Morgunblaðið - 10.08.2019, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Langvinnir verkir eru stórheilsufarsvandi og algengástæða þess að fólk leitarlæknisþjónustu innan
heilsugæslunnar. Þegar verkir hafa
verið til staðar lengur en þrjá mán-
uði sem eða þegar verkir svara illa
meðferð er talað
um verkina sem
langvinna. Slíkir
verkir geta stafað
af ýmsum orsök-
um, verið fylgi-
kvillar ýmissa
sjúkdóma eða or-
sakast af
skemmdum á lík-
amsvef. Oftast er
orsökin þekkt en
í einstaka tilvikum er skýring þeirra
óljós.
Heildræn nálgun
Þegar skemmd hefur orðið á lík-
amsvefjum er því miður ekki alltaf
mögulegt að hafa áhrif á þá skemmd
sem þegar er orðin. Orsök lang-
vinnra verkja er auk þess ekki alltaf
skýr og því er meðhöndlun þeirra
oft á tíðum flókið verkefni. Lyfja-
meðferð, sjúkraþjálfun og sálfræði-
meðferð eru dæmi um meðferðir við
langvinnum verkjum. Stuðningur til
lífsstílsbreytinga er einnig mikil-
vægt meðferðarúrræði. Markmið
allra þessara meðferðúrræða er að
draga eins og hægt er úr verkjum,
efla almenna heilsu og auka lífs-
gæði.
Besti árangur næst ef meðferð er
margþætt og sniðin að persónu-
legum þörfum hvers og eins. Þýð-
ingarmikið að einstaklingur með
langvinna verki fái svigrúm til að
þekkja eigin einkenni og stuðning til
að tileinka sér hagnýt bjargráð við
hæfi. Fyrir einstakling sem lifir með
langvinna verki er mikilvægt að
upplifa sig hafa stjórn á lífi sínu og
tilveru, í stað þess að upplifa að-
stæður sínar þannig að verkirnir
stjórni lífinu. Það getur tekið tíma
að finna meðferðarúrræði sem
henta. En með seiglu og góðum
stuðningi er það hægt.
Efla heilsu þrátt fyrir verki
Langvinnir verkir geta haft víð-
tæk áhrif á líf og tilveru fólks. Á
sama hátt hefur hegðun, hugarfar
og lífstíll mikil áhrif á verkina. Með
því að horfa heildrænt á lífið og
ígrunda eigin aðstæður má bæta líð-
an og efla heilsu þrátt fyrir lang-
vinna verki. Hér eru dæmi um lífs-
stílsþætti sem gagnlegt er að vinna
með:
Hreyfing: Hreyfing eykur blóð-
flæði um allan líkamann. Með auknu
blóðflæði eykst súrefnisflutningur
sem og flutningur ýmissa góðra
boðefna um allan líkamann. Með
hreyfingu minnkar stífni vöðva og
verkir og eymsli minnka. Hreyfing
hefur auk þess jákvæð áhrif á and-
lega líðan og er gott mótvægi við
streitu.
Streitustjórnun: Streita er órjúf-
anlegur hluti af lífinu. Þegar við
upplifum streitu losna ýmiss konar
streituhormón út í blóðrásina. Þessi
hormón geta haft slæm áhrif á verki
sem og líðan. Það er því þýðing-
armikið að finna leiðir til að takast á
við eða takmarka streitu í lífinu.
Svefn: Algengt er að langvinnir
verkir hafi áhrif á gæði svefns, en
truflun á svefni getur haft ýmis nei-
kvæð áhrif á líðan okkar s.s andlegt
jafnvægi, skap og virkni. Truflun á
svefn getur lækkað verkjaþröskuld
og haft letjandi áhrif á getu fólks til
að takast á við langvinna verki.
Stuðningur: Stuðningur er þýð-
ingarmikill þáttur í baráttunni við
langvinna verki. Gagnlegt er að
setja uppbyggileg og góð samskipti í
forgang, sinna áhugamálum og
rækta sambönd við vini og aðstand-
endur. Mikilvægt er að geta leitað
stuðnings hjá heilbrigðisstarfsfólki,
fjölskyldu, vinum og vinnufélögum.
Ef þú ert að glíma við langvinna
verki og langar til að bæta líðan
þína og efla heilsu, þá hvetjum við
þig til að leita til okkar á heilsugæsl-
una, þar sem starfa hópar fagfólks:
heimilislæknar, hjúkrunarfræð-
ingar, sálfræðingar og sjúkraþjálf-
arar. Öll erum við reiðubúin að
styðja þig í vegferð að innihaldsrík-
ara og heilbrigðara lífi.
Á heimasíðu heilsuveru (heilsu-
vera.is) má einnig finna nánari upp-
lýsingar um langvinna verki sem og
ýmsar ráðleggingar varðandi svefn,
hreyfingu, streitustjórnun og margt
fleira.
Meðhöndlun
verkja er oft
flókið verkefni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hlaup Regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á andlega líðan og er gott mótvægi við streitu.
Svava Björk
Jónasdóttir
Heilsuráð
Svava Björk Jónasdóttir
Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslustöðinni
í Árbæ í Reykjavík
Besti árangur næst
ef meðferð er margþætt
og sniðin að persónu-
legum þörfum hvers
og eins.
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Axelsbúð Akranesi
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“