Morgunblaðið - 24.08.2019, Síða 35
MINNINGAR 35Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Ástin í tali og tónum.
Prestur er Svavar Alfreð Jónsson.
Sönghópurinn Synkópa syngur.
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Eva Björk
Valdimarsdóttir héraðsprestur prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór
Áskirkju syngja, organisti Bjartur Logi
Guðnason.
BESSASTAÐAKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Helga Björk Jónsdóttir
djákni predikar og þjónar fyrir altari. Jó-
hann Baldvinsson organisti leiðir safn-
aðarsöng.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Þorbjörn Hlynur Árna-
son þjónar fyrir altari og kirkjukór Borg-
arness syngur undir stjórn Steinunnar
Árnadóttur. Heitt á könnunni í anddyri
kirkjunnar að guðsþjónustu lokinni.
Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45.
Sunnudagaskólinn hefst aftur í sept-
ember, og verður nánar auglýstur síð-
ar.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur Magnús Björn Björnsson.
Organisti Örn Magnússon. Messu-
þjónar taka þátt í messunni.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 20.
Antonia Hevesi og félagar úr Kór Bú-
staðakirkju syngja. Messuþjónar
þjóna ásamt sr. Pálma Matthíassyni.
Heitt á könnunni eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Skírnarmessa
kl. 11. Séra Gunnar Sigurjónsson. Org-
anisti Sólveig Sigríður Einarsdóttir.
Veitingar (súpa, brauð, álegg og kaffi) í
safnaðarsal eftir messu.
Dómkirkja Krists konungs, Landa-
koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á
pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á
pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga
kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 er vigilmessa á spænsku og kl. 18
er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11.
Séra Elínborg Sturludóttir, Kári Þormar
dómorganisti og félagar úr Dómkórn-
um. Minnum á bílastæðin við Alþingi.
FELLA- og Hólakirkja | Helgistund
kl. 20. Kristín Kristjánsdóttir þjónar.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur organista. Með-
hjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi
eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson
safnaðarprestur leiðir stundina.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn
við Tjörnina leiða tónlistina ásamt
Gunnari Gunnarssyni organista. Ferm-
ingarbörn og fjölskyldur þeirra eru
hvött til að mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl.
11. Séra Grétar Halldór Gunnarsson
prédikar og þjónar, Hákon Leifsson er
organisti og forsöngvari leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Organisti er Ásta Haraldsdóttir og
prestur María Ágústsdóttir. Félagar úr
Kirkjukór Grensáskirkju og messuhóp-
um safnaðarins þjóna. Messukaffi
með léttum veitingum eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Guðsþjónusta kl. 14 í hátíðasal
Grundar. Auður Inga Einarsdóttir heim-
ilisprestur. Grundarkórinn leiðir söng
undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur
organista.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Væntanleg fermingar-
börn og foreldrar þeirra boðin velkom-
in og starfið kynnt í stuttu máli.
Fermingarbörnin fá afhent Nýja testa-
mentið frá Gíedeonfélaginu og bækl-
ing um messuna. Sr. Jón Helgi, sr. Þór-
hildur, Guðmundur organisti og Bylgja
Dís fræðslufulltrúi og söngkona sjá
um stundina. Kaffisopi í safnaðar-
heimilinu á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu
Sjöfn Óskarsdóttur. Hópur messu-
þjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja undir stjórn
Harðar Áskelssonar. Organisti í mess-
unni er Mattías Wager konsertorgan-
isti helgarinnar. Ensk messa kl. 14 í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar.
Sálmafoss í Hallgrímskirkju laugard.
kl. 15-21. Tónleikar Alþjóðlegs orgels-
umars sunnud. kl. 17. Mattias Wager
konsertorganisti frá Stokkhólmi leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Fermingarbörn vorsins 2020 boðin
sérstaklega velkomin ásamt fjölskyld-
um sínum. Skráning fer fram í ferming-
arfræðslu vetrarins. Séra Helga Soffía
Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kordía, kór Háteigskirkju, syng-
ur. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Samskot dagsins renna til Blindra-
félagsins.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Sunna Dóra og
Lára Bryndís organisti sjá um stundina
og bjóðum við fermingarbörn vetrarins
og foreldra þeirra sérstaklega vel-
komna til guðsþjónustunnar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Translation into
English. Samkoma á spænsku kl. 13.
Reuniónes en español. Samkoma á
ensku kl. 14. English speaking ser-
vice.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl.
20. Arnór organisti leiðir söng og spil-
ar. Sr. Erla flytur hugleiðingu, bænir og
blessun.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl.
11.00. Sr. Sigurður Arnarson prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt Ástu
Ágústsdóttur, djákna. Væntanleg
fermingarbörn 2020 taka virkan þátt í
messunni. Stuttur fundur með foreldr-
um og forráðamönnum barnanna eftir
messu, um starfið framundan.
KVENNAKIRKJAN | Hauststarf
Kvennakirkjunnar hefst með göngu-
messu í Öskjuhlíð klukkan 17. Gang-
an hefst við Perluna, síðan verður
gengið um skóginn og stansað á
nokkrum stöðum til að syngja, biðja og
lesa úr Biblíunni. Séra Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir flytur hugleiðingu og Að-
alheiður Þorsteinsdóttir stjórnar söng.
Á eftir heldur samveran áfram yfir kaffi
í Perlunni.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Ungmenni sem hafa skráð sig til þátt-
töku í fermingarfræðslunni í vetur og
forráðafólk þeirra sérstaklega boðin
velkomin. Graduale Nobili syngur en
stjórnandi þeirra er Þorvaldur Örn Dav-
íðsson. Guðbjörg Jóhannesdóttir
sóknarprestur þjónar auk kirkjuvarðar
og messuþjóna. Organisti er Magnús
Ragnarsson. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimili að messu lokinni.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 20. Athugið óhefðbundinn
messutíma. Arngerður María Árnadótt-
ir leiðir tónlistarflutning. Sr. Davíð Þór
Jónsson og Sr. Hjalti Jón Sverrisson
þjóna fyrir altari og flytja hugvekjur.
Fermingarbörn vetrarins og forráða-
menn eru sérstaklega boðuð til stund-
arinnar, en á eftir verður fundur í safn-
aðarheimilinu um fermingarfræðsluna
í vetur.
Þriðjudagur 27. ágúst. Kyrrðarbæn kl.
20. Kristileg íhugun. Sr. Hjalti Jón
Sverrisson leiðir stundina.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Brúðuleikrit um Einar
Áskel frá Brúðuheimum. Kl. 20
Messa. Kór Lindakirkju syngur undir
stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
Organisti Steingrímur Þórhallsson.
Prestur Skúli S. Ólafsson. Samfélag
og kaffisopi á Torginu eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 20. Séra Pétur þjón-
ar, Kristinn Hrannar sér um hljómlist,
Ólafur tekur á móti kirkjugestum að
venju. Maul eftir messu.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni |
Guðsþjónusta kl. 14. Sigrún Stein-
grímsdóttir organisti stjórnar almenn-
um safnaðarsöng. Prestur er Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
SALT kristið samfélag | Sameigin-
legar samkomur Salts og SÍK kl. 17
alla sunnudaga í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Messa kl. 11 með
altarisgöngu, prestur Bryndís Malla
Elídóttir, organisti Tómas Guðni Egg-
ertsson og Kór Seljakirkju leiðir söng.
Messukaffi í lokin. Guðsþjónusta í
Skógarbæ kl. 15.30.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa
kl. 11. Prédikun flytur Tryggvi Guð-
mundur Árnason, sóknarprestur við
kirkju heilags Albans í Hickory í Norð-
ur-Karólínu í Bandaríkjunum. Sá söfn-
uður tilheyrir Bandarísku biskupakirkj-
unni. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar
fyrir altari. Friðrik Vignir Stefánsson er
organisti. Félagar úr Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Kaffiveitingar og samfélag
eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
STAÐARBAKKAKIRKJA | Kvöld-
messa kl. 21.30. Almennur söngur.
Eftir messu verður gengið að Melstað
og drukkinn kvöldsopi í safnaðarheim-
ili.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Guðsþjónusta kl. 17. Kór Víði-
staðasóknar syngur undir stjórn Helgu
Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur
Bragi J. Ingibergsson. Málsverður á
1.000,- kr. í safnaðarsal að messu
lokinni.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Brynja Vig-
dís Þorsteinsdóttir þjónar og kirkjukór-
inn leiðir söng undir stjórn Stefáns H.
Kristinssonar organista.
„Sæl er sú þjóð sem
á Drottin að Guði,
þjóðin sem hann
valdi sér til eignar.“
(Sálm. 33.12)
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingeyrarkirkja.
✝ Sigurður Sig-urðsson var
fæddur á Brenni-
borg í Lýtings-
staðahreppi,
Skagafirði, 16. júní
árið 1936. Hann
lést í faðmi fjöl-
skyldunnar á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
14. ágúst 2019.
Foreldrar Sig-
urðar voru Sigurlaug Guð-
mundsdóttir, f. 2.6. 1911, d. 31.7.
2003, og Sigurður Stefánsson, f.
27.11. 1906, d. 28.4. 1968. Börn
Sigurðar eru: 1) Sigurlaug, f.
1.12. 1959, maki 1: Þorsteinn
Þórhallsson, f. 21.4. 1955, d.
21.1. 1991, börn: Sigurður Bald-
ur, f. 28.4. 1978, og Þóra Guð-
rún, f. 7.3. 1981. Maki 2: Ari Lax-
dal, f. 12.12. 1958, barn: Auður
Snjólaug, f. 26.5. 1997. 2) Bald-
ur, f. 29.7. 1961, d. 15.9. 1961. 3)
Böðvar Fjölnir, f. 19.6. 1965,
maki: Elinora Bára Birkisdóttir,
f. 4.9. 1965, börn: Viktoría Sig-
rún, f. 11.2. 1985, Hafdís Bára, f.
Brúnastöðum í Skagafirði. Þar
hélt Sigurður sjálfur búskap ár-
in 1957-1982. Auk þess var Sig-
urður virkur í félagslífi í sveit-
inni. Hann gegndi meðal annars
störfum sem oddviti hreppsins
og starfaði í sóknarnefnd. Árið
1982 flutti Sigurður til Reykja-
víkur. Hann vann lengst af við
pípulagnir hjá Hitaveitunni, síð-
ar Orkuveitu Reykjavíkur. Þar
starfaði hann til ársins 2006.
Næstu ár vann Sigurður við
ýmsar viðgerðir og lagfæringar
í heimahúsum í Reykjavík þar til
hann hóf störf hjá Pípulagn-
ingameistaranum. Þar starfaði
hann til ársins 2016, þegar hann
náði áttræðisaldri. Sigurður
hafði mikinn áhuga á íslensku
landslagi og jarðfræði. Hann
ferðaðist víða um landið, bæði í
húsbíl og seinna í jeppaferðum
og hafði mikið dálæti á hálendi
Íslands. Sín síðustu ár undi Sig-
urður sér vel í íbúð sinni í
Hjaltabakka í Reykjavík. Sig-
urður verður jarðsunginn frá
Mælifellskirkju í dag, 24. ágúst
2019, klukkan 14.
29.7. 1988, Jóhann
Ari, f. 30.4. 1990,
Hólmfríður Lilja, f.
9.8. 1993. 4) Atli
Norðmann, f. 5.7.
1982, maki: Elín
Þórsdóttir, f. 17.8.
1992, barn: Ella, f.
3.3. 2019. 5) Iðunn
María, f. 13.7. 1988.
6) Ylfa Rún, f. 21.8.
1992, maki: Haukur
Kristjánsson, f. 4.4.
1989, barn: Sigvaldi, f. 20.7.
2019. Bróðir Sigurðar er Stefán
Oddgeir, f. 8.6. 1941, maki: Jón-
ína Hólmfríður Friðriksdóttir, f.
9.12. 1950.
Sigurður ólst upp á Brenni-
borg en flutti þaðan árið 1940.
Fyrst fluttist fjölskyldan á
Skíðastaði, síðar á Bergstaði í
Svartárdal og þaðan á Blönduós.
Þau fluttu svo á Stokkseyri, því
næst til Hveragerðis árið 1942
og þaðan til Reykjavíkur árið
1943. Þar bjó fjölskyldan á
Hjallavegi og Sigurður gekk í
Laugarnesskóla. Árið 1947 festu
foreldrar Sigurðar kaup á
Elsku pabbi. Það er svo ótal-
margt sem kemur upp í hugann
þegar ég minnist þín. Þegar mað-
ur er svo heppinn að eiga svona
margar góðar minningar er erfitt
að velja úr. Þess vegna vil ég bara
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig og fyrir allar þær
yndislegu stundir sem við höfum
átt í gegnum tíðina. Þú varst besti
pabbi sem hugsast getur og ég
mun alltaf sakna þín.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hvíl í friði elsku pabbi.
Atli Norðmann Sigurðarson.
Elsku pabbi minn. Mikið á ég
eftir að sakna þín. Þú varst einn
af stólpunum í minni tilveru, at-
hvarf frá hversdagsins amstri og
stressi með hlýjunni og rónni sem
þér fylgdi. Það er sárt að kveðja
en á sama tíma upplifi ég þakk-
læti og sátt. Ég er þakklát fyrir
fallegu minningarnar og allar
samverustundirnar okkar. Ég er
þakklát fyrir að þú náðir að hitta
litla strákinn minn áður en þú
kvaddir. Ég er sátt vegna þess að
ég veit að þú varst sáttur við að
kveðja.
Ég á margar fallegar minning-
ar um þig frá barnæsku. Hvernig
ég faldi mig undir sænginni og þú
þóttist leita að mér þegar mig
langaði ekki fram úr, hvernig þú
keyrðir mig fram og til baka á
tómstundaæfingar í gula vinnu-
bílnum og hvernig sumrunum var
eytt á hálendinu í húsbílaferðum á
Rússanum.
Einna þakklátust er ég þó fyrir
samband okkar eftir að ég varð
fullorðin.
Það sem ég mun sakna mest er
að koma til þín í Hjaltabakkann,
knúsa þig þegar ég geng inn,
ræða daginn og veginn og upplifa
hlýju þína og ró. Í Hjaltabakkan-
um og í kringum þig var ekki til
stress og allir hvattir til að vera
eins og þeim leið best. Oftar en
ekki enduðu allir sofandi í stof-
unni í rólegheitunum sem ríktu.
Ég vildi að ég gæti haldið áfram
að koma vikulega í mat til þín og
borðað með þér berjaskyr á
haustin.
Nú kveð ég þig með sömu orð-
um og ég var vön að gera:
Bless pabbi minn, ég elska þig,
hafðu það gott.
Ylfa Rún Sigurðardóttir.
Jæja pabbi minn. Þá er víst
komið að þessu. Sem betur fer er
ekki mikið sem við eigum eftir að
segja. Ótal oft hef ég sagt þér
hversu mikið ég elska þig og ótal
oft hefur þú svarað: „Sömuleiðis
krúttið mitt.“ Þú hefur líka ótal
oft sagt mér hversu stoltur þú ert
af mér, og ég hef sagt hverjum
sem heyra vill að þú sért mín
uppáhaldsmanneskja.
Mig langar því bara að þakka
þér fyrir allt það góða sem þú átt í
mér. Takk fyrir að kenna mér þol-
inmæði og þrautseigju. Takk fyr-
ir að kenna mér að ég get allt sem
ég vil en að það er mikilvægt að
muna að flýta sér hægt. Takk fyr-
ir að taka mér ávallt opnum örm-
um og umvefja mig ást og um-
hyggju. Takk fyrir öll ævintýrin
okkar og allar rólegu stundirnar í
Hjaltabakkanum. Takk fyrir öll
pabbaknúsin og takk fyrir að vera
þú. Ég mun hafa þig nærri það
sem eftir er, í öllu sem ég tek mér
fyrir hendur, og sakna þín ávallt.
Ég læt vísuna okkar fylgja, sem
loksins á almennilega við.
Það var eitt kvöld að mér heyrðist
hálfvegis barið,
ég hlustaði um stund og tók af kertinu
skarið,
ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti
mér svarið:
Hér kvaddi Lífið sér dyra, og nú er það
farið.
(Jón Helgason)
Ástarkveðja,
þín
Iðunn María.
Þá er elsku Sigurður fallinn frá
eftir langvinn veikindi. Minnis-
stæðastar eru vikulegar heim-
sóknir okkar Ylfu til Sigurðar í
Hjaltabakkann. Þar var alltaf
tekið á móti okkur af mikilli yf-
irvegun, rósemd og hlýju. Oft gát-
um við Sigurður lengi vel rætt um
þjóð- og heimsmálin og var hann
einkar fróður um ýmsa hluti, sér-
staklega innlandsmál. Mikið
mátti því læra af Sigurði eftir
þessar umræður. Reglulega fór-
um við einnig með Sigurði á sam-
komur Parkinsonsamtakanna,
tónleika og veisluhöld og mátti vel
sjá hversu gott það gerði honum
bæði félagslega og líkamlega að
taka þátt í þessu starfi. Sigurður
tók veikindum sínum alltaf af
miklu æðruleysi og yfirvegun og
virtist hafa gott innsæi í þau. Sig-
urðar verður minnst sem góðs,
hjálpsams, fróðs og hlýs manns.
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Haukur.
Einn besta tíma ævi minnar
átti ég sem kaupastrákur hjá
frænda mínum á Brúnastöðum í
Skagafirði, en við Sigurður erum
systkinabörn. Hjá honum var ég í
þrjú sumur, sem lifa í minning-
unni sem einstakur tími. Reisu-
legur Brúnastaðabærinn stendur
hátt í hlíðinni með Mælifells-
hnjúkinn tignarlegan í fullkom-
inni sjónlínu. Sigurður var mikill
verkmaður og góður bóndi. Hann
var einstaklega útsjónarsamur,
hagur á alla vinnu hvort sem var
tré eða járn og eins allar vélar. Á
vorin komu menn til að fá hár sitt
klippt og léku klippurnar og
skærin í höndum hans. Var oft
glatt á hjalla í þessum heimsókn-
um, því margt bar á góma. Minn-
ist ég sérstaklega Jóns á Ánastöð-
um, sem líka eitt vorið kom til
móts við okkur Sigga eldri þegar
við vorum að reka fé á fjall inn við
Bugaskála. Kom Jón til liðs við
okkur á tveimur jarpskjóttum
hestum sem virtust hafa óendan-
legt þrek og ganglipurð. Fellur
þetta hugarmyndskeið aldrei mér
úr minni. Hálfþrítugur hefur
Siggi ásamt fjölskyldu byggt upp
bæði fjárhús, hlöðu, fjós og stóra
vélageymslu sem voru ekki al-
gengar í þá daga. Nýjar stórar
túnsléttur gerðar og eldri endur-
unnar og gerðar sléttar, sem
hann gerði með sérstakri tré-
grind, sem hann hannaði og gat
tengt við vökvalyftuna. Frændi
var mjög yfirvegaður persónu-
leiki, hugsaði hlutina ítarlega og
framkvæmdi af kostgæfni. Var ég
með honum í öllum verkum sem
til féllu og lærði mikið af honum.
Siggi átti þetta víða svið þ.e. hann
gat verið kátur og hláturmildur
og eins góður hugsuður og athug-
ull. Hann var ekki mikið fyrir að
fara af bæ í þá daga, hafði margt
að gera, vildi fara vel með tímann,
því hann hafði alltaf einhver verk
í gangi og verk sem biðu. Frændi
hafði mikið jafnaðargeð og sá ég
hann sjaldan æsa sig upp, þótt til-
efni hefði verið til. Hann tók öll-
um vel og í gegnum tíðina tók
hann að sér unglinga af höfuð-
borgarsvæðinu sem höfðu misst
taktinn og tókst með mannkost-
um sínum að vinna traust þeirra
og byggja upp einstaklinga sem
fóru sterkari og bjartsýnni út í líf-
ið. Bestu þakkir til þín kæri
frændi fyrir okkar samveru-
stundir. Aðstandendum votta ég
samúð.
Vinur er sá sem veit af þér
þótt vegleysur liggi ykkar á milli,
vinur þinn gjarnan gætinn er;
hann gagnrýnir þig og veitir hylli.
Vinur er sá sem gefur gaum
í gleði og þegar sorgir buga,
vinur er sá sem veitir draum
og vakir sem ljós í þínum huga.
Vinur er sá sem veitir best
og vonleysi þér úr brjósti hrekur.
Vinur í raun er mildin mest;
minning sem enginn frá þér tekur.
Vinur er sá sem vandar sig
og veitir þér skjól og frið í stríði.
Vinur er sá sem þekkir þig
þó svo að langur tími líði.
(Kristján Hreinsson)
Þormar Ingimarsson.
Sigurður Sigurðsson