Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 209.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Fararstjóri: Pavel Manásek Í þessari skemmtilegu aðventuferð gistum við í þremur heillandi borgum. Í hverri þeirra kynnumst við fagurlega skreyttum jólamörkuðum með fjölbreyttum varningi og sýnishorni af því dæmigerða í mat og drykk heimamanna. Ferðin hefst í Pilsen í Tékklandi, þaðan verður farið til heimsborginnar Prag og endum við ferðina í Passau í Þýskalandi. 5. - 12. desember Aðventuprýði í Prag Verktakar eru þessa dagana að leggja lokahönd á framkvæmdir við byggingu og lóð fræðslu- miðstöðvar Kópavogsbæjar og Skógrækt- arfélags Kópavogs í Guðmundarlundi í Vatns- endaheiði. Þar verður Skógræktarfélagið með aðstöðu og unnt að taka á móti þeim fjölmörgu nemendum grunn- og leikskóla sem þangað koma til útikennslu. Miðstöðin verður tekin í notkun við afhöfn í lok næstu viku. Morgunblaðið/Eggert Leggja lokahönd á fræðslumiðstöð Framkvæmdir í Guðmundarlundi í Vatnsendaheiði 55 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum fötluðum konum. Maðurinn var í vikunni úrskurð- aður í nálgunarbann gagnvart einni konunni og barnungri dóttur hennar á þeim forsendum að rök- studdur grunur væri um að hann hefði beitt konuna og nátengda ættingja kynferðisofbeldi, áreitni og haft í hótunum gagnvart þeim. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Greint var frá því á mbl.is að maðurinn hefði aldrei sætt gæslu- varðhaldi meðan á umfangsmikilli rannsókn lögreglu stóð. Konurnar krefja manninn samtals um tíu milljónir króna í miskabætur. Manninum er m.a. gefið að sök að hafa brotið fjórum sinnum gegn einni konunni og ná brotin aftur til ársins 2014. Hann er sagður hafa villt á sér heimildir á spjallborði Facebook í þeim tilgangi að eiga í kynferðislegum samskiptum við hana. Fékk hann konuna, sem er þroskahömluð, til að senda sér kynferðislegar myndir sem hann hótaði síðan að birta opinberlega. Ákærður fyrir kyn- ferðisbrot  Braut gegn fjórum fötluðum konum „Við þurfum öll sem vinnum í kerfinu að gera allt sem í okkar valdi stendur til að sjá hverjir eru í áhættu innan fangelsanna og bjóða þeim aðstoð. Við gerum það eftir bestu getu en okkur hefur ekki tekist að koma í veg fyrir sjálfsvíg í fangelsum landsins. Það hefur ekki heldur tekist í fang- elsum annarra landa enda er vist í fangelsi íþyngjandi úrræði og skapar vanlíðan hjá öllum sem slíkt þurfa að upplifa.“ Spurður hvort þörf sé á aukinni sálfræðiaðstoð fyrir fanga sem eiga við andleg vandamál að stríða, seg- ir Páll að verið sé að endurskoða núverandi kerfi. „Ég tel það og það hefur verið talað um að það þurfi að endurskoða heilbrigð- isþjónustu í heild sinni fyrir fanga. Sérstaklega geðheilbrigðisþjón- ustu. Sú vinna er komin í gang og ég bind miklar vonir við að það skili sér í aukinni þjónustu fyrir fanga.“ Hann segir að Fangelsis- málastofnun og starfsfólk þar muni halda áfram að gera allt sem í þess valdi er til að berjast gegn sjálfs- vígum en allt kerfið þarf að vinna saman í þessu. „Þegar átak er unnið í samfélaginu til þess að fækka sjálfsvígum í hinu frjálsa samfélagi þarf slíkt einnig að ná inn í fangelsin,“ segir Páll. isrefsingu utan fangelsa sem aftur hefur þær afleiðingar að þeir sem þurfa að fara í fangelsi eru þar fyr- ir alvarlegri sakir eða síbrot. Margir þeirra eru langt leiddir af fíknisjúkdómi og það er alveg á hreinu í mínum huga og raunar líka óháðra eftirlitsstofnana að við því þarf að bregðast,“ segir Páll. Fíknivandinn aðkallandi mál Hann bætir við að nauðsynlegt sé að bregðast betur við þeim fíknivanda sem fyrirfinnst innan veggja íslenskra fangelsa. „Við þurfum að draga úr framboði með auknu eftirliti innan fangelsanna en ekki síður að bjóða upp á full- komna meðferð fyrir þá fjölmörgu skjólstæðinga Fangelsismálastofn- unar sem á slíkri heilbrigðisþjón- ustu þurfa að halda. Stjórnvöld gera sér grein fyrir stöðunni og unnið er að því að gera betur í þessum málum. Ég tel þetta mjög alvarlegt mál og aðkallandi. Það liggur einnig fyrir að aukið eftirlit og meira meðferðarstarf kostar fjármagn sem ekki er til staðar í fangelsiskerfinu,“ segir Páll. Annar karlmaður lést innan veggja Litla-Hrauns fyrr á árinu og var þá um sjálfsvíg að ræða. Páll segir að eins og í hinu frjálsa samfélagi séu því miður dæmi um að fangar svipta sig lífi í afplánun. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni í vikunni. Hann er þar með annar fanginn sem lætur lífið í fangelsi þessu það sem af er ári. Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi er ekk- ert sem bendir til að andlát manns- ins hafi borið að með saknæmum hætti en lögreglan fer með rann- sókn málsins. „Það sem gerist ef skjólstæðingur okkar deyr á okkar vegum er að það er í öllum tilvikum tilkynnt til lögreglu og lögreglan tekur við rannsókn málsins. Hjá okkur taka svo við verklagsreglur þar sem að hlúð er að þeim sem að þessu komu. Hvort sem það eru starfsmenn eða vistmenn. Við förum svo yfir okkar verklag og hvort eitthvað þurfi að bæta og ef það er nauðsynlegt þá er það gert,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. Hann segir að um harmleik sé að ræða og að bæði vistmenn og starfsmenn fang- elsisins séu harmi slegnir. Karl- maðurinn sem lést fannst látinn við opnun klefa síns á fimmtudags- morgun. Voru það starfsmenn fangelsisins sem komu að honum. Öflug heilbrigðsþjónusta þörf Páll segir í samtali við Morgun- blaðið að andlát fanga megi greina í tvennt. „Annars vegar er um að ræða einstaklinga sem látast vegna sjúkdóma eða verða bráðkvaddir. Við slíku er ekki hægt að gera neitt annað en að hafa öfluga heil- brigðisþjónustu. Þó er hægt að gera betur gagnvart einum sjúk- dómi sem margir okkar skjólstæð- inga glíma við, en það er fíkn- isjúkdómur. Með breyttum lögum afplána fleiri fangar sína fangels- Tveir hafa látist í fangelsum á þessu ári  Brýnt að bregðast við fíknivanda, segir Páll Winkel Ísland Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð Sj ál fs víg Ön nu r da uð sf öl l Al ls Sj ál fs víg Ön nu r da uð sf öl l Al ls Sj ál fs víg Ön nu r da uð sf öl l Al ls Sj ál fs víg Ön nu r da uð sf öl l Al ls Sj ál fs víg Ön nu r da uð sf öl l Al ls 2013 1 1 2 3 5 8 2 3 5 11 1 12 5 2 7 2014 0 0 0 2 2 4 2 7 9 6 0 6 4 3 7 2015 0 0 0 2 2 4 2 1 3 2 3 5 1 2 3 2016 0 0 0 8 3 11 2 2 4 5 1 6 1 2 3 2017 1 0 1 4 5 9 2 0 2 3 2 5 1 3 4 2018 1 0 1 2019* 1 1 2 Dauðsföll í fangelsum á Norðurlöndunum Heimild: Fangelsismálastofnun *Það sem af er 2019 Páll Winkel Dómararnir Markús Sigurbjörns- son og Viðar Már Matthíasson hafa beðist lausnar frá störfum við Hæstarétt Íslands og munu þeir láta af störfum 1. október nk. Í þeirra stað verður skipaður einungis einn dómari, en staðið hefur til að fækka dómurum við Hæstarétt frá því að lög um hið nýja millidómsstig, Landsrétt, voru samþykkt. Átta dómarar eru við réttinn nú og verða þeir því sjö talsins þegar búið er að skipa nýjan dómara. Markús og Viðar Már eru báðir fæddir árið 1954 og verða þeir því 65 ára á árinu. Markús Sigur- björnsson var skipaður hæstarétt- ardómari árið 1994 og Viðar Már Matthíasson árið 2010. Báðir hafa þeir gegnt embætti varaforseta við dómstólinn og Markús embætti forseta Hæstaréttar Íslands. Tveir hæstaréttardómarar láta af störfum Markús Sigurbjörnsson Viðar Már Matthíasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.