Morgunblaðið - 24.08.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
Bókaðu draumaferðina þína á VITA.is
Njóttu þess að hlakka til
Flogiðmeð Icelandair
Fararstjórar verða
Kalli og Svana
með áratuga reynslu
í farteskinu.
Einstök veðursæld
árið umkring
Kanarí í vetur
með VITA
Las Camelias
– eitt vinsælasta
hótelið á Kanarí
í boði á ný
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skeiða- og Gnúpverjahreppur mun á
næstu vikum auglýsa bann við umferð
bíla og annarra vélknúinna ökutækja
upp Gaukshöfða við Þjórsá. Lokunin
er gerð að kröfu landeigenda og
vegna skemmda og sóðalegrar um-
gengni ferðafólks.
Gaukshöfði er sögufrægur kletta-
drangur sem skagaði út í Þjórsá og lá
vegurinn inn Þjórsárdal um hann.
Þjóðvegurinn var síðar færður út á
grjótgarð í Þjórsá og þar með
framhjá höfðanum.
Höfðinn dregur nafn sitt af Gauki
Trandilssyni á Stöng í Þjórsárdal sem
þar er sagður veginn af Ásgrími El-
liðasyni, fóstbróður sínum. Margir
muna sjálfsagt eftir myndinni á gamla
hundraðkrónaseðlinum en hún sýnir
fjallsafn Gnúpverja renna niður
Bringu sem er norðan við Gaukshöfða.
Engin aðstaða fyrir ferðafólk
Veginum upp höfðann var haldið
opnum, meðal annars sem reiðgötu,
eftir að þjóðvegurinn var færður. Þar
er vinsæll áningarstaður ferðafólks og
góður útsýnisstaður – en umgengnin
hefur ekki verið góð. Í bréfi Sigrúnar
Guðlaugsdóttur, fulltrúa landeiganda í
Haga, til sveitarstjórnar lýsir hún því
að Gaukshöfði sé að verða opinbert
haughús ferðamanna, útsparkað
svæði upp á topp höfðans, bæði eftir
akandi og gangandi vegfarendur.
Margir gisti þar í bílum sínum en eng-
in aðstaða er fyrir ferðafólk, ekki sal-
erni, stubbabox eða annað.
Munu banna akstur
Kristófer A. Tómasson sveitar-
stjóri segir að sveitarstjórn taki undir
áhyggjur landeigenda og verið sé að
undirbúa bann við akstri þangað, í
samvinnu við Vegagerðina. Hann
segir að í framhaldinu sé áhugi fyrir
því að bæta aðstöðu fyrir ferðafólk og
lagfæra gróðurskemmdir. Sérstak-
lega nefnir hann söguskilti með upp-
lýsingum um staðinn. Telur Kristófer
að til greina komi að friðlýsa svæðið
en engar ákvarðanir hafi verið teknar
um það.
Opinbert haughús ferðamanna
Til stendur að loka veginum upp
Gaukshöfða vegna sóðalegrar umgengni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gaukshöfði Gamli þjóðvegurinn inn Þjórsárdal liggur uppi á höfðanum,
um Goludal, en sá nýi á grjótgarði úti í Þjórsá, framan við höfðann.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikil og vaxandi eftirspurn er eftir
lambakjöti í Evrópu, að sögn Ágústs
Andréssonar, forstöðumanns kjötaf-
urðastöðvar KS. Skapar það tækifæri
fyrir kjötútflytjendur að velja sér
betri markaði en áður.
Ástæðan fyrir meiri eftirspurn í
Evrópu er aukin sala stóru fram-
leiðslulandanna, Nýja-Sjálands og
Ástralíu, til Kína og minni áhersla á
Evrópumarkað. Ágúst segir að þetta
birtist meðal annars í því að lamba-
kjötsframleiðendur hér hafi nú í haust
verið að fá heimsóknir frá evrópskum
dreifingarfyrirtækjum sem ekki hafi
áður keypt kjöt héðan.
Það jafnvægi sem nú er komið á
framboð og eftirspurn eftir lamba-
kjöti skapar tækifæri fyrir útflytjend-
ur. „Mikilvægt er fyrir okkur að velja
góða og vel borgandi markaði og hlúa
vel að þeim,“ segir Ágúst. Auðvelt
verður að selja það kjöt sem síðustu
ár hefur verið flutt ferskt í sláturtíð til
Bandaríkjanna en Whole Foods-
verslanakeðjan hætti þessum við-
skiptum í ár. Á móti kemur að minna
svigrúm er til útflutnings vegna auk-
innar sölu á innanlandsmarkaði.
Samið við Spánverja
Einn af þessum góðu mörkuðum er
Spánn. Fyrsti samningur um útflutn-
ing sem kjötafurðastöð KS og Slát-
urhús KVH, hafa gert á þessu hausti
er einmitt á þann markað. Kaupand-
inn er Carnes Felix, stórfyrirtæki í
matvælaiðnaði í Valenca og hefur
keypt kjöt af KS í fimmtán ár. Samn-
ingurinn hljóðar upp á 200-250 tonn
sem er svipað magn og verið hefur en
meiri áhersla er nú á vörur úr fram-
pörtum og minni á hryggi. Segir
Ágúst að það helgist af þörfum þessa
markaðar.
KS hefur einnig samið um að sjá
verslunum Kjötkompanísins fyrir
lambakjöti í heilt ár. Er það nýr við-
skiptavinur hjá félaginu. Kjötkomp-
aníið lenti í erfiðleikum þegar það
fékk ekki allt það kjöt sem það þurfti í
sumar. Ágúst segir mikilvægt að
fyrirtæki geri áætlanir um kaup og
semji við birgja um að útvega það
magn.
Geta valið bestu
markaði fyrir kjötið
Evrópskir kjöt-
kaupmenn leita til Ís-
lands eftir lambakjöti
Samið Ágúst Andrésson á milli feðganna Felix Lurbe og Felix Lurbe.
Guðni Einarsson
Guðrún Erlingsdóttir
Arnar Þór Ingólfsson
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
(FEB) er bjartsýnt á að nær allir samþykki
aukagreiðslu vegna íbúða í nýbyggingunum í
Árskógum 1-3. Þá vonar stjórn félagsins að
dómari í máli kaupanda sem ekki hefur viljað
samþykkja aukagreiðsluna, úrskurði félaginu í
hag, að því er segir í fréttatilkynningu.
Nú hafa 49 núverandi og verðandi íbúar í Ár-
skógum lýst því yfir að þeir séu samþykkir til-
boði FEB. Þegar hafa 45 skrifað undir skil-
málabreytingu en fjórir ætla að skrifa undir á
næstunni. Allir nema tveir af 33 kaupendum
sem voru með afhendingardag í júlí hafa sam-
þykkt að greiða hækkað verð en einn á eftir að
skrifa undir. Eftir er að ræða við tíu kaupendur
en illa hefur gengið að ná í suma þeirra.
Málið tekið fyrir í héraðsdómi
Daði Bjarnason, lögmaður FEB, lagði fram
greinargerð með vörnum FEB í aðfararmáli
hjóna sem keyptu íbúð, er málið var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Ekki hafa náðst sættir á milli hjónanna og fé-
lagsins. Sigrún Ingibjörg Gísladóttir lögmaður
hjónanna sagði í samtali við mbl.is að hún vissi
til þess að fleiri kaupendur, sem enn hefðu ekki
fallist á að greiða hærra verð fyrir íbúðir sínar,
skoðuðu stöðu sína og fylgdust með dómsmál-
inu sem hún rekur fyrir hönd hjónanna. Mál
þetta er enda fordæmisgefandi fyrir aðra sem
eru í þessari fordæmalausu stöðu. Næsta skref
í málinu er að því verður úthlutað til dómara við
héraðsdóm, en aðstoðarmaður dómara hefur
annast fyrstu fyrirtökurnar. Þegar búið verður
að úthluta málinu til dómara verður fundinn
tími til þess að flytja það.
40.000 króna verðmunur á fermetra
Fermetraverð á íbúðum á jarðhæð í Áskóg-
um 1-3 er 480.000 krónur en 520.000 á efstu
hæðinni, samkvæmt upplýsingum frá FEB.
Ekki fékkst uppgefið fermetraverð á íbúðum á
öðrum hæðum fjölbýlishúsanna. Það var bygg-
ingarnefnd félagsins sem setti upp verðstuðul
fyrir íbúðirnar. Úthlutun byggðist 50% á lengd
félagsaðildar, 20% á lífaldri og 30% á því hve-
nær umsækjandi skráði sig á lista yfir áhuga-
sama.
Talið að flestir samþykki hækkun
FEB með samþykki 49 kaupenda Mál fyrir héraðsdómi Byggingarnefnd samdi verðstuðul
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árskógar 1-3 Mistök við verðútreikninga leiddu til þess að FEB fór fram á aukagreiðslur.