Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019 Pöntun Vel hefur viðrað til að snæða utandyra að undan- förnu, hvort sem það er á veitingahúsum eða heima fyrir. Arnþór Birkisson Á undanförnum vikum hafa birst í nokkrum íslenskum fjöl- miðlum greinar og umfjallanir um málefni Xinjiang-héraðs í Kína þar sem birtar hafa verið nokkrar rangar og misvísandi upplýsingar. Í þeirri viðleitni að hjálpa hinum almenna lesanda að öðlast raunsannan skilning á ástandinu í Xinjiang-héraði, langar mig að útskýra nokkur atriði í þessu sambandi með eft- irfarandi staðreyndum: 1. Í Xinjiang búa margir þjóðernishópar. Xinjiang Úýgúr-sjálfstjórnarhéraðið er í Norðvestur-Kína og er eitt fimm sjálfstjórn- arhéraða Kína. Í héraðinu búa fulltrúar allra þjóðernishópa í Kína, en af þeim eru Úýgúrar (48%) og Han-Kínverjar (37%) fjölmennastir. Xinjiang er ekki einungis heimahérað allra þjóðernishópanna, heldur einnig órjúfanlegur hluti föðurlands kínversku þjóðarinnar. 2. Xinjiang-hérað hefur löngum verið þjakað af hryðjuverkum og trúarofstæki. Síðan um 1990, og sérstaklega eftir hryðju- verkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. sept- ember 2001, hafa hryðjuverka-, trúarofstækis- og aðskilnaðarhreyfingar í Kína og víða í heim- inum skipulagt og framkvæmt þúsundir of- beldisfullra hryðjuverka og má þar nefna sprengingar, launmorð, eitranir, árásir, óró- leika og uppþot, sem hafa valdið dauða fjöl- margra saklausra borgara og löggæslumanna, auk þess að valda umfangsmiklu eignatjóni. Þessir hræðilegu glæpir, framdir af hryðju- verkamönnum, hafa valdið öllum þjóðern- ishópunum í Xinjiang-héraði ómældum hörm- ungum, og grafið undan vaxandi friðsæld hversdagslífs í héraðinu. Þessar árásir hafa jafnframt brotið á mannréttindum hins al- menna borgara af öllum þjóðernishópunum í Xinjiang-héraði, sem eru rétturinn til lífs, heilsu, eignamyndunar og þróunar ásamt al- mennri mannvirðingu. 3. Það er mjög brýnt að berjast gegn hryðju- verkum og trúarofstæki í samræmi við lands- lög. Baráttan gegn hryðjuverkum, og að uppræta trúarofstæki, er al- heimsverkefni, sem ætti að vera sameiginlegt fyrirbyggjandi átak þjóða heims. Þar sem yfirvöld í Xinjiang-héraði standa frammi fyrir þeirri alvarlegu hættu sem stafar af yfirvofandi hryðjuverk- um og þeim vilja almennings af öllum þjóðernishópum til að berj- ast gegn hryðjuverkum, hafa þau tekið þau skref sem lögin leyfa til að hindra og uppræta ofbeldisfulla glæpi. Á sama tíma og trúfrelsi, lögbundin réttindi og hagsmuna- mál einstaklinga og samtaka eru virt og vernd- uð, er mikilvægt að berjast af hörku gegn hvers konar hryðjuverkum og skoða ýmsar að- ferðir við að uppræta og brjóta upp ofbeldis- fulla trúarofstækishópa. Í þessum tilgangi hafa verið settar upp hinar svokölluðu „menntunar- og starfsþjálfunarmiðstöðvar“ sem miða að því að veita þeim aðilum sem hafa ánetjast ofbeld- isfullu trúarofstæki, menntun og þjálfun, þannig að þeir geti snúið aftur til samfélagsins, í staðinn fyrir að grípa þessa einstaklinga og handtaka, eftir að þeir hefðu hugsanlega orðið valdir að hryðjuverkum og valdið bæði öðrum og samfélaginu ómældum skaða. Þessi leið er fyrst og fremst fyrirbyggjandi varúðarráðstafanir. Það er enginn munur á starfsþjálfunarmiðstöð og heimavistarskóla. Nemendur fá kennslu í hinu sameiginlega þjóðartungumáli, kennslu í almennum lögum ásamt starfsþjálfun og hjálpar þetta þeim að verða víðsýnni og draga úr öfgafullum skoð- unum. Nemendurnir geta reglulega farið í frí og beðið um leyfi þegar á þarf að halda og verið í sambandi við fjölskylduna með bæði símtöl- um og myndsímtölum. Fjölskyldur eru einnig velkomnar í heimsókn í miðstöðvarnar. Eftir að námi lýkur fá nemendur ráðgjöf um bæði störf og viðskiptatækifæri frá skólanum og hinu opinbera. Þjálfunarmiðstöðvarnar bjóða frítt húsnæði og tryggja öll grundvallarréttindi nemandans samkvæmt lögum til að vera virkir þátttakendur í náminu, lífinu og afþreyingu. Þjálfunarmiðstöðvarnar eru á engan hátt fangabúðir. Eftir dvöl og nám í búðunum frá héraðinu upplifir nú hamingjusamt, innihalds- ríkt líf ásamt því að íbúar upplifa sig öruggari en áður, einnig eru íbúar héraðsins almennt mjög sáttir við stefnu stjórnvalda. 5. Aðgerðir yfirvalda í Xinjiang gegn hryðju- verkum og trúarofstæki eru litnar jákvæðum augum af alþjóðasamfélaginu Áskorun Xinjiang snýr að baráttu gegn hryðjuverkum og trúarofstæki, frekar en að trúfrelsi og mannréttindum. Síðan á síðasta ári hafa menntunar og starfsþjálfunarmiðstöðv- arnar tekið á móti þúsundum gesta frá fjöl- miðlum, diplómötum, sérfræðingum, mennta- mönnum, fulltrúum frá mannréttindasamtök- um og trúarhópum frá tugum landa. Langflestir þessara gesta álíta að mennt- unar og starfsþjálfunarmiðstöðvarnar séu raunhæf leið til að draga úr ofbeldinu sem fylgir hryðjuverkum og útbreiðslu trúarof- stækis. Nýlega undirrituðu sendiherrar á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf, frá 50 ríkjum frá Asíu, Afríku, Suður-Ameríku og Evrópu, undir yfirlýsingu til forseta Mannrétt- indaráðs Sameinuðu þjóðanna og skrif- stofustjóra mannréttindamála. Í yfirlýsingunni var fjallað mjög jákvætt um þróun samfélags og efnahags í Kína, einnig var lofsorði lokið á árangur Kína í baráttunni gegn hryðjuverkum og trúarofstæki, ásamt verndun mannréttinda. Í yfirlýsingunni er einnig lýst stuðningi við stefnu Kína í málefnum Xinjiang og mennt- unar og starfsþjálfunarmiðstöðvarnar og aðrar varnir gegn hryðjuverkum sem hafa stutt við grunn mannréttindi íbúa svæðisins. „Það er ekki hægt að vita hvar skórinn kreppir nema að þú mátir hann.“ Íbúar allra þjóðernishópa í Xinjiang, ásamt kínversku þjóðinni eru best til þess fallnir að fjalla um málefni Xinjiang. Við vonumst til að almenn- ingi á Íslandi auðnist að horfa á málefni Xinji- ang frá hlutlausum sjónarhóli og trúi ekki í blindni sögusögnum og einhliða fréttaflutningi fjölmiðla. Við bjóðum ykkur öllum að koma í heimsókn á svæðið og sjá með eigin augum fegurð landslagsins og þær jákvæðu breyt- ingar sem hafa átt sér stað í Xinjiang-héraði. Eftir Jin Zhijian » Þjálfunarmiðstöðvarnar bjóða frítt húsnæði og tryggja öll grundvallarréttindi nemandans samkvæmt lögum. Jin Zhijian Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. Nokkrar staðreyndir um ástandið í Xinjiang-héraði nokkrum mánuðum upp í ár, geta flestir nem- endurnir fengið vinnu og hjálpað til við að reisa fjölskyldu sína úr örbirgð, og er það í samræmi við stefnu stjórnvalda að útrýma fátækt. Í rauninni er innblásturinn fyrir þessa að- ferð sem er notuð í Xinjiang fengin frá ýmsum vestrænum ríkjum sem hafa reynt ýmsar að- ferðir til „af-öfgavæðingar“. Evrópuríki hafa sum hver komið inn í framhaldsskóla námsefni sem á að draga úr öfgavæðingu, sett nýjar reglur sem banna klæðnað sem hylur andlit og líkama og fylgjast grannt með fólki sem aðhyll- ist trúarofstæki. Almennt má segja að þessar menntunar- og starfsþjálfunarmiðstöðvar séu framtak sem miðar að því að hindra hryðju- verk og eru mikilvægt framlag Kína til hinnar alþjóðlegu baráttu gegn hryðjuverkum. 4. Xinjiang er frjálst og öruggt svæði. Yfirvöld í Xinjiang hafa tekið mörg skref til að varðveita trúfrelsi íbúa og vernda menning- ararf og menningarréttindi allra minni- hlutahópanna til að nota sitt eigið tungumál, í héraði þar sem 10 þjóðernishópar aðhyllast Íslam, eru 24.400 moskur, sem gerir um eina mosku á hverja 530 múslima sem er með því mesta sem gerist í heiminum. Hefðbundin trú- ariðkun og hefðir og venjur hvers hóps eru vernduð með lögum og aðlöguð að nútímanum. Tungumál minnihlutahópanna eru víða notuð í dómstólum, stjórnsýslu, menntun og fjöl- miðlum, bæði í blaðaútgáfu, útvarpi og sjón- varpi, sem og á netinu og á samfélagsmiðlum. Réttindi allra, kvenna, barna, aldraðra og fatl- aðra eru að fullu viðurkennd og vernduð með lögum. Þessar aðgerðir sem miða að því að berjast gegn hryðjuverkum og uppræta trúarofstæki og hafa verið notaðar í Xinjiang hafa reynst ár- angursríkar. Engar hryðjuverkaárásir hafa verið gerðar í Xinjiang-héraði í næstum þrjú ár. Í héraðinu ríkir nú félagslegur stöðugleiki meðal allra þjóðernishópana. Almenningur í Nýlega lauk þingi Al- þjóðavinnumálastofn- unarinnar, Alþjóðavinnu- málaþinginu, sem var hið 108. í röðinni. Þess var minnst með margvís- legum hætti að öld er lið- in frá því að stofnunin hóf starfsemi árið 1919. Henni var sett það mark- mið að ráða bót á fé- lagslegum vandamálum sem öll ríki áttu við að stríða og aðeins yrði sigrast á með sam- eiginlegu félagslegu átaki þjóðanna. Bjargföst trú þeirra fulltrúa rík- isstjórna, atvinnurekenda og launafólks sem mótuðu Alþjóðavinnumálastofn- unina var að varanlegur friður yrði ekki tryggður nema félagslegu réttlæti væri fyrst komið á innan þjóðfélaganna. Óréttlæti væri uppspretta árekstra sem leiddu til styrjalda þjóða í milli. Þessir fulltrúar höfðu fyrir augunum sviðna jörð og húsarústir og áttu margir hverj- ir um sárt að binda eftir gífurlegar mannfórnir í fyrri heimsstyrjöldinni. Fjölmargir þjóðarleiðtogar og for- ystumenn í félags- og vinnumálum sóttu þingið af þessu tilefni. Nefna má forseta Ítalíu, Frakklands, Gana og Suður- Afríku. Enn fremur fjölmarga forsætis- ráðherra. Í þeim hópi voru forsætisráð- herrar Noregs, Svíþjóðar, Lúx- emborgar, Bretlands, Nepals o.fl. Aldrei í sögu samtakanna hafa jafn margir sótt þingið, eða rúmlega sex þúsund fulltrúar ríkisstjórna, samtaka atvinnurekenda og samtaka launafólks. Eitt af mikilvægustu verkefnum Al- þjóðavinnumálaþingsins er að fara yfir árlega skýrslu sérfræðinganefndar stofnunarinnar um framkvæmd aðild- arríkjanna 187 á þeim alþjóða- samþykktum um félags- og vinnumál sem þau hafa full- gilt. Framkvæmd Tyrklands á alþjóðasamþykkt um fé- lagafrelsi var meðal þess sem kom til kasta þingsins. Fulltrúar launafólks voru mjög gagnrýnir á ástandið í landinu og röktu mörg dæmi um það hvernig stjórnvöld hefðu komið í veg fyrir starfsemi stéttarfélaga sem væru þeim ekki að skapi. Einnig var rakið hvernig tugir þúsunda höfðu verið hnepptir í varðhald vegna upploginna fullyrðinga um stuðning við misheppnað valdarán fyrir nokkrum ár- um. Undirbúningur fyrir afmælisárið hófst fyrir þremur árum. Aðildarríkin voru hvött til þess að stofna til um- ræðna og rannsóknarverkefna um við- brögð við fyrirsjáanlegum breytingum á skipulagi vinnunnar og vinnuum- hverfi. Norðurlöndin svöruðu þessu kalli með sameiginlegu verkefni sem fólst í árlegum ráðstefnum um afmark- aða þætti félags- og vinnumála. Loka- hnykkurinn í norræna verkefninu var ráðstefna sem haldin var í Hörpu dag- ana 4. og 5. apríl sl. Sameiginlegt álit var að þessi ráðstefna hefði borið af bæði hvað varðaði skipulag og umræð- ur. Nefnd á vegum Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar, sem laut m.a. for- mennsku Stefan Löfvens, forsætisráðherra Svíþjóðar, vann úr rannsóknum og gögnum frá ráð- stefnunum sem haldnar voru í tilefni af aldarafmælinu og birti í skýrslu. Í henni áttu sæti þjóðarleiðtogar og for- ystumenn samtaka atvinnurekenda og launafólks á alþjóðavísu. Efni skýrsl- unnar var til umfjöllunar í sjö áhuga- verðum pallborðsumræðum á Alþjóða- vinnumálaþinginu. Helsta niðurstaðan Eftir Ásmund Einar Daðason » Framkvæmd Tyrklands á alþjóðasamþykkt um félagafrelsi var meðal þess sem kom til kasta þingsins. Ásmundur Einar Daðason Höfundur er félags- og barnamálaráðherra. Aðgerðir gegn einelti og ofbeldi á vinnustöðum er sú að leggja þarf áherslu á endur- menntun og þjálfun auk félagslegs stuðningskerfis sem gefur fólki tæki- færi til að bregðast við óumflýjanlegum breytingum sem fylgja nýrri tækni og breyttum verk- og framleiðsluháttum. Fyrir þessu afmælisþingi Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar lágu tillögur að nýrri alþjóðasamþykkt og tilmæli um nánari útfærslu á aðgerðum gegn ein- elti og ofbeldi á vinnustöðum. Um var að ræða síðari umræðu en fyrri umræða fór fram á þinginu árið 2018 og lauk í miklum ágreiningi sem m.a. snerist um skilgreiningar og upptalningu hópa sem gætu talist í hættu á að verða fyrir að- kasti vinnufélaga. Eftir mjög strembn- ar umræður tókst góð samstaða í þing- nefndinni sem hélt til loka þingsins. Tillagan að samþykkt og tilmælum naut víðtæks stuðnings þingfulltrúa. Gildi þessara gerða felst í því að með þeim er lagður grunnur að aðgerðum til að skapa vinnuumhverfi sem byggist á virðingu fyrir mannlegri reisn og er laust við hvers konar ofbeldi og einelti. Ég hef þegar óskað eftir því við sam- starfsnefnd félagsmálaráðuneytisins og helstu samtaka atvinnurekenda og launafólks um málefni Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar að hún taki sam- þykktina til umfjöllunar með það fyrir augum að Ísland verði í hópi þeirra ríkja sem fyrst fullgilda þessa nýju alþjóðasamþykkt sem hefur ekki síst það markmið að tryggja mannsæmandi vinnuumhverfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.