Morgunblaðið - 24.08.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 24.08.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 GRÆNT ALLA LEIÐ Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Viðskipta-Monica fór úr hælaháu skónum og breyttist í sveitastelpu þegar hún bauð mér heim til ní- ræðrar ömmu sinnar sem bjó í litlu sveitaþorpi. Ég var varla komin inn úr dyrunum hjá ömmunni þegar ég var sett í störfin, mér voru réttar hjólbörur því það þurfti að sækja möl. Síðan þurftum við að fara út á akur að setja niður grænmeti, og amma gamla óð yfir lækinn með pálinn, því þarna eru engir traktor- ar og enginn vegur heldur slóði. Ég var aum í hnénu en ákvað að væla ekkert í ljósi þess að við hlið mér var níræð kona sem djöflaðist áfram. Því næst þurftum við að sækja kýrnar, en allir í þorpinu eiga eina kú í hjörðinni og svo er skipst á að sækja kýrnar upp í hlíðina. Svo var farið beint í að handmjólka kúna, Monica sá um það. Stutt hlé var tekið til að borða, en á undan öllum máltíðum er ævinlega sætur snaps. Að lokinni máltíð var farið aftur út á akur og unnið alveg fram til klukkan tíu að kvöldi. Allir voru að vinna allan daginn. Gestrisnin var alveg ótrúleg, amman og mamman kölluðu vegavinnuflokk inn til sín, drulluskítuga karla, til að bjóða þeim að borða með okkur. Þarna á enginn pening en allir eiga alltaf nóg af mat til að deila með öðrum. Hvert sem ég kom var mér boðið að gista eins marga daga og ég vildi,“ segir Linda Ásdísardóttir sem er alsæl eftir ferðalag til Rúm- eníu í sumar þar sem hún fékk að taka þátt í hversdagslífi fólks, eftir að hafa verið á námskeiði í körfu- gerð. „Ég varð ástfangin af Rúmeníu þegar ég fór þangað fyrir sex árum með nokkrum Íslendingum og dvaldi í litlu þorpi í Alba-héraði í Transilvaníu, en þar tókum við þátt í að reisa bjálkahús samkvæmt gamalli hefð Rúmena. Þetta var Evrópuverkefni sem sneri að því að viðhalda menningararfi og þarna kynntist ég Monicu, sem var verk- efnisstjórinn. Þegar ég sá að hún var með námskeið í körfugerð í sumar fyrir nokkra breska hippa fékk ég að svindla mér með. Sumir voru nýgræðingar eins og ég en aðrir voru listamenn í körfugerð. Ég vildi í leiðinni athuga hvort ég gæti búið til einhverskonar ferð fyr- ir safnafólk á Íslandi til Rúmeníu þar sem við færum inn í þessi héruð og fengjum að vera innan um og læra af heimafólki,“ segir Linda sem er safnvörður í Húsinu á Eyr- arbakka, Byggðasafni Árnessýslu. „Körfugerð í Rúmeníu og öðru handverki hefur verið haldið lifandi af Rómafólki. Mér fannst stórkost- legt að fá tækifæri til að kynnast þessu fólki og því sem það er að gera. Kennararnir á námskeiðinu voru Rómafólk, þeir Stefan og Kala- man, en þeir lærðu sem litlir dreng- ir að flétta körfur af feðrum sínum, sem lærðu af sínum feðrum og svo framvegis. Þessi kunnátta hefur lif- að frá manni til manns í karllegg kynslóð fram af kynslóð. Stefan vinnur einvörðungu við körfugerð og brauðfæðir sína fjölskyldu á því að selja körfurnar sem hann býr til,“ segir Linda og bætir við að þau hafi aðallega unnið með víði í körfu- gerðinni. „Við fórum út á akra að sækja okkur efnivið og kennararnir voru ekki vandlátir á hvaða efni þeir not- uðu í körfurnar. Það var ótrúlegt hvað þeir unnu hratt við að ríða körfurnar, þeir eru einstaklega flinkir og nota allskonar trikk, til að fela misfellur til dæmis. Þeir nota líka hendurnar til að gera margt sem flestir gera með áhöldum, til dæmis að kljúfa greinarnar, en þá gera þeir skurð í toppinn og kljúfa svo greinina með þumalputtanum. Fyrir vikið eru þeir með breiða og sterklega fingur. Allt leikur í hönd- unum á þeim. Í lok dags þegar við fórum á rúntinn fyrir utan þorpið, þá opnaði Stefan skottið á bílnum, dró fram sínar körfur og seldi. Hann nýtti hverja stund til að koma körfunum í verð. Þetta fólk er dug- legt að bjarga sér.“ Kynjaskiptingin alveg skýr Linda segir það hafa verið virkilega áhugavert að kynnast lífi Rómafólksins. „Rómafólk verður örugglega fyrir fordómum í Rúmeníu, en það kom mér hins vegar á óvart hvað þeirra menning lifir sterkt þarna samhliða menningu hins almenna Rúmena. Samheldnin er mikil með- al Rómafólks og mörg þeirra eru með fasta búsetu og vinna fyrir sér, eru ekki á flakki eða stunda betl. Fólk fæðist inn í fjölskyldu með ákveðna kunnáttu sem nýtist því til að sjá fyrir sér, eins og Stefan og Kalaman sem fæddust inn í körfu- gerðarfjölskyldu. Þeir tveir voru frekar feimnir, horfðu á okkur úr fjarlægð og brostu til okkar í laumi. Þeir voru með okkur allan tímann og Stefan tók dansspor fyrir okkur á fjórða kvöldinu. Skrautgirni og litagleði fylgir þessu fólki og kon- urnar klæða sig í skrautleg pils, svolítið eins og þær séu alltaf í þjóð- búningi. En þó að Rúmenar sjái alltaf muninn þá sá ég ekki endilega mun á Rómafólki og öðrum Rúmen- um,“ segir Linda og bætir við að í fyrri Rúmeníuferðinni hafi Monica farið með Íslendingahópinn á rúnt- inn og staldrað við í götu Rómafólks þar sem það bjó í stórum skreyttum húsum og seldi utan við þau sinn varning, koparpotta, textíl, körfur og fleira sem þau búa til sjálf. „Við fengum að fara inn í húsin og sáum að þarna var fólk alls ekki allt fátækt. Rómafólk er íhaldssamt á sinn hátt og kynjaskiptingin er skýr, þetta er karlrembusamfélag þar sem karlmaðurinn á heimilinu tekur ekki í höndina á þeim konum sem koma í heimsókn, aðeins körl- unum. Þegar við komum inn á heim- ili Rómafólks þá vék karlinn og kon- an tók á móti okkur, þar var hennar vettvangur.“ Fjalla-Eyvindur reið körfur Linda hefur velt fyrir sér að fá Rúmenana til að koma til Íslands og kenna okkur að ríða körfur með þeirra aðferðum. „Við gætum notað víði, mel- gresi og kannski njóla,“ segir Linda og bætir við að heimildir um tága- vinnu á Íslandi séu ekki miklar, en í bók Kristjáns Eldjárns, Hundrað ár í Þjóðminjasafni, komi fram að tágavinna hafi verið þekkt víða um land hér áður fyrr, þó að það hafi verið misjafnt eftir landshlutum. „Kristján segir að fallegar og vel gerðar tágakörfur hafi þótt kostagripir og að þær hafi verið notaðar til að geyma í þeim sauma- dót og smáhnykla eða undir ull. Einnig að gott hafi verið að tína egg í tágakörfur og stundum hafi þær verið notaðar sem berjaílát. Í bók hans kemur líka fram að nánast ein- göngu hafi verið notaðar grávíðitág- ar til körfugerðar hér á landi, en það eru rætur grávíðisins. Á söfnum landsins eru til fornar tágakörfur, skór, hattur og höft fyrir hesta. Fyrsta tágakarfan sem Þjóðminja- safnið eignaðist árið 1878 var sögð eftir Fjalla-Eyvind, en sagan segir að hann hafi riðið körfur svo þétt að þær voru vatnsheldar, og að hann hafi borgað með körfunum fyrir mat og annað. Þjóðminjasafnið og Byggðasafn Árnesinga eiga tága- körfur eftir blindan mann, Jón Giss- urarson, sveitarlim í Biskups- tungum á 19. öld, en körfur hans þóttu snilldarlega vel gerðar. Var Kristjáni konungi IX. gefin karfa gerð af Jóni á þjóðhátíðinni 1874. Mér finnst það skemmtileg tenging að það að bregða körfur hafi verið iðja útlaga hér á landi áður fyrr. Ís- lenskur útlagi og blindur maður eiga þessa kunnáttu þá sameig- inlega með Rómafólki í Rúmeníu sem er jú á vissan hátt útlagar.“ Handlaginn Stefan kennir áhugasömum nemum körfugerð. Flinkur Kalaman sýnir hvernig kljúfa skal grein með fingrum. Vinir Monica og Linda við dæmigert bjálkahús í Rúmeníu. Allt leikur í höndunum á þeim Gaman Linda sækir víðigreinar til körfugerðar út á akur með kennaranum Stefan og hippanum Graham. Níræð Amma skolar grænmetið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.