Morgunblaðið - 24.08.2019, Side 1

Morgunblaðið - 24.08.2019, Side 1
Systur Katla Svava og Guðbjörg halda stoltar á litlu systur sem er þriggja daga gömul á myndinni. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Fyrsta barn ársins í Vestmannaeyjum fæddist þriðjudaginn 20. ágúst. Það var stúlka, 16 merkur og 53 cm. Að sögn móður stúlkunnar gekk fæð- ingin vel og heilsast þeim mæðgum vel. „Ég var alltaf ákveðin í því að fæða í Eyjum eft- ir að hafa fætt tvær dætur í Reykjavík. Það er al- veg hrikalega leiðinlegt að þurfa að fara viku til tíu dögum fyrir fæðingu til Reykjavíkur og bíða þar. Við fórum tvisvar þangað í ágúst með allt dótið til öryggis og ekkert gerðist. Ég vildi því fara heim og eiga barnið í Eyjum eins og systkini mín hafa gert og dásamað hversu gott það er að eiga barn í heimabæ sínum. Auk þess sem ég og pabbi hennar erum bæði fædd í Eyjum,“ segir Halla Björk Hall- grímsdóttir og bætir við að eftir að ljósmóðirin í Eyjum hafi farið yfir málið hafi hún sannfærst enn frekar um að hún vildi eiga barnið á heimaslóðum. „Við erum bæði miklir Eyjamenn og langaði að barnið fæddist þar,“ segir Karl Haraldsson, faðir fyrsta barns ársins í Vestmannaeyjum. Halla Björk segir að það hafi verið dásamlegt að fæða barnið á sjúkrahúsinu í Eyjum þar sem komið hafi verið fram við hana eins og drottningu og það hafi verið mikill lúxus að þurfa ekki að spá í því hvern- ig þau kæmust heim með börnin. Fyrsta barn ársins fætt í Eyjum  Ljósmóðirin taldi móður á að eiga á heimaslóðum  16 marka stúlka Að yrkja Steldu stílnum Vel fellur mér vinnan,vaxa myndir strammans.Ég uni mér best innanóþægindarammans. Þórarinn Eldjárn 14 SUNNUDAGUR Of mikið gertúr leyndReglunnar Leikkonan LauraDern er meðflottan stíl oger ávalltglæsileg tilfara. 18 Mynda ferðalöginJöklar eru áberandi í sigurmyndumljósmyndakeppni ferðavefjar mbl. 22 Valur Valssonhefur verið stór-meistari Frímúrara-reglunnar í 12 ár. 10 28. ÁGÚST 2018 L A U G A R D A G U R 2 4. Á G Ú S T 2 0 1 9 Stofnað 1913  198. tölublað  107. árgangur  KLIPPA HVAR SEM FÓLK VILL BLÁI LIT- URINN EIN- KENNANDI WAGNER-HÁTÍÐIN, 57GÓÐ VIÐBRÖGÐ 12 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Skortur á meðferðarúrræðum og heilbrigðisþjónustu fyrir fanga sem eru langt leiddir af fíknisjúkdómum er „alvarlegt mál og aðkallandi“, að sögn Páls Winkel fangelsismála- stjóra. „Við þurfum að draga úr framboði með auknu eftirliti innan fangelsanna en ekki síður að bjóða upp á full- komna meðferð fyrir þá fjölmörgu skjólstæðinga Fangelsismálastofnun- ar sem á slíkri heilbrigðisþjónustu þurfa að halda,“ segir Páll í samtali við Morgunblaðið. Hann bætir við að stjórnvöld geri sér grein fyrir stöð- unni og að unnið sé í málunum. „Það liggur einnig fyrir að aukið eftirlit og meira meðferðarstarf kost- ar fjármagn sem ekki er til staðar í fangelsiskerfinu,“ segir Páll ennfrem- ur. Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn við opnun klefa á fimmtudags- morgun. Að sögn lögreglunnar á Suð- urlandi er andlátið ekki talið hafa bor- ið að með saknæmum hætti. Tveir fangar hafa nú látið lífið á Litla-Hrauni það sem af er ári en ann- ar maður tók eigið líf fyrr á árinu. Páll segir að Fangelsismálastofnun muni halda áfram að gera allt sem í hennar valdi stendurtil að berjast gegn sjálfs- vígum en allt kerfið þurfi að vinna saman í þessu. „Þegar átak er unnið í samfélaginu til þess að fækka sjálfs- vígum í hinu frjálsa samfélagi þarf slíkt einnig að ná inn í fangelsin,“ seg- ir Páll Winkel. Fjármagn í fangelsin  Auka þarf meðferðarúrræði og heilbrigðisþjónustu í fangelsum til að takast á við fíknivanda fanga  Fjármagn skortir til aðgerða, segir fangelsismálastjóri MAnnar fangi lætur lífið … » 6 Dauðsföll í íslenskum fangelsum » Tveir fangar eru látnir það sem af er ári. Um sjálfsvíg var að ræða í öðru tilfellinu. » Einn fangi tók eigið líf árið 2018 og annar árið 2017. » Engin andlát voru í íslensk- um fangelsum á árunum 2014 til 2016. Starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs voru í gær úti á Tjörninni í Reykjavík að rannsóknarstörfum. Samkvæmt upp- lýsingum frá Náttúrufræðistofunni hefur hún annast vöktun á lífríki Tjarnarinnar og er þetta þriðja árið í röð. Farið hefur verið að vori og einnig síðsumars til að fylgjast með nokkrum þáttum í lífríkinu og til að kortleggja gróður í Tjörninni. Tekin eru sýni af smádýralífinu og einnig eru veidd hornsíli sem síðan eru rannsökuð til að fylgjast með ástandi þeirra og stofnstærðinni. Morgunblaðið/Eggert Hugað að smádýrum og hornsílum í Tjörninni  „Ég hef fyrst og fremst áhyggjur af því hvernig enskuáhrifin eru yfirgnæfandi. Maður sér þess víða merki, til dæmis í töluðu máli og í skrifum fólks á netinu. Heilu setn- ingarnar og frasarnir hafa ruðst inn í málið; má þar nefna orð sem notuð eru í daglegu tali, svo sem „actually“ og „basically“, án þess að nokkur þörf sé á því.“ Þetta segir Þórarinn Eldjárn rit- höfundur í samtali við Sunnudags- blað Morgunblaðsins en hann hefur áhyggjur af stöðu íslenskrar tungu. Að dómi Þórarins eru vísbend- ingar um að Ísland sé að verða tví- tyngt land. Hefur áhyggjur af íslenskunni  Sérsveit Ríkis- lögreglustjóra sinnti 416 sér- sveitarverkefnum í fyrra og báru sérsveitarmenn skotvopn í 230 til- fellum. Af yfirliti yfir verkefna- flokka sérsveitarinnar sést að hún brást við 200 vopnatilkynningum í fyrra, en verkefni vegna örygg- isgæslu voru 53 talsins. Er þetta meðal þess sem fram kemur í ársskýrslu RLS fyrir árið 2018, sem birt var í gær. Þá vann greiningardeild RLS einnig að fjölda verkefna, eða alls tæplega 1.300 málum. Vann hún m.a. áhættugreiningar vegna loftrýmis- gæslu á vegum NATO. »28 Sérsveitin brást við 200 vopnaútköllum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.