Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019 Á þessu sumri höf- um við Íslendingar, flestir, notið meiri veð- urblíðu en okkur renn- ur minni til. Það er illt ef sú hamingja er blandin sektarkennd vegna ábyrgðar okkar á loftslagsbreytingum af mannavöldum. Ég er ekki sannfærður um að öll hlýnun jarðar síðustu árin sé vegna bruna á elds- neyti. Okkur hefur öllum verið sagt frá sveiflum í veðurfari og það meira að segja sveiflum eftir ísöld og þá síð- ustu tíu þúsund árin. Okkur er holl- ara að hafa meiri áhyggjur af af- glöpum í stjórnun landsins. Velferð Íslendinga veltur á yf- irráðum yfir fiskimiðum, jarðeignum, jarðhita og fallorku landsins. Ísland er ríkt að auðlindum, sem geta tryggt velsæld – þær má aldrei selja. Í meira en tuttugu ár hefur ekki tekist að stöðva veðsetningar á Ís- landsmiðum. Veit þjóðin að þorskur af Íslandsmiðum hefur löngum verið verðlagður hærra í veröldinni, en annað fiskmeti? Jarðeign í landinu er mestanpart einkaeign. Íslendingar eiga að hafa frjálsa för um land sitt og jarðeig- endur að hlíta lögum. Illt er að blóm- legar byggðir verði leiksvæði auð- manna og litlu betra er að þjóðin verði leiguliðar í eigin landi, sem ein- hverjir ungir bændur í Vopnafirði álíta skárri kost. Náttúruauðlindir landsins, stjórn þess og samskipti við aðrar þjóðir er okkar hamingjuhjól. Það er áhyggju- efni ef þorskurinn hrekst af Íslands- miðum vegna hlýnunar og sárara ef hægt er að kenna sér um. Illt er ef auður Íslandsmiða hverfur úr hönd- um okkar vegna loftslagsbreytinga eða til vondra auðmanna. Við því þarf að bregðast. Bruni eldsneytis Ekki leggst ég gegn alþjóðlegu samstarfi um brunavarnir á kolefn- isbirgðum jarðar. Fullvel eigum við að vita að langt er í að jarðarbúar hætti að brenna kolum, olíu og gasi. Um þær lausnir er mikið skrafað. Ekki er það kjarnorkan. Geislun þeirrar iðju verður vandamál í tugþúsundir ára. Ég lengi ekki mál mitt með að ágæti vind- orku og sólarorkuvera á suðrænum slóðum leysi orkuþörf mannkyns. Sjálfbær orka fyrir gráðug neyslusamfélög er sýnilega takmörkuð. Hlutfall okkar í mannfjölda jarðar er einn af hverjum 20.000 og lengi höfum við verið einn Íslendingur fyrir hverja 1.000 Bandaríkjamenn. Það er göfugt að þessi eini setji fögur fordæmi og sælt þykir að finna fyrir sjálfsánægju- hrokanum: „Ég vil víst vera montinn, þá líður manni svo vel,“ sagði einn fjögurra ára, þegar hann var ávít- aður fyrir mont. Eigum við að spila Íslandi úr höndum okkar með grobbi? Einbeittur er sá áróður í fjölmiðl- um landsins, að í ljósi þess að nær allt mannkyn spúir út koltvísýringi sem aldrei fyrr, eigum við að hlaupa til og sýna hvað við erum vitur og góð – mannkyns- og jarðarfrelsarar. Einn pistillinn var orðaður svo: „Ís- land hefur allt sem þarf til forystu í loftslagsmálum og bindingu koltví- sýrings.“ Já vissulega! – vegna mik- illa auðlinda, sem enn eru okkar. Ég tek undir tilvitnunina um að við eig- um að auka kolefnisbindingu og minnka sóun, en við megum aldrei selja frá okkur auðlindir Íslands. Þær mega aldrei verða skiptimynt upp í eitthvað annað. Sú gjörð væri glæpur gegn óbornum kynslóðum. Orkupakki 3 Í marga mánuði hefur verið deilt hart um innleiðingu þriðja orkupakk- ans. Þjóðin er klofin í málinu þvert á flokka, þótt flokkslínur virðist ráða á Alþingi. Þingmeirihluti virðist vera fyrir að kaupa sér frið við Evrópu- sambandið með því að samþykkja regluverk, sem mun hindra að orku- vinnsla og dreifing sé rekin á sam- félagslegum forsendum. Reglur kap- ítalismans skulu ráða. Ég er ekki fróður um þriðja orku- pakkann, en tek samt afstöðu studd- ur rökum. Stysta röksemdin er í Morgunblaðsgrein Ögmundar Jón- assonar: „Guðlaugur Þór og Ari Trausti vísi ekki veginn.“ Þar skrifar Ögmundur: „Minnumst þess að ekki eru liðnir margir mánuðir síðan íslenskir skatt- greiðendur voru þvingaðir með dómi til að borga Högum og öðrum versl- unarrekendum þrjá milljarða í skaðabætur af völdum laga sem Al- þingi Íslendinga hafði sett en þóttu brjóta gegn „fjórfrelsi“ ESB/EES. Hver hefði trúað þessu að óreyndu?“ Í málinu er vafi og Evrópu varðar ekkert um hvernig höndlað er með rafmagn hér ef enginn er sæstreng- urinn. Ég frábið mér að vera stimplaður fórnarlamb spunameistara „hræðsluáróðurs, þjóðernisrembu og þjóðernispopúlisma“, en svo skrifa aðrir spunameistarar, um þá sem eru þeim ekki sammála. Einn Íslendingur er ekki aflögu- fær til hinna 19.999 í veröldinni. Við björgum ekki fátæklingum veraldar þótt við verðum þau gauð að láta orkuvarga Evrópu stela fallvötnum og jarðvarma landsins í kjölfar inn- leiðingar þriðja orkupakkans. Flokksfundir Ég hef veitt Vinstri grænum stuðning minn frá upphafi. Flokk- urinn hefur til þessa staðið vörð um hagsmuni Íslands gegn auðvaldi heimsins. Nú bregður svo undarlega við að forysta flokksins hefur „turn- ast“ og treystir þeirri vörn að aldrei verði lagður sæstrengur. Það tel ég sjálfsblekkingu. Ekki trúi ég að gras- rót flokksins sé sátt við stefnuna. Hvergi hef ég rekist á fréttir um að efna eigi til almennra funda innan flokksins. Fyrir liggur að taka þarf ákvörðun um örlög þjóðar, og því spyr ég: Verður ekki boðað til flokksfunda hjá Vinstri grænum á næstu dögum? Auðlindir Íslands Eftir Tómas Ísleifsson Tómas Ísleifsson » Fyrir liggur að taka þarf ákvörðun um örlög þjóðar og því spyr ég: Verður ekki boðað til flokksfunda hjá Vinstri grænum á næstu dögum? Höfundur er líffræðingur linekra@simnet.is Það var góð grein í blaði þar sem farið var yfir heyskaparútlit og talað við bændur og ráðunauta um ástand og horfur í þeirri atvinnugrein, sem lengst af var hornsteinn mannlífs og byggðar. Ekki þarf þó lengur að óttast hor- felli eða menn flosni upp þó að illa hirðist taðan eitt sumarið en þó þykir sjálfsagt að segja frá í fjölmiðlum hvernig gangi og hvort allt smelli saman og sleppi til. Þá geta menn far- ið rólegir á fjall og smalað afréttinn „undir bláhimni“ með góðri samvisku. Þó að búast megi við að þeir sem lesa svona heyskapargreinar séu vel informeraðir og þekki fagmálið þótti viðmælendum vissara að „þýða“ og skýra sumt af því sem fram kom. T.d. var útskýrt að „háin væri vöxt- ur grassins eftir fyrri slátt“. Annar viðmælandi tók fram, huggandi, að bændur ættu fyrningar og bætti við til öryggis að „fyrningar væru hey- birgðir frá fyrra ári“. Gott að vita þetta en mig grunar að þeir sem þurfa þessar viðbótar- skýringar muni síst lesa slíka grein. En maður veit aldrei. Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Þýtt á milli kynslóða Spretta Fyrri sláttur á Suðurlandi. Undanfarið hefur Arnar Þór Jónsson hér- aðsdómari skrifað nokkra pistla varðandi 3. orkupakkann. Pistl- arnir eiga það sameig- inlegt að hafa verið settir fram á skýran hátt og álitamálin sem fylgja OP3 hafa verið útskýrð á þann hátt að flestir geta skilið þó að málið sé í eðli sínu flókið. Pistlaskrif héraðsdómarans hafa valdið þó nokkrum usla í röðum þeirra sem keyra vilja orkupakkann í gegnum Alþingi sama hvað. Héraðsdómarinn hefur enda bent á með rökum og af þekkingu það fullveldisframsal sem samþykkt orkupakkans fylgir og hvernig samþykkt hans reynir á stjórnarskrána svo um munar. Arnar Þór hefur einnig tekið undir málflutn- ing þeirra sem haldið hafa því fram að s.k. lagalegir fyrirvarar sem ríkis- stjórnin hefur boðað haldi ekki vatni og muni reynast gagnslausir fyrir dómstólum. Þeir sem keyra vilja pakkann í gegn sama hvað láta ekki bjóða sér að heiðarlegir fræðimenn og fagmenn láti í sér heyra um OP3 og hafa því hafið þöggunarherferð á hendur héraðsdómaranum. Í þögg- unarherferðinni er einnig látið í það skína að pistlaskrif héraðsdómarans geti haft afleiðingar í för með sér fyr- ir hann. Rétt er að taka fram að ann- ar nafngreindur héraðsdómari hefur haft sig í frammi í umræðunni um OP3 á rammpólitískum nótum en hann „sleppur“ vegna þess að hann hefur skrifað pantaða greinargerð í málinu fyrir utanríkisráðherra. Um- ræðan um OP3 hefur um margt verið á villigötum. Sumir sem haft hafa sig í frammi í umræðunni hafa einkum haft að leiðarljósi að uppnefna þá sem hafna vilja pakkanum og tíundað meinta vansa þeirra en minna hefur farið fyrir rökum sem varpað geta ljósi á málið og því síður þekkingu á málefninu. Það er því fagnaðarefni að virtur lögmaður eins og Arnar Þór Jónsson skuli stíga fram og fjalla um OP3 á jafn ábyrgan faglegan og upp- lýsandi hátt og hann hefur gert. Það sýnir einmitt best hversu flókið orku- pakkamálið er að fræðimenn og lög- spekingar skuli ekki vera á einu máli um áhrif samþykktar hans. Sú stað- reynd er svo einmitt ástæða til þess að staldra við og gaumgæfa málið betur í stað þess að þjösna því í gegn- um Alþingi þrátt fyrir andstöðu meirihluta þjóðarinnar við málið sem ítrekað hefur komið fram í könn- unum. Þessi rök hrína hvorki á sam- fylkingarflokkunum þremur sem dreymir um lögheimili Íslands í Brüssel né ríkisstjórnarflokkunum sem hafa ekki fengist til að hlusta á rök í málinu, ekki fengist til að hlusta á óbreytta flokksmenn sína og hanga á innleið- ingu pakkans – svo illa reifað – eins og hundar á roði. Ekki hefur feng- ist uppgefið hvaða hags- munir Sjálfstæð- isflokksforystunnar eru svo mikilvægir að þeir yfirskyggi áhyggjur og andstöðu meirihluta landsmanna við OP3. Reyndar hefur einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins dregið upp úr pússi sínu blekkingu í ætt við fyrirvarana sem urðu til þess að friða áhyggjufulla þingmenn á sín- um tíma. Nú er sem sagt boðið upp á þjóðaratkvæðagreiðslu gegn því að sæstrengur verði lagður eftir innleið- ingu orkupakkans sjálfs! Þvílík ein- feldni, þvílíkar blekkingar, en þær hafa ekki virkað og óbreyttir sjálfstæðismenn hafa nú blásið til undirskriftasöfnunar til að reyna að hafa vit fyrir forystu sinni. Öðruvísi mér áður brá. Nú síðast skaust fram á sviðið þingmaður Samfylkingarinn- ar í því augnamiði að reyna að koma höggi á Arnar Þór Jónsson. Nokkuð hátt er reitt og þöggunartilburðir hafðir uppi en höggið er – vindhögg. Þingmaðurinn telur nauðsyn mesta til að skilja OP3 að mæta á fund- i,hlusta og skilja. Nú hef ég ekki kannað mætingu þingmannsins á fundi en hlustað hefur hún ekki. Ekki á höfuðgúrú Samfylkingar hvað EES-samninginn varðar, ekki á þá þingmenn sem sátu þing við sam- þykkt Íslendinga við EES-samn- ingnum og goldið hafa varhug við OP3, ekki á forystu ASÍ, ekki á garðyrkjubændur, ekki á þá fjölda- mörgu sem tekið hafa til máls undir merkjum Orkunnar okkar og mælt af þekkingu. Svo næst þegar þessi þing- maður vill kenna okkur hinum er ágætt að hafa fetað slóðina sjálf. Að lokum hvet ég Arnar Þór Jónsson til frekari greinaskrifa um OP3. Okkur veitir ekkert af þekkingu og yfirveg- un í umræðuna. Deilt við dómarann Eftir Þorstein Sæmundsson »Nú er sem sagt boðið upp á þjóðarat- kvæðagreiðslu gegn því að sæstrengur verði lagður eftir innleiðingu orkupakkans sjálfs! Þorsteinn Sæmundsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.