Morgunblaðið - 18.07.2019, Side 56

Morgunblaðið - 18.07.2019, Side 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is NJÖRVI & NJÖRVI+ Öflug árekstrarvörn Njörvi er öflugur stólpi til að verja mannvirki og gangandi fólk. Hentar líka vel til skyndilokana vega og til að afmarka akstursleiðir og bílaplön. 50 ára Heiðrún er Reykvíkingur, ólst upp í Breiðholtinu en býr í 101. Hún er með BA- gráðu í stjórnmála- fræði frá Háskóla Ís- lands og meistara- gráðu frá Háskólan- um í Lundi. Hún er ritari forseta Alþingis. Maki: Gestur Guðjónsson, f. 1972, verkfræðingur hjá Olíudreifingu. Börn: Elva, f. 2000, Auðunn Páll, f. 2006, og Bragi Valur, f. 2008. Foreldrar: Páll Bjarnason, f. 1939, menntaskólakennari, og Álfheiður Sig- urgeirsdóttir, f. 1935, heimilis- fræðikennari. Þau eru bús. í Reykjavík. Heiðrún Pálsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur reynst erfitt að gefa nánum vini góð ráð þegar maður er sjálfur viðriðinn málið. Útgjöldin eru of há hjá þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert gædd/ur forvitni um um- hverfi þitt og hún er með mesta móti í dag. Mundu að virða skoðanir annarra, líka þótt þú sért ekki sammála þeim. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert allra vinur þessa stundina og ættir að láta þér vel líka í flestum til- vikum. Samræður við maka ganga stirð- lega. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gættu þess að sjálfselskan grípi þig ekki. Gættu þess að halda utan um þína nánustu eins vel og þú getur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur þurft að sætta þig við þrengingar á undanförnum árum en nú er að rofa til. Deildu hugmyndum þínum með öðrum, en gættu þess að útskýra þær nógu vel. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Spurningarnar sem hvíla á þér eru að gera þig vitlausa/n. Kreistu fram svör og taktu síðan ákvörðun um framhaldið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú ert nógu ákveðin/n og bjart- sýn/n ætti það að reynast þér leikur einn að láta drauminn rætast. Allir hafa ein- hverjar áhyggjur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Hagkvæmar áætlanir og óhagkvæmir draumar eiga jafnmikla möguleika á að rætast. Verndaðu sjálfan þig og láttu engan ráðskast með þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gerðu upp við þig hvað þú vilt fá út úr tilteknu sambandi. Kannski er ein- hver í fjölskyldunni til í að hjálpa þér að fá botn í málið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú veist nákvæmlega hvert þú stefnir, en það sem gerist styður það ekki alltaf. Gættu þess að fara ekki fram úr sjálfri/sjálfum þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Varastu að festast í gömlum gildum sem eiga ekki lengur við og eru bara til trafala. Ekki er allt gull sem glóir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert ekki alveg eins og þú átt að þér og skalt þess vegna ekki taka neinar stórar ákvarðanir. Ekki setja öll eggin í sömu körfuna. sjávarleðri sem ég hef hrifist mjög af.“ Í Skessuhellinum í Reykjanesbæ situr hugsmíð og ástkær vinkona Herdísar, Skessan, sem hún skap- aði og hefur skrifað um alls 16 bækur. Fyrstu skessubækurnar Handverk hefur ávallt fylgt Her- dísi. Hún kenndi landsmönnum föndur í sjónvarpi. Hún saumaði lengi föt á börn sín og vini og hannaði og smíðaði sitt eigið sófa- sett. „Ég hef m.a. hannað flíkur, töskur og skart úr leðri og roði eða H erdís Egilsdóttir fæddist 18. júlí 1934 á Húsavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1952 og kennaraprófi frá Kenn- araskóla Íslands ári síðar, 1953. Það sama haust hóf hún 45 ára kennsluferil sinn í Skóla Ísaks Jónssonar, þar sem hún kenndi all- an sinn starfsaldur. Herdísi er margt til lista lagt, en hún hefur samið fjölda barnabóka og myndskreytt þær flestar sjálf. Einnig hefur hún samið kennslu- efni og kennsluhandbækur og hald- ið fjölda kennaranámskeiða um allt land. Bækurnar um Siggu og skessuna í fjallinu, Vatnsberana, Pappírs- Pésa og Rympu á ruslahaugnum eru dæmi um efni eftir Herdísi. Hún hefur einnig samið ljóð og lög og skrifað mörg leikrit fyrir útvarp, sjónvarp og leikhús. Herdís þróaði kennsluaðferð, sem nefnist Landnámsaðferðin, og hefur aðferðin átt hug hennar og hjarta allar götur frá 1973. „Þá lagði ég af stað með nemendum mínum sem voru 7-8 ára í það ferðalag að setjast að á ímynduðu landi þar sem allt vantar nema gjafir náttúrunnar og byggja upp þar samfélag með öllu því sem til þarf.“ Löndin urðu 12 talsins á þeim u.þ.b. 25 árum sem hún gæddi kennsluna auknu lífi með því að nota þessa aðferð. Herdís hætti að kenna árið 1998 og síðan þá hef- ur hún notað tíma sinn meðal ann- ars til að vinna að útbreiðslu Land- námsaðferðarinnar, bæði innan lands og utan. Herdís er landsþekkt fyrir ástríðu sína fyrir læsi barna og hef- ur haldið á lofti mikilvægi hljóð- lestraraðferðarinnar sem hún kynntist ung í Ísaksskóla. Árið 2016 var gefin út kennsluhandbók eftir Herdísi sem heitir „Það kem- ur SAGA út úr mér“, og er bókin ætluð öllum þeim sem vilja koma að lestrarkennslu eða lestrarþjálfun barna sinna. Vefsíðan www.læsi.is styður við efni hennar. voru gefnar út 1968 og enn nýtur skessan hylli ungra lesenda. „Þegar ég varð 75 ára var ég ákveðin í því að eyða afmælisdeginum hjá Skess- unni minni. Þar voru bakaðar lummur að hætti Skessunnar í sól- skini og blíðskaparveðri fyrir gesti og gangandi og um fjögur hundruð manns nutu veitinganna.“ Tónlistin hefur fylgt Herdísi alla tíð. Hún lék undir söng barna í Ís- aksskóla öll sín ár þar og öll börn sem voru í bekk hjá Herdísi upp- lifðu söng á hverjum degi. „Frá því upp úr aldamótum nutum við Anton, eiginmaður minn, þess að sinna sameiginlegu áhugamáli þeg- ar við heimsóttum óperuhús víða um heim til að njóta þess besta sem boðið er upp á á því sviði.“ Herdís hefur hlotið fjölda verð- launa og viðurkenninga fyrir sín störf og framlag sitt til barnamenn- ingar. Þar má nefna Verðlaun Jón- asar Hallgrímssonar á Degi ís- lenskrar tungu árið 2008 og riddarakross hinnar íslensku fálka- orðu árið 1994. Árið 2018 fékk Her- dís heiðursverðlaun Samfélags- verðlauna Fréttablaðsins fyrir framlag sitt til lestrarkennslu barna. „Núna á 85 ára afmælinu liggur helst á mér að skila af mér til nota fyrir aðra kennara ítarlegum leið- beiningum og hugmyndum um hvernig hægt er að nota Land- námsaðferðina með nemendum. Að- ferðin er þrautreynd og á sterkt erindi inn í nútímalega kennslu- hætti þar sem börn vinna sjálfstætt, rannsaka og skoða og styrkja persónulega færni sína á öllum sviðum gegnum ríkulega samvinnu og mikla sköpun.“ Kennsla var ástríða Herdísar og er enn. Fjölskylda Eiginmaður Herdísar frá 2003 er Anton Sigurðsson, f. 17. ágúst 1932, fyrrverandi skólastjóri Ísaksskóla. Fyrri eiginmaður Herdísar var Björn Sigurðsson, f. 7. mars 1936, d. 7. júlí 2008, en hann vann við verslun og viðskipti. Börn Herdísar og Björns eru: 1) Herdís Egilsdóttir, kennari, rithöfundur og handverkshönnuður – 85 ára Með börnum og barnabörnum Herdís með börnum sínum og tveimur yngstu barnabörnunum þegar Halldóra Líney fermdist. Kennslan var ástríða og er enn Vinkonur Herdís og Svanlaug Jóhannsdóttir, fv. nemandi hennar. Hjónin Anton og Herdís hafa sótt óperuhús víða um heim. 40 ára Rúnar ólst upp í Varmahlíð en býr á Sauðárkróki. Hann er bifvélavirki og sjúkra- flutningamaður að mennt og starfar sem sjúkraflutninga- og slökkviliðsmaður á Sauðárkróki. Maki: Þuríður Elín Þórarinsdóttir, f. 1987, skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Skag- firðinga. Börn: Aron Snær, f. 2008, Styrmir Snær, f. 2010, og Snædís Emma, f. 2015. Foreldrar: Guðmundur Magnússon, f. 1958, húsvörður í Varmahlíðarskóla, og Stefanía Fjóla Finnbogadóttir, f. 1959, heimavinnandi. Þau eru bús. í Varmahlíð. Guðmundur Rúnar Guðmundsson Til hamingju með daginn Heiðar Máni Reynis- son og Sóley Ósk Við- arsdóttir söfnuðu flöskum og dósum í Breiðholtinu og fengu í skilagjald 6.384 kr. sem þau gáfu Rauða krossinum að gjöf. Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.