Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 48
ÓL 2020
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Nú þegar nákvæmlega 11 mánuðir
eru þar til eldurinn verður tendraður
á ólympíuleikvanginum í Tókýó í Jap-
an er vert að velta vöngum yfir því
hvaða Íslendingar koma til með að
njóta þar sviðsljóssins á því sem kalla
má stærsta svið íþróttanna. Einn ís-
lenskur íþróttamaður og tveir ís-
lenskir þjálfarar eru þegar öruggir
um farseðilinn á Ólympíuleikana en
hversu margir gætu bæst í hópinn?
Ísland hefur mest átt 31 keppanda
á Ólympíuleikum en það var árið 1988
í Seúl. Þar af voru 14 handboltamenn.
Eftir að hafa verið með 27 fulltrúa á
ÓL 2008 og 2012 og fulltrúa í sex mis-
munandi greinum á þeim síðarnefndu
átti Ísland hins vegar aðeins átta
keppendur samtals í fjórum greinum
á ÓL í Ríó 2016. Fulltrúar okkar
höfðu ekki verið færri í tæplega hálfa
öld eða síðan í Mexíkó 1968.
Stór hópur íslensks íþróttafólks
vinnur nú að því að komast til Tókýó
og hér verður reynt að varpa ljósi á
það hver koma helst til greina í þeim
efnum. Næstu mánuðir ráða úrslitum
og margir gætu þurft að bíða með
öndina í hálsinum fram til loka júní á
næsta ári með að vita örlög sín.
Anton Sveinn McKee synti sig inn
á sína þriðju leika og varð fyrstur ís-
lenskra íþróttamanna til að tryggja
sér farseðilinn til Tókýó með frammi-
stöðu sinni í 200 metra bringusundi á
HM í síðasta mánuði. Anton gæti
einnig náð keppnisrétti í 100 og 50
metra bringusundi.
Það er nokkuð mismunandi eftir
íþróttagreinum hvernig keppendur
geta unnið sér sæti á leikunum en í
sundi er leiðin nokkuð skýr. Syndi
fólk undir ákveðnum tíma hefur það
tryggt sér keppnisrétt í viðkomandi
sundgrein á leikunum. Einnig eru til
„B-lágmörk“ sem geta dugað sund-
fólki til að fá keppnisrétt.
Árangur sundkvennanna Eyglóar
Óskar Gústafsdóttur og Hrafnhildar
Lúthersdóttur var það sem stóð upp
úr hjá íslenska hópnum í Ríó (meist-
aratitill Guðmundar Guðmundssonar
sem landsliðsþjálfari Dana í hand-
bolta er þá ekki talinn með). Báðar
syntu þær úrslitasund á leikunum,
fyrstar íslenskra kvenna. Hrafnhild-
ur er nú hætt keppni og bakmeiðsli
hafa sett stórt strik í reikninginn hjá
Eygló. Hún er þó eftir sem áður lík-
legust af okkar sundfólki til að fylgja
Antoni. Kristinn Þórarinsson og
Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sem
kepptu bæði á HM í sumar, horfa
einnig til ÓL en eiga lengra í land.
Hilmar stendur best að vígi í
frjálsíþróttum
Í frjálsum íþróttum er nokkuð stór
hópur með Ólympíuleikana í sigtinu.
Frjálsíþróttaþjálfarinn Vésteinn Haf-
steinsson verður vísast einnig á leik-
unum en lærisveinn hans Daniel
Ståhl er þegar kominn með keppn-
isrétt í kringlukasti. Alþjóðafrjáls-
íþróttasambandið hefur breytt sínu
inntökukerfi talsvert eftir innleiðingu
heimslista í hverri grein. Enn er
hægt að vinna sig inn á leikana með
því að ná ákveðnu lágmarki í hverri
grein, en þessi lágmarksskilyrði eru
mun strangari en áður. Fyllt verður
svo í keppendafjölda í hverri grein út
frá stöðu á heimslista 1. júlí, og er
fjöldinn mismunandi eftir greinum
(t.d. 32 í kastgreinum en 80 í mara-
þoni).
Enginn íslenskur frjálsíþróttamað-
ur hefur náð lágmarki fyrir ÓL.
Guðni Valur Guðnason og Ásdís
Hjálmsdóttir eiga árangur sem
kemst hvað næst því; Guðni 47 sentí-
metra frá lágmarkinu í kringlukasti
og Ásdís 57 sentímetra í spjótkasti.
Besti tími Anítu Hinriksdóttur í 800
metra hlaupi er hálfri sekúndu frá
lágmarkinu og Hilmar Örn Jónsson
þyrfti að bæta sig um rúma tvo metra
í sleggjukasti. Þessi fjögur eiga hins
vegar öll vel raunhæfa möguleika á
að komast á ÓL vegna stöðu á heims-
lista og skilyrða um að að hámarki
þrír keppendur frá hverri þjóð keppi í
hverri grein. Þau þurfa að ná góðum
árangri á sterkum mótum til að safna
stigum fram til 30. júní, en sem stend-
ur er Hilmar Örn efstur Íslendinga á
heimslista eftir stöðugan árangur á
þessu ári.
Hilmar er „inni“ á leikunum í Tók-
ýó miðað við núverandi stöðu, í 30.
sæti miðað við kröfuna um hámark
þrjá frá hverju landi. Alls keppa 32 í
sleggjukasti karla í Tókýó. Ásdís er í
39. sæti í spjótkasti (32 sæti í boði),
Guðni í 47. sæti í kringlukasti (32 sæti
í boði), Dagbjartur Daði Jónsson í 60.
sæti í spjótkasti (32 sæti í boði), Aníta
í 74. sæti í 800 m hlaupi (48 sæti í
boði), Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir í
77. sæti í 200 m hlaupi (56 sæti í boði)
og Arnar Pétursson í 197. sæti í
maraþoni (80 sæti í boði). Vert er
einnig að minnast á EM-farann
Sindra Hrafn Guðmundsson sem hef-
ur kastað yfir 80 metra í spjótkasti en
lítið getað keppt á þessu ári. Ekkert
þeirra er hins vegar í þeirri stöðu að
geta næsta sumar stefnt á að bætast í
hóp með Vilhjálmi Einarssyni og
Völu Flosadóttur sem það íslenska
frjálsíþróttafólk sem unnið hefur ól-
ympíuverðlaun.
Ólafía og Valdís „dottnar út“
Í fyrra og fram á þetta ár var gott
útlit fyrir að Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir
yrðu í hópi 60 kvenkylfinga á ÓL í
Tókýó. Sú staða hefur snarversnað.
Eftir aldarlanga fjarveru kylfinga var
golf aftur á dagskrá Ólympíuleikana í
Ríó, og keppt þar í einstaklings-
keppni karla og kvenna. Þátttöku-
réttur miðast við stöðu á heimslista
undir lok júní á næsta ári. Hins vegar
mega aðeins tveir kylfingar frá
hverju landi keppa í hvorum flokki,
nema úr hópi 15 efstu á heimslista en
þaðan mega að hámarki fjórir kylf-
ingar frá sama landi koma (til dæmis
eru fjórar frá Suður-Kóreu í hópi 15
efstu á heimslista kvenna).
Þetta þýðir til dæmis að hin
finnska Sanna Nuutinen er inni á
leikunum miðað við núverandi stöðu,
þrátt fyrir að hún sé í 395. sæti á
heimslista. Valdís er núna í 542. sæti
og Ólafía í 646. sæti en í fyrravor, svo
dæmi sé tekið, var Ólafía í 173. sæti
og Valdís í 299. sæti. Þá voru þær
báðar inni á leikunum og þannig var
staðan einnig í mars á þessu ári. Sem
stendur er Valdís fimmti varamaður
inn á leikana.
Handboltalandsliðið þarf að
standa sig vel á EM
Karlalandsliðið í handbolta hefur
sjö sinnum komist á Ólympíuleikana
og þar stendur silfrið í Peking 2008
vitaskuld upp úr. Guðmundur Guð-
mundsson, sem státað getur af því að
hafa unnið verðlaun á ÓL með tveim-
ur landsliðum, á raunhæfa möguleika
á að koma strákunum okkar til Tók-
ýó. Leiðin þangað er þó torfær.
Lykillinn að ÓL felst í góðum
árangri á EM í janúar en fleira þarf
til. Vinni Ísland mótið fær liðið reynd-
ar strax þátttökurétt á ÓL, en annars
snýst málið um að komast í sérstaka
ólympíuundankeppni sem fram fer í
apríl. Hvað þarf til að komast þang-
að? Segja má að Ísland berjist á EM
um annað af tveimur lausum sætum í
ólympíuundankeppninni, en að í
þeirri baráttu þurfi liðið ekki að spá
neitt í stöðu Danmerkur, Noregs,
Frakklands, Þýskalands, Svíþjóðar,
Króatíu og Spánar (liðanna sjö sem
enduðu í efstu sætum á HM í ár).
Einfaldast er því að segja að Ísland
standi á EM í baráttu við lið á borð
við Ungverjaland og Rússland (sem
eru með Íslandi í riðli), Norður-
Makedóníu, Slóveníu, Tékkland,
Hvíta-Rússland og fleiri um tvö laus
sæti í ólympíuundankeppninni. Þar
verður svo keppt í þremur fjögurra
liða riðlum í apríl og komast tvö lið
upp úr hverjum riðli og á Ólympíu-
leikana, eins og Ísland gerði síðast
2012. Ljóst er að Dagur Sigurðsson
verður að minnsta kosti í Tókýó, með
sína menn í gestgjafaliði Japans, og
afar líklegt er að Þórir Hergeirsson
verði þar einnig með norska kvenna-
landsliðið.
Sveinbjörn með á „heimavelli“?
Skotíþróttamaðurinn Ásgeir Sig-
urgeirsson stefnir á að komast á sína
aðra Ólympíuleika eftir að hafa keppt
í London 2012. Alls fá 29 karlar sæti í
keppni með 10 m loftskammbyssu og
eru 14 sæti enn laus. Fyrir Ásgeir eru
tvö sæti í boði á síðasta heimsbikar-
móti tímabilsins, í Ríó í komandi viku,
tvö á EM í Póllandi í febrúar, eitt á
sérstöku ólympíuundanmóti og eitt
vegna stöðu á heimslista. Ljóst er að
Á hvaða Íslendinga mun
Íslendingar í að minnsta kosti tíu
greinum horfa til ÓL næsta sumar
Frumkvöðlar í golfi og þríþraut?
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
Inkasso-deild karla
Víkingur Ó. – Fjölnir............................... 4:1
Harley Willard 7. (víti), Ibrahim Sorie Bar-
rie 29., Guðmundur Magnússon 40., 72.
(víti) – Albert Brynjar Ingason 69. (víti).
Grótta – Fram .......................................... 3:1
Arnar Þór Helgason 24., Sölvi Björnsson
67., 81. – Frederico Bello Saraiva 79. (víti).
Þróttur R. – Keflavík .............................. 1:3
Jasper van der Heyden 53. – Þorri Mar
Þórisson 5., Ísak Óli Ólafsson 26., Adolf
Mtasingwa Bitegeko 39. (víti).
Staðan:
Fjölnir 18 10 5 3 35:19 35
Grótta 18 9 7 2 37:25 34
Þór 17 9 5 3 29:17 32
Leiknir R. 17 9 2 6 30:25 29
Keflavík 18 8 4 6 27:23 28
Víkingur Ó. 18 7 6 5 22:16 27
Fram 18 8 2 8 27:29 26
Þróttur R. 18 6 3 9 34:29 21
Afturelding 18 5 3 10 23:34 18
Haukar 18 3 7 8 24:34 16
Magni 17 4 4 9 21:43 16
Njarðvík 17 3 2 12 16:31 11
3. deild karla
KV – Skallagrímur ................................... 8:1
4. deild karla D
Elliði – Ægir ............................................. 2:1
KÁ – Kóngarnir ...................................... 17:0
Inkasso-deild kvenna
FH – Haukar............................................. 3:5
Tara Björk Gunnarsdóttir (sjálfsmark) 44.
Margrét Sif Magnúsdóttir 48., Birta
Georgsdóttir 53. – Vienna Behnke 3., 5., 10.,
Sierra Marie Lelii 11., Dagrún Birta Karls-
dóttir 36.
ÍA – Þróttur R. ......................................... 0:4
Linda Líf Boama 44., 88., Margrét Sveins-
dóttir 61., Lauren Wade 62.
Afturelding – Augnablik ........................ 1:1
Darian Elizabeth Powell 85. – Vigdís Lilja
Kristjánsdóttir 66.
Staðan:
Þróttur R. 15 13 0 2 62:10 39
FH 15 11 2 2 45:20 35
Haukar 15 9 0 6 28:19 27
Tindastóll 14 8 1 5 35:32 25
Afturelding 15 6 3 6 26:20 21
ÍA 15 4 4 7 16:24 16
Grindavík 14 3 6 5 19:25 15
Augnablik 15 4 3 8 12:24 15
Fjölnir 14 3 4 7 17:31 13
ÍR 14 0 1 13 3:58 1
2. deild kvenna
Álftanes – Fjarðab/Höttur/Leiknir ........ 1:3
KNATTSPYRNA
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir mánudaginn 2. september
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Börn &
uppeldi
Víða verður komið við í uppeldi barna í
tómstundum, þroska og öllu því sem
viðkemur börnum frá fæðingu
til 12 ára aldurs.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 7. sept.
EM kvenna U16
B-deild í Búlgaríu
Leikið um sæti 21-23:
Albanía – Ísland.................................... 43:79
KÖRFUBOLTI