Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
FIGGJO LEIRTAU FYRIR
MÖTUNEYTI OG SKÓLA
Figgjo er norskt hágæða merki í borðbúnaði
„VISSULEGA VIL ÉG VERÐA MEÐEIGANDI
– BARA EKKI Á ÞENNAN HÁTT.”
„úbbs! hér stendur „best fyrir
febrúar 2008”.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann les fyrir
þig ástarljóð.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
EN SENDI MIG TIL AÐ HALDA
ÞÉR FÉLAGSSKAP Á MEÐAN
ÞÚ BORÐAR KVÖLDMATINN
ÚFF! ÉG KLÁRAÐI LOKS HÚSVERKIN! HVAÐ
VILTU Í KVÖLDMATINN?
HERRA
RÓMANTÍSKUR
ÞÚ MÁTT RÁÐA!
OG HANN VILL AÐ ÉG KOMI
TIL BAKA MEÐ AFGANGINN
JAMM, ÞETTA ER EFTIR
MÍNU HÖFÐI!
HANN KEMST
EKKI …
HVAR ER
GRETTIR?
eldrar hennar eru Ketill Björnsson
vélsmiður, verkstjóri hjá vélsmiðj-
unni Héðni, f. 1920, d. 1994, og Ólöf
Ragnheiður Guðjónsdóttir listakona
og hönnuður, f. 1919, d. 2016. Þau
voru bæði frá Hólmavík, fluttu síðar
til Reykjavíkur.
Börn Ólafs og Kristínar Ketils-
dóttur eru Arnar Laufdal Ólafsson,
eigandi og stofnandi Kaptio, f. 1969,
Ragnheiður Katla Laufdal Ólafs-
dóttir, lærður prestur og sálfræð-
ingur, f. 1970, Jón Kristinn Laufdal
Ólafsson auglýsingastjóri, f. 1972.
Börn Ólafs eru Jón Hermann
Laufdal Ólafsson, f. 1963, bjó í
Bandaríkjunum, Steinunn Laufdal
Ólafsdóttir, f. 1965, býr í Reykjavík,
Berglind Ólafsdóttir þroskaþjálfi, f.
1968, býr í Reykjavík.
Systkini Ólafs eru Sirrý Laufdal
Jónsdóttir verslunarmaður, f. 1940,
Trausti Laufdal Jónsson múrara-
meistari, f. 1947, Hafdís Laufdal Jóns-
dóttir húsmóðir, f. 1949, Erling Lauf-
dal Jónsson, f. 1954, hálfbróðir Ólafs
er Stefán Laufdal Gíslason, f. 1964.
Foreldrar Ólafs voru Guðlaug
Ragnheiður Guðbrandsdóttir, hús-
móðir í Reykjavík, frá Stardal í Kjós,
f. 18. mars 1921, d. 1966, og Jón
Ólafsson, verslunarmaður í Vest-
mannaeyjum en lengst af í Reykja-
vík, f. 14. ágúst 1910, d. 25. júlí 2003.
Þau fluttu til Reykjavíkur upp úr
miðri öld og bjuggu þar síðan.
Ólafur Laufdal
Jónsson
Þorkelína Þorkelsdóttir
húsfreyja í Stardal á Kjalarnesi
Magnús Sigurðsson
bóndi í Úthlíð, Hrauntúnum,
síðar í Stardal á Kjalarnesi
Sigríður Magnúsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðbrandur Guðmundsson
húsasmíðameistari í Reykjavík
Guðlaug Ragnheiður
Guðbrandsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Soffía Björnsdóttir
vinnukona á Beinakeldu og
síðan húsfreyja
Guðmundur Guðbrandsson
vinnumaður á Syðra-Velli í Flóa,
Landakoti á Álftanesi og Nesi á Sel-
tjarnarnesi á Suðurlandi, síðast í Rvík.
Tómas Þórðarson
bóndi í Vallnatún-
um í Eyjafjallasveit
Þórður Tóm-
asson safnvörð-
ur í Skógum
Guðrún Tómasdóttir
húsfreyja á Rauðafelli undir Eyja-
fjöllum, síðast bús. í Varmahlíð
Þórður Tómasson
bóndi á Rauðafelli undir Eyjafjöllum
Margrét Þórðardóttir
húsfreyja á Leirum undir
Austur-Eyjafjöllum
Ólafur Jónsson
bóndi á Leirum undir Eyjafjöllum
Halldóra Sigurðardóttir
húsfreyja á Leirum undir Eyjafjöllum
Jón Jónsson
bóndi á Leirum undir Eyjafjöllum
Úr frændgarði Ólafs Laufdal
Jón Ólafsson
verslunarmaður í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Gnæfir hátt við himininn.
Heitir sama nafni bær.
Hafa ber í huga skinn.
Í haga þangað reknar ær.
„Fjall skal það vera,“ sagði Helgi
Seljan og bætti við:
Góð er gátuvísan víst,
vefst ei fyrir manni.
Á hana mér allvel líst:
Indælt fjall með sanni.
Síðan skýrði hann lausnina:
Háan fjallstind við himin ber,
heiti á bæ, það líkar mér.
Fjalllmyndarlegur Friðrik er
á fjall rekur ærnar glaður hér.
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna þannig:
Fjallið hátt við himin ber.
Heita myndi Fjall sá bær.
Fjall úr skinni feldur er.
Í fjallhagann menn ráku ær.
Þá er limra:
Grettir sterki var gallharður.
Garpi þeim líkist Hallvarður,
hausinn skekur
og hræðslu vekur
hrikalegur sem fjallgarður.
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Ennþá leita fanga fer,
fátt vill ganga upp hjá mér,
eigi vel úr garði ger
gáta er í boði hér:
Fellur snjór úr fjallsins hlíð.
Fallaskipti eru tíð.
Djúpi hestur dvelur í.
Dóu syndugir í því.
Pétur Stefánsson yrkir:
Á orðum hef ég ágætt lag
ef yrkja skal kvæðalínu.
Í rím og stuðla bind ég brag
bara að gamni mínu.
Bjarni Gissurarson í Þingmúla
orti:
Hvað sem einn er feitur í fjám
og fýsi mikið að skarta
kemur hann aldrei kúm né ám
Krists fyrir stólinn bjarta.
Gömul vísa í lokin:
Áfram gengur okkar lest,
eru á baggar þéttir.
Gáðu hvort hún Gunna sést
gangandi á ettir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Annað vill til fjalls
en annað til fjöru