þeg- ar þú tókst gítarinn í hönd og þá var tekið uppáhaldslagið þitt, Undir bláhimni. Þú varst mikið söngelsk og naust þess að hlusta á músík. En allt hefur upphaf og endi. Nú hefur fækkað í þessum vina- hóp sem gerist alltof fljótt. Fjöl- skyldan þín hefur verið okkar fólk og sorgmædd höfum við fylgst með hvað þessi sjúkdómur hefur tekið skelfilegan toll. Þökkum fyrir ár hvert eitt, enginn veit hvað næst oss bíður. Best er að vita ekki neitt, tíminn er fljót sem hratt fram líður. Elsku vinkona, ég þakka þér fyrir öll árin sem þú varst hluti af mínu lífi og gerðir það skemmtilegra að öllu leyti. Guð blessi þína ástvini og græði sár- in. Auður Helga og Júlí. Guðný Helga Geirsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR, Aflagranda 40, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti mánudaginn 15. júlí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 23. júlí og hefst klukkan 15. Guðlaug Ólafsdóttir Geir Rögnvaldsson Karítas Ólafsdóttir Ari Ólafsson Helgi Ólafsson Sigurborg Arnarsdóttir Anna Vigdís Ólafsdóttir Benedikt Lund barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og langamma, ÞÓRA VALGERÐUR ANTONSDÓTTIR, Fjarðargötu 19, Hafnarfirði, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 11. júlí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 23. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Friðþjófur Sigurðsson, Ólafur Þór Ólafsson og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, GUNNAR ÞÓRÐARSON, Hábergi 16, Reykjavík, varð bráðkvaddur þriðjudaginn 2. júlí. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hafdís Kjartansdóttir Þórný Gunnarsdóttir Eyþór Gunnarsson Rán Pétursdóttir Jóhanna Gunnarsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.