Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 18.07.2019, Qupperneq 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 ✝ María Sigur-borg Jonný Rósinkarsdóttir fæddist 25. septem- ber 1928 á Snæfjöll- um á Snæ- fjallaströnd við Ísafjarðardjúp. Hún lést á Land- spítalanum 1. júlí 2019. Foreldrar henn- ar voru Jakobína Gísladóttir, f. 31. maí 1896, d. 24. apríl 1960, og Rósinkar Kol- beinsson, f. 24. júní 1891, d. 5. nóvember 1956. Systkini Maríu eru Ólafur, f. 28. september 1917, d. 24. mars 1987, Gestur, f. 3. ágúst 1920, d. 29. júní 1998, Guðmundur, f. 27. jan. 1924, d. 19. apríl 1989, Kristný Ingigerð- ur, f. 26. febrúar 1927, d. 30. jan- úar 2017, Jósep, f. 15. júní 1932, Elísabet, f. 26. september 1933, Hilmar, f. 2. ágúst 1935, d. 30. september 1996, Sigríður Mar- grét, f. 14. nóvember 1937, og Hafsteinn Þór, f. 22. mars 1941. Eiginmaður Maríu var Ólafur Ásgeirsson vélsmíðameistari, f. 19. febrúar 1927 á Baulhúsum í Arnarfirði, d. 18. febrúar 2007. Foreldrar hans voru Guðbjörg Oktavía Kristjánsdóttir, f. 9. maí 1885, d. 29. ágúst 1974, og Ás- geir Kristján Matthíasson, f. 20. með Svanhildi Bryndísi Ingólfs- dóttur og á hún tvo drengi, Elv- ar Snæ og Hilmi Snæ. Davíð á dótturina Ólöfu Rós með Berg- lindi Ásgeirsdóttur en þau skildu. Atli Þór býr með Guð- rúnu Maríu Sigurðardóttur og eiga þau soninn Aron Breka. 5) Guðný, f. 1959, maki Ómar Þór Gunnarsson, börn þeirra eru Gunnar Heiðar og María Rós, maki Arnar Þór Óskarsson og á hann soninn Mikael Óskar, Óm- ar á fyrir einn son, Birgi Þór. 6) Ásgeir Kristján, f. 1962, maki Aðalheiður Gylfadóttir, börn þeirra eru Unnur Andrea og Hanna María. María ólst upp á Snæfjalla- strönd, hún var í skólaskyldu í barnaskóla á Snæfjallaströnd og sótti svo Iðnskólann á Ísafirði. Hún lærði og starfaði sem saumakona hjá klæðskera á Ísa- firði. Eftir að til Reykjavíkur kom starfaði hún sem sauma- kona og húsmóðir. María starf- aði síðan lengstan hluta starfs- ævinnar hjá Heimilishjálp Reykjavíkur. María skírðist inn í Mormónakirkjuna og sinnti þar ýmsum trúnaðarstöfum, m.a. annars fyrir líknarfélagið sem formaður. Útförin verður frá Fossvogs- kirkju í dag, 18. júlí 2019, klukkan 15. febrúar 1885, d. 1. maí 1959. María og Ólafur eignuðust sex börn, þau eru: 1) Ottó Kolbeinn, f. 1950, maki Björk Baldursdóttir, börn þeirra eru Daði Baldur og Helga Björk, fyrir átti Ottó son, Andra, með Hjördísi Magn- úsdóttur. Synir Andra og eiginkonu hans, Heið- brár Björnsdóttur, eru Daníel Þór og Bjartur Örn. Daði er gift- ur Guðlaugu Katrínu Hákonar- dóttur og synir þeirra eru Davíð Mikael og Hugi Fannar. Helga Björk er í sambúð með Atla Þór Jóhannssyni. 2) Jakob, f. 1952, maki Helena Soffía Leósdóttir Little, sonur þeirra er Páll, fóst- urdóttir Jakobs og dóttir Helenu er Kristín Magnúsdóttir. Börn Páls og eiginkonu hans, Lindu Mjallar Andrésdóttur, f. 18. jan- úar 1979, d. 27. júní 2018, eru Jakob Felix og Andrea Arna. Dætur Kristínar, fósturdóttur Jakobs, eru Alexandra María og Helena Ýr. 3) Óskírður drengur, f. 1953, d. 1953. 4) Rósinkar Snævar, f. 1956, maki Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir, börn þeirra eru Ólafur Garðar, Davíð og Atli Þór. Ólafur Garðar er í sambúð Elsku kæra móðir mín hefur nú kvatt þessa jarðvist. Mamma var blíðasta og um- hyggjusamasta manneskja sem ég hef í lífi mínu kynnst. Hún var einstaklega góð kona, full af kær- leik, hafði dásamlega nærveru, hugljúf og ráðagóð. Hún var góð- ur hlustandi og kenndi mér að virða skoðanir annarra. Aldrei sá ég móður mína reiðast eða tala illa um aðra heldur talaði hún um fólk af virðingu og fór aldrei í manngreinarálit. Hún sá það besta í hverri manneskju. Mamma var mjög trúuð og kenndi okkur systkinunum að bera virðingu fyrir mönnum og málleysingjum. Á yngri árum var hún í bænahring með góðum hópi vinkvenna. Þegar einhver átti um sárt að binda var beðið eða jafn- vel setið/vakað yfir viðkomandi barni eða fullorðnum í veikindum þeirra. Móðir mín opnaði heimili sitt fyrir allskonar trúarhópum til að fræðast um trúmál. Eitt sinn komu trúboðar frá Mormóna- kirkjunni til hennar og ávallt tók mamma vel á móti þessum drengjum með hlýhug og um- hyggju, því hún vissi að þeir voru ungir að árum langt frá heima- högum. Mamma skírðist síðan í kirkjuna þeirra og kynntist hún mörgu góðu fólki og ferðaðist með þeim. Öll hennar búskaparár eftir þetta bauð hún þeim reglu- lega í mat. En mamma var ekki bara með heimboð fyrir kirkjuna sína held- ur hélt hún mörg matar- og kaffi- boð fyrir alla þá sem henni voru hugleiknir. Hún elskaði að elda mat og baka. Það var oft mikill gestagangur á heimili hennar samhliða vinnu og um helgar, þar var glatt á hjalla og tekið vel á móti öllum vinum og vanda- mönnum. Allt hennar líf einkenndist af því að aðstoða og hjálpa öðrum. Henni var sérlega hugleikið eldra fólk og þeir sem voru minni- máttar sem hún reyndi að að- stoða eftir bestu getu. Mamma sýndi öllum, bæði mönnum og málleysingum, ást og umhyggju. Á heimili okkar voru alltaf dýr, stundum páfagaukar en oftast kisur. Mamma var einstaklega list- ræn og handlagin kona. Með mik- illi alúð gerði hún allskonar skreytingar bæði fyrir jól og páska. Hún var einstaklega hrifin af fuglum og notaði þá óspart í skreytingar. Hún var sérstaklega góð saumakona enda lærði hún þá iðn hjá klæðskera á Ísafirði þegar hún var ung að árum og saumaði hún öll föt á okkur systk- inin þegar við vorum lítil. Mamma var mikil ræðukona og flutti margar fallegar og hugljúf- ar ræður við margskonar tæki- færi. Hvort sem hún var stödd í brúðkaupum, stórafmælum, ætt- arsamkomum eða í kirkjunni. All- ar ræður hennar einkenndust af fallegum hugsunum og hlýleika sem umluku gestina/hlustendur. Mamma var ekki bara góð móðir heldur góð amma og langamma sem gott var að heimsækja. Þau eiga öll eftir að sakna hennar, þessarar fallegu og hjartahlýju konu. Mamma átti þrátt fyrir há- an aldur góðar vinkonur sem voru henni trúar og tryggar alveg fram í andlátið. Elsku mamma mín, ég kveð þig með sárum söknuði en minn- ing þín mun ávallt lifa. Ég veit að þú ert komin á æðri stað þar sem elsku pabbi hefur beðið þín, ásamt öllu því góða fólki sem átti samleið með þér á lífsins braut. Þín Guðný. Elsku mamma, ég veit ekki hvers vegna mér var úthlutað mömmu eins og þér en einhver hefur kippt í rétta spotta. Þú varst einstök manneskja og ef til væri bók um hvernig á að vera María Sigurborg Jonný Rósinkarsdóttir ✝ Linda GuðbjörgSamúelsdóttir fæddist 29. júní 1956 á Akranesi. Hún lést á Sjúkra- húsi Akraness 27. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru Samúel Ólafsson frá Furu- firði, f. 29. ágúst 1928, d. 20. desem- ber 2006, og Fjóla Sigurðardóttir frá Skagaströnd, f. 8. ágúst 1926, d. 15. maí 2012. Systkini Lindu eru Sigurður Kári. f. 17. júlí 1951, d. 28. mars 1974, dóttir hans er Bergþóra, og Ólöf Húnfjörð. f. 7. október 1961, synir hennar eru Samúel og Jó- hann Aðalsteinn. Linda kynntist Guðna Þórðar- syni, bifreiðastjóra frá Akranesi, haustið 1974 og gengu þau í hjónaband 17. júní 1978. For- eldrar hans eru Þórður Þórðar- 5) Guðbjörg Rós. f. 3. ágúst 1989. 6) Linda Björg, f. 6. júlí 1992. Linda ólst upp á Akranesi og gekk þar í barna- og gagnfræða- skólann ásamt því að vinna þar frá barnæsku við ýmiss konar störf, s.s. í niðursuðuverksmiðju, í fisk- vinnslu, við eggjaframleiðslu og við verslunarrekstur. Haustið 1981 keypti hún ásamt foreldrum sínum og eiginmanni jörðina Tungu og bjó þar alla tíð síðan. Þar hófu þau búrekstur, sumarbúðir voru starf- ræktar þar í átta sumur, ferða- þjónusta var starfrækt ásamt eggjabúinu Hamingjueggjum og svo var opnaður veitingastaðurinn Skessubrunnur. Auk þess starfaði Linda á tímabili á skrifstofu Slát- urhússins við Laxá, sem meðhjálp- ari í Hallgrímskirkju í Saurbæ og var einn af stofnendum Sálarrann- sóknarfélags Akraness og Borgar- fjarðar. Hún var mikill nátt- úruunnandi og allt tengt náttúru- lækningum var henni mikið hugðarefni. Áhugamál hennar voru hestamennska, að ferðast innanlands sem og til fjarlægra landa og handavinna. Útför Lindu fer fram frá Akra- neskirkju í dag, 18. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. son, f. 26. nóvember 1930, d. 30. nóvem- ber 2002, og Ester Teitsdóttir, f. 26. september 1932. Börn Lindu og Guðna eru: 1) Fjóla Lind, f. 4. apríl 1978. Dóttir hennar er Ester Þóra. 2) Sigurður Kári, f. 13. maí 1979, maki Bjarney Sólveig Annelsdóttir og eiga þau tvö börn; Natalí Fanneyju og Annel Teit. Fyrir átti Sigurður son, Enrique Snæ. 3) Þórður, f. 29. júní 1982, maki Erna Björg Gylfadóttir og eiga þau fjögur börn; Evlalíu Lind, Stíg Berg- mann, Guðna og Borgþóru Bryn- dísi. 4) Guðný Kristín, f. 6. októ- ber 1987, maki Brynjar Ægir Ottesen og eiga þau fjögur börn; Arnfinn Guðna, Samúel Kára, Þórð Ármann og Bryndísi Jónu. Elsku besta mamma okkar. Þó sorgin sé yfirþyrmandi þá er þakklæti okkur efst í huga fyr- ir að hafa fengið að eiga þig í lífi okkar. Það er skrítið að hugsa til þess að lífið haldi áfram án þín okkur við hlið. Þú varst alltaf til staðar ef eitthvað bjátaði á og sú sem var fyrst til að samgleðjast svo inni- lega yfir litlum sem stórum sigr- um í lífinu, hvort sem við lærðum þrisvar sinnum töfluna utanbók- ar eða stærri áföngum okkar á lífsleiðinni. Þó stærri atburðir í lífi okkar virtust sjaldan koma þér á óvart því þú virtist oft hafa vitað af þeim á undan okkur. Þú varst alltaf svo hlý og góð við okkur og þegar við lítum til baka erum við full þakklætis fyrir ástríkar og gleðilegar minningar sem við eigum með þér. Það er ómögulegt að telja upp allar ynd- islegu stundirnar sem við áttum með þér, t.d. öll ferðalögin þvers og kruss um landið að skoða allar náttúruperlurnar sem þið pabbi kennduð okkur svo vel að meta, hestaferðirnar hvort sem farið var stuttar leiðir í sveitinni eða lengri leiðir á slóðir forfeðra þinna. En það var þó ekki þannig að það þyrfti að vera sérstakt til- efni heldur var einfaldlega nær- veran þín svo ástrík og góð að við munum alltaf varðveita í hjarta okkar minningar um allar stund- irnar sem við áttum með þér. Mamma, þú varst stórmerki- leg og vildir allt fyrir okkur börn- in þín gera. Þú gerðir hugmyndir að veruleika með því að gera litlu hlutina í lífinu stórmerkilega fyr- ir okkur, við munum það sem mikil ævintýri þegar þið fóruð með okkur í hestaferðir í ná- grenni við Tungu og leyfðuð okk- ur svo að tjalda uppi í fjalli eða úti á túni og borða nestið okkar í holtinu. Við getum ekki ímyndað okkur betri fyrirmyndir í lífinu en þig og pabba, þið hafið kennt okkur svo margt um lífið og tilveruna líkt og vinnusemi, elju, dugnað, ein- lægni, heiðarleika og svona væri lengi hægt að telja áfram. Alla þessa þætti lærðum við af því að vinna með þér og samhliða í sveit- inni okkar í Tungu, hvort sem það var að sinna hinum hefðbundnu sveitastörfum, aðstoða í sumar- búðunum í Tungu og hestaleig- unni, tína hamingjuegg, vinna við tjaldstæðið, bjálkahúsin, pottana og svo loks Skessubrunn í flottu ferðaþjónustunni sem þið pabbi byggðuð upp. Tunga er alltaf okkar heimili í hjarta en þú samgladdist okkur öllum hvaða leið sem við fórum í lífinu og við fundum vel hversu stolt þú varst af okkur öllum. Þú lagðir alltaf mikla áherslu á það að við fyndum okkar eigin ham- ingju og reyndir að hjálpa sem mest þú gast á þeirri vegferð okk- ar, fyrir það erum við ævinlega þakklát og munum við heiðra minningu þína með því að halda áfram að lifa eftir þeim lífsgildum sem þú kenndir okkur alla tíð. Það leyndi sér ekki hvað þú varst hamingjusöm með allan hópinn af barnabörnum sem þú fékkst inn í lífið ykkar pabba og hvað þau eru þakklát fyrir að hafa átt þig fyrir ömmu. Þau eiga þig enn, engil á himni sem vakir yfir þeim og okkur. Og minning þín mun lifa áfram í sögunum sem við munum segja börnunum okk- ar af þér. Linda Guðbjörg Samúelsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRTUR ÁRMANN EIRÍKSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 13. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. júlí klukkan 15. Steinunn B. Hanahan Douglas Hanahan Eiríkur Hjartarson Valgerður Hjartardóttir Árni Ólafur Hjartarson Eygló Walderhaug barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYSTEINN GUÐMUNDSSON bílasmiður, lést mánudaginn 15. júlí á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 23. júlí klukkan 13. Valgerður Þ. Guðleifsdóttir Þór Eysteinsson Viðar Eysteinsson Kolbrún Eysteinsdóttir Kristinn Bjarnason Guðrún M. Eysteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR B. EYDAL, fv. skrifstofustjóri borgarstjórnar, Sogavegi 112, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 15. júlí. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 25. júlí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans. Ásgerður Ragnarsdóttir Ragna Björk Eydal Steinar Ólafsson Hjördís Eydal Hlynur Hendriksson Gunnar Páll Eydal Harpa Grímsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HANNA SIGRÍÐUR HOFSDAL KARLSDÓTTIR, Geitastekk 6, Reykjavik, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 11. júlí. Útför fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 24. júlí klukkan 13. Magnús L. Sveinsson Ágúst Kvaran Ólöf Þorsteinsdóttir Sveinn Magnússon Sólveig Magnúsdóttir Einar Magnús Magnússon barnabörn og barnabarnabörn Elsku besti eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, ATLI ÖRN SNORRASON rokkari, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði laugardaginn 6. júlí. Útför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 20. júlí klukkan 14. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á krabbameinsfélagið Sigurvon á Ísafirði. Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir Álfheiður Björg Atladóttir Óðinn Örn Atlason Hilmir Örn Atlason Jóna Kristín Kristinsdóttir Kristinn, Pálína og fjölskyldur Snorri Sturluson Erla Eðvarðsdóttir Sturla, Adda, Hulda, Kristey og fjölskyldur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.