Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019 Stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Markmið sjóðsins er stuðningur við nýjungar í læknis- fræði, einkum á sviði heila- og taugasjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, augnsjúkdóma og öldrunarsjúkdóma. Með umsóknum skulu fylgja greinargerðir um vísindastörf umsækjenda, ítarlegar kostnaðaráætlanir og upplýsingar um það, hvernig þeir hyggjast verja styrknum. Athygli er vakin á því, að sjóðurinn veitir ekki styrki til tækjakaupa né til að mæta ferðakostnaði. Umsóknir skulu staðfestar með undirskrift umsækjanda og meðumsækjanda/enda, ef einhverjir eru. Umsóknarfrestur er til 31. október nk. og ber að senda umsóknir í pósthólf 931, 107 Reykjavík, merktar „Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar.“ Stefnt er að því að tilkynna um úthlutun í lok nóvember nk. Ath. styrkir verða aðeins veittir til verkefna á sviði heila- og taugasjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, augnsjúkdóma og öldrunarsjúkdóma. Götum verður lokað, frítt verður í strætó og aukastrætisvagnaferðum verður bætti við um helgina vegna tvennra tónleika Ed Sheeran, sem fram fara í kvöld og annað kvöld. Engjavegi, sem liggur fram hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og að gatnamótum við Glæsibæ, verður lokað fyrir allri umferð nema umferð leigubíla og einkabíla með 4 farþega eða fleiri, sem keypt hafa bílastæði við Skautahöll eða Laugardalshöll. Þá verður Reykjavegi lokað kl.12.00 fyrir allri umferð, nema umferð rúta og strætisvagna og þá verður hluta Suðurlandsbrautar frá gatnamótum Grensásvegar og að gatnamótum Kringlumýr- arbrautar lokað fyrir alla umferð, að undanskildri umferð rúta og strætisvagna, meðan á tónleik- unum stendur. Tónleikagestir fá frítt í strætó um helgina gegn framvísun miða eða armbands á tónleikana en leið- ir 2, 5,14,15 og 17 stoppa skammt frá Laugardalsvelli. Búist er við komu 30 þúsund gesta á tónleika Sheeran í kvöld og reiknað er með 20 þúsund gest- um á aukatónleikana annað kvöld. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aukaferðir strætis- vagna og götum lokað Tónleikar Unnið var að því hörðum höndum í gærkvöldi að ljúka öllum undirbúningi fyrir tónleikana í dag. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Kaupendur tveggja íbúða Félags eldri borgara við Árskóga 1-3 í Reykjavík lögðu í gær fram aðfar- arbeiðni til Héraðsdóms Reykja- víkur. Er þess þar krafist að þeir fái íbúðirnar afhentar sem fyrst enda hafi þeir uppfyllt kaupsamn- ing og greitt af íbúðinni í samræmi við hann. Fyrirtaka verður í hér- aðsdómi á þriðjudagsmorgunn. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for- maður Landssambands eldri borg- ara (LEB) og fyrrverandi formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB), segist hafa „of- boðslegar áhyggjur“ vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í máli FEB vegna íbúða félagsins í Árskógum. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá var íbúðaverð hækkað og kaupendum gert að greiða hærra verð en samið var um ellegar að falla frá kaupunum. Þórunn er einn kaupenda, og er ein þeirra sem samþykkti að greiða hækkað verð fyrir íbúð sína, enda hafði hún ekki svigrúm til annars að eigin sögn. „Ég er næstum flutt inn,“ segir hún og bætir við: „Við vorum komin allt of langt. Við vorum komin þá leið að við gátum engu breytt.“ Spurð um áhyggjur hennar vegna málsins segir hún:„Svona stór skellur hefur auðvitað óneit- anlega afleiðingar, bæði félagslega og gagnvart virðingu [FEB].“ Þá bætir hún við: „Ég spyr mig: Hvernig gat þetta gerst?“ Verða að fara ofan í kjölinn „Það er nauðsynlegt fyrir FEB að fara ofan í kjölinn á þessu og at- huga hvar þessi skekkja gerðist. Ég held að það séu mínar leiðbein- ingar,“ segir Þórunn. Aðspurð hvort hún ætli að leita réttar síns vegna verðhækkunarinnar segir hún: „Ég hef trú á því að ef ein- hvers staðar fáist einhverjar leið- réttingar þá verði þeim komið til skila til kaupenda. Ég vil gefa fólk- inu í FEB tækifæri á því að finna þessar lausnir.“ Í samtali við Morgunblaðið segir Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, að fjórir kaup- enda hafi leitað til samtakanna vegna málsins. „[Þeir] hafa leitað til okkar og spurst fyrir. Það er auð- vitað enginn sáttur en menn hafa mismiklar áhyggjur. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er þetta náttúrulega hið skringilegasta mál.“ Breki segir frá því að Neytenda- samtökin hafi fundað með forsvars- mönnum FEB í fyrradag þar sem samtökin lögðu fyrir FEB tíu spurningar. „Við sumum fengum við svör og við öðrum þurfum við að fá ítarlegri svör,“ segir Breki. Að sögn Breka eiga endanleg svör að liggja fyrir á næstu dögum. „Hvernig gat þetta gerst?“  Formaður Landssambands eldri borgara einn kaupenda í Árskógum  „Hið skringilegasta mál“  Tveir kaupenda krefjast þess fyrir dómi að fá lyklana Þórunn Sveinbjörnsdóttir Breki Karlsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Endurræsing kerskála þrjú í álveri Rio Tinto í Straumsvík hefst í byrjun september, að sögn Bjarna Más Gylfasonar upplýsingafulltrúa. Í skálanum eru 160 ker og verða nokk- ur þeirra ræst á hverjum degi. Mán- uðir geta því liðið þar til öll kerin verða aftur komin í rekstur. „Við erum vongóð um að þetta gangi allt vel. Það var slökkt á kerj- unum með stýrðum hætti og búið þannig um hnútana að við værum vel í stakk búin að setja þau af stað aft- ur,“ sagði Bjarni. Hann sagði að ker- in hefðu ekki skemmst en vandasamt væri að ræsa þau á ný. Bjarni sagði að endanlegt tjón vegna atviksins réðist af því hve vel gengi að endurræsa kerskála þrjú. Álver Rio Tinto í Straumsvík fram- leiddi 212 þúsund tonn í fyrra. Ekki er hægt að svara því að svo stöddu hvaða áhrif stöðvunin muni hafa á framleiðsluna á þessu ári enda hefur endurræsingin áhrif á það. Flytja inn ál til að bræða Álverið mun geta staðið við samn- inga um afhendingu áls, þrátt fyrir stöðvun kerskála þrjú. „Það er forgangsatriði að geta staðið við samninga við okkar við- skiptavini. Við steypum töluvert meira ál en við framleiðum sjálf og höfum gert í nokkurn tíma. Við erum með mjög fullkominn steypuskála sem afkastar miklu,“ sagði Bjarni. Meðal annars er flutt hingað ál sem er brætt upp og steyptir úr því svo- nefndir boltar. Það eru 7-8 metra langar sívalar álstangir og 20-30 sentimetrar í þvermál. Kerskálinn í Straumsvík ræstur á ný í september  Fjárhagslegt tjón ekki ljóst  Geta staðið við afhendingar Morgunblaðið/Eggert Straumsvík Slökkt var á kerjum í skála þrjú í júlí vegna ljósboga. Gísli Jafetsson, framkvæmda- stjóri FEB, keypti íbúð á efstu hæð annarrar blokkarinnar við Árskóga 1-3. Þá keypti Þorbergur Halldórsson, formaður bygging- arnefndar félagsins, næst- stærstu íbúð annars stigagangs- ins í sömu blokk. Erfiðlega hefur gengið að fá upplýsingar um hvernig íbúðum var á sínum tíma úthlutað en í vikunni sagði Ellert Schram, formaður FEB, að ekk- ert væri athugavert við það að tvímenningarnir hefðu fengið út- hlutað íbúðum, enda væru þeir í félaginu. Samkvæmt fundargerðum stjórnar FEB frá 2017 og 2018 byggðist úthlutun meðal annars á því hvenær viðkomandi setti sig á lista yfir „áhugasama“ og hversu lengi umsækjandi hefði verið félagsmaður. Með íbúð á efstu hæð ÚTHLUTUN Í ÁRSKÓGUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.