Morgunblaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Sunnudaginn 28. júlí hringdi ég
mitt stysta símtal, í kunningja
minn í Bolungarvík, hann sagði
mér tíðindin að vinur minn Bene-
dikt Kristjánsson hefði látist um
nóttina.
Vinskapur tókst með okkur
Benna og Stínu þegar þau fluttu í
blokkina í Bolungarvík. Það var
góður og skemmtilegur tími.
Benni og Stína byggðu sér svo hús
á Heiðarbrún og smituðu okkur
Mundu svo við byrjuðum að
byggja árið eftir.
Menningarreisurnar voru
skemmtilegar þegar við fórum til
Reykjavíkur með Slysavarna-
félaginu. Og stundum hittumst við
við Miðjarðarhafið og áttum þar
góðar stundir. Á þessum tíma datt
okkur ekki í hug að við ættum öll
eftir að flytja á Suðurnesin.
Benni var mikið í félagsmálun-
un í Bolungarvík, var til dæmis
formaður í Ungmennafélagi Bol-
ungarvíkur og sat í bæjarstjórn.
Þegar líða tók að hausti var
Benni alveg ómissandi, allir
þurftu að fara til Benna með kjötið
sitt en hann var úrvals kjötiðnað-
armaður. Reykta kjötið hjá Benna
sló enginn út, svo kom að svína-
hryggirnir urðu vinsælir á jólun-
um, þá jafnaðist enginn á við
Benna. Svínahryggur frá Benna
var víða á borðum á aðfangadag í
Bolungarvík og víða. Fólk keypti
til að senda um land allt, allir vildu
svínahrygg frá Benna á jólunum.
Við komum öll eins til jarðar-
innar, en förum aftur með ólíkum
hætti. Faðir minn spurði alltaf
þegar hann sá flaggað í hálfa
stöng: hver er fluttur? Hann vildi
meina að okkur væri ætlað eitt-
hvert annað hlutverk eftir þetta
líf. Sumir segja að við komum öll
til með að hittast í Blómabrekk-
unni í Sumarlandinu, þar er Bene-
dikt kannski búinn að hitta Stínu
sína.
Við munum geyma í hjarta okk-
ar minningar um Benna, breiða
brosið, og hlýtt hjarta, sem hann
hafði með sér hvert sem hann fór.
Það verður lengi í mínum huga
að á laugardögum hringdi Benni
til að vita hvernig mér liði.
Elsku Ragnhildur, Kristján,
Aron, Helga og fjölskyldur, þið
hafið misst mikið. Við Munda vott-
um ykkur okkar dýpstu samúð og
megi guð blessa ykkur.
Sigurður Á. Þorleifsson og
Guðmunda K. Ásgeirsdóttir,
Sandgerði.
Mig setti hljóðan við þá óvæntu
fregn að Benedikt væri látinn. Ég
kynntist honum fyrst þegar ég
settist í stjórn Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna fyrir rúmum þremur
árum. Með okkur tókust strax góð
kynni sem ekki bar skugga á með-
an hans naut við. Benedikt hafði
setið í stjórninni frá 1998 utan eitt
ár sem hann var í varastjórn.
Hann var því hafsjór af reynslu og
fróðleik um Lífeyrissjóð verzlun-
armanna og lífeyrissjóðakerfið og
brást ætíð ljúfmannlega við þegar
við, sum okkar algjörir nýliðar,
leituðum eftir að taka út úr
reynslubanka hans. Benedikt var
traustur maður og hæglátur, ljúf-
mannlegur og lagði ætíð gott til
mála. Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna hafa sannarlega
notið góðs af óeigingjörnum störf-
um hans í þágu sjóðsins. Ég minn-
ist hans með hlýhug og þakklæti
og færi aðstandendum hans um
leið innilegar samúðarkveðjur fyr-
ir hönd stjórnar og starfsfólks
sjóðsins. Minningin um góðan fé-
laga lifir.
Ólafur Reimar Gunnarsson,
stjórnarformaður Lífeyris-
sjóðs verzlunarmanna.
Ég kynntist Benedikt árið 1995
þegar hann og stjórn Kaup-
mannasamtaka Íslands (KÍ) réðu
mig sem framkvæmdastjóra sam-
takanna. Benedikt hafði tekið við
stjórn KÍ á erfiðum umbrotatíma í
sögu samtakanna. Ég hafði hitt
Benna áður, en þarna hófst sam-
starf sem stóð í meira en áratug
fyrst innan KÍ og síðar eftir að við
áttum ásamt Samtökum sam-
vinnufélaga þátt í stofnun nýrra
hagsmunasamtaka, Samtaka
verslunar og þjónustu (SVÞ) og
Samtaka atvinnulífsins (SA). Það
er margs að minnast frá árunum í
KÍ því margvíslegum málefnum
er vörðuðu hagsmuni kaupmanna
þurfti að sinna. Um tíma fóru
fram viðræður um sameiningu KÍ
og Félags íslenskra stórkaup-
manna og þar reyndi verulega á
Benedikt, sem á sinn rólega hátt
hlustaði á rök og gagnrök og lagði
síðan fyrir stjórn samtakanna að
taka ákveðna afstöðu. Þegar ljóst
var að sameining þessara tveggja
samtaka ætti jafnframt að þýða
úrsögn úr heildarsamtökum at-
vinnurekenda, VSÍ, og ljóst var að
Félag matvörukaupmanna myndi
þá kljúfa sig út úr KÍ, þá var hætt
við hana.
Þegar Samtök samvinnufélaga
lýstu yfir að þau væru tilbúin að
taka þátt með okkur í myndun
nýrra hagsmunasamtaka verslun-
ar- og þjónustufyrirtækja innan
nýrra heildarsamtaka þá hófst
mikil fundatörn sem stóð mestan
part vetrar. Við Benedikt sátum
þessa fundi fyrir KÍ og það var
augljóst að Benedikt ávann sér
traust og virðingu annarra fund-
armanna sem komu frá nær öllum
greinum atvinnulífsins.
Eftir stofnun SVÞ, sem tók við
málsvörn og hagsmunagæslu fyr-
ir verslunina, héldu KÍ áfram að
vera til sem félag kaupmanna sem
hélt utan um eignir félagsins og
gerðist styrktaraðili málefna sem
vörðuðu smásöluverslunina.
Benedikt naut þess trausts að
vera áfram formaður samtakanna
og jafnframt fulltrúi þeirra í
stjórn Lífeyrissjóðs verslunar-
manna.
Ég á margar góðar minningar
um samskipti og ferðir með Benna
víða um landið til funda við kaup-
menn og aðra. Það var ætíð stutt í
brosið og léttleikann hjá honum.
Hann varð síðan fyrir þungu áfalli
þegar hann missti eiginkonu sína
skyndilega eftir að hann hafði flutt
sig til Reykjanesbæjar og hafið
störf hjá Samkaupum.
Við Benni höfðum ekki ræktað
samband okkar á milli eftir að ég
lét af launastörfum og ég vissi satt
að segja ekki að hann ætti við ein-
hver heilsuvandamál að stríða.
Fráfall hans var mér því áfall og
verulegur harmur. Ég votta fjöl-
skyldu hans samúð og kveð þenn-
an vin minn með söknuði.
Sigurður Jónsson,
fv. framkvæmdastjóri KÍ
og SVÞ.
Kveðja frá Kaupmanna-
samtökum Íslands.
Síminn hringdi síðdegis á
laugardeginum 27.7. sl. Sæll, Óli,
ertu heima eða eitthvað upptek-
inn? Á hinum endanum var Benni.
Eitthvað á þessa leið byrjuðu
ævinlega símtölin frá Benna. Er-
indið var, líkt og oft áður, fyrst
svona spjall um allt og ekkert, en
beindist svo að KÍ og ferlinu sem
stendur yfir varðandi samtökin.
Þetta varð nokkuð langt símtal,
Benni hress og kátur að vanda.
Hafði nýverið gengist undir lið-
skipti á hné, sem tókust vel. Átti
að fara í eftirlit með það eftir
helgina og var svo á leið í sumar-
frí. Það var svo á mánudags-
morgninum eftir að símtal kom og
tilkynnt var að Benni hefði látist
snemma morguninn áður. Bene-
dikt Kristjánsson hafði verið for-
maður Kaupmannasamtakanna
frá árinu 1995. Á aðalfundinum
það ár var hann skipaður fundar-
stjóri og í framhaldi á fundinum
kosinn varaformaður. Á fundinum
var líka kosinn nýr formaður.
Vegna veikinda þess manns, tók
Benni við sem formaður rúmum
þremur mánuðum síðar og hefur
verið það sl. 24 ár. Benni var
lærður kjötiðnaðarmaður, hóf
nám í því 1969 hjá SS. Hóf versl-
unarstörf í versl. Hring í Bolung-
arvík, síðan hjá versl. Einars Guð-
finnssonar. Hóf svo störf í versl.
Vöruvali á Ísafirði, sem hann svo
festi kaup á og rak ásamt versl-
uninni í Bolungarvík sem hann
hafði líka fest kaup á. Þær seldi
hann svo til Samkaupa og varð
verslunarstjóri þeirra á svæðinu.
Árið 2002 hætti Benni störfum
fyrir vestan og fluttist fjölskyldan
suður og settist að í Keflavík.
Benni varð innkaupastjóri Sam-
kaupa, jafnframt því að annast
verslanir samstæðunnar víða á
landsbyggðinni, setti upp og sá
um breytingar á búðunum. Versl-
unarstjórarnir og starfsfólkið allt
báru mikla virðingu fyrir honum,
tóku ævinlega á móti honum með
bros á vör. Hann fluttist svo til
heildverslunarinnar Búrs sem
Samkaup áttu. Nokkrum árum
síðar seldu Samkaup Búr til Inn-
ness hf. og fylgdi Benni með þang-
að. Þó að Benni hafi hætt sjálf-
stæðri kaupmennsku var hann
áfram og alltaf kosinn formaður
KÍ. Honum var sem slíkum, falin
stjórnarseta í Lífeyrissjóði versl-
unarmanna og hefur setið þar all-
ar götur síðan. Benni tók þátt fyr-
ir hönd KÍ í að stofna Samtök
verslunar og þjónustu, SVÞ. Þau
samtök tóku síðan við meginstarf-
semi KÍ. Samþykkt var fyrir
nokkrum árum að vinna skyldi
hafin við að slíta KÍ. Hefur sú
vinna verið í gangi síðan. Það er
mikið verk og vandasamt. Út á við
hefur Benni séð um þá vinnu fyrir
hönd stjórnar KÍ. Leitað hefur
verið liðsinnis ýmissa við þá vinnu.
Í símtalinu okkar Benna frá laug-
ardeginum var hann að tæpa á því
sem fram væri komið og hvað
fram undan væri. Hann bar hag
KÍ fyrir brjósti og umfram allt að
ekki yrðu nein mistök gerð við
þessa vinnu, farið yrði yfir hvert
atriði og tími tekinn til skoðunar á
hverju. Fyrir lá að fundur yrði
bráðlega. Honum seinkar eitt-
hvað. Undirritaður færir, fyrir
hönd Kaupmannasamtaka Ís-
lands, fjölskyldu Benedikts inni-
legar samúðarkveðjur.
Ólafur Steinar Björnsson.
Það var okkur mikið áfall þegar
við fengum þær fréttir að Bene-
dikt okkar, eða Benni eins og við
jafnan kölluðum hann hjá Innnesi,
hefði kvatt þetta líf á sunnudags-
morguninn 28. júlí síðastliðinn.
Ég kynntist Benna skömmu
eftir að við stofnuðum Innnes árið
1987, þá átti hann og rak versl-
unina Vöruval á Ísafirði. Það var
alltaf vel tekið á móti manni í
Vöruvali og jafnan boðið upp á
kaffi og með því og stundum þeg-
ar þannig bar við, líka matur.
Benni hafði þann kost sem er svo
mikils virði, að sjá gleðina og já-
kvæðnina í lífinu. Það var gott að
koma til hans og var hann jafnan
bóngóður.
Þegar Benni hætti verslunar-
störfum með sína eigin verslun fór
hann fljótlega að starfa hjá Sam-
kaupum og lágu þá leiðir okkar
aftur saman. Það stóð ekki á góð-
um samskiptum við alla þá sem
þurftu til hans að leita fyrir hönd
Innness.
Þegar Innnes keypti fyrirtækið
Búr haustið 2014 var Benni starfs-
maður þar og varð þar með orðinn
samstarfsmaður minn hjá Inn-
nesi. Mér hlýnaði um hjartaræt-
urnar þegar starfsmaður okkar
sagði mér að Benna hefði litist vel
á að Innnes keypti Búr þar sem
hann hefði alltaf átt góð kynni við
starfsfólk Innness.
Það er með mikilli sorg og
trega sem við hjá Innnesi kveðj-
um hinn góða dreng Benedikt K.
Kristjánsson.
Hvíl í friði, elsku góði Benni
minn.
F.h. starfsmanna Innness,
Magnús Óli Ólafsson.
Það er óvíða fegurra en í Bol-
ungarvík. Þegar vorið er komið er
sjórinn spegilsléttur, aldan gjálfr-
ar við steinana, Grænahlíð og
sköflum prýdd Jökulfjarðafjöllin
skarta sínu fegursta. Þá ríkir göf-
ugur friður yfir Víkinni. Við minn-
umst slíkra stunda þegar við hóf-
um skólagöngu í Barnaskóla
Bolungarvíkur. Það var þá sem
vináttan hófst, sem aldrei hefur
rofnað. Benni var einn af okkur,
prúður, traustur, raungóður,
bekkjarbróðir og vinur.
Við vorum fámennur, samheld-
inn bekkur og brölluðum margt
saman. Eftirminnilegar eru
gönguferðirnar upp í Ból og upp á
Ufsir, skemmtifundirnir, æsku-
lýðsheimilið og fyrsta bekkjar-
partíið. Benni stóð fyrir leyni-
félaginu Rauðu akurliljunni sem
upplýsti ýmsa leyndardóma. Að
lokinni skólagöngu í Víkinni lágu
leiðir okkar víða en síðar fór þörf-
in fyrir að hittast oftar að gera
vart við sig. Við höfum um árabil
haldið okkar eigið bekkjarþorra-
blót og hist reglulega á Kaffivagn-
inum. Þar hefur margt verið
skrafað og skeggrætt um
bernskuárin og lífið og tilveruna.
Benni var stoltur af fjölskyldu
sinni og því sem hann var að fást
við hverju sinni og sýndi okkur og
lífi okkar ævinlega áhuga. Hann
bjó í Víkinni til fimmtugs og var
alltaf gaman að líta til hans í búð-
ina. Bekkjarsystur minnast þess
er farið var á Strandir að Benni
hafði til kost fyrir hópinn af alúð
og umhyggju. Þegar bekkjarmót
var haldið í Víkinni bauð Benni af
rausnarskap sínum heim til dóttur
sinnar í húsið sem þau Stína höfðu
búið í. Hann missti mikið þegar
Stína hans féll frá eftir erfið veik-
indi. Tveimur dögum áður en
Benni lést voru hann og bekkjar-
félagi samsíða á umferðarljósum
og náðu spjalli með fyrirheiti um
að vera duglegir að mæta á Kaffi-
vagninn í vetur en Benna okkar
verður nú sárt saknað þar.
Að leiðarlokum þökkum við vin-
áttuna sem er stór hluti hamingj-
unnar á þeirri vegferð sem lífið er.
Við sendum fjölskyldu Benna og
öllum ástvinum hans okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd bekkjarsystkina,
Árný, Ása, Hrönn
og Þorvaldur.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Á góðu verði
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Opið: 10-17 alla virka daga
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför heittelskaðs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
ÓLAFS JÓNSSONAR,
Áslandi 2,
Mosfellsbæ.
Kristín Sæunnar Sigurðardóttir
Sæunn Ólafsdóttir Benedikt Arnarson
Iðunn Ólafsdóttir Árni Valur Skarphéðinsson
Ólöf Árnadóttir, Skarphéðinn Stefán Árnason,
Þula Guðrún Árnadóttir, Ríkharður Rafn Árnason,
Baldur Benediktsson og Freyja Benediktsdóttir
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RAGNAR S. HALLDÓRSSON
verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 7. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Margrét K. Sigurðardóttir
Kristín Vala Ragnarsdóttir
Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna H. Jónsdóttir
Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir
Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason
og barnabörn
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
BJÖRN SVEINSSON,
áður til heimilis á Njarðvíkurbraut 6,
Innri-Njarðvík,
lést á Hrafnistu, Nesvöllum, laugardaginn
3. ágúst.
Tína Gná Róbertsdóttir Gunnar Þór Sæþórsson
Sæþór Björn Gunnarsson Anna Olsen
Margrét Jóna Gunnarsdóttir Róbert Sædal Geirsson
Guðríður Lára Gunnarsd. Jóhann Karl Hallsson
og barnabarnabörn
Okkar ástkæra
BJÖRK GUÐNADÓTTIR
lést 23. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug.
Þorgerður Bergvinsdóttir Valdimar B. Davíðsson
Guðbjartur K. Kristinsson Viktoría S. Nikulásdóttir
Arndís Guðnadóttir Patrich Hansen
Aníta Rán og Nathan Breki
Sigurbjarni Guðnason Jóhanna Jakobsdóttir