Morgunblaðið - 18.07.2019, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
Ef það er eitthvað sem þjóðin elsk-
ar þá er það gott salat ofan á brauð
og þau gleðitíðindi berast að Hag-
kaup sé búið að framleiða hágæða
salöt þar sem allt er lagt upp úr
bragði og gæðum. Salötin koma í
glerkrukkum og þykja einstaklega
bragðgóð og vel heppnuð.
Að sögn Stefaníu Ingvarsdóttur
hjá Hagkaup hafa viðtökurnar ver-
ið framar björtustu vonum en mikið
hafi verið lagt í vöruþróun og að slá
hvergi af gæðunum. Brauðsalöt séu
vinsæl vara eins og við þekkum
flest og hægt að nota bæði spari og
hversdags. Sum séu afskaplega fjöl-
breytt fæða. Salötin koma í þremur
útgáfum; með laxi, túnfisk og
rækjum.
Hágæða salöt í glerkrukkum
Lúxus-salöt Mikið er lagt upp
úr hráefnisvali í salötin sem
hafa fengið fádæma viðtökur.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Meistarakokkarnir Baldur Haf-
steinn Guðbjörnsson og Gunnar
Chan reka staðinn 108 Matur í
Fákafeni 9 í Reykjavík. Þar bjóða
þeir upp á hágæða heimilismat sem
hefur mælst einkar vel fyrir enda
skortur á almennilegum heimilismat
sem er bæði vandaður og góður – án
þess þó að missa sjarmann. Við
fengum Baldur til að grilla fyrir okk-
ur þar sem hann er sagður afar
flinkur á því sviði og hann brást að
sjálfsögðu vel við því. Hér getur að
líta uppskrift að grilluðum grísa-
hnakka með munúðarfullu meðlæti
sem mun slá í gegn á hvaða matar-
borði sem er.
Grísahnakki
fyrir 4
900 g grísahnakki í heilum bita
Aðferð:
Grísahnakkinn er settur í saltlög í
sólarhring (100 g salt móti 1 lítra af
vatni blandað vel saman). Hnakkinn
er tekinn úr leginum og skolaður.
Hann er kryddaður með Five spices
og vakúmpakkaður. Svo er hann eld-
aður í vatnsbaði við 80 gráður í tvo
og hálfan tíma. Hann er svo tekinn
og skorinn í fallegar steikur. Settur
á funheitt grillið til að fá gott grill-
bragð í hann og svo penslaður með
hoisin-grillsósunni.
Hoisin-grillsósa
300 g hoisin
100 g sojasósa
50 g hunang
10 g engifer ferskt, rifið
10 g hvítlaukur ferskur, rifinn
5 g kóríander, malaður
5 g chiliduft
1 sítróna (safinn)
Aðferð:
Öllu blandað saman, gott er að
gera þessa sósu deginum áður.
Grillaður maís
4 stk. ferskur maís
4 msk. majónes
1⁄4 búnt ferskt kóríander
4 msk. parmesan
Aðferð:
Hýðið tekið af og hann grillaður á
heitu grilli í um það bil tíu mínútur.
Snúið honum reglulega, passið að
ofelda hann ekki, það á að vera að-
eins bit í honum. Þegar búið er að
grilla hann þá er hann penslaður
með majónesi og söxuðum kóríander
og rifnum parmesan-osti stráð yfir
hann.
Grillað hvítkál
í appelsínudressingu
½ hvítkál skorið í 1 cm þykkar sneiðar
olía
salt og pipar
appelsínudressing
3 appelsínur
1 dl olífuolía
1 msk. eplaedik
1 msk. hunang
1 msk. saxað estragon
salt og pipar
Aðferð:
Blómkálið er penslað með olíu á
báðar hliðarnar og kryddað með
salti og pipar. Hvítkálið er svo grill-
að á báðum hliðum, það má gjarnan
brenna smá. Þetta tekur nokkrar
mínútur, hérna þarf líka að passa að
ofelda hvítkálið ekki, það á að vera
bit í því. Þegar búið er að grilla hvít-
kálið er það skorið óreglulega niður í
munnbita.
Appelsínudressing:
Appelsínurnar afhýddar og skorn-
ar í litla teninga en takið hvíta hlut-
ann og steina í burtu. Olíu, ediki,
hunangi og estragoni er blandað
saman og hellt yfir appelsínuten-
ingana, þetta er smakkað til með
salti og pipar og að endingu er þessu
blandað við hvítkálið.
Gott er að hafa með þessu gott
sumarkartöflusalat.
Grísahnakki
með munúðar-
fullu meðlæti
Morgunblaðið/Hari
Ljúffengt Einfaldur en bragð-
mikill réttur að hætti Baldurs.
Gómsætt á grillið
Maís og svínakjöt
passa sérstaklega
vel saman og er
vert að prófa.
Gourmet-grillari
Baldur Guðbjörnsson,
meistarakokkur með
meiru, kann réttu
handtökin við grillið.