Morgunblaðið - 24.08.2019, Side 14

Morgunblaðið - 24.08.2019, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 NJÓTA New York, verð frá 22.900 kr. aðra leið* SKOÐA, BÓKA, Tilboð til allra heilsársáfangastaða. Ferðatímabil: 1. okt. 2019 til 28. mars 2020. *Takmarkað sætaframboð. STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þetta eru hálfgerðar hamfarir,“ seg- ir Sigurður Már Einarsson fiskifræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun, en hann hefur árum saman vaktað veiði- árnar á Vesturlandi, á því svæði sem hvað verst hefur farið út úr lélegum laxagöngum að viðbættum einstökum þurrkum í sumar. „Ég hef aldrei séð svona ástand og hef þó verið lengi við. Sá fiskur sem hefur komist inn í árn- ar hér í Borgarfirði liggur á örfáum stöðum og svo hefur hitinn verið svo mikill að hann lítur illa við agni.“ Þegar blaðamaður spyr hvort laxa- göngur á vestanverðu landinu séu ekki bara þrjátíu til fimmtíu prósent af meðaltali síðustu ára samþykkir Sigurður það. „Ég hugsa að þetta sé innan við 50 prósent. Gegnum teljara í Skugga- fossi í Langá hafa nú gengið um 1.200 laxar en hafa oft undanfarin ár verið yfir 2.200. Svo hefur veiðst illa það sem hefur gengið upp fyrir. Í Glanna í Norðurá eru ekki komnir nema 400 til 500 laxar upp fyrir en hafa gengið 1.500 til 2.000, og allt að 4.000. Þetta er mjög lítið. Við bætist að ár hafa sumar verið ófærar vegna þurrka.“ Sigurður rifjar upp að klak- árgangur laxins frá 2015 hafi verið lé- legur og það eigi rætur að rekja til hörmungarársins 2014. „Ég hef fylgst vel með þessum árgangi, hann var misslæmur í ánum, náði hvergi meðaltali, sums staðar bara 25 pró- sentum af meðalstyrk. Í smálaxaám eins og hér á Vesturlandi bera bara tveir árgangar uppi veiðina hverju sinni og ef annar klikkar getur höggið orðið þungt, eins og núna. Þessu til viðbótar hafa sjávarskilyrði greini- lega verið erfið, við sjáum mikið af laxi milli 40 og 50 cm, og það er ein- kenni þess að hafið hefur ekki verið fiskunum gott.“ Þegar spurt er hvort ekki megi bú- ast við lélegum heimtum eftir fimm ár, eins og nú eftir hörmungina 2014, segir Sigurður hættu geta verið á því. Heyrst hefur hvort loka hefði átt einhverjum ánna fyrir veiði í sumar. Sigurður segir að slíkt væri erfitt við- ureignar. „Við höfum mælt með því að farið sé vel með árnar og helst öll- um veiddum laxi sleppt aftur, til að tryggja hrygninguna. Ám hefur verið lokað í Noregi við öfgafullar að- stæður en hér er eignarhald með án- um með öðrum hætti og þá kæmi strax upp hver ætti að bera skaðann. En ég er bjartsýnn fyrir næsta ár. Aðstæður voru góðar fyrir útgöngu seiða, víða fóru ágætir árgangar út og svo er sjávarhitinn vænlegri.“ „Hugsa að þetta sé innan við 50 prósent“  Fiskifræðingur á Vesturlandi segir ástand í veiðiám, þurrum og fisklitlum, „hálfgerðar hamfarir“ Morgunblaðið/Einar Falur Sterkur Veiðimaður togast á við stórlax í hinum tilkomumikla veiðistað Fossi 2 efst í Hofsá í Vopnafirði. Afl ahæstu árnar Heimild: www.angling.is 0 500 1.000 1.500 2.000 2.500 Staðan 21. ágúst 2019 Veiðistaður Stanga- fjöldi Veiði 22. ágúst 2018 23. ágúst 2017 Eystri-Rangá 18 2.556 3.060 1.685 Selá í Vopnafi rði 6 1.167 1.111 813 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 1.106 2.556 4.218 Miðfjarðará 10 1.091 2.039 2.668 Urriðafoss í Þjórsá 4 729 1.211 742 Þverá - Kjarrá 14 651 2.271 1.777 Blanda 14 572 853 1.390 Laxá á Ásum 4 566 565 790 Hofsá og Sunnudalsá 7 533 570 462 Haffjarðará 6 487 1.353 1.033 Elliðaárnar 4 446 857 764 Laxá í Aðaldal 17 396 557 583 Jökla (Jökulsá á Dal) 8 336 372 288 Norðurá 15 335 1.487 1.355 Grímsá og Tunnguá 8 332 814 918

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.