Morgunblaðið - 24.08.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
Tilboð til allra heilsársáfangastaða.
Ferðatímabil: 1. okt. 2019 til 28. mars 2020.
*Takmarkað sætaframboð.
NJÓTA
Kaupmannahöfn, verð frá 10.900 kr. aðra leið*
SKOÐA, BÓKA,
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Næmi í samþættu líkindamati,
skimunarprófi sem metur líkur á
því að fóstur beri litningagalla,
var óvenju lítið árið 2017 eða ein-
ungis 69,2%. Þetta kemur fram í
nýútgefinni Fæðingarskrá Land-
spítalans fyrir árið 2017.
Næmi prófsins er venjulega á
milli 85 og 90% og hafði verið það
árin á undan en það þýðir að
litningagallar fundust í allt að 85-
90% tilfella.
Jón Jóhannes Jónsson, pró-
fessor og yfirlæknir erfða- og
sameindalæknisfræðideildar Land-
spítalans, segir að hið óvenju litla
næmi gæti verið tilviljun. Þó gefi
tölurnar tilefni til að leggjast yfir
framkvæmd samþætts líkindamats
sem mælir möguleika á litn-
ingaþrístæðum 13, 18 og 21. Skim-
unarprófið gefur oft ekki vísbend-
ingu um aukalitning 21.
Spurning um áhættumörk
„Það er spurning um hvar við
drögum áhættumörkin. Eins og er
eru þau 1 á móti 100 en með því
að setja þau neðar gætum við auk-
ið næmi. Þá fengi maður fleiri sem
eru yfir mörkum, í þeim hópi gætu
þá verið stöku konur sem eru með
fóstur með aukalitning 21 en þetta
próf hefur ekki 100% greining-
argetu.
Þetta kallar á skoðun á því
hvað hægt sé að gera, hversu mik-
ið við höldum að þetta gæti verið
tilviljun og hversu mikið tilefni til
einhverra breytinga hjá okkur.“
Jón bendir á að samþætta lík-
indamatið sé ekki besti kosturinn
í þessum efnum og heppilegra
væri að taka upp svokallað NIPT-
próf, skimunarpróf með sama
hlutverk og samþætta lík-
indamatið. NIPT-prófið hefur
meira en 99% næmi en er ein-
ungis í boði hérlendis á einkastof-
unni Livio og er talsvert dýrara
en samþætta líkindamatið.
NIPT ætti að vera
valkostur
„Við höfum verið að skoða
möguleikann á að taka upp NIPT-
prófið á Landspítala og ég held að
við sem erum að gera þessi
fósturskimunarpróf séum öll ein-
huga í því að það væri rétt,“ segir
Jón sem bætir því við að hann
telji að NIPT ætti að standa öll-
um konum til boða á viðráðanlegu
verði. NIPT er dýrara í fram-
kvæmd en líkindamatið og er það
helsta fyrirstaðan fyrir upptöku
NIPT á Landspítalanum.
Næmi skimunar-
prófs 20% minna
Næmi í prófi sem metur líkur á
litningagalla 69% árið 2017 en 85-90%
árin á undan Annað próf vænlegra
Polar Pelagic-hátíð Hróksins í
Tasiilaq, höfuðstað Austur-Græn-
lands, lauk með glæsibrag sl.
fimmtudagskvöld þegar Máni
Hrafnsson tefldi fjöltefli við 60
nemendur grunnskólans í bænum.
Máni og Joey Chan hafa undan-
farna daga kennt rúmlega 400
grunnskólabörnum undirstöðu-
atriði skáklistarinnar, efnt til
myndlistarsamkeppni, heimsótt
heimili fyrir börn sem ekki geta
dvalið hjá sínum nánustu, og fært
bágstöddum fjölskyldum í bænum
veglegar gjafir. Í hátíðarlok var
Justus Hansen, þingmaður og
fulltrúi í sveitarstjórn Sermsooq,
gerður að heiðursfélaga Hróksins.
„Þetta var í einu orði sagt stór-
kostlegt,“ segir Máni Hrafnsson,
sem tekið hefur þátt í skákland-
námi Hróksins á Grænlandi frá
upphafi, árið 2003. Máni og Joey
hafa síðustu árin séð um árlegar
páskahátíðir í Ittoqqortoormiit, af-
skekktasta bæ Grænlands og í fyrra
fóru þau ásamt sirkuslistamönnum
til Kullorsuaq, sem er á 74.
breiddargráðu á vesturströndinni.
Þá er vert að geta þess að Hrók-
urinn býður velunnurum á opið hús
á Menningarnótt í Pakkhúsi Hróks-
ins, milli klukkan 14 og 16.
Fjöltefli við 60 krakka
Hátíð Hróksins
í Grænlandi lauk
með glæsibrag
Ljósmynd/Hrókurinn
Góðverk Máni Hrafnsson tefldi fjöltefli við 60 nemendur grunnskólans.
Tveir veirusjúkdómar hafa greinst í kjúklingum á Rang-
árbúinu á Hólavöllum í Landsveit. Búið er í einangrun
með það að markmiði að útrýma sjúkdómunum áður en
þeir ná fótfestu hérlendis. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu Matvælastofnunar. „Grunur um smitsjúkdóm vakn-
aði eftir veikindi og aukin dauðsföll á búinu í lok júlí og þá
tilkynnti Reykjagarður hf. málið til Matvælastofnunar.
Stofnunin setti flutningsbann á búið og upplýsti aðila
sem tengdust búinu og alifuglabændur um málið. Allir
flutningar til og frá búinu eru bannaðir nema með sér-
stöku leyfi stofnunarinnar. Veikir fuglar greindust með
bæði innlyksa lifrarbólgu og Gumboro-veiki,“ segir þar,
en sjúkdómar þessir finnast eingöngu í fuglum og berast
smit því ekki í menn eða önnur spendýr.
Kjúklingabú sett í einangrun
Veirusýkingarnar geta ekki borist í menn eða spendýr