Morgunblaðið - 18.07.2019, Síða 64

Morgunblaðið - 18.07.2019, Síða 64
Gleði í Götusandi Ljósmyndir/Alessio Mesiano fyrir G! Festival Ræturnar Þjóðlagatónlistin fyllti Fjósið, sem var nýtt svið á hátíðinni. G!-hátíðin hefur styrkst og eflst í gegnum tíðina – en ekki vaxið að umfangi sem er lykillinn að farsæld hennar. Hátíðin rúllar í dag fumlaust, líkt og ljúfasta skerpukjöt, og íbúar og starfsfólk leggjast á eitt um að gera þetta að jákvæðri og nærandi upplifun fyrir alla. Fjölskyldur skjóta skjólshúsi yfir erlenda lista- og blaðamenn, ungir Færeyingar sækja hátíðina ennþá af miklum móð og færeyskir stjórnmálamenn og menningar- frömuðir styðja við hátíðina og sjá í henni hið óskoraða gildi. Dagskráin einkennist ávallt af mikilli fjölbreytni, þar sem áhersla er á að hafa eitthvað fyrir alla. Færeyskir listamenn eru eðlilega í öndvegi en ávallt eru t.d. þrír eða fjórir héðan. Önnur Skandinavíu- lönd leggja þá í púkkið líka. Hefð er orðin fyrir því að hafa eitt eða tvö stór alþjóðleg númer og í þetta sinn var það sjálfur Fatboy Slim sem lauk hátíðinni með taktföstu teknói. Það er raunverulega gægst í öll skúmaskot; danskur jaðar- rappari treður upp á eftir full- orðnu færeysku söngvaskáldi og svo kemur íslenska svartmálms- bandið Zhrine í kjölfarið. Aðrir íslenskir tónlistarmenn þetta árið voru þau Vök, JóiPé og Króli og Emmsjé Gauti. Allt þetta fólk stóð sig með sóma og rappararnir vöktu mikla athygli hjá færeyska ungviðinu. Innilegheitin tilfinningaleg Það er erfitt að lýsa hátíðinni í orðum, upplifun er eiginlega nauðsynleg. Gata, þ.e. Syðri-Gata, er með einstæða legu, og í botni fjarðarins er fjara eða „sandur“ með ljósgráum sandi. Kræklóttar göturnar gefa þorpinu svo nánast portúgalskt yfirbragð. Stóra sviðið er í fjörunni (sem mér fannst galin hugmynd á sínum tíma) og önnur svið og tilheyrandi sölubásar hlykkjast um þetta örlitla þorp. Gestir eru þá af öllum toga og innilegheitin tilfinningaleg. Auk tónleika er boðið upp á barna- dagskrá, jógatíma, bjórhlaup, matarsmakk og metnaðarfulla listadagskrá með upplestrum, gjörningum og þvíumlíku. Uppgangur í Færeyjum Aðstandendur vita þá lengra en nef þeirra nær og blaðamönn- um og erlendum listamönnum er boðið upp á kynningartúra á dag- inn. Farið var í þorpið Gjógv, bæjarskrifstofurnar í Götu skoð- aðar (margverðlaunaður arkitekt- úr) og hlustað á þjóðlagatónlist í gömlu kirkjunni (hvar Kári Sverrisson söng af stakri list). Þórshöfn var líka heimsótt og kíkt í Norðurlandahúsið, plötubúðina Tutl og einnig nutum við leiðsagn- ar um bæinn, en þar fór hinn lit- ríki Magni Arge á kostum. Slíkur er uppgangurinn í Færeyjum um þessar mundir að Magni hljómaði eins og Íslendingur! Mér hlotnaðist þá sá heiður, sem fulltrúi Morgunblaðsins, Íslands og fræðastúss míns í kring- um tónlist, að taka þátt í samtali um færeyska dægurtónlist, stöðu hennar í dag o.s.frv. Dyggir les- endur kunna að hafa orðið varir við áhuga minn á eyjunum og ég hef skrifað tugi greina um tón- listarlífið þar allt síðan ég tók mikla Færeyjasótt fyrir rúmum fimmtán árum eða svo. Megi lækn- ing aldrei finnast. »Hátíðin rúllar í dagfumlaust, líkt og ljúf- asta skerpukjöt, og íbú- ar og starfsfólk leggjast á eitt um að gera þetta að jákvæðri og nærandi upplifun fyrir alla. Tónlistarhátíðin G!, sem er haldin í smábænum Götu í Færeyjum, fór fram í átjánda sinn um síðustu helgi. Sælusandur Stemningin á G! er í senn innileg og ánægjuleg. Drottningin Eivör Pálsdóttir, drottningin af Færeyjum, heillaði hátíðargesti. Nýstirni Greta Svabo Bech er ung og efnileg söngkona frá Færeyjum. Húmar að Stemningin á G! var hin fjölskrúðugasta, dag sem nátt. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is G!-hátíðin á rætur í tónlistar-byltingu sem átti sér staðum síðustu aldamót í Fær- eyjum. Nýjar hljómsveitir og lista- menn með nýjar listrænar áherslur fóru að taka sér stöðu og pláss og gátu þessar hræringar af sér t.a.m. Clickhaze, Gesti, 200 og sólóferil Eivarar Pálsdóttur. Tón- listarmenn með rætur í Götu og Austurey fóru mikinn á þessum tíma og endurómurinn lifir enn á eyjunum átján. 64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019 Út í sólina! Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð sími 510 0110 . www.eyesland.is Við vorum að taka upp nýja sendingu af hágæða sólgleraugum frá Aspinal of London. Þú verður að koma og máta!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.