Morgunblaðið - 20.08.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veðrið hefur ekki leikið við íbúa Langaness og annarra svæða norð- austurhornsins í sumar. Veðrið hef- ur verið í algerri andstöðu við veðurblíðuna á Suður- og Vesturlandi. Fyr- ir norðan hafa verið þokur dög- um og vikum saman og úr- koma. Það bitnar á fólki og hafa bændur átt í erfiðleikum með að ná nothæfum heyjum. „Hér hefur allt verið grátt í sum- ar, blautt og kalt. Hreinasta hörm- ung. Við í vinkvennahópnum lýsum þessu sem ömurlegasta sumri í lífi okkar,“ segir Líney Sigurðardóttir á Þórshöfn, fréttaritari Morgun- blaðsins. Óvanalega miklar þokur „Þetta er með verstu sumrum. Það hafa verið óvanalega miklar þokur og úrkoma og erfitt með hey- skap. Svo er allt of kalt,“ segir Kristín Kristjánsdóttir, fyrrverandi bóndi á Syðri-Brekkum. Líney seg- ir að fólk sé pirrað vegna veður- lagsins. „Maður verður argur yfir því að geta ekki lokið við það sem ætlunin var að gera í garðinum í sumar,“ segir hún um áhrif á dag- leg störf íbúana. Hún telur ekki að fólk sé mikið að flýja á sólar- strendur. „Makrílvertíðin er komin vel af stað og fólk er upptekið á vöktum, eins og gengur, og getur ekki farið mikið í burtu.“ Nokkrir sæmilegir dagar komu í júlí en annars hefur gráminn verið allsráðandi á Þórshöfn í allt sumar. Grösin spretta úr sér Kristín á Syðri-Brekkum segir að í þurrkinum í byrjun júlí hafi hluti heyjanna náðst með ágætri verkun. Það sama sé ekki hægt að segja um heyin sem nú hafa legið í görðum á túnum í tvær til þrjár vikur. „Það lítur ekki vel út með það. Það útvatnast á túnunum og skemmist, því miður.“ Þá segir Kristín að enn sé tölu- vert óslegið en þau grös séu orðin úr sér sprottin og verði ekki veru- lega gott fóður úr þessu, jafnvel þótt það náist að slá og þurrka. Sonur Kristínar, Þórður Úlfars- son, hefur tekið við búskapnum á Syðri-Brekkum. Kristín segir hann hafa átt töluvert af heyfyrningum frá fyrri árum, eins og fleiri bænd- ur þar um slóðir. Þær verði nýttar fyrir skepnurnar ásamt þeim heyj- um sem náðust með góðri verkun í júlí. „Ég held að þetta slarkist. En tjónið er óskaplegt. Áburðarkaupin í vor fara fyrir lítið,“ segir Kristín. Ömurlegasta sumar í áratugi  Leiðindaveður í mestallt sumar á Langanesi  Allt rennur saman í gráma, úrkomu og kulda  Bændur eiga í erfiðleikum með að ná góðum heyjum fyrir skepnurnar  Fyrningar koma sér vel Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Hrakin hey Ekki verða mikil verðmæti úr heyinu sem liggur í görðum á túnum sem bóndinn á Syðri-Brekkum nytj- ar á nágrannajörð. Þarna hefur það legið í úrkomu og þoku í á þriðju viku. Þá standa grös óslegin á mörgum túnum. Kristín Kristjánsdóttir Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Áhugi er á því í bæjarstjórn Akra- ness að svokölluð innheimtugátt fyrir hugsanleg veggjöld, sektir, rekstur bílastæðasjóða og fleira verði stað- sett í bæjarfélaginu. Telja menn að hægt sé að nýta reynslu og þekkingu af starfsemi Spalar við umsjón og rekstur Hvalfjarðarganga í því sam- bandi. Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt drög að erindisbréfi um stofn- un fimm manna starfshóps til að ann- ast verkefni sem kallað er „Spölur 2.0“. Er markmiðið að kanna lagalegt og pólitískt umhverfi í tengslum við að búa til fyrrnefnda innheimtugátt. „Hópurinn mun kanna hver vilji ríkisins og löggjafans er til framtíðar þegar kemur að því að fjármagna ýmsar framkvæmdir eins og til dæm- is Sundabraut,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi. Hann segir að bæjaryfirvöld vilji ná utan um það hvað sé í gangi og hvaða kröfur verði gerðar ef þær hugmynd- ir verði að veruleika að blanda saman fjárframlagi einkaaðila og ríkisins við vegagerð og aðrar samgöngufram- kvæmdir eins og rætt hefur verið um. Spurningin sé hvort sveitarfélög- um verði falið að vera með einhvers konar rekstur í sambandi við inn- heimtu veggjalda eins og gert hefur verið í Noregi eða hvort einhver önn- ur leið verði valin. Sævar segir að vilji bæjarráðs standi til þess að athuga hvort þarna sé að skapast möguleiki á því að nýta þá hæfni og þekkingu sem var til sparar hjá Speli við um- sjón Hvalfjarðarganga og skapa þá atvinnu til framtíðar á Akranesi. Starfshópurinn tekur til starfa um mánaðamótin og á skila bæjarstjórn- inni niðurstöðu eftir tvo mánuði. Í honum eru Gísli Gíslason, fyrrver- andi stjórnarformaður hjá Speli, Anna Kristjánsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Ingi Ingason, stjórnarformaður Computer Vision, fyrirtækis sem er sérhæft á sviði gjaldtöku á bílastæð- um, Elsa Lára Arnardóttir, formaður bæjarráðs Akraness, sem er formað- ur hópsins, og Ólafur Adolfsson bæjarfulltrúi, sem er varaformaður hópsins. Vilja innheimtugátt á Akranesi  Starfshópur kannar áform ríkisins um vegaframkvæmdir og veggjöld Morgunblaðið/Sverrir Veggjöld Fyrrverandi starfsmenn Spalar, sem rak Hvalfjarðargöng, búa yfir reynslu við innheimtu veggjalda og er nú kannað hvort hún geti nýst áfram. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þurrkurinn sunnanlands í sumar hefur verið Spánarsniglum óhag- stæður, að sögn dr. Erlings Ólafs- sonar, skordýrafræðings hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands. „Ég hef aðeins frétt af spánarsniglum í Hveragerði, annars hefur lítið borið á þeim. Þeir þurfa vætu. Nú er allt orðið skrælþurrt og erfitt fyrir snigla,“ sagði Erling. Hann á þó ekki von á að spánarsniglarnir deyi alveg út því þeir hafa fest sig vel í sessi í Hveragerði. Þar er alltaf rakur jarð- vegur vegna sífellds rakaupp- streymis úr jörðinni. Lúsmýið klár- aði sig upp úr miðjum júlí og gekk því vel að ljúka sínu hlut- verki. Það var lengur að því í fyrrasumar. Nú eru lirfur ein- hvers staðar í uppeldi og enginn veit hvar því lífs- hættir lúsmýs eru óþekktir. „Það eina sem við vitum er að það bítur okkur,“ sagði Erling. Lúsmýið held- ur sig á sama svæði og það hefur gert frá upphafi. Það er í Borgarfirði og á Suðvesturlandi, þó ekki á Reykjanesskaga, í uppsveitum Suðurlands og austur í Fljótshlíð. Geitungar hafa verið töluvert áberandi undanfarið. Trjágeitungur- inn er að verða búinn með sinn bú- skap í sumar. Holugeitungsþernur sjást aðeins en alls ekki eins og þeg- ar best lætur. Erling hefur ekki fengið neinar vísbendingar um húsa- geitunga eða roðageitunga. „Ég var búinn að gefa út dánarvottorð á báð- ar tegundirnar en var of fljótur á mér. Þær stungu báðar upp kollinum nokkrum árum síðar,“ sagði Erling. Hann sagði að engin tvö sumur væru eins hvað smádýrin varðaði. „Maður veit aldrei hvað bíður manns á hverju ári,“ sagði Erling. Þurrviðrið hefur verið slæmt fyrir spánarsnigla  Smádýrunum hefur farnast misjafnlega vel í sumar Erling Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.