Morgunblaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2019
Byggið upp líkama og húð fyrir fríið
KAUP
AUKA
TILBO
Ð
Astaxanthin – íslenskt og öflugt:
Byggir upp og vernda húðina gegn
sterkum sólargeislum.
Epla Cider – lífsins elexír:
Eflir meltingu, styður við
lifrarstarsemi, jafnar blóðsykur
og ýtir undir niðurbrot á fitu.
Fæst í flestum apótekum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Hver vill ekki geta sólað sig og
notið matar og drykkjar í fríinu?
ÉG FER Í
FRÍIÐ
Hallur Ingólfsson er einn þessara íslensku tónlistarmanna sem spila ámörg hljóðfæri og hefur einnigfengist við alls kyns tegundir tón-
listar í gegnum tíðina. Hann var einu sinni
trommari í HAM, hefur einnig fengist við leik-
hús- og kvikmyndatónlist en hann er langbestur
þegar hann fær að spila rokk
á gítar. Skepna er hans nýj-
asta hljómsveit og þetta er
önnur breiðskífa sveitarinnar.
Skepna er tríó og Hallur
því eini gítarleikari sveitar-
innar en Hörður Ingi úr Brain
Police leikur á bassa og Bjössi
trommari úr Mínus lemur húðir. Það þarf hörku
hljóðfæraleikara til að halda úti jafn þéttu tríói
og Skepna er, og allir hljóðfæraleikarar þurfa
að spila „mikið“ á hljóðfærin sín til að fylla út í
hljóðheiminn, og þetta virðist langoftast ganga
upp. Stundum finnst mér þó að það hefði vel
mátt henda í nokkra gítara til viðbótar í upptök-
unum og búa til örlítið meiri gítarveggi, en
trommu- og bassaleikur eru alveg hundrað pró-
sent. Textar eru allir eftir Hall sem einnig er
eini söngvari Skepnu svo auðvitað mæðir mikið
á honum. Þessi mínímalíska gítarnálgun er þó
alls ekkert í alvörunni mínimalísk, og kannski
er það bara ég sem er gráðug þegar kemur að
rafmagnsgíturum, enda er Hallur melódískur
gítarleikari og lausnir hans í tónsmíðum og
óvæntum kaflaskiptingum koma oft skemmti-
lega á óvart. Mér finnast hröðustu og kraft-
mestu lögin ná mestu út úr þeirri vél sem band-
ið er, enda er Skepna hreint afbragð á tón-
leikum. Uppáhaldslagið mitt er næstsíðasta
lagið, „Ragnar“, sem sameinar örlítið grugg,
dularfulla laglínu og meiriháttar stuð og stemn-
ingu og trommur fara á kostum í síðara hluta
lagsins, það er alveg gæsahúð! „Arfur“ er einn-
ig mikið stemningarlag, og ég heyri ekki betur
en að í textanum sé farið yfir landnám Íslands
og hvað það sé sem er þetta sérstaka íslenska
sem heldur lífi í landanum. Lokalagið, hið sjö
mínútna „Dagur þrjú“, finnst mér sísta lagið, og
leitt að enda plötuna á því. Það er einfaldlega
ekki nógu skemmtilegt og sterkt, að mínu mati,
enda alveg hellingur af fínum lögum á plötunni
sem væru betur til þess fallin að enda plötuna,
en eins og allir vita þarf lokalag hverrar plötu að
vera svo gott að maður skelli plötunni strax
aftur á.
Það er ekki hægt að skrifa dóm um Daga
heiftar og heimsku öðruvísi en að minnast á
textagerð Halls Ingólfssonar, en það er eitthvað
mjög sérstakt og dularfullt við hana. Það er
sniðug hugmynd hjá Skepnu að láta textablað
fylgja með og maður finnur vel fyrir því að
vandað hefur verið til verks við að semja. Þarna
skjóta skrýtnar söguhetjur upp kollinum, eins
og fyrrnefndur Ragnar, en einnig má til dæmis
finna skemmtilegan texta um innikött og svo
alls kyns dularfullar sögur af fólki og tilfinn-
ingum þess. Ég hef ekki enn reynt að keyra bíl
með plötuna í gangi en ég sat í rútu um daginn
og hlustaði í heyrnartólum og það var alveg frá-
bært að hlusta á þennan hljóðheim og virða fyr-
ir sér heiminn þjóta framhjá rúðunni. Það hefur
verið nostrað við þessa plötu, en hún nær samt
að halda pönkuðu og gruggugu rokksándinu allt
til síðasta tóns.
Rokkvélin er í gangi
Skepna Platan heldur „pönkuðu og gruggugu rokksándinu allt til síðasta tóns,“ skrifar rýnir.
Hljómplata
Skepna – Dagar heiftar og heimsku bbbbn
Öll tónlist: Skepna. Allir textar: Hallur Ingólfsson. Í
Skepnu eru Hallur Ingólfsson, söngur og gítar,
Björn Stefánsson, trommur, og Hörður Ingi Stef-
ánsson, bassi. Um upptökur og hljóðblöndun sá
Hallur Ingólfsson í Klakahöllinni 2018. Hljómjafnað
af S.Husky Hoskulds í Groundlift, Los Angeles. 11
lög, 41.12 mínútur.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir
ar Perlu bestu vinkonu sinnar úr
gamla bekknum. Hekla er samt
góð að setja sig í spor annarra og
það er einstaklega vel heppnað
hvernig persónusköpunin fer fram
í gegnum Heklu sem kynnir aðrar
persónur fyrir lesanda með ein-
stökum hætti. Persónurnar eru
líka einstaklega fjölbreyttar, án
þess þó að fela í sér steríótýpur
um nördinn, hrekkjusvínið og
íþróttastelpuna. Hver og einn hef-
ur sína persónutöfra sem skína í
gegn eftir því sem líður á söguna.
Mannránið er auðvitað lykil-
atriði í bókinni og gáturnar sem
mannræninginn leggur fyrir bekk-
inn gera lesandann alveg jafn
óþreyjufullan og bekkjarfélagana.
Bergrúnu tekst einnig afar vel til
með teikningum sínum í bókinni
sem lífga enn meira upp á lestur-
inn, þó svo að sagan gæti vel stað-
ið ein og sér.
Allt verður svo raunverulegt,
Nútímaleg, spennandi,fyndin og fjölbreytt.En einnig raunverulegfrásögn sem tekur á
málefnum líðandi stundar. Ætli
Kennaranum sem hvarf sé ekki
best lýst þannig. Bergrún Íris
Sævarsdóttir er fyrsti handhafi
verðlauna sem kennd eru við Guð-
rúnu Helgadóttir, drottn-
ingu íslenskra barna-
bókmennta, og eru verð-
launin veitt fyrir frum-
samið og óútgefið handrit.
Markmið verðlaunanna
er að stuðla að nýsköpun á
sviði barnabókmennta og
nýsköpunin er svo sann-
arlega til staðar í bókinni
um krakkana í 6. BÖ (sem
er aðeins einn af mörgum vel
heppnuðum bröndurum höfundar).
Bekkjarfélagarnir eru engir sér-
stakir félagar dagsdaglega, en
þegar kennarinn hverfur einn
morguninn og dularfull skilaboð
fara að berast frá mann-
ræningja Báru kennara í
síma krakkanna reynir á
samheldnina í bekknum.
Og þá getur komið sér vel
að vera fljót að taka skjá-
skot.
Hekla Þöll, aðal-
persónan, er ári yngri en
bekkjarfélagarnir þar
sem hún var færð upp um
bekk, enda bráðskörp. Henni
finnst hún samt meira vera að
gera pabba sínum greiða og sakn-
jafnvel sjálft mannránið, og það er
líklega vegna þess að við sögu
koma snjalltæki, kvíði, einelti,
vinasambönd, skilnaðarbörn,
heimilisofbeldi og fleiri samfélags-
mál sem nauðsynlegt er að varpa
ljósi á. Bókin er því á sama tíma
spennandi og skemmtileg lesning,
sem og fínasta áminning fyrir okk-
ur foreldra og forráðamenn að
tala við börnin okkar, augliti til
auglitis, ekki bara í gegnum
símann.
Bókin er gefin út eftir að Berg-
rún hlýtur verðlaunin og því fylgir
eins konar þakkarbréf frá höfundi
í lok bókarinnar. Þar segir Berg-
rún frá aðdáun sinni á Guðrúnu
Helgadóttur og segir hana meðal
annars skrifa beint frá hjartanu.
Það fer ekki á milli mála að það
gerir Bergrún Íris líka og vonandi
eigum við eftir að fá að njóta orð-
og teiknisnilli hennar sem oftast í
framtíðinni.
Morgunblaðið/Eggert
Bergrún Íris „Nútímaleg, spennandi, fyndin og fjölbreytt. En einnig raun-
veruleg frásögn sem tekur á málefnum liðandi stundar,“ skrifar rýnir.
Mannrán og skjáskot – beint frá hjartanu
Barnabók
Kennarinn sem hvarf bbbbb
Eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.
Bókabeitan, 2019. Innbundin, 140 bls.
ERLA MARÍA
MARKÚSDÓTTIR
BÆKUR