Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 60
Guðni Valur Guðnason » Var útnefndur frjáls- íþróttamaður ársins 2018. » Á Íslandsmet 20-22 ára í kringlukasti, 63,50 metrar, sem hann setti árið 2015. » Kastaði 65,53 metra á síðasta ári og tryggði sér sæti á EM, þar sem hann kastaði 61,36 metra. Íslandsmet Vésteins Hafsteinssonar er 67,64 metrar og hefur staðið frá árinu 1989. Kringlukast Guðni Valur Guðna- son stefnir á að tryggja sér þátttökurétt á HM sem fram fer í Doha í Katar í lok september. FRJÁLSAR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Þetta var ekkert sérstakur dagur hjá mér þótt ég segi sjálfur frá,“ sagði Guðni Valur Guðnason, ný- krýndur Íslandsmeistari í kringlu- kasti, í samtali við Morgunblaðið á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór á Laug- ardalsvelli um síðustu helgi. Guðni Valur kastaði kringlunni 54,16 metra, tæplega fjórum metr- um lengra en Valdimar Hjalti Er- lendsson sem hafnaði í öðru sæti. Þrátt fyrir það var Guðni Valur langt frá sínu besta, sem eru 65,53 metrar, en því kasti náði hann í júlí síðasta sumar. „Ég er búinn að vera meiddur síðan á Smáþjóðaleikunum og hef lítið getað beitt mér síðan þá. Ég stífnaði allur upp í náranum í upp- hitun og síðar kom í ljóst að um tognun væri að ræða. Ég gerði hins vegar nóg til þess að vinna hér sem er jákvætt. Þetta voru ekki löng köst hjá mér, á minn mælikvarða séð, en samt ágætis lengd miðað við það að ég hef átt í ákveðnum vandræðum með að beita mér almennilega. Ég á hins vegar von á því að ég komi sterk- ari til baka,“ sagði Guðni. Auk þess sem hann sigraði í kringlukasti þá vann hann einnig öruggan sigur í kúluvarpi, sem er orðin nokkurs kon- ar aukagrein hans. Þar kastaði Guðni 17,09 metra og var um 2,5 metrum á undan næsta manni. Ætlar sér að ná lágmarki Að- algreinin er hins vegar kringlukastið og þar setur Guðni Valur stefnuna á HM í Doha í Katar sem fram fer í lok september. Til þess að komast á mótið þarf hann að kasta kringl- unni 65 metra. „Núna þarf ég fyrst og fremst að ná mér af þessum nára- meiðslum sem eru búin að vera að trufla mig. Þegar það er komið þá fer ég á fullt við að reyna að ná lágmarkinu fyrir HM í Doha. Ég á von á því að það taki ekki langan tíma þegar ég næ fullri heilsu og ég er bjartsýnn á að það takist. Ég var á góðri leið með að ná lág- markinu áður en ég meiddist og ég reikna með því að vera orðinn heill heilsu í ágúst.“ Heimslistinn breytist hratt Eins og staðan er í dag er Guðni Valur á leiðinni á HM þar sem hann er ofarlega á heimslistanum en það getur verið fljótt að breyt- ast og því vill Guðni ná lágmark- inu sem fyrst. „Ég er í 26. sæti heimslistans eins og staðan er í dag og það dugar en það eru ennþá tveir mánuðir þangað til lágmarkið rennur út. Ég gæti þess vegna misst menn upp fyrir mig á þess- um tíma og því á ég von á að þetta verði mjög tæpt,“ sagði Guðni Val- ur Guðnason í samtali við Morg- unblaðið.  Guðni Valur Guðnason ætlar að koma sterkur til baka í kringlukastinu Ljósmynd/Páll Jóhannesson Bjartsýnn á að komast á HM eftir meiðsli MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 TILBOÐ* 2.399.000 kr. með vsk. fullt verð 2.692.579 kr með vsk. Allt að 90% fjármögnun í boði Þú sparar 293.579 kr. Bátur Kerra F30Hp Mercury utanborðsmótor. Stjórntæki Rafstart Bensíntankur fullur af bensíni Frí heimsending hvert á land sem er Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Bátur með hnakk & beisli 450cc Utanborðsmótorar 30Hpf *Tilboðið gildir út júlí eða á meðan birgðir endast. HM U21 karla Leikið á Spáni: B-riðill: Nígería – Egyptaland ......................... 30:37 Ástralía – Svíþjóð ................................. 16:44 Suður-Kórea – Frakkland ................... 32:46 D-riðill: Argentína – Ísland ............................... 22:26 Danmörk – Þýskaland ......................... 30:25 Síle – Noregur ...................................... 25:36  Ísland mætir Noregi í þriðju umferð riðlakeppninnar á morgun. EM U19 kvenna B-deild í Búlgaríu A-riðill: Ísland – Serbía...................................... 14:22 Búlgaría – Grikkland ........................... 26:26 B-riðill: Finnland – Bosnía ................................ 20:20 Úkraína – Pólland................................. 26:26  Ísland er með tvö stig eftir þrjá leiki og mætir Bretum í lokaumferð riðilsins í dag.  EM U20 karla B-deild í Portúgal: Ísland – Ungverjaland ......................... 78:41 Rússland – Hvíta-Rússland................. 84:70  Ísland hafnaði í öðru sæti í A-riðli og komst áfram í átta liða úrslit mótsins.  „Mér líst bara frábærlega á þetta,“ sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld, skömmu áður en tilkynnt var að hann hefði verið ráðinn þjálfari kvennaliðs KR í knattspyrnu. Hann tekur við af Bojönu Besic, sem lét af störfum á dögunum. Ragna Lóa Stefánsdóttir hefur stýrt KR í síð- ustu tveimur deildarleikjum, unnið þá báða og komið lið- inu upp í fimmta sæti deildarinnar. Jóhannes Karl reikn- ar með henni sem aðstoðarþjálfara. Sjálfur þjálfaði hann síðast lið HK/Víkings en hætti haustið 2017 eftir að hafa stýrt liðinu upp í efstu deild. Áður hefur hann svo þjálfað kvennalið Breiðabliks og Stjörnunnar. „Ég hef alltaf haft mjög gaman af því að þjálfa og það er gott að fá tæki- færi til þess aftur. Það hefur verið erfitt að koma því fyrir vegna fjöl- skylduaðstæðna, en það er tækifæri til þess núna að koma inn og vonandi gera eitthvað gagn hjá KR,“ sagði Jóhannes Karl, sem er sambýlismaður landsliðsframherjans Hörpu Þorsteinsdóttur sem hefur verið frá vegna meiðsla í allt sumar. yrkill@mbl.is Gott tækifæri að snúa aftur Jóhannes Karl Sigursteinsson Framherjinn Kristján Flóki Finnbogason gæti spilað fyrsta leik sinn með KR þegar liðið fær Grindavík í heimsókn í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu 6. ágúst næstkomandi. Í gær var tilkynnt að KR og norska B-deildarfélagið Start hefðu komist að samkomulagi um félagaskiptin og kemur Kristján Flóki til landsins 29. júlí. Fram að því spilar hann þrjá leiki til viðbótar með Start, en samn- ingur hans við KR gildir síðan út tímabilið 2023. Kristján Flóki er 24 ára gamall uppalinn FH-ingur. Hann hefur spilað 55 leiki með FH í efstu deild og í þeim skorað 16 mörk. Sumarið 2017 skoraði hann átta mörk í 14 deildarleikjum með FH áður en hann var seldur til Start, en FH-ingar voru einnig á höttunum eftir honum núna. Kristján Flóki mætir hins vegar sínum gömlu félögum í Hafnarfirðinum 14. ágúst þegar KR og FH mætast í undanúrslitum bikarkeppninnar. Kristján Flóki kemur í lok júlí Kristján Flóki Finnbogason Meistaradeild Evrópu 1. umferð, síðari leikir: AIK – Ararat-Armenia .................... 3:1 (4:3)  Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem varamaður á 72. mínútu hjá AIK. Piast Gliwice – BATE Borisov ....... 1:2 (2:3)  Willum Þór Willumsson meiddist í upp- hitun og spilaði ekki með BATE. CFR Cluj – Astana ........................... 3:1 (3:2)  Rúnar Már Sigurjónsson fór af velli á 82. mínútu hjá Astana. Riga – Dundalk ................................ 0:0 (0:0)  Dundalk vann 5:4 í vítakeppni. Rosenborg – Linfield....................... 4:0 (6:0) Qarabag – Partizani Tirana............ 2:0 (2:0) Ludogorets – Ferencváros ............. 2:3 (3:5) Sutjeska – Slovan Bratislava.......... 2:1 (2:2)  Sutjeska vann 3:2 í vítakeppni. Maribor – Valur ............................... 2:0 (5:0) Celtic – Sarajevo.............................. 2:1 (5:2) Evrópudeild UEFA 1. umferð, síðari leikur: Chikhura – Fola Esch ..................... 2:1 (4:2)  Samanlögð úrslit í svigum og feitletruðu liðin komin áfram. Taplið í Meistaradeild fara yfir í 2. umferð Evrópudeildar. Afríkumótið Bronsleikur: Túnis – Nígería......................................... 0:1  Senegal og Alsír mætast í úrslitaleik mótsins á morgun. KNATTSPYRNA 60 ÍÞRÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.