Morgunblaðið - 20.08.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.08.2019, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019 Hjólandi Góður leikvöllur er við Austurbæjarskóla, m.a. til að hjóla. Eggert Um miðbik sumars birtist grein í Morg- unblaðinu eftir for- mann Framsóknar- flokksins, Sigurð Inga Jóhannsson, undir sólríkri fyrirsögn: Af stjórnmálum og sól- skini. Greinin er skrifuð rétt eftir að ríkis- stjórnin hafði skýrt frá undanhaldi sínu í „hráakjöts- málinu“, að hún hygðist ekki verða við áskorunum um að taka þetta umdeilda mál upp á nýjum for- sendum gagnvart EES og setja skorður við innflutningi á hráu kjöti. Þessu var, sem frægt varð að endemum, lýst yfir á hlaðinu á Keldum, Tilraunastöð Háskólans í meinafræði, þaðan sem helst hafa borist varnaðarorð um innflutning á búfénaði og hráu kjöti um ára- tuga skeið og hefur þar óspart verið vísað til reynslu sögunnar. Það er önnur saga en kannski þó ekki alveg! Undanhald kynnt sem stórsókn Eftir fréttamannafundinn á Keldum fengum við að kynnast samræmdu göngulagi ráðherra ríkisstjórnarinnar því nú tóku að birtast samhljóma greinar frá þeim um að Ísland yrði gert að öruggasta landi í heimi hvað varð- ar fjölónæmar bakteríur og lág- markslyfjagjöf, með öðrum orðum Ísland yrði gert að því sem það þegar er en með því að draga úr vörnunum! Í sólarhugvekju formanns Framsóknarflokksins var þetta orðað á eftirfarandi hátt og minnt á í framhjáhlaupi að þessi ein- stæða framfarasókn væri Framsóknar- flokknum sérstaklega að þakka. „Og hvað gerðum við í Framsókn?“ Gefum nú Sigurði Inga orðið: „Það hefur auðvitað verið tekist á á Alþingi eins og heil- brigt verður að telj- ast. Eitt af þeim mál- um sem mjög hafa brunnið á okkur í Framsókn er hið svokallaða hráa kjöts-mál þar sem íslenska ríkið hafði verið dæmt til að afnema frystiskyldu á innfluttu kjöti. Og hvað gerðum við í Framsókn í þeirri stöðu? Við hófum sókn og börðumst fyrir því að Ísland yrði fyrsta landið í heiminum til að banna dreifingu á matvælum sem innihalda tilgreindar sýklalyfja- ónæmar bakteríur. Þessi sókn okkar snýst um sérstöðu íslensks landbúnaðar sem skapar einstaka stöðu okkar hvað varðar lýðheilsu en sýklalyfjaónæmi er ásamt loftslagsbreytingum helsta ógn við líf og heilsu manna og dýra í heim- inum. Í þessu máli sýndum við svo ekki verður um villst að við erum framsækinn og framsýnn flokkur. Fyrir örfáum misserum, jafnvel mánuðum, hefði ekki verið jarð- vegur fyrir slíkar ákvarðanir en með því að beita kröftum okkar til að gefa vísindamönnum hljóm- grunn, til dæmis með fjölmennum fundi í vetur, hefur almenningur vaknað til vitundar um gæði ís- lensks landbúnaðar og einstaka stöðu Íslands í heiminum.“ Ekki jarðvegur? Við þessa framsetningu er margt að athuga. Í fyrsta lagi má spyrja hvort formaður Fram- sóknarflokksins telji virkilega að ekki hafi verið jarðvegur fyrir því á Íslandi að sporna gegn því, með öllu því eftirliti sem koma mætti við, að hér á landi væri dreift mat- vælum með „tilgreindar sýkla- lyfjaónæmar bakteríur“. Spurn- ingin hefur alltaf snúist um það hvernig þetta skuli gert, ekki hvort. Eftir að innflytjendur fengu því framgengt eftir málsókn á hendur íslenska ríkinu að skorður við innflutningi skyldu teljast í bága við EES-samninginn og því ólöglegar voru margir á þeirri skoðun að taka ætti málið upp á nýjum forsendum gagnvart EES. Í þeim samningi er nefnilega að finna ákvæði þess efnis að heil- brigðissjónarmið standi ofar við- skiptahagsmunum og á þeim grunni mætti krefjast endurupp- töku málsins. Nýjar aðstæður væru komnar upp eftir að ljóst varð hver heilbrigðisvá fjölónæmar bakteríur í matvöru væru að verða víða um lönd. Fyrir þessu sjónar- miði hefur mjög eindregið talað Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins fyrr á tíð. Kostuleg kynning á fundarniðurstöðum! Og kemur þar að hinni vægast sagt undarlegu kynningu formanns Framsóknarflokksins á „fjölmenn- um fundi“ sem flokkurinn efndi til og gefið hefði „vísindamönnum hljómgrunn“ í þessari umræðu. Ég get borið vitni um að fundur- inn sem hér um ræðir, og var haldinn á Hótel Sögu hinn 21. febrúar síðastliðinn, var fjöl- mennur og hann gaf vísindamönn- um vissulega góðan vettvang til að kynna rannsóknir sínar og niður- stöður. En hverjar voru þær? Um þennan þátt málsins ræddu eink- um þeir Lance Price, prófessor við George Washington-háskóla í Bandaríkjunum, og Karl G. Krist- insson, prófessor við Háskóla Ís- lands og yfirlæknir við sýklafræði- deild Landspítalans. Mér er minnisstætt að banda- ríski vísindamaðurinn var spurður hvað hann helst vildi ráðleggja ís- lenskum stjórnvöldum í þessum efnum. Hann svaraði því til að Ís- lendingar ættu að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að halda í þá öfundsverðu stöðu sem þeir væru í með ströngum takmörk- unum á innflutningi á hráu kjöt- meti. Karl G. Kristinsson tók í sama streng á svipuðum forsend- um og hann oft hafði gert áður. Almennt heyrði ég ekki betur en að þetta væri tónninn í fundar- mönnum, þar með talið ráðherran- um sjálfum, formanni Fram- sóknarflokksins! Almennt varað við undanhaldi Þessu fylgdu margir fram- sóknarmenn eftir í blaðaskrifum. Ég minnist til dæmis varnaðarorða Höllu Signýjar Kristjánsdóttir, þingkonu Framsóknarflokksins, og Þórarins Inga Péturssonar, vara- þingmanns flokksins, í grein sem birtist á visir.is í byrjun maí þar sem þau tóku undir málflutning vísindamannanna á fundinum á Hótel Sögu varðandi innflutning á kjöti til Íslands: „Með því að opna á innflutning á hráu kjöti, eins og heildsalar og ákveðin stjórn- málaöfl þeim hliðholl hafa krafist, væru íslensk stjórnvöld einfald- lega að gera tilraun sem allar lík- ur eru á að endi illa. Varðar það bæði sýkingar í matvælum og einnig áður nefnt sýklalyfjaónæmi sem virtar alþjóðlegar stofnanir og vísindamenn telja að muni draga fleiri jarðarbúa til dauða ár- ið 2050 en ógnvaldurinn krabba- mein. Viljum við slíka tilrauna- starfsemi? Og vill verslunin stunda slíka tilraunastarfsemi í skiptum fyrir fleiri krónur í kass- ann?“ Að sóla sig í boði Sjálfstæðisflokksins? Auðvitað er það gott og bráð- nauðsynlegt að efla allt eftirlit með hráu kjöti og matvöru al- mennt, óháð því hvar hún er fram- leidd. En því er ósvarað hvernig á því stendur að stjórnvöld hafa ekki döngun í sér til að standa uppi í hárinu á heildsölum sem farið hafa með lögsóknir á hendur okkur, almenningi og skattgreið- endum, til að brjóta varnarmúra þjóðarinnar um viðkvæma inn- lenda matvælaframleiðslu sem vís- indamenn hafa sýnt fram á að er frírri af sjúkdómum og sýkla- lyfjum en nokkurs staðar á byggðu bóli. Er það Sjálfstæðisflokkurinn sem stýrir hér för? Er sólbað formanns Fram- sóknarflokksins í boði hans? Eftir Ögmund Jónasson » Því er ósvarað hvernig á því stend- ur að stjórnvöld hafa ekki döngun í sér til að standa uppi í hárinu á heildsölum sem farið hafa með lögsóknir á hendur okkur, almenn- ingi og skattgreið- endum.Ögmundur Jónasson Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Sigurður Ingi sólar sig Andstaða við þriðja orkupakkann er mikil meðal landsmanna, ekki síst meðal kjós- enda stjórnarflokk- anna. Málið hefur verið mikið rætt en svo virðist sem um- ræðan á þingi og í samfélaginu hafi ein- ungis skilað vaxandi andstöðu við orku- pakkann. Varla ætla stjórnarþingmenn að berjast fyrir tillögu sem flestir kjósenda þeirra og einörðustu stuðningsmenn eru algerlega andvígir? Betra væri að breyta tillögunni þannig að hún mæti ekki bara vilja Noregs, Liechtenstein og ESB til að taka þriðja orkupakk- ann inn í EES-samninginn heldur einnig óskum meirihluta þjóðar- innar um að Ísland verði undan- þegið orkupakkanum. Núverandi þingsályktun um þriðja orkupakkann orðast svo: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameig- inlegu EES-nefndarinnar nr. 93/ 2017 frá 5. maí 2017 um breyt- ingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn eftirfar- andi gerðir:“ Í framhaldi þessarar máls- greinar kemur upptalning á gerð- unum sem eru átta talsins. Eins og sjá má er ályktunin án nokk- urs fyrirvara og það hefur valdið áhyggjum. Verði hún samþykkt óbreytt fær ríkisstjórnin leyfi til að staðfesta um- rædda ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um að taka þriðja orkupakkann inn í EES-samninginn. Þá þarf bara undirritun utanríkisráðherra og forseta Íslands en að því loknu er Ísland orðið skuldbundið að þjóðarrétti til að innleiða allan þriðja orkupakkann í landslög – undanbragðalaust. Áform stjórnvalda um að inn- leiða pakkann með einhliða fyrir- vörum um að hingað komi ekki sæstrengur eru án fordæma og skapa lagalega óvissu sem hags- munaaðilar gætu látið reyna á fyrir dómi. Ekki er hægt að segja fyrirfram hvernig slík dómsmál færu en bótakröfur á hendur rík- inu gætu numið milljörðum. Lög- menn hafa skrifað greinar í Morgunblaðið til að benda á þessa hættu. Alþingi hefur það í valdi sínu að bæta einu skilyrði við orðalag þingsályktunarinnar þannig að Alþingi heimili ríkisstjórn að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um að þriðji orkupakkinn verði hluti af EES- samningnum en aðeins að því skilyrði uppfylltu að sameiginlega EES-nefndin hafi áður veitt Ís- landi undanþágu frá því að inn- leiða pakkann. Tillagan gæti orðast svo eftir breytingu: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameigin- legu EES-nefndarinnar nr. 93/ 2017 frá 5. maí 2017 um breyt- ingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 með því skilyrði að sameiginlega EES-nefndin hafi áður staðfest að gerðir 2009/72/EB, 713/2009, 714/2009 og 543/2013 taki ekki gildi á Íslandi. Að því skilyrði uppfylltu heimilar Alþingi ríkis- stjórninni að fella inn í samning- inn eftirfarandi gerðir:“ Væri þannig breytt tillaga sam- þykkt af Alþingi væri ríkisstjórn Íslands og sameiginlegu EES- nefndinni gefinn kostur á að leysa vandamálið á ásættanlegan hátt fyrir alla aðila án frekari aðkomu Alþingis. Í ljósi yfirlýsinga orkumála- ráðherra EES og fulltrúa EFTA- ríkjanna um að orkupakkinn hafi litla þýðingu á Íslandi er allt eins líklegt að sameiginlega EES- nefndin veiti Íslandi undanþág- una. Þriðji orkupakkinn tæki þá gildi á EES-svæðinu en Ísland væri undanþegið innleiðingu hans. Fáist undanþágan hins vegar ekki kæmi málið einfaldlega aftur til Alþingis. Eftir Frosta Sigurjónsson » Lausnin getur falist í því að bæta einu skilyrði inn í þings- ályktunina. Frosti Sigurjónsson Höfundur er rekstrarhagfræðingur og fv. þingmaður. Það er hægt að leysa orkupakkahnútinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.