Morgunblaðið - 10.08.2019, Síða 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
ERTU AÐ FARA Í HESTAFERÐ ?
Þú færð hestavörurnar hjá okkur !
Sendum um allt land
www.fodur.is
HANDBOLTI
HM U19 karla
Leikið í Norður-Makedóníu:
D-riðill:
Ísland – Portúgal.................................. 24:28
Þýskaland – Serbía............................... 30:22
Túnis – Brasilía..................................... 26:25
Portúgal 6, Þýskaland 4, Ísland 4, Serbía
2, Túnis 2, Brasilía 0.
Ísland mætir Serbíu í dag og Þýskalandi
í lokaumferð riðilsins á mánudag.
Inkasso-deild karla
Þróttur R. – Þór....................................... 1:3
Rafael Victor 26. – Sjálfsmark 8., Álvaro
Montejo 43., Sveinn Elías Jónsson 52.
Rautt spjald: Hermann Helgi Rúnarsson
(Þór) 87.
Njarðvík – Fjölnir.................................... 1:1
Andri Fannar Freysson 26. (víti) – Ingi-
bergur Kort Sigurðsson 90.
Afturelding – Fram................................. 3:0
Roger Banet 40., Jason Daði Svanþórsson
54., Georg Bjarnason 74.
Víkingur Ó. – Leiknir R.......................... 1:1
Guðmundur Magnússon 41. – Árni Elvar
Árnason 27.
Grótta – Keflavík..................................... 4:3
Pétur Theódór Árnason 31., 55., Axel
Freyr Harðarson 68., Arnar Þór Helgason
90. – Frans Elvarsson 8., Davíð Snær Jó-
hannsson 36., Adam Ægir Pálsson 75.
Staðan:
Fjölnir 16 10 4 2 34:15 34
Þór 16 9 4 3 28:16 31
Grótta 16 8 6 2 34:24 30
Leiknir R. 16 8 2 6 28:24 26
Víkingur Ó. 16 6 6 4 17:13 24
Fram 16 7 2 7 24:26 23
Keflavík 16 6 4 6 22:21 22
Þróttur R. 16 6 3 7 32:24 21
Afturelding 16 5 2 9 21:30 17
Haukar 15 3 5 7 21:30 14
Njarðvík 16 3 2 11 16:29 11
Magni 15 2 4 9 16:41 10
3. deild karla
KH – Skallagrímur................................... 2:0
Vængir Júpíters – Reynir S .................... 0:1
KV – Augnablik ........................................ 4:1
Staðan:
Kórdrengir 15 12 2 1 41:17 38
KF 15 11 2 2 40:15 35
KV 16 10 2 4 33:21 32
Vængir Júpiters 16 9 1 6 30:24 28
Reynir S. 16 7 5 4 27:26 26
Einherji 15 6 5 4 21:16 23
Álftanes 15 5 3 7 28:25 18
Sindri 15 5 3 7 32:38 18
Augnablik 16 3 4 9 21:33 13
KH 16 4 1 11 21:40 13
Höttur/Huginn 15 2 6 7 19:25 12
Skallagrímur 16 2 0 14 16:49 6
England
Liverpool – Norwich ................................ 4:1
ENGLAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Evrópumeistarar Liverpool blésu til
sýningar í fyrri hálfleik gegn Nor-
wich í gær þegar keppni í ensku úr-
valsdeildinni hófst. Liverpool skor-
aði fjögur mörk í fyrri hálfleik og
hefði getað gert fleiri, en slakaði svo
á og lét sér nægja 4:1-sigur.
BBC valdi Divock Origi mann
leiksins en hann nýtti tækifærið í
byrjunarliðinu og bæði skoraði og
lagði upp mark.
Það eina sem skyggði á fagmann-
lega byrjun Liverpool á tímabilinu
var sú staðreynd að brasilíski mark-
vörðurinn Alisson fór meiddur af
velli í fyrri hálfleik. Útlit var fyrir að
bera þyrfti Alisson af velli en hann
haltraði að lokum sjálfur út fyrir
hliðarlínu. Hljóðið var hins vegar
ekkert sérstakt í Jürgen Klopp þeg-
ar hann var spurður um stöðuna á
markmanninum eftir leik:
„Varðandi Alisson þá er það ekki
gott, en við finnum lausn og höldum
áfram. Hann fann til í kálfanum.
Hann leit aftur fyrir sig því hann
hélt að einhver hefði gefið sér högg
aftan frá,“ sagði Klopp, en þessar
lýsingar hljóma óneitanlega eins og
að um hásinarslit sé að ræða. Ekkert
var þó ljóst í gærkvöldi um það
hvers eðlis meiðslin væru og hve al-
varleg þau væru, annað en það að
Klopp sagði ljóst að Alisson myndi
ekki mæta Chelsea í ofurleik UEFA
á miðvikudaginn. Fyrsta umferðin
heldur áfram í dag þegar meistarar
Manchester City sækja West Ham
heim í hádeginu. Gylfi Þór Sigurðs-
son og félagar í Everton mæta
Crystal Palace á útivelli kl. 14, og þá
tekur Burnley, lið Jóhanns Bergs
Guðmundssonar, á móti Southamp-
ton. Tottenham og Aston Villa mæt-
ast síðdegis. Á morgun ber hæst
stórleik Manchester United og
Chelsea á Old Trafford.
Sýning á Anfield í fyrsta leik
Meiðsli Alisson skyggðu á öruggan sigur á nýliðunum Stórleikur á morgun
AFP
Öruggt Liverpool-menn sýndu fumlaus vinnubrögð í fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Gunnar Ólafsson, landsliðsmaður í
körfuknattleik, er genginn til liðs
við spænska B-deildarliðið Oviedo
og hefur samið við það til eins árs.
Þetta staðfesti Gunnar við mbl.is í
gær. Gunnar rifti samningi sínum
við Keflavík fyrr í sumar, en hann
lék með liðinu á síðasta tímabili eft-
ir að hafa leikið í þrjú ár þar á und-
an í bandaríska háskólaboltanum.
Fram að því spilaði hann með
Fjölni. Gunnar er 26 ára gamall
bakvörður og spilar 16. landsleik
sinn í dag þegar Ísland mætir Sviss
í Laugardalshöll.
Gunnar leikur á
Spáni í vetur
Morgunblaðið/Hari
Spánn Gunnar Ólafsson leikur með
Oviedo á næsta keppnistímabili.
Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu, skoraði sitt fyrsta
mark á þessu tímabili í sænsku úrvals-
deildinni þegar Djurgården sótti
Växjö heim í gær. Ingibjörg jafnaði
metin í 1:1 undir lok fyrri hálfleiks en
heimakonur í Växjö náðu að knýja
fram sigur, 2:1, með marki á 77. mín-
útu.
Ingibjörg lék allan leikinn í vörn
Djurgården en Guðrún Arnardóttir
var ekki með liðinu. Djurgården hef-
ur tapað níu af tólf leikjum sínum í
deildinni og er í 10. sæti af 12 liðum en
er þó fimm stigum fyrir ofan fallsæti.
Fyrsta mark Ingi-
bjargar á árinu
Morgunblaðið/Eggert
Öflug Ingibjörg Sigurðardóttir er í
stóru hlutverki í vörn Djurgården.
Eftir úrslit gærkvöldsins í 16. um-
ferð 1. deildar karla í fótbolta skera
þrjú lið sig nú aðeins úr í barátt-
unni um að komast upp í úrvals-
deild. Topplið Fjölnis gerði óvænt
1:1-jafntefli á útivelli gegn Njarð-
vík, og tókst raunar ekki að gera
jöfnunarmark fyrr en á lokaand-
artökum leiksins, en Þór og Grótta
koma í næstu sætum og hafa nú slit-
ið sig aðeins frá Leikni R. og Vík-
ingi Ó. sem gerðu 1:1-jafntefli en
eiga þó enn von um að fara upp.
Gróttumenn hafa ekki tapað leik
síðan í maí og þeir unnu frábæran
4.3-sigur á Keflavík í gær þrátt fyr-
ir að lenda í tvígang undir. Sig-
urmarkið skoraði Arnar Þór Helga-
son seint í uppbótartíma. Áður
hafði markahæsti maður deild-
arinnar, Pétur Theódór Árnason,
skorað tvívegis en hann hefur skor-
að 13 mörk í sumar. Þórsarar unnu
Þrótt á útivelli, 3:1, og eru enn stigi
á undan Gróttu.
Afturelding er sex stigum frá
fallsæti eftir dýrmætan 3:0-sigur á
Fram.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Í 2. sæti Framherjinn Rick Ten Voorde úr Þór sækir að Arnari Darra
Péturssyni, markverði Þróttar, í sigri Þórsara í Laugardalnum í gærkvöld.
Þrjú lið berjast um
dýrmætu sætin tvö