Morgunblaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
GOLF
Íslandsmótið heldur áfram á Grafarholts-
velli þar sem þriðji hringurinn bæði í karla-
flokki og kvennaflokki verður leikinn í dag
og lokahringurinn á morgun.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Forkeppni EM karla:
Laugardalshöll: Ísland – Sviss .............. L13
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Greifavöllur: KA – Stjarnan................... S16
Kórinn: HK – KR.................................... S16
Norðurálsvöllur: ÍA – Breiðablik .......... S16
Víkingsvöllur: Víkingur R. – ÍBV.......... S16
Origo-völlur: Valur – FH........................ S20
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Ásvellir: Haukar – Magni ...................... L14
2. deild karla:
Samsung-völlur: KFG – Leiknir F .. L13.30
Hertz-völlur: ÍR – Völsungur................ L14
Vogaídýfuvöllur: Þróttur V. – Vestri .... L14
Fjarðab.höll: Fjarðabyggð – Kári......... L14
3. deild karla:
Vilhjálmsv.: Höttur/Huginn – Álftanes L14
Framvöllur: Kórdrengir – Einherji...... L14
Sindravellir: Sindri – KF ....................... L16
2. deild kvenna:
Boginn: Hamrarnir – Sindri .................. L12
UM HELGINA!
EM U20 kvenna
B-deild í Kósóvó:
Keppni um sæti 9-12:
Kósóvó – Ísland .................................... 63:97
Grikkland – Úkraína ............................ 45:52
Úkraína 4, Ísland 4, Grikkland 2, Kósóvó
2. Ísland mætir Úkraínu í síðustu umferð-
inni á morgun.
EM U16 karla
B-deild í Svartfjallalandi:
C-riðill:
Ísland – Hvíta-Rússland ............. (frl.) 76:69
Danmörk – Úkraína ............................. 79:62
Svartfjallaland – Sviss ......................... 90:81
Ísland 4, Svartfjallaland 4, Danmörk 4,
Úkraína 2, Hvíta-Rússland 2, Sviss 2. Ís-
land mætir Danmörku í þriðju umferð í
dag.
KÖRFUBOLTI
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Þetta er fyrst og fremst gríðarlega
mikilvægur leikur fyrir okkur og
hann leggst mjög vel í mig,“ sagði
Hörður Axel Vilhjálmsson, leik-
maður íslenska karlalandsliðsins í
körfuknattleik, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Ísland mætir Sviss í Laugardals-
höll í dag klukkan 13 í forkeppni EM
2021 en liðið tapaði fyrsta leik sínum
í forkeppninni gegn Portúgali ytra
með einu stigi, 80:79. Íslenska liðið
þarf nauðsynlega á sigri að halda til
þess að halda vonum sínum á lífi um
að spila á Evrópumeistaramótinu
sem fram fer í Georgíu, Ítalíu, Tékk-
landi og Þýskalandi og því allt undir í
Laugardalshöll í dag.
„Eftir tapið úti í Portúgal er það
bara að duga eða drepast fyrir okkur
gegn Sviss, svo einfalt er það. Vissu-
lega vorum við svekktir eftir tapið úti
því við ætluðum okkur sigur í Portú-
gal sem hefði sett okkur í góða stöðu
en það gekk ekki eftir og núna þurf-
um við að fara aðrar leiðir. Eins og
riðillinn er að spilast gætu sigrar á
útivelli talið mest en að sama skapi
höfum við verið öflugir á heimavelli í
gegnum tíðina og planið er að halda
því áfram. Við erum enn þá með
þetta í okkar höndum og ef við fáum
fólkið með okkur hef ég fulla trú á
því að við getum klárað okkar leiki
og verkefnið með sæmd.“
Veikleikar sem þarf að nýta
Svissneska vann 77:72-sigur gegn
Portúgal í fyrsta leik sínum í Frobo-
urg í Sviss í byrjun ágúst þar sem að
Clint Capela, leikmaður Houston
Rockets í bandarísku NBA-deildinni,
var atkvæðamestur í svissneska lið-
inu með 16 stig og ellefu fráköst.
„Þetta er mjög sterkt lið og þeir
eru með betri einstaklinga innan-
borðs en Portúgal. Portúgal er með
einstaklinga sem hafa spilað lengi
saman á meðan Sviss er með nýrra
lið og þeir eru ennþá að læra inn á
hver annan þar. Clint Capela er
þeirra stærsta stjarna en það þýðir
samt ekki að það séu engir veikleikar
í þeirra liði. Þeir eru með ansi marga
veikleika og Capela er einn af þeim
og við þurfum að nýta okkur þá í
leiknum. Við erum búnir að taka einn
stuttan myndbandsfund fyrir leikinn
og svo tökum við annan síðar í dag (í
gær) og við ættum því að vera vel
undirbúnir fyrir leikinn.“
Lið sem er ennþá að læra
Það er ákveðin endurnýjun í gangi
hjá íslenska liðinu en Hörður við-
urkennir að Tryggvi Snær Hlinason
hafi breytt dýnamík íslenska liðsins
hratt á undanförnum árum. Tryggvi,
sem er 2,16 sentímetrar á hæð, hefur
bætt sig gríðarlega mikið sem körfu-
knattleiksleikmaður frá því hann
spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2016
og skoraði meðal annars 15 stig og
tók átta fráköst í leiknum gegn
Portúgal í vikunni.
„Þetta er eitt hæfileikaríkasta
landslið sem ég hef spilað með en það
tekur auðvitað tíma að spila sig sam-
an, sérstaklega í vörninni, og það er
algjörlega nýtt fyrir okkur að vera
allt í einu með stærri mann en önnur
lið inn í teig sem dæmi. Við þurfum
að læra betur inn á það, bæði í vörn
og sókn, og hvernig við getum nýtt
okkur það sem best. Í gegnum tíðina
höfum við verið að ráðast á stóru
mennina með litlu mönnunum en
núna erum við allt í einu farnir að
lenda sjálfir í því sem er ákveðin til-
breyting. Þetta er hins vegar mjög
jákvæð þróun bæði fyrir mig per-
sónulega sem og allt liðið því það
opnar völlinn til muna fyrir okkur
bakverðina að vera með svona
skrímsli eins og Tryggva inni í teign-
um. Við erum á réttri leið sem lið og
þótt við séum kannski ekki orðnir
jafn vel samhæfðir og EM 2015 liðið,
sem er að mínu mati okkar besta lið
frá upphafi, þá eru mjög bjartir
tímar framundan hjá landsliðinu,“
sagði Hörður Axel í samtali við
Morgunblaðið.
Skrímslið í
teignum sem
breytir öllu
Allt undir hjá íslenska körfuknatt-
leikslandsliðinu sem mætir Sviss í dag
Morgunblaðið/Hari
Evrópukeppni Hörður Axel Vilhjálmsson og samherjar í landsliðinu eiga
fyrir höndum algjöran lykilleik í forkeppni EM gegn Sviss í dag.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og
Andri Þór Björnsson standa vel að
vígi eftir tvo keppnisdaga af fjórum
á Íslandsmótinu í golfi á Graf-
arholtsvelli. Guðrún Brá sem er
ríkjandi Íslandsmeistari er með
þriggja högga forystu í kvenna-
flokki og Andri Þór er með tveggja
högga forystu í karlaflokki.
Fyrir hringinn í gær voru Hulda
Clara Gestsdóttir og Saga Trausta-
dóttir efstar á tveimur höggum yfir
pari, einu höggi á undan Guðrúnu.
Þær náðu sér hins vegar ekki al-
mennilega á strik og það nýtti Guð-
rún sér. Hún lék á 69 höggum,
tveimur höggum undir pari, og er á
samanlagt þremur höggum undir
pari. Nína Björk Geirsdóttir lék
einnig á 69 höggum og fór upp í
annað sætið. Hún er samanlagt á
pari.
Þar á eftir kemur Saga á einu
höggi yfir pari, en hún lék á 74
höggum í dag. Hulda Clara er á 5
höggum yfir pari í fimmta sæti.
Hulda lék á 78 höggum í dag. Þar á
milli er Berglind Björnsdóttir í
fjórða sæti á fjórum yfir.
Andri lék á 66 höggum eða fimm
höggum undir pari og bætti sig um
fjögur högg á milli hringja.
Andri lék gríðarlega öruggt golf
í gær og fékk fimm fugla og ekki
einn einasta skolla. Hann er sam-
anlagt á sex höggum undir pari.
Hlynur Geir Hjartarson er í öðru
sæti á fjórum höggum undir pari,
en hann var í forystu fyrir daginn.
Viktor Ingi Einarsson, Hákon
Örn Magnússon, Jóhannes Guð-
mundsson og Haraldur Franklín
Magnús koma þar á eftir á þremur
höggum undir pari. Guðmundur
Ágúst Kristjánsson er svo á tveimur
höggum undir pari.
Axel Bóasson, ríkjandi Íslands-
meistari, er á tveimur höggum yfir
pari í 16. sæti ásamt þremur öðrum
kylfingum. johanningi@mbl.is
Guðrún og Andri
eru með góða stöðu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Forysta Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Andri Þór Björnsson standa vel að
vígi þegar keppnin á Íslandsmótinu á Grafarholtsvelli er hálfnuð.
Ítalska félagið Bologna hefur fest
kaup á miðjumanninum Andra
Fannari Baldurssyni frá Breiðabliki.
Andri Fannar fór á lán til félags-
ins í janúar, en Bologna átti for-
kaupsrétt á honum og ákvað ítalska
félagið að festa kaup á honum en
Andri er 17 ára gamall.
Bologna keypti
Andra Fannar
Skólar & námskeið
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 16. ágúst
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir miðvikudaginn 14. ágúst.
SÉRBLAÐ
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu valkosti sem
í boði eru fyrir þá sem stefna
á að auka þekkingu sína
og færni í haust og vetur.
–– Meira fyrir lesendur