Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019 ✝ Freysteinn Jó-hannsson fæddist í Siglufirði 25. júní 1946. Hann lézt á Hrafnistu í Hafnarfirði 24. júlí 2019. Foreldrar hans voru Friðþóra Stef- ánsdóttir, f. á Nöf við Hofsós 4. jan- úar 1910, d. 17. marz 2003, og Jó- hann Þorvaldsson, f. á Tungu- felli í Svarfaðardal 16. maí 1909, d. 9. október 1999. Frey- steinn var yngstur fimm systk- ina, hin eru: Sigríður d. 2003, Þorvaldur, Stefanía og Indriði. Freysteinn kvæntist Viktoríu Ketilsdóttur, f. 1946, 17. júní 1966. Þau skildu. Hann kvænt- ist Sigríði Sólborgu Eyjólfs- dóttur, f. 1945, hinn 25. júní 1975 en hún lézt í mars 1993. Barn þeirra er Elmar, f. 23. febrúar 1975, sambýliskona f. 2006, Maríanna, f. 2009, og Óskar Þór, f. 2017. Freysteinn varð gagnfræð- ingur frá Gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1961, stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1966. Hann var blaðamaður á Morgunblaðinu 1967 til 1969 er hann hélt til náms í Oslo Journ- alist Højskole í Noregi. Að námi loknu 1970 réðst hann aftur til Morgunblaðsins og starfaði þar næstu þrjú árin, þar til hann varð ritstjóri Alþýðublaðsins 1973 til 1975. Hann var rit- stjórnarfulltrúi Tímans 1975 til 1977 en sneri þá aftur til Morgunblaðsins. Freysteinn var fréttastjóri 1981 til 2001. Ein- beitti hann sér eftir það að margvíslegum skrifum fyrir Sunnudagsblað Morgunblaðsins allt til starfsloka árið 2009. Freysteinn varð blaðafulltrúi heimsmeistaraeinvígisins í skák milli Fischers og Spasskys árið 1972. Í kjölfar þess skrifaði hann bókina Fischer gegn Spassky – saga heimsmeistara- einvígisins í skák, ásamt Frið- riki Ólafssyni stórmeistara. Útför Freysteins fór fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 9. ágúst 2019. hans er Unnur Jónsdóttir. Dóttir Sigríðar er Lára Jóhannsdóttir, f. 1964, börn hennar eru Anna Rakel, f. 1998, og Daníel Örn, f. 2002. Eftirlifandi eiginkona Frey- steins er Jóna Ágústa Ragnheið- ardóttir, f. 26.7. 1957, dóttir Ragnheiðar Líndal Hinriksdóttur og Gunnars Jóhannessonar, sem bæði eru látin. Börn hennar eru a) Sjöfn Elísa Albertsdóttir f. 1974, eiginmaður hennar er Brian Marshall og dætur þeirra Krist- ín, f. 1993, Ágústa Margrét, f. 1999, Amalía Rut, f. 2001, og Elísa Bella, f. 2007. b) Atli Þór Albertsson, f. 1979, eiginkona hans er Guðný Ósk Sigurgeirs- dóttir og þeirra börn eru Ás- mundur, f. 1999, Þórdís Freyja, Þögnin Mér finnst ósögð orð hafa mest áhrif þess vegna tala ég ekki um ást mína á þér en bið þig að hlusta á þögn mína. (Freysteinn Jóhannsson) Þín elskandi eiginkona, Jóna Ágústa. Á rauðu ljósi á gatnamótum Grensásvegar og Ármúla gafstu henni merki um að skrúfa niður rúðuna, konunni í næsta bíl. Þú þurftir nauðsynlega að ræða við hana. „Fyrirgefðu en ekki má bjóða þér að eiga þennan ung- ling?“ sagði hann og benti til mín sem sat við hliðina á honum. „Það er alveg til umræðu að borga vel með honum ef þú hefur áhuga.“ Ég renndi mér niður í sætið til að gera mig ósýnilegan. Hún sagði ekkert en svipurinn sagði allt. Svo mörg urðu þau orð. Ljósið varð grænt og konan spólaði í burtu. Freysteinn kunni að koma því skýrt til skila að hann hefði fengið nóg af stæl- um og pexi án þess að að skamm- ast út í mann beint. Ég man hann fyrst sem alvar- legan fréttastjóra á reykmett- aðri skrifstofu á Morgunblaðinu við Aðalstræti. Skeggjaður, framsettur og með gleraugun hallandi fram á nefið upptekinn við mikilvæg mál. Þannig mátti hann lítið vera að því að dekstra 12 ára gamlan sendilinn sem var kominn að taka niður pantanir kvöldsins, sem sóttar voru í há- gæðasamlokusjoppuna Texas. Eða þannig leit það að minnsta kosti út. Það var mér því lítið gleðiefni þegar ég komst að því að ljóminn úr augum móður minnar var til kominn vegna hans. Nú var fullorðna fólkið bú- ið að ganga fullkomlega fram af mér. Hvernig gat þetta gerst? Heimurinn yrði aldrei samur! Og það reyndist rétt. Hann varð aldrei samur. Bara ekki á þann hátt sem ég hélt. Sagan af upplifun minni af Freysteini í upphafi er orðin að dæmisögu sem ég segi börnun- um mínum gjarnan. Það geri ég til að þau viti að eftir því sem við þroskumst, lærum og skiljum betur breytist hæfileiki okkar til að skynja og skilja fólk. „Vissir þú að þegar ég hitti afa Frey- stein fyrst þá leist mér ekkert á hann. Fannst hann fúll og leiðin- legur kall.“ Þessu eiga þau bágt með að trúa því þau þekkja hann ekki öðruvísi en sem hlæjandi hjartahlýjan mann. Og það er rétt. Ég átti bara erfitt með að sjá það í upphafi. Ég skildi hann ekki. Vildi ekki sjá hann þannig. Síðar reyndist hann mér mikil- væg uppeldisstöð. Hann kenndi mér að standa með sjálfum mér og að það þarf ekki að láta öllum líka vel við sig. Að það skipti meira máli að vera trúr sjálfum sér en vinsældum. Hann kynnti mig fyrir ljóðum, óperu, leiklist og bókmenntum. Sýndi mér fegurðina í þögninni og að hjart- að gæti talað sínu máli. Hann var rómantíker sem kenndi mér að hlusta og framkvæma þegar máli skipti. Það þarf vart að und- irstrika hversu dýrmætt það var að fá slíka leiðsögn. Tíminn leiddi í ljós að kynni mín af Freysteini reyndust eins gæfurík og hægt væri að óska. Hvernig hann gladdi mömmu með ást sinni, nærgætni og skilningi. Hvernig hann studdi og hvatti okkur í námi, lífi og starfi. Og það hvernig hann kom fram við barnabörnin sín ætti að fara í bókaflokk með titlinum „Svona á að vera afi“. Ég las ágrip um starfsævi Freysteins í bók um íslenska blaðamenn og það var mér ljóst að þeim lestri loknum að hann var einn af þeim betri sem Ísland hefur átt. En hann var enn betri manneskja. Við Freysteinn deildum dá- læti á dúettinum Au Fond Du Temple Saint og hlustuðum saman á hann nokkrum sinnum undir það síðasta. Ég hafði ekk- ert pælt í því af hverju þessi dú- ett væri okkur mögulega svona kær fyrr en ég hafði skrifað þessi orð. Hann fjallar um vin- áttu tveggja manna sem elska sömu konuna. Ég gæti mömmu fyrir þig. Með þakklæti fyrir allt. Atli Þór. Hvernig getur auður stóll verið svona fullur af fjarveru þinni. (Freysteinn Jóhannsson) Hvert sem við lítum þá sjáum við þig ekki. Við finnum til í hjörtum okkar því það er eitt- hvað sem vantar. Alla þá daga sem þú varst með okkur gerð- irðu heiminn að mikið betri stað og því finnum við svo mikið fyrir fjarveru þinni nú, þegar þú ert farinn frá okkur. Þú varst yndislegur faðir, heitt elskaður eiginmaður og stórkostlegur afi. En þrátt fyrir djúpa sorg okkar þá skiljum við að þinn tími var kominn og við þökkum fyrir að þú ert nú laus við sársauka og kvöl og að þú getur nú verið frjáls og horft yfir okkur. Þú varst einstakur maður og allir sem höfðu ánægju af að hitta þig vissu það. Áreynslu- laust gafstu birtu í daginn okkar þó ekki væri annað en að segja einn afabrandara. Eftir erfiðan og langan dag gat maður alltaf treyst því að geta hlegið dátt að einum brandara í afakoti. Við hugsum um allar góðu stundirnar í gegnum árin sem endar með því að við sjáum ekki í gegnum tárin, af því að hugsa um alla þá yndislegu hluti sem maður gat aðeins gert með þér. Við verðum sorgmæddar yfir því að heyra aldrei aftur brandar- ana þína og hlæja að þeim þrátt fyrir að vera ekki vissar um að hafa skilið þá rétt. Aldrei aftur munum við geta heimsótt þig, faðmað þig og fundið fyrir full- komnu öryggi í faðmi þínum. Aldrei aftur munum við heyra þig kalla okkur systurnar, afa- ljósin þín. En við vorum ljósin þín og þú okkar. Þegar við hugsum um þig, þá hugsum við um ljós, ást og hamingju. Það var svo mikið ljós í kringum þig og alltaf ham- ingja og ekkert nema góðar stundir. Núna ertu farinn frá okkur, en þú lifir áfram í minningum okkar, fullum af birtu og gleði. Þannig munum við, afaljósin þín, muna eftir þér. Kristín Ósk, Ágústa Margrét, Amalía Rut og Elísa Bella. Ég og afi að borða mjólkur- kex, það var alltaf til mjólkur- kex. Við fengum okkur kex og svo bauðstu mér að horfa með þér á sjónvarpið. Þú í þínum stól og svo mátti ég ráða hvar ég sat. Mér fannst yfirleitt ekkert skemmtilegt sjónvarpsefnið sem þú valdir fyrir okkur en það var bara svo gaman að horfa með þér á sjónvarpið að það skipti engu máli á hvað við horfðum. Ég man líka eftir bröndurunum þínum. Það var oft erfitt að vita hvort þú værir að djóka eða ekki þegar þú settir upp svipinn þinn. Þá beið ég bara eftir því hvort aðrir færu að hlæja og svo hló ég líka. Mér fannst þú svo fyndinn. Þú varst með skrítinn en skemmtilegan húmor. Þess vegna var svo gaman að búa til öll leikritin fyrir ykkur ömmu með Elísu frænku því þú hlóst alltaf svo mikið og svo hátt. Þú hvattir mig líka alltaf áfram í að skapa, að mála, leika, syngja og dansa og þér fannst ég alltaf frá- bær. Ég mun halda því áfram. Ég man líka eftir stóra brosinu þínu sem ég fékk í hvert skipti sem við hittumst og gleðinni á meðan ég var hjá ykkur. Ég, þú og amma í ísbíltúr að horfa á sól- setrið í fjörunni, það var best. Og líka hversu ánægður þú varst með hattinn sem ég valdi handa þér. Þér fannst hann flottasti hattur í heiminum. Ég sakna þín afi en ég veit að þú ert á fallegum stað og von- andi er þar til nóg af Pepsi Max handa þér. Þín Þórdís Freyja. Þú sast í stólnum þínum og horfðir á fréttir. Þá mátti ekki trufla þig en það var akkúrat þá sem það var mest spennandi að gera það. Ég gerði það ekki oft, en stundum var það bara nauð- synlegt því þú varst ekki líkur sjálfum þér svona alvarlegur og einbeittur. Afar eiga að hlæja og vera glaðir og þannig man ég eftir þér. Alltaf tilbúinn að grín- ast og hafa gaman. Ég var afaljósið þitt. Það var góð tilfinning, tilfinning sem lifir í hverri minningu sem skýtur upp kollinum þegar ég hugsa til þín. Takk fyrir að hvetja mig áfram í öllu sem ég gerði. Takk fyrir að hringja eftir alla leikina þar sem ég stóð mig vel og líka þá sem mér fannst ég standa mig illa. Takk fyrir að hvetja mig áfram eftir hverja afhend- ingu einkunna. Þú varst alltaf ánægður með mig sama hvað. Það situr eftir, minningin um stoltan hjartahlýjan afa sem var alltaf tilbúinn að sjá það já- kvæða og hjálpa mér að byggja á því til framtíðar. Góða nótt afi minn, ég geymi þín síðustu orð til mín í hjarta um alla ævi og ég veit að þú munt áfram leiða mína litlu hönd. Þitt afaljós, Ásmundur (Ási). Þú komst í heiminn með látum í svefnherbergi pabba og mömmu á efstu hæð Hverfisgötu 4, systrahöllinni sem amma Dýr- leif lét byggja. Mamma þurfti að hafa mikið fyrir þér enda mæld- ur stór, 25 merkur. Þú varst yngstur og því kallaður okkar á milli litli bróðir. Ég var í sveit á sumrin og sá þig ekki fyrr en um haustið. Man er mamma fór með mig að líta litla bróður augum í fyrsta skipti. Þú tókst á móti mér með miklum handaslætti og sterkum hljóðum. Fallegur, greipst þétt í fingur minn, hélst fast og lengi. Svo liðu árin hratt. Þú komst til mín þar sem ég var íþrótta- kennari á Seyðisfirði. Ég keypti og rak Hótel Snæfell. Vantaði hjálparmann. Það var á síldarár- unum 1963-66. Þar var mikið fjör og fjölmennt. Þú alvanur af Nöfinni hjá Skafta frænda. Gekkst í öll störf fyrir stóra bróður. Passaðir hótelið, sund- höllina, sjoppuna og gestina. Það var fullt karlmannsverk í þá daga. Þú laukst stúdentsprófi á Laugarvatni með stæl og blaða- mennskan heillaði. Namst þau fræði m.a. í Noregi. Þú skólaðist vel til á Tímanum hjá Þórarni og Indriða G. og Sighvati á Alþýðu- blaðinu. Morgunblaðið varð svo þinn vinnustaður til fjölda ára, m.a. sem fréttastjóri. Þakka þér fyrir allar fréttirnar, greinarnar og pistlana þína. Næmi þitt, líf- legur tónn og hæfileiki til frá- sagnar nutu sín vel þar. Við vor- um ekki alltaf sammála þegar ég birtist hjá ykkur syðra í borg- inni. Landsbyggðarvælið í mér, eins og þið bræðurnir nefnduð það, fór illa í ykkur. Bróðir! Ég stend við að hornið ykkar syðra verður í djúpum vanda ef lands- byggðin veikist enn meir en orð- ið er. Þorrablótin hjá Siggu og Henning þar sem við hittumst systkinin gleymast ekki. Þá var oft létt yfir liðinu. Það var miður að við náðum ekki að setja upp leikverkið Og aldrei fór hann suður sem þú færðir mér í af- mælisgjöf. Ógleymanleg er ömmu- og afaferðin Dýrleif/ Stefán sem við fórum sumarið 2010. Þú varst sögumaðurinn. Hörð lífsbarátta þeirra með börn sín í upphafi síðustu aldar varð okkur ljóslifandi í frásögn þinni þegar komið var við í Borg- arfirði, Hofsósi, Bæ og úti í Málmey. Enduðum svo á Nöf og Hverfisgötunni á Sigló. Þú varst byrjaður á samantekt fyrir pabba- og mömmuferð Jóhann/ Friðþóra sem við úr þessu förum seinna. Helgin sem við áttum með ykkur Gústu undir Snæ- fellsjökli með Stebbu Indriða og Kiddý í bústað þeirra er gim- steinn sem geymist í minning- unni. Manstu bróðir þegar við sungum saman Kóngur einn dag í sönghellinum undir jökli? Hellisveggirnir tóku vel undir og fleyttu hljómunum upp á jökulinn og út í kyrrðina. Mögnuð stund. Þakka þér fyrir síðustu samverustund okkar á Höfða í lok júní sl. Þú varst þrot- inn kröftum en glettnin var á sínum stað. Ég kom henni til skila eins og ég lofaði á ættar- mótinu okkar á Sigló fyrir skömmu. Kveðja til Dóru minnar. Hún grípur gítarinn þegar þú birtist. Þið syngið saman Danny Boy. Ég bíð og hlusta. Ykkar er sárt saknað. Við þökkum þér sam- ferðina, litli bróðir. Þakka þér fyrir að hafa verið til og vera eins og þú varst. Alltaf sannur og flottur. Gústa, fjölskylda og vinir, Elmar og Lára, minning um traustan góðan bróður og vin lifir. Þorvaldur Jóhannsson og fjölskylda Seyðisfirði. Nú er Freysteinn vinur okkar allur en þó svo að hann sé ekki lengur meðal vor hér á jörð mun hann lifa áfram í hjörtum okkar. Freysteinn var stór maður í öllum skilningi þess orðs, hug- umstór, hjartahlýr og síðast en ekki síst vinur vina sinna, þetta vitið þið öll sem þekktuð hann. Við hjónin hittum Freystein fyrst fyrir um 25 árum, hann kom stormandi inn í fylgd Gústu sinnar geislandi af gleði í daufblástórköflóttri hvítri stutt- ermaskyrtu með brjóstvasa þar sem hann geymdi penna. Eftir stutta kynningu verður okkur litið niður og tökum þá eftir skófatnaðinum og frúin missir út úr sér: „Þú ert berfætt- ur í sandölum eins og frelsarinn forðum.“ Eftir nokkra þögn seg- ir Freysteinn með nokkrum þunga: „Væna mín, þetta eru ekki sandalar, þetta eru Birken- stock-skór.“ Svo kom skýringin, að til þess að geta hugsað frjálst og óheft þurftu tærnar að vera frjálsar til að anda. Og hann hafði svo sannarlega frjálsa og óhefta hugsun, gat talað við alla um allt, enda blaðamaður og góður penni. Aðeins einu sinni sáum við hann í lokuðum skóm en það var í afmæli þar sem hann hafði tek- ið að sér veislustjórn, mætir ekki kappinn í smóking með þver- slaufu á glansandi lakkskóm og þótt liðin séu 19 ár frá þessari veislu eru menn enn að tala um ræðuna sem hann hélt og tel ég það nokkuð ljóst að hún var ekki skrifuð í lokuðum lakkskóm. Fljótlega eftir kynni okkar stofnuðum við félag, Bond-félag- ið, sem hafði það að aðalmark- miði að sjá allar frumsýningar á James Bond-myndum í VIP-sal og þess á milli að rifja upp eldri myndir heima í stofu og var þá gjarnan drukkin Stella Artois með eða jafnvel Frapin. Nú hef- ur félögum fækkað í þrjá en það verða keyptir fjórir miðar á næstu frumsýningu og jafnvel splæst í Pepsí Max á línuna. Þar verður þú með okkur í anda, kæri vinur. Heimsóknir okkar til Ljúfa- lands eða ykkar í Flatey eru óþrjótandi uppspretta ljúfra minninga, spjallið í heitu pott- unum hér og uppi á Akranesi, grillið sem varð gaslaust þar sem þurfti að hrista gaskútinn lengi til að klára að grilla bestu steik sem við höfum smakkað. Að heimsækja ykkur til Lond- on var dásamlegt, þar varstu á heimavelli, fréttablöðin og kaffi í morgunsárið úti á pöbb, bóka- búðir á hverju götuhorni, söfnin, sagan, garðarnir og mannlífið, maður lifandi. Það var svo áreynslulaust að vera vinur þinn, þú varst þú og við vorum við, engin uppgerð bara hjartahreinn vinskapur, þín er sárt saknað. Gleði þín, kærleikur og skopskyn mun fylgja okkur um ókomin ár og við treystum því að þú takir á móti okkur með einum góðum brandara þegar við komum yfir móðuna miklu. Takk fyrir allt. Elsku Gústa, við vottum þér og allri fjölskyldunni okkar dýpstu samúð. Megi almættið styðja ykkur og styrkja í sorginni. Sigrún Sól og Ragnar (Raggi). Sumir kveðja, síðan ekki söguna meir. Aðrir með söng er aldrei deyr. (Þorsteinn Valdimarsson) Þessi ljóðahending leitaði fast á hugann þegar spurðist andlát Freysteins Jóhannssonar, blaðamanns og ritstjóra – góðs vinar til margra ára. Hann kvaddi veikur og þreyttur, en hann lifði glaður og gefandi lengst af sinni ævi. Og þannig munum við minnast hans. Freysteinn var djúpvitur maður og bar stóra persónu. Náttúruunnandi, hestamaður, listunnandi og mannvinur var hann. Skemmtinn, frásagnar- glaður, ritfær og áhugasamur um allt sem laut að mannlífinu, umhverfinu, þjóðmálunum og jafnvel innstu rökum tilverunn- ar. Þannig var Freysteinn þegar fundum okkar bar saman á tí- unda áratugnum. Hann var mað- ur sem „fyllti herbergið“ með nærveru sinni eins og vinkona okkar orðaði það nýlega. Við fyrstu kynni vissi ég að sjálfsögðu hver hann var, enda störfuðum við bæði á þeim tíma við fjölmiðla og ég hafði lesið margt eftir hann sem vakti áhuga og eftirtekt. Freysteinn hafði fáum árum áður gengið gegnum þunga reynslu við veik- indi og missi fyrri konu sinnar. Þegar við kynntumst, gegnum sameiginlega vini, brosti lífið við honum á ný og ástin sem hann hafði fundið í eftirlifandi eigin- konu sinni, henni Gústu. Nú er hugur okkar hjá henni og öðrum ástvinum. Það var bjart yfir Freysteini á þessum árum. Hann bar með sér andlegan þrótt, gáfur og glað- værð. Skrif hans báru þess vott að hann var hamingjusamur maður. Viðfangsefnin fjölbreytt, viðtöl, umfjöllun um mannlíf, at- vinnuhætti, bókmenntir og aðr- ar listir, náttúruna og landið okkar. Allt heillaði þetta Frey- Freysteinn Jóhannsson HINZTA KVEÐJA Freysteinn Jóhannsson hélt upp á 60 ára afmælið sitt með veizlu og að henni lokinni gaf hann viðstödd- um gestum ritið „60 myndir handa þér“. Á blaðsíðu 13 segir í fyrirsögn: Stóllinn þinn „Hvernig getur auður stóll verið svona fullur af fjarveru þinni“ Elsku Freysteinn, hafðu þökk fyrir allt. Bryndís og Magnús Finnsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.