Morgunblaðið - 18.07.2019, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Glæsilegt rúm* – leðurklætt
VENERE L020
* Dýna fylgir ekki með
„Ég byrjaði í grunnskóla að fikta við
að gera tónlist, búa til takta og
svona, svo glamra ég eitthvað á gítar
líka,“ segir Jóhannes Gauti eða
Skauti spurður um bakgrunn sinn í
tónlist.
„Listmannsnafnið varð til vegna
þess að þegar menn segja Jóhannes
Gauti hratt getur millinafnið hljóm-
að eins og Skauti. Nánustu vinir
mínir kalla mig þetta stundum og ég
ákvað svo bara að nota þetta.“
Skauti sendi frá sér sitt fyrsta lag í
fyrrasumar, lagið Ekki heim, sem
sló rækilega í gegn og varð sannkall-
aður „klúbbahittari“.
Nú ári síðar sendir hann frá sér
heila plötu en þar kveður við annan
tón en í laginu sem kom í fyrra.
Platan heitir Sáluhjálp og kom út á
Spotify á dögunum. „Ég ætlaði ekk-
ert að gefa þetta út í byrjun. Var
bara að búa þetta til fyrir sjálfan
mig. Það var einskonar athvarf fyrir
mig þegar mér leið ekki vel að búa til
tónlistina sem er á þessari plötu,“
segir Skauti sem er svo sannarlega á
persónulegu nótunum í lagasmíðum
sínum. „Ég notaði tónlistina sem
tæki til þess að losa um tilfinningar.“
Skauti er ekki einungis að fást við
að skapa tónlist, en hann er að læra
til læknis, nám sem krefst mikils
tíma og einbeitingar. „Mér þykir
gott að vera með nógu mörg tann-
hjól til að snúa hverju sinni, eitt þarf
ekki að útiloka annað,“ segir þessi
metnaðarfulli ungi læknanemi og
tónlistarmaður sem er rétt að byrja.
Tónlistin losar um tilfinningar
Jóhannes Gauti Óttars-
son er 24 ára gamall
læknanemi sem einnig
fæst við tónlist. Hann
sendi frá sér sitt fyrsta
lag í fyrrasumar og nú
fyrir nokkrum dögum
sína fyrstu plötu.
Sáluhjálp Tónlistin
var athvarf fyrir
Jóhannes þegar
honum leið ekki vel.
Sigurður Þorri Gunnarsson
siggi@k100.is
Þessa vikuna fengum við á
K100 að kynnast tveimur
ólíkum tónlistarmönnum sem
eiga eitt sameiginlegt, þeir
lærðu báðir að gera tónlist á
Youtube. Með óbilandi áhuga
og ástríðu tókst þeim að læra
sjálfir hvernig á að búa til
tónlist í tölvunni og standa nú
uppi með útgefið efni sem
þeir mega vera stoltir af. Ef
þetta fær mann ekki aðeins
til þess að staldra við og
hugsa þá veit ég ekki hvað.
Kannski er kominn tími til að
ég hætti að barma mér yfir
því að vera að mestu búinn að
glutra niður píanókunnátt-
unni minni frá því að ég lærði
sem barn og fari á Youtube
og geri eitthvað í málunum.
Nú eða skrái mig í píanónám.
Hrekkjusvín sungu árið 1977
„Guð hjálpar þeim sem að
hjálpa sér sjálfir“ í laginu
Krómkallar. Ég veit ekki
hvort Guð hafi eitthvað með
það að gera en það er alla-
vegana ljóst að þeir sem
hjálpa sér
sjálfir og
gera eitt-
hvað í mál-
unum ná
árangri!
Guð hjálp-
ar þeim
sem hjálpa
sér sjálfir
„Daystar er búið að vera í undirbún-
ingi lengi. Ég og eiginkona mín
myndum kjarnann í þessu verkefni
ásamt félaga okkar sem gerir tón-
listina með okkur,“ segir talsmaður
Daystar sem vil láta kalla sig Draug.
Hann hóf feril sinn í tónlist í
„black metal“-bandi á unglingsárum
en hætti því þegar hann hélt utan til
Bandaríkjanna í liðsforingjaþjálfun
hjá bandaríska hernum. „Ég fór að
sakna þess að gera tónlist á meðan
ég var í þjálfuninni og nýtti dauðan
tíma í hernum til að læra að búa til
raftónlist. Eftir að Nýa fór að vinna
að tónlistinni, þá gerðist eitthvað,
eitthvað sem gerist þegar introvert
og extrovert gera tónlist saman, og
upp úr því fæddist tónlistin sem
Daystar er nú að gefa út, óvenjuleg
blanda með miklum andstæðum sem
einhverjir hafa kallað Cyber Punk.“
„Nýa kemur úr langri tónlistarætt
og hefur tónlistina mikið í sér, klass-
ískan bakgrunn með selló og píanó
og þegar það blandaðist rokkdrifinni
raftónlistinni þá fóru hlutirnir að
gerast,“ segir Draugur. Nú eru tvö
lög komin út á Spotify og meira efni
á leiðinni ásamt tónlistarmyndbandi.
Hljómsveitin kemur fram í fyrsta
skipti opinberlega á þjóðhátíð sem
er einstaklega vel við hæfi þar sem
hún gerir út frá Vestmannaeyjum.
Hægt að er að leita hljómsveitina
uppi á Facebook og Spotify og fylgja
henni eftir þar, en eins og áður segir
er margt spennandi framundan sem
vert er að fylgjast með.
Lærði að gera raftón-
list í Bandaríkjaher
Vestmannaeyjar eru fyrir löngu þekktar fyrir
fjölbreytt tónlistarlíf og hæfileika. Nýjasta
hljómsveitin þaðan er hljómsveitin Daystar
sem býður upp á skemmtilegan bræðing af
rokki og raftónlist, sem mætti kalla Cyber Punk.
Daystar Draugur og
Nýa skipa hljómsveitina.