Morgunblaðið - 18.07.2019, Síða 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Demparar og gormar
Fjöðrunarbúnaður
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Þó sumarsýning LeikhópsinsLottu þetta árið nefnistLitla hafmeyjan er fátt líktmeð hafmeyju Lottu og
titilpersónu ævintýrsins sem H.C.
Andersen skrifaði 1837 og Disney
útfærði í teiknimynd 1989 annað en
það að hafbúar fá fætur í stað
sporðs og ganga á land til að sinna
brýnum erindagjörðum. Í leikriti
Önnu Bergljótar Thorarensen hitt-
um við fyrir hafmeyjuna Öldu
(Andrea Ösp Karlsdóttir) og börnin
hennar tvö, hafmeyjuna Báru
(Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir) og
marbendilinn Sævar (Árni Bein-
teinn). Allt væri í lukkunnar vel-
standi hjá þeim í sjónum ef ekki
væri fyrir mannfólkið sem notar
hafið sem ruslakistu með þeim af-
leiðingum að sjórinn er að fyllast af
plasti. Fremst í flokki mannfólksins
fara Björk (Þórunn Lárusdóttir) og
Askur (Stefán Benedikt Vilhelms-
son), konungshjón Ævintýra-
skógarins sem skipað hafa hirðmey
sinni (Andrea Ösp Karlsdóttir) og
hirðsveini (Sigsteinn Sigurbergs-
son) að losa allt rusl ýmist í sjóinn
eða upp í Tröllafjall. Hlina kóngs-
syni (Sigsteinn Sigurbergsson)
hugnast lítt framferði foreldra
sinna, en ræður engu þar um.
Þegar prinsinn hverfur sporlaust
einn daginn heitir drottningin því að
hver sá sem geti skilað honum
óhultum heim skuli að launum fá að
stjórna konungsríkinu til hálfs á
móti sér, en það loforð kallast á við
loforð konungshjónanna úr þjóðsög-
unni af Hlina kóngssyni. Þegar
Bára heyrir þetta telur hún einboðið
að þau Sævar fylgi fordæmi litlu
hafmeyjunnar, sem bróðir hennar
hefur lesið um, og fái aðstoð hjá Sír-
enu sem er rammgöldróttur tví-
höfða kolkrabbi (Sigsteinn Sigur-
bergsson og Þórunn Lárusdóttir).
Ólíkt tröllskessunum í þjóðsög-
unni af Hlina kóngssyni sem ræna
honum til að þvinga í hjónaband
með annarri þeirra hafa tröllin í
uppfærslu Lottu gripið til þess
óyndisráðs að ræna kóngssyninum í
von um að þannig geti þau þvingað
hirðina til að hætta að drekkja
heimkynnum tröllanna í rusli. Veik-
leiki þeirra felst sem fyrr í fjöregg-
inu sem ekki má brjóta. Svo óheppi-
lega vildi til á þeirri sýningu sem
rýnir sá að fjöreggið datt óvænt á
jörðina með þeim afleiðingum að
tröllin dóu öll samstundis sem tor-
veldaði eftirleikinn. Þá tók spuninn
völdin og leikhópurinn bað áhorf-
endur að hjálpa til við að spóla til
baka þannig að hægt væri að fylgja
handritinu til enda. Þannig urðu
mistökin að skemmtilegu kryddi
sem gladdi áhorfendur.
Anna Bergljót sem samið hefur
sumarleikrit Lottu frá 2011 er ein-
staklega lunkin við að flétta saman
ólíkar sögur úr ævintýrabálkinum
og sveigja þau að sínum þörfum.
Skemmtilegt var að upplifa í ár
hversu meðvitaðar sumar persón-
urnar voru um ævintýraarfinn.
Þetta birtist meðal annars þegar
Sævar, sem er sannkallaður bóka-
ormur, rekur söguþráð Litlu haf-
meyjunnar eftir Andersen fyrir
systur sína, sem finnst óskiljanlegt
að litla hafmeyjan hafi verið tilbúin
að láta skera úr sér tunguna og
þjást gríðarlega til þess eins að hitta
aftur ókunnugan prins sem hún
hreifst af.
Anna Bergljót hefur í leikritum
sínum iðulega vísað í umræðu líð-
andi stundar með góðum árangri.
Þannig deildi hún harðlega á útlits-
dýrkun í Ljóta andarunganum,
sumarsýningunni 2017, og minnti í
Hróa hetti, sem var sumarsýningin
2014, á að ástin spyr hvorki um stétt
né stöðu, hvað þá kyn. Litla haf-
meyjan er um margt pólitískari en
fyrri ævintýrasýningar hópsins og
sver sig þannig meira í ætt við Lita-
land, sem Lotta sýndi sumarið 2016,
en það er eina leikritið þar sem
Anna Bergljót hefur ekki notast við
þekktar ævintýrapersónur í skrifum
sínum. Umhverfismálin og plast-
mengun nútímans eru verðugt
umfjöllunarefni sem Anna Bergljót
skrifar um án þess að falla í þá
gryfju að verða predikandi. Munar
þar mestu að boðskapurinn er sett-
ur fram með húmorinn að vopni.
Þannig eru það gleymnu gullfisk-
arnir Gulli og Gulla (fallega útfærð-
ar brúður úr smiðju Andreu Aspar
Karlsdóttur, Kristínu R. Berman,
Sigsteins Sigurbergssonar og Þór-
unnar Lárusdóttur) sem verst verða
fyrir barðinu á plastmenguninni þar
sem þau gleyma því sífellt hversu
hættulegt er að éta hið litríka plast.
Höfundi ber einnig að hrósa sér-
staklega fyrir allar þær sterku og
áhugaverðu kvenpersónur sem hún
hefur skapað í verkum sínum í
gegnum tíðina.
Að vanda leikur tónlistin stórt
hlutverk í uppfærslunni, enda leiðir
hún iðulega framvinduna áfram og
skapar viðeigandi stemningu. Höf-
undar hennar þetta árið eru Björn
Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir
og Þórður Gunnar Þorvaldsson.
Þeim hefur tekist einstaklega vel til
því óvenjumikið er af lögum sem
grípa áhorfendur strax við fyrstu
hlustun og sérstök ástæða til að
hrósa flottum útsetningum. Má í
því samhengi nefna „Prinsinn er
horfinn“ þar sem marserandi takt-
urinn og ómstríð raddsetning und-
irstrikar örvæntingu persónanna,
afslappandi gleðipoppið í „Gull-
fiskaleik“ sem kallast á við vænt-
umþykju Sírenu í garð gullfiskanna
sinna, orkumikla poppballaðan
„Sannkallað ævintýr“ sem undir-
strikar hugrekki Báru og Sævars
og kröftugur rokkgítarinn sem fer
á kostum í „Leitið og leitið“ og
minnir á hversu brýnt er að finna
Hlina áður en hann verður að súpu-
kjötmeti hjá tröllunum. Ekki spillti
heldur fyrir hversu frábærlega vel
tónlistin er sungin af leikhópnum.
Frá því undirrituð fór að fylgjast
með sumarsýningum Lottu hefur
það einkennt leikmyndina að hún er
ávallt á tveimur hæðum, sem býður
upp á góðar sjónlínur og skemmti-
lega dýnamík. Í fyrsta sinn í ár ger-
ist stór hluti leiksins neðansjávar
sem kallar á nýstárlega útfærslu.
Leikmynd Andreu Aspar Karls-
dóttur og Sigsteins Sigurbergs-
sonar er afar vel útfærð þar sem
blátt efni í nokkrum lögum skapar
heilt haf og hylur Tröllafjallið sem
er ekki kynnt til sögunnar fyrr en í
seinna hlutanum. Hreyfingar haf-
fólksins eru einstaklega trúverðug-
ar í samspili við bláa efnið og gaman
að sjá hvernig sporðar persóna voru
nýttir til áhrifsauka. Töfrandi var að
fylgjast með þegar persónur fengu
fætur á örskotsstundu. Góð voru
einnig danssporin úr smiðju Berg-
lindar Ýrar Karlsdóttur. Búningar
Kristínu R. Berman þjónuðu per-
sónum vel og undirstrikuðu stöðu
þeirra í Ævintýraskóginum. Flott
var hvernig háraliturinn var not-
aður til að greina íbúa hinna ólíku
heima að og gaman að sjá hvernig
háralitur haffólksins vísaði í
Disney-teiknimyndina um hafmeyj-
una Ariel.
Leikstíll hópsins einkennist af
mikilli orku og leikgleði sem hentar
efniviðnum vel. Andrea Ösp Karls-
dóttir var skemmtilega vandræða-
leg sem hirðmey konungshjónanna,
móðurumhyggjan uppmáluð sem
Alda og yndisleg sem gullfiskur
ásamt Stefáni Benedikt Vilhelms-
syni. Stefán Benedikt gerði hinum
óframfæra Aski konungi góð skil og
var kraftmikill sem tröll ásamt þeim
Andreu Ösp og Þórunni Lárus-
dóttur. Sigsteinn Sigurbergsson var
hæfilega sakleysislegur sem Hlini,
flottur á móti Þórunni sem Sírena
og dásamlega úrillur hirðsveinn.
Þórunn vakti eðlilega kátínu sem
hin snobbaða og ákveðna Björk
drottning sem hneggjaði bókstaf-
lega að eigin bröndurum áhorfend-
um til gleði. Árni Beinteinn og
Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir voru
dásamlega ólík systkini. Hann er
bókelskur rómantíker en hún hug-
rekkið uppmálað og gengur í verkin
af kappi.
Undir styrkri stjórn Önnu Berg-
ljótar sem leikstýrir eigin leikriti
býður Leikhópurinn Lotta enn eitt
sumarið áhorfendum á öllum aldri
upp á gæðaleiksýningu. Boðskap-
urinn um hugrekki, sanngirni og
réttsýni á tímum aðkallandi um-
hverfismála á svo sannarlega erindi
við alla. Og líkt og við á um fyrri
sýningar úr smiðju Lottu mun upp-
takan af nýjustu uppfærslunni, sem
að vanda var gefin út á geisladisk
samhliða frumsýningu, óma reglu-
lega í græjunum á heimili rýnis,
heimilisfólki til ánægju og skemmt-
unar um ókominn tíma.
Sannkallað ævintýr
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæði „Undir styrkri stjórn Önnu Bergljótar sem leikstýrir eigin leikriti býður Leikhópurinn Lotta enn eitt sumarið
áhorfendum á öllum aldri upp á gæðaleiksýningu,“ segir um Litlu hafmeyjuna í uppfærslu Leikhópsins Lottu.
Elliðaárdalur og víðar um land
Litla hafmeyjan bbbbn
Eftir: Önnu Bergljótu Thorarensen í
leikstjórn höfundar. Tónlist: Björn
Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir og
Þórður Gunnar Þorvaldsson. Söng-
textar: Anna Bergljót Thorarensen og
Baldur Ragnarsson. Búningar: Kristína
R. Berman. Leikmynd og málun: Andrea
Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigur-
bergsson. Brúður: Andrea Ösp Karls-
dóttir, Kristína R. Berman, Sigsteinn
Sigurbergsson og Þórunn Lárusdóttir.
Danshöfundur: Berglind Ýr Karlsdóttir.
Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Árni
Beinteinn, Sigsteinn Sigurbergsson,
Stefán Benedikt Vilhelmsson, Thelma
Hrönn Sigurdórsdóttir og Þórunn
Lárusdóttir. Frumsýning á Lottutúni í
Elliðaárdal 25. maí 2019, rýnt í sýningu
á sama stað 10. júlí 2019.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Greta Gerwig og
Noah Baumbach
hafa skrifað
undir samning
þess efnis að þau
skrifi handritið
að nýrri kvik-
mynd um Barbie
sem Margot
Robbie leikur.
Samkvæmt frétt
Variety eru einnig miklar líkur á
því að Gerwig leikstýri myndinni.
Gerwig leggur sem leikstjóri nú
lokahönd á Little Women með
Emmu Watson og Meryl Streep í
aðalhlutverkum. Á sama tíma er
Baumbach að ljúka við nýja
ónefnda kvikmynd fyrir Netflix
þar sem hann leikstýrir Adam Dri-
ver og Scarlett Johansson ásamt
því að skrifa handritið. Áætlað er
að kvikmyndin um Barbie verði
frumsýnd í janúar 2020.
Gerwig og Baum-
bach skrifa Barbie
Margot Robbie