Morgunblaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Vantar þig
ráðleggingar
við sölu eignar
þinnar?
s 893 6001
Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is
Guðbergur
Guðbergsson
Löggiltur fasteignasali
og leigumiðlari
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stefnt er að því að vígja Bifröst,
nýja göngubrú sem myndar hluta
göngustígsins að Heimskautsgerð-
inu á Melrakkaási við Raufarhöfn á
hrútadaginn, 5. október. Nú er unn-
ið að því að ljúka smíði brúarinnar
og er það stærsta verkefni ársins.
Brúargólfið er mikið til komið og
verður lokið við það í mánuðinum.
Handrið verður sett á brúna í
áföngum og mun það breyta ásýnd
hennar töluvert mikið. Auk þess
verður sett upp lýsing á svæðinu.
Brúin liggur frá bílastæðinu og
upp að austurhlið gerðisins. Göngu-
brúin er um 200 metra löng en
gönguleiðin er í heild nærri tvöfalt
lengri. Tilgangurinn með brúar-
smíðinni er að auðvelda aðgengi að
Heimskautsgerðinu og einnig að
hlífa viðkvæmum gróðri eins og
mosa á svæðinu.
Kristrún Ásta Arnfinnsdóttir,
sumarstarfsmaður hjá Þekking-
arneti Þingeyinga, sagði að aðsókn-
in í sumar hefði verið góð. Stöðugur
straumur væri af ferðafólki til að
skoða gerðið. Stefnt væri að því að
setja þar upp gestabók í haust til að
fá meiri upplýsingar um þjóðerni
gestanna. Hún sagði að ferðaþjón-
ustufólk á svæðinu fyndi að gerðið
drægi að sér ferðafólk. „Ljósmynd-
arar leggja leið sína hingað í aukn-
um mæli og svo var hjónavígsla í
Heimskautsgerðinu fyrr í sumar.
Það er nóg að gera,“ sagði Krist-
rún.
Aðgangseyrir er ekki innheimtur
af þeim sem koma að skoða Heim-
skautsgerðið og það stendur ekki
til. Sjálfvirkur bílateljari er á staðn-
um og er lesið af honum til að fá
hugmynd um aðsóknina.
„Þetta er hugsjónastarf og mark-
miðið að vinna að vexti og velferð
Raufarhafnar,“ sagði Kristrún.
Framkvæmdir eins og gerð Bifrast-
ar eru kostaðar af styrkjum frá
Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða og úr svæðisbundnum þróun-
arsjóðum.
Ekki enn fullbúið
Heimskautsgerðið er ekki full-
gert. Eftir er m.a. að steypa fjóra
skúlptúra sem verða inni í gerðinu.
Gerðið sjálft er hringlaga stein-
hleðsla sem er 48 metrar í þvermál.
Á ytri vegg eru fjögur hlið. Sólin
skín gegnum austurhliðið á vorjafn-
dægri og vesturhliðið á haust-
jafndægri. Við sumarsólstöður skín
sólin í gegnum norðurhliðið og
gegnum suðurhliðið við vetrar-
sólstöður.
Innri hringurinn er Dverga-
hringur og tileinkaður dvergum
sem sagt er frá í Völuspá. Miðja
Heimskautsgerðisins er 10 metra
há fjögurra arma steinhleðsla. Efst
á hana verður sett tilskorið gler
sem á að fanga ljós sólar og tungls
og endurvarpa því um gerðið.
Ljósmyndir/Kristrún Ásta Arnfinnsdóttir
Raufarhöfn Eftir er að setja handrið á göngubrúna Bifröst sem auðveldar aðgengi að Heimskautsgerðinu.
Brúin Bifröst liggur að
Heimskautsgerðinu
Heimskautsgerðið laðar ferðamenn til Raufarhafnar
Heimskautsgerðið Gönguleiðin er um 350-400 metrar en sjálf göngubrúin
Bifröst er 200 metra löng. Sífellt fleiri ferðamenn heimsækja staðinn.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Góðviðrið í höfuðborginni síðustu
daga er möguleg skýring á þeim erli
sem hefur verið hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu í vikunni sem líður.
Þetta segir Rafn Hilmar Guðmunds-
son, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, í samtali við
Morgunblaðið.
Þrír handteknir í partíi
Síðastliðna viku hafa verið fluttar
af því fréttir að næstum allir fanga-
klefar hafi verið fullir á lögreglustöð-
inni við Hverfisgötu nokkrar nætur í
vikunni og ýmis sérkennileg mál hafa
komið upp. Sem dæmi var á miðviku-
dag tilkynnt um mann í æðiskasti
vera að brjóta húsgögn og henda til
hlutum á Laugavegi. Þá var lögreglu
tilkynnt um mann sem var að sveifla
kúbeini í allar áttir við Hagkaup í
Skeifunni aðfaranótt föstudags. Einn-
ig var maður handtekinn í hverfi 203
eftir nágrannadeilur og aðfaranótt
þriðjudags þurfti að kalla til lögreglu
og sérsveit, og handtaka þar þrjá,
vegna aðgerðar í kjölfar tilkynningar
um samkvæmishávaða í heimahúsi.
Að auki hafði lögregla afskipti af
miklum fjölda ökumanna sem voru
grunaðir um ölvun eða fíkniefna-
neyslu.
Veðrið „bara æðislegt“
„Ég held það sé bara meira að gera.
Meira líf í borginni okkar,“ segir
Rafn, sem segir það þó í sjálfu sér
ekki vera stórfrétt að nær allir fanga-
klefar séu fullir yfir nóttina. Það sé
nokkuð algengt. Hann bætir þó við að
í kringum stórar hátíðir sé oft mikið
að gerast, og nefnir Hinsegin daga
sem eru haldnir 20. árið í röð nú um
helgina. „Svo er veðrið náttúrulega
bara æðislegt,“ bætir hann við og seg-
ir: „Þá er auðvitað bara meira um að
vera í borginni, að auki við hátt í tvö
hundruð skemmtistaði og fjölda
ferðamanna.“
Segir hann þó að engin augljós
skýring sé á því að nokkur undarleg
mál komi nú upp, en segir það ótví-
rætt að lögregla finni fyrir meira lífi í
borginni þegar veður sé gott.
Góðviðrið mögu-
leg skýring á
erli hjá lögreglu
Maður í æðis-
kasti og annar að
sveifla kúbeini
Morgunblaðið/Eggert
Verðirnir Ýmis sérkennileg mál
hafa komið upp hjá lögreglunni.