Morgunblaðið - 18.07.2019, Page 64
Gleði í Götusandi
Ljósmyndir/Alessio Mesiano fyrir G! Festival
Ræturnar Þjóðlagatónlistin fyllti Fjósið, sem var nýtt svið á hátíðinni.
G!-hátíðin hefur styrkst og
eflst í gegnum tíðina – en ekki
vaxið að umfangi sem er lykillinn
að farsæld hennar. Hátíðin rúllar í
dag fumlaust, líkt og ljúfasta
skerpukjöt, og íbúar og starfsfólk
leggjast á eitt um að gera þetta að
jákvæðri og nærandi upplifun fyrir
alla. Fjölskyldur skjóta skjólshúsi
yfir erlenda lista- og blaðamenn,
ungir Færeyingar sækja hátíðina
ennþá af miklum móð og færeyskir
stjórnmálamenn og menningar-
frömuðir styðja við hátíðina og sjá
í henni hið óskoraða gildi.
Dagskráin einkennist ávallt af
mikilli fjölbreytni, þar sem áhersla
er á að hafa eitthvað fyrir alla.
Færeyskir listamenn eru eðlilega í
öndvegi en ávallt eru t.d. þrír eða
fjórir héðan. Önnur Skandinavíu-
lönd leggja þá í púkkið líka. Hefð
er orðin fyrir því að hafa eitt eða
tvö stór alþjóðleg númer og í þetta
sinn var það sjálfur Fatboy Slim
sem lauk hátíðinni með taktföstu
teknói. Það er raunverulega gægst
í öll skúmaskot; danskur jaðar-
rappari treður upp á eftir full-
orðnu færeysku söngvaskáldi og
svo kemur íslenska svartmálms-
bandið Zhrine í kjölfarið. Aðrir
íslenskir tónlistarmenn þetta árið
voru þau Vök, JóiPé og Króli og
Emmsjé Gauti. Allt þetta fólk stóð
sig með sóma og rappararnir
vöktu mikla athygli hjá færeyska
ungviðinu.
Innilegheitin tilfinningaleg
Það er erfitt að lýsa hátíðinni
í orðum, upplifun er eiginlega
nauðsynleg. Gata, þ.e. Syðri-Gata,
er með einstæða legu, og í botni
fjarðarins er fjara eða „sandur“
með ljósgráum sandi. Kræklóttar
göturnar gefa þorpinu svo nánast
portúgalskt yfirbragð. Stóra sviðið
er í fjörunni (sem mér fannst galin
hugmynd á sínum tíma) og önnur
svið og tilheyrandi sölubásar
hlykkjast um þetta örlitla þorp.
Gestir eru þá af öllum toga og
innilegheitin tilfinningaleg. Auk
tónleika er boðið upp á barna-
dagskrá, jógatíma, bjórhlaup,
matarsmakk og metnaðarfulla
listadagskrá með upplestrum,
gjörningum og þvíumlíku.
Uppgangur í Færeyjum
Aðstandendur vita þá lengra
en nef þeirra nær og blaðamönn-
um og erlendum listamönnum er
boðið upp á kynningartúra á dag-
inn. Farið var í þorpið Gjógv,
bæjarskrifstofurnar í Götu skoð-
aðar (margverðlaunaður arkitekt-
úr) og hlustað á þjóðlagatónlist í
gömlu kirkjunni (hvar Kári
Sverrisson söng af stakri list).
Þórshöfn var líka heimsótt og kíkt
í Norðurlandahúsið, plötubúðina
Tutl og einnig nutum við leiðsagn-
ar um bæinn, en þar fór hinn lit-
ríki Magni Arge á kostum. Slíkur
er uppgangurinn í Færeyjum um
þessar mundir að Magni hljómaði
eins og Íslendingur!
Mér hlotnaðist þá sá heiður,
sem fulltrúi Morgunblaðsins,
Íslands og fræðastúss míns í kring-
um tónlist, að taka þátt í samtali
um færeyska dægurtónlist, stöðu
hennar í dag o.s.frv. Dyggir les-
endur kunna að hafa orðið varir
við áhuga minn á eyjunum og ég
hef skrifað tugi greina um tón-
listarlífið þar allt síðan ég tók
mikla Færeyjasótt fyrir rúmum
fimmtán árum eða svo. Megi lækn-
ing aldrei finnast.
»Hátíðin rúllar í dagfumlaust, líkt og ljúf-
asta skerpukjöt, og íbú-
ar og starfsfólk leggjast
á eitt um að gera þetta
að jákvæðri og nærandi
upplifun fyrir alla.
Tónlistarhátíðin G!, sem
er haldin í smábænum
Götu í Færeyjum, fór
fram í átjánda sinn um
síðustu helgi.
Sælusandur Stemningin á G! er í senn innileg og ánægjuleg.
Drottningin Eivör Pálsdóttir, drottningin af Færeyjum, heillaði hátíðargesti. Nýstirni Greta Svabo Bech er ung og efnileg söngkona frá Færeyjum.
Húmar að Stemningin á G! var
hin fjölskrúðugasta, dag sem nátt.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
G!-hátíðin á rætur í tónlistar-byltingu sem átti sér staðum síðustu aldamót í Fær-
eyjum. Nýjar hljómsveitir og lista-
menn með nýjar listrænar áherslur
fóru að taka sér stöðu og pláss og
gátu þessar hræringar af sér
t.a.m. Clickhaze, Gesti, 200 og
sólóferil Eivarar Pálsdóttur. Tón-
listarmenn með rætur í Götu og
Austurey fóru mikinn á þessum
tíma og endurómurinn lifir enn á
eyjunum átján.
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
Út í
sólina!
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð
sími 510 0110 . www.eyesland.is
Við vorum að taka upp
nýja sendingu af hágæða
sólgleraugum frá
Aspinal of London.
Þú verður að koma og máta!