Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Páll Þórðarson lögfræðingur
og framkvæmdastjóri hefði orð-
ið 75 ára í dag. Hann fæddist að
Hjallhóli á Borgarfirði eystra
10. ágúst 1944 en lést 5. maí
2011. Foreldrar Páls voru Þórð-
ur Jónsson skrifstofumaður, f.
1918, d. 2009, og Sigrún Páls-
dóttir kennari, f. 1917, d. 2004.
Páll ólst upp á Borgarfirði
eystra. Hann varð stúdent frá
MA 1964, flutti til Reykjavíkur
og las viðskiptafræði og síðar
lög og lauk kandídatsprófi. Eftir
lögfræðinámið hóf Páll störf hjá
skrifstofu borgarstjórans í
Reykjavík í júní 1971 og var
skrifstofustjóri Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar
frá september 1971 til 1. mars
1972 er hann var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Læknafélags Ís-
lands og Læknafélags Reykja-
víkur. Því starfi gegndi hann
mestan hluta starfsævi sinnar
eða til ársins 1999. Síðan var
hann framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Suðurlands í ár og
starfaði síðast hjá fyr-
irtækjaskrá Hagstofunnar. Páll
var varaformaður Orators í há-
skóla og ritstjóri Úlfljóts. hann
var í stjórn stúdentafélags HÍ
1969-70. Hann var í fyrstu
stjórn Félags um heilbrigðis-
löggjöf 1991.
Páll var kvæntur Þorbjörgu
Einarsdóttur og átti með henni
þrjár dætur.
Merkir Íslendingar
Páll
Þórðarson
Íslenska ríkið hefur
gert minningu Sigríðar
Tómasdóttur í Bratt-
holti margvíslegan
sóma á undanförnum
árum og meðal annars
með gestastofu við
Gullfoss henni til heið-
urs. Sigríður er enda
talin frumkvöðull í bar-
áttu gegn taumlausum
virkjunum fallvatna.
Landið lýtur nú forystu þess flokks
sem helst kennir sig við umhverf-
isvernd en hversu vel ríma hér saman
orð og gjörðir.
Fyrir flestum er virkjun náttúru-
perlu eins og Gullfoss fjarstæðu-
kennd hugmynd og baráttumann-
eskjan Sigríður í Brattholti ekki
annað en kennimark sögunnar sem
er gaman að horfa til. En það er þó
mikil einföldun. Hinn 8. september
1961 birti Morgunblaðið viðtal við þá-
verandi orkumálastjóra sem boðaði
galvaskur virkjun Gullfoss. Sigríður
Tómasdóttir hafði þá legið tæp fjögur
ár í gröf sinni við Haukadalskirkju og
ástæða þess að hætt var við Gullfoss-
virkjun voru ekki mótmæli umhverf-
isverndarsinna heldur fyrst og fremst
að hagkvæmara þótti að ráðast í gerð
Búrfellsvirkjunar.
Sú lagavernd sem Gullfoss nýtur í
dag er litlu betri en hún var 1961
þrátt fyrir friðlýsingu árið 1979. En
staða allra fossa og ónýttra virkj-
anakosta á Íslandi verður til muna
verri en áður með samþykkt þriðja
orkupakkans í boði Katrínar Jak-
obsdóttur, formanns Vinstri grænna.
Nú kann vel að vera að alþjóðleg
frægð Gullfoss dugi honum þó til
bjargar en hin íslensku víðerni og
óbeisluð fallvötn hafa aldrei verið í
meiri hættu heldur en á þessum
haustdögum 2019. Síðasta vetur var
deilt um hvort orkupökkum ESB
fylgdi óhjákvæmilega lagning sæ-
strengs en þær raddir gerast nú hjá-
róma sem halda því fram að hægt sé
að verjast skuldbindandi alþjóða-
samningi með einföldum lagasetn-
ingum frá Alþingi. Enda væri þá allt
alþjóðasamstarf ein-
kennilegt ef þjóðir gætu
jafnhliða samþykkt
samninga við önnur ríki
og lög í eigin þjóðþing-
um sem ógilda sömu
samninga. Eins og
margoft hefur verið
bent á ganga alþjóða-
samningar almennt
framar en innlend laga-
setning.
En jafnvel þó svo
væri að Íslendingar
gætu varist hinni evrópsku innrás í
virkjanauppbyggingu með því einu að
verja með kjafti og klóm að hingað
verði lagður sæstrendur, er þá svo
eftirsóknarverð staða. Viljum við ekki
geta ráðið því sjálf hvort við leggjum
hugsanlega sæstreng og seljum raf-
orku til annarra þjóða án þess að
sömu þjóðir geti ruðst hér yfir lönd
og ár í krafti hins víðfræga fjórfrelsis
ESB?
Það getur verið að stjórnarþing-
menn og umhverfissinnar þar á bæ
telji það ofar öllu öðru að vera með
Orkupakka 3 bara til að geta talað
gegn því sem Klausturbullur Mið-
flokksins hampa. En heldur verður sá
skollaleikur dýrkeyptur fyrir íslenska
náttúru.
Atburðir sem nú eru að verða í
samskiptum ESB við bæði Bretland
og gestgjafalandið Belgíu kalla á að
Íslendingar fresti því enn um sinn að
afgreiða til fullnustu hinn umdeilda
og vafasama orkupakka. Það er víðar
en í grasrót Sjálfstæðisflokksins sem
fólk vonast til að þingmenn vakni og
gái að sér. Sum okkar hafa jafnvel
bundið vonir við forsætisráðherra
sem er úr flokki sem eitt sinn kenndi
sig bæði við vinstrimennsku og um-
hverfisvernd.
Hvað um Sigríði
í Brattholti?
Eftir Bjarna
Harðarson
» Staða allra fossa og
ónýttra virkjana-
kosta á Íslandi verður til
muna verri en áður …
Bjarni Harðarson
Höfundur er rithöfundur og bóksali
bjarnihardar@gmail.com
Vignir Vatnar Stefánssonmissti af tækifæri til aðblanda sér í baráttunaum sigurinn í aldurs-
flokki 16 ára og yngri á EM ung-
menna sem lýkur í Bratislava í Sló-
vakíu í dag. Hann byggði upp góða
stöðu í viðureign sinni við Úkra-
ínumannin Malovanyi en missti
þráðinn í flóknu miðtafli og mátti
játa sig sigraðan. Fyrir viður-
eignina fundust litlar upplýsingar
um þennan ágæta fulltrúa Úkraínu
en A-Evrópuþjóðirnar leggja tals-
vert upp úr því að halda frá öðrum
keppendum upplýsingum um sína
menn en geta jafnframt gengið að
því visu að geta skoðað skákir
helstu andstæðinga frá V-
Evrópuþjóðunum, sem eru skráðar
í helstu gagnabanka t.d. Chess-
base.
Vignir Vatnar var með 4½ vinn-
ing af 6 mögulegum þegar skákin
fór fram, aðeins ½ vinningi á eftir
efstu mönnum. Líklegt er að verð-
andi sigurvegari hljóti a.m.k. 7
vinninga úr umferðunum níu en
Vignir getur náð góðu sæti með
sigri í tveim síðustu skákum sínum.
Hann hefur undanfarin ár staðið
fyrir bestu frammistöðu íslenskra
keppenda á Evrópumótunum.
Alls eiga Íslendingar 14 fulltrúa í
Bratislava en teflt er í sex aldurs-
flokkum pilta og stúlkna. Átta hafa
náð að bæta ætlaðan árangur sinn
og sumir veruelga.
Hilmir Freyr Heimisson, sem er
18 ára, byrjaði illa er hann tapaði
tveim fyrstu skákum sínum með
unnið tafl, vann síðan þrjár næstu
en getur ekki barist um verðlauna-
sæti eftir tap í 7. umferð. Stephan
Briem hefur einnig átt góða spretti
en í 12 umferð fékk hann þessa
stöðu upp gegn einum stigahæsta
keppendanum:
EM ungmenna 2019
Stephan Briem – Horvath (Aust-
urríki)
Austurríkismaður hafði alla
þræði í getur unnið 33. Be6 ásamt
– Bd5. En hann sá enn þá „fallegri
vinningsleið“
33. Dxe3?? 34. fxe3 d2
Stephan lék 35. Kf2 og eftir 35.
d1(D) 36. Dc3 De2+ gafst hann
upp. Hann var í tímapressu og
peðsleikurinn 35. b5! sem hótar 36.
Db4+ vinnur. Eftir 35. d1(D)+ 36.
Dxd1 Bxd1 37. b6! getur svartur
gefist upp því að hvíta b-peðið
rennur upp í borð.
Ekki lagði Stephan árar í bát
þrátt fyrir þetta því hann vann
næstu tvær skákir af miklu harð-
fylgi.
Yngri bróðir hans Benedikt
Briem hefur unnið þrjár skákir í
röð eftir skrykkjótta byrjun og er
með 4 vinninga af sjö mögulegum í
flokki pilta 14 ára og yngri.
Stúlkurnar Batel Goitom og
Guðrún Fanney Briem hafa sýnt
góða takta. Sú fyrrnefnda hefur
verið þaulsetnust allra við borðið
og skákir hennar hafa nokkrum
sinnum staðið í meira en 5 klukku-
stundir.
Mótið sem dregur til sín mörg af
bestu ungmennu Evrópu og er
geysilega mikilvæg reynsla fyrir
íslensku krakkana. Auk þeirra sem
nefnd hafa verið tefla í Bratislava
bræðurnir Benedikt og Bjartur
Þórissynir, Jósep og Adam Omars-
synir, Tómas Möller, Arnar Milut-
in Heiðarsson, Birkir Jóhannsson
og Gunnar Erik Guðmundsson.
Það er víðar en í Bratislava sem
Íslendingar sitja að tafli. Í Riga
eru þeir Helgi Áss Grétarsson,
Guðmundur Kjartansson, Stefán
Bergsson og Gauti Páll Jónsson
meðal þátttakenda á móti sem
tækniháskólinn í borginni stendur
fyrir. Þeim gengur ekki alveg nógu
vel að kljást við stigahæstu and-
stæðingana en Helgi Áss og Guð-
mundur eru þó báðir með 4 vinn-
inga af sex mögulegum en Stefán
og Gauti Páll með 2½ vinning.
Tefldar verða níu umferðir á sjö
dögum.
Morgunblaðið/Ingvar Þ. Jóhannesson
Nafnarnir Benedikt Þórisson og Benedikt Briem mættust í sjöttu umferð og
lauk skákinni með sigri þess síðarnefnda.
Leyndarhyggja
í skákinni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Allt um
sjávarútveg