Morgunblaðið - 18.07.2019, Side 50

Morgunblaðið - 18.07.2019, Side 50
Hvernig er þinn fatastíll? „Fatastíllinn minn er einfaldur. Ég klæðist mikið jarðbundnum litum og á sumrin elska ég að klæðast aðeins frjálslegri litum. Ég hef alltaf verið mikið fyrir kjóla og yfirhafnir. Í dag kaupi ég mér færri og vandaðri flíkur og pæli í notkunarmöguleikum ásamt gæðum.“ Breytist fatastíllinn þinn á sumrin og er eitthvað sem er nauðsynlegt að eiga í sumar? „Stíllinn minn er nokkuð samkvæmur árstíð- um. Ég klæðist meira kjólum og pilsum á sumrin, og ef mér verður kalt er ég oftast með leðurjakka meðferðis. Svartur leðurjakki er klassísk yfirhöfn til að henda yfir sig. Það er ekkert nauðsynlegt, bara það sem manni líður best í. Ég er búin að klæðast mikið hvítum gallabuxum í sumar og kjólum sem er hægt að klæða bæði upp og niður.“ Uppáhaldsverslunin á Íslandi? „Farmers’ Market, Zara og Geysir.“ En í útlöndum? „Ég versla mikið í Samsoe Samsoe, Malene Birger, All Saints og Topshop.“ Verslar þú mikið á netinu? „Á menntaskólaárunum verslaði ég mjög mik- ið á netinu en það hefur dregið úr því síðustu ár. Ef ég versla af netinu fer ég oftast á Asos. Í dag pæli ég mikið í flíkinni, hversu vönduð hún er, hversu endingargóð og hvort hún mát- ist vel.“ Hvað finnst þér setja punktinn yfir i-ið þegar þú gerir þig til? „Það er alltaf hægt að dressa „outfit“ upp eða niður með fallegri yfirhöfn og skartgripum.“ Bestu kaup sem þú hefur gert? „Malene Birger-jakki sem ég keypti í Kultur. Hann passar við nánast allt, hann er mjög elegant og vandaður. Góður, stílhreinn blazer- jakki er það sem allir ættu að eiga í sínum fataskáp. Ég er mjög hrifin af pilsinu frá Ganni sem ég keypti í Farmers’ Market á út- sölu.“ Áttu þér tískufyrirmynd? „Mamma hefur alltaf verið með mjög flottan fatastíl og lít ég mikið upp til hennar. Ég fæ oft föt að láni hjá henni sem ég tel mikinn kost. En annars hefur mér alltaf fundist Laura Hutton vera með mjög smart fatastíl.“ Hvað er á óskalistanum? „Ég er búin að vera að leita að hvítum, klass- ískum samfestingi með ermum mjög lengi.“ Mamma mikil tískufyrirmynd Arkitektaneminn Aþena Aradóttir er með fallegan og klassískan fatastíl eins og kom í ljós þegar Smartland fékk að kíkja í fataskápinn hennar. Aþena starfar sem flugfreyja á sumrin en mun hefja nám á lokaári í arkitektúr í Lista- háskóla Íslands í haust. Morgunblaðið/Eggert Hvíta buxur Aþena hefur notað hvítar gallabuxur mikið í sumar. Vandað Aþena kaupir vandaðar flíkur. Pils Pils og kjólar á sumrin. Skart Fallegir skartgripir setja punktinn yfir-ið. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18 Sérhæfum okkur í hreinsun á viðkvæmum fatnaði   þú það sem    á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.