Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 1
Ísland í dr
Tröllasmíðí bakgarði
11. ÁGÚST 2019SUNNUDAGUR
Að auðga lífið
Fríða KatrínBessadóttirheldur opn-unarhátíðlistaverks-sins Galopnáttúr-unnar íElliðaár-dalnum. 2
Ég ergömul sál
KvikmyndagerðarmaðurinnGrímur Hákonarsonfrumsýnir Héraðið í næstuviku. Næsta stopp erHollywood. 12
Bæði flóttamenn og íslenskir leiðsögu-
menn þeirra njóta góðs af samstarfinu. 4
L A U G A R D A G U R 1 0. Á G Ú S T 2 0 1 9
Stofnað 1913 186. tölublað 107. árgangur
KVEÐUR VIÐ
ANNAN TÓN
HJÁ DANÍEL
NÁTTÚRU-
LAUGAR VIÐ
URRIÐAVATN
MIKIL AÐSÓKN 14OPNAR SÝNINGU 50
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur
Hákonarson frumsýnir nýjustu
mynd sína Héraðið miðvikudaginn
14. ágúst en mynd hans Hrútar naut
mikillar velgengni og opnaði margar
dyr.
„Mörg fyrirtæki höfðu samband
og vildu framleiða mynd eftir mig á
ensku. Ég var ekki með neinar aðrar
hugmyndir á þeim tíma en Héraðið
sem átti að vera íslensk mynd, þann-
ig að ég ákvað að kokka upp hug-
mynd fyrir mynd á ensku. Hún heit-
ir The Fence og segir sögu tveggja
fjölskyldna sem búa hlið við hlið í út-
hverfi. Þessi mynd er um ástandið í
Bandaríkjunum í dag; um óttann og
pólariséringuna,“ segir Grímur.
„Það eru nokkrir þekktir leikarar
að lesa handritið,“ segir Grímur dul-
arfullur.
„Í fullri hreinskilni hefur það aldr-
ei verið draumur hjá mér að komast
til Hollywood. Ég er í grunninn evr-
ópskur kvikmyndagerðarmaður en
ég fékk þetta tækifæri upp í hend-
urnar. Ég ákvað að láta á það
reyna.“ »Sunnudagur
Dreymdi ekki um Hollywood
Grímur Hákonarson gerir næstu mynd í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Ásdís
Kvikmyndir Grímur Hákonarson
gerir það gott þessa dagana.
Keppt var um titlana dragdrottning og dragkóngur
Íslands í dragkeppni Íslands sem fram fór í Aust-
urbæ í Reykjavík í gærkvöldi. Þar sýndu keppendur
fjölskrúðug atriði, persónutöfra sína og leynda
hæfileika. Dragkóngar mögnuðu upp karlmennsku
sína í keppninni á meðan dragdrottningar leyfðu
sínum innri kvenleika að brjótast út. Hinsegin dag-
ar hófust formlega í Reykjavík á fimmtudaginn.
Regnbogi var þetta árið þá málaður á Klapparstíg,
frá Laugavegi og að Grettisgötu. Sá hluti Klapp-
arstígs hefur verið nefndur Gleðigatan og verður
göngugata meðan á hátíðinni stendur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glamúr og glans á dragkeppni Íslands
Hinsegin dagar allsráðandi um helgina
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efna-
hagssviðs Samtaka atvinnulífsins, segir
ekki horfur á jafn miklum samdrætti og
óttast var í byrjun árs. Dregin hafi verið
upp dökk mynd í
efnahagsmálum
sem sé ekki að
raungerast.
Katrín S. Óla-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Hagvangs, segir
vísbendingar um
batamerki á vinnu-
markaði.
„Sumarið hefur
verið frekar rólegt.
Þess vegna hafði
maður áhyggjur af
því hvernig haust-
ið myndi verða og
seinni hluti ársins.
Nú erum við hins vegar að upplifa breyt-
ingu í ágúst. Það lítur út fyrir að fyrir-
tækin séu að koma sterk inn og að það sé
talsverð eftirspurn eftir fólki og verið að
ráða í störf sem hefur verið beðið með að
ráða í yfir sumartímann.“
Óvissan hafði neikvæð áhrif
Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri
Capacent, segir vísbendingar um við-
spyrnu. „Við fundum það vissulega í upp-
hafi árs að tveir meginþættir höfðu áhrif á
ráðningar. Annars vegar fall WOW air og
hins vegar kjaraviðræðurnar. Kjarasamn-
ingslotan var löng og óræðin. Þetta hafði
augljóslega áhrif. Við fundum að margir
umbjóðenda okkar héldu að sér höndum.
Svörin voru að erfitt væri að taka ákvarð-
anir við þessar aðstæður. Nú er að rofa
til.“
Ráða
fólk til
starfa
Merki eru um bata
á vinnumarkaðnum
Á niðurleið
» Karl Sigurðs-
son, sérfræð-
ingur hjá Vinnu-
málastofnun,
segir útlit fyrir
minnkandi at-
vinnuleysi á
Suðurnesjum.
» Horfur á
vinnumarkaði
séu nú betri.
MVísbendingar um viðspyrnu … »10
Liverpool hóf nýtt tímabil í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu með
miklum látum í gærkvöld og skor-
aði fjögur mörk í fyrri hálfleik á
heimavelli sínum, Anfield, gegn ný-
liðum Norwich City. Fyrsta mark
tímabilsins var sjálfsmark strax á
sjöundu mínútu leiksins og síðan
bættu Mohamed Salah, Virgil van
Dijk og Divock Origi við mörkum.
Mun rólegra var yfir seinni hálf-
leiknum en Norwich náði að
minnka muninn og lokatölur urðu
4:1. Aðrir leikir í fyrstu umferð
fara fram í dag og á morgun.
Tómas Þór Þórðarson og Eiður
Smári Guðjohnsen voru á leiknum
fyrir Símann Sport en þeir voru
með upphitunarspjall á Anfield fyr-
ir leikinn og uppgjör að honum
loknum. Brot úr því og fleira mynd-
efni frá Anfield má sjá á síðunni um
Enska boltann á mbl.is. »49
Liverpool byrjaði
með markaveislu
Á staðnum Tómas Þór Þórðarson og Eiður
Smári Guðjohnsen á Anfield.
Baldur Svein-
björnsson, einn
stofnenda
líftæknifyrir-
tækisins Lytix
Biopharma, segir
rannsóknir á
nýju krabba-
meinslyfi fyrir-
tækisins lofa
góðu. Markmiðið
sé að setja nýja
lyfið á markað fyrir 2030. Banda-
ríski vísindamaðurinn James All-
ison hefur nýverið gerst ráðgjafi
Lytix Biopharma, en hann var
meðal þeirra sem fengu síðast
Nóbelsverðlaun í læknisfræði. »16
Krabbameinslyf
þykir lofa góðu
Baldur
Sveinbjörnsson
Afar mikill munur er á rekstrar-
umhverfi golfklúbba í ár miðað við í
fyrra, sér í lagi hjá þeim klúbbum
sem reiða sig á vallargjaldatekjur til
þess að halda rekstrinum réttu meg-
in við núllið. Þar leikur veðrið í sum-
ar lykilhlutverk. Á Hamarsvelli
nemur aukning tekna á milli ára hjá
Golfklúbbi Borgarness, í apríl og
maí, 2.600%, fyrir júnímánuð nemur
aukningin 430% og júlímánuð 96%, í
samanburði við sömu mánuði í fyrra.
„Ég hef verið í þessu í 13 ár í Borg-
arnesi og fer líklega í fyrsta skipti
áhyggjulaus inn í veturinn vegna
lausafjárstöðu,“ segir Jóhann Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Borgarness, en 105% aukn-
ing er á leiknum hringjum þar á bæ
á milli ára. Hljóðið var gott í öllum
viðmælendum Morgunblaðsins. Á
Akranesi verður níu milljóna tapi frá
því í fyrra snúið við. Þar hafa tekj-
urnar vaxið um 70-80% á milli ára. Á
Selfossi hafa tekjur aukist um 40%.
Á Ísafirði var Tungudalsvöllur opn-
aður 27. apríl. Slíkt hefur aldrei ver-
ið hægt að gera jafn snemma. »22
Rekstur golfklúbba
blómstrar í sumar