Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 24.08.2019, Blaðsíða 51
ÍÞRÓTTIR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019 Gott gengi Gróttu í 1. deild karla í knattspyrnu, Inkasso-deildinni, heldur áfram en liðið endurheimti annað sætið með 3:1-sigri á Fram á Seltjarnarnesi í gærkvöld. Arnar Þór Helgason kom Gróttu yfir í fyrri hálfleik og um miðbik síðari hálfleiks tvöfaldaði Sölvi Björnsson forskot Seltirninga. Fre- derico Bello minnkaði muninn úr víti fyrir Fram áður en Sölvi inn- siglaði 3:1-sigurinn með öðru marki sínu fyrir Seltirninga. Grótta er nú í öðru sætinu með 34 stig, einu á eftir toppliði Fjölnis, en Þór er í þriðja sætinu með 32 stig og getur komist á toppinn á morgun. Fram er í sjöunda sætinu með 26 stig. Grótta hefur nú leikið 14 leiki í röð í deildinni án þess að tapa, en síðasta tapið kom gegn Leikni þann 24. maí eða fyrir þrem- ur mánuðum síðan. Grótta hefur síðan þá unnið átta leiki og gert sex jafntefli. Víkingur Ólafsvík átti ekki í vandræðum með topplið Fjölnis og vann 4:1 þegar liðin áttust við í Ólafsvík í 1. deild karla í knatt- spyrnu, Inkasso-deildinni, í kvöld. Harley Willard, Ibrahim Barrie og Guðmundur Magnússon komu Ólafsvíkingum í 3:0 í fyrri hálfleik, áður en Albert Brynjar Ingason minnkaði muninn fyrir Fjölni úr víti. Guðmundur skoraði hins vegar aftur fyrir Ólafsvíkinga og nið- urstaðan 4:1-sigur þeirra. Fjölnir er þó enn á toppnum með 35 stig, en geta misst toppsætið til Þórsara sem leika gegn Leikni R. á morgun. Víkingur er í fimmta sæt- inu með 27 stig. Keflavík gerði góða ferð í Laug- ardalinn í kvöld og vann 3:1-sigur á Þrótti í 18. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu, Inkasso-deildarinnar. Þorri Mar Þórisson, lánsmaður frá KA, skoraði sitt fyrsta mark fyrir Keflavík snemma leiks og áður en fyrri hálfleikur var úti voru þeir Ísak Óli Ólafsson og Adolf Bitegeko búnir að koma Keflavík í 3:0. Jasper van der Heyden lagaði stöðuna fyr- ir Þrótt í síðari hálfleik en þar við sat. Keflavík komst með sigrinum upp í fimmta sætið með 28 stig, stigi meira en Víkingur Ólafsvík sem vann topplið Fjölnis fyrr í kvöld. Þróttur er hins vegar í áttunda sæt- inu með 21 stig. yrkill@mbl.is Seltirningar án taps síðan í maí  Ólsarar sýndu sparihliðarnar þegar topplið Fjölnis kom í heimsókn Morgunblaðið/Árni Sæberg Á siglingu Leikmenn Gróttu og Fram í baráttunni í gær en Seltirningar eru á mikilli siglingu. Ólafur Bjarki Ragnarsson, leik- maður Stjörnunnar í úrvalsdeild karla í handknattleik, verður ekki með liðinu í fyrstu leikjum tímabils- ins að samkvæmt Vísi.is. Ólafur fingurbrotnaði í æfingaleik með Stjörnunni á dögunum en deildin hefst 8. september. Vísir greinir frá því að leikmað- urinn verði frá næstu sex til átta vikurnar en Ólafur er þrítugur að aldri og á að baki 34 landsleiki fyrir Ísland. Hann sneri heim úr atvinnu- mennsku í sumar eftir sjö ár er- lendis. sport@mbl.is Ólafur Bjarki er fingurbrotinn Ljósmynd/Handball-westwien.at Reyndur Ólafur kemur eflaust til með að styrkja lið Stjörnunnar. Al Arabi, undir stjórn Heimis Hall- grímssonar, byrjar nýtt tímabil í Katar vel og vann 3:1-sigur á Al Ahli í fyrstu umferð deildarinnar þar í landi í gær. Staðan í hálfleik var 1:1, en Al Arabi skoraði tvö mörk í síðari hálfleik og tryggði sér sigurinn. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson spilaði sinn fyrsta leik með Al Arabi og lék allan leikinn á miðjunni. Al Arabi hafnaði í sjötta sæti deildarinnar í fyrra, en Heimir tók við um áramót. sport@mbl.is Aron og Heimir unnu fyrsta leik Morgunblaðið/Eggert Katar Aron Einar Gunnarsson er kominn af stað á nýjum slóðum. Þróttur Reykjavík tryggði sér í gærkvöld sæti í efstu deild kvenna í knattspyrnu með 4:0-sigri á ÍA þeg- ar liðin mættust í 15. umferð 1. deildar kvenna, Inkasso-deild- arinnar, á Akranesi. Linda Líf Boama skoraði tvö mörk fyrir Þrótt og þær Margrét Sveinsdóttir og Lauren Wade eitt mark hvor. Þegar þrír leikir eru eftir er Þróttur með 39 stig á toppnum og á ekki möguleika á því að enda neðar en í öðru sæti. Þróttur spilaði síðast í efstu deild sumarið 2015 en vann ekki leik það sumarið og féll með tvö stig. FH hefði einnig getað tryggt sér sæti í efstu deild í gær með sigri á Haukum. Haukar gerðu sér hins vegar lítið fyrir og unnu 5:3 í Kaplakrika og eiga ennþá mögu- leika á því að fylgja Þrótti upp. Staðan var orðin 4:0 fyrir Hauka eftir rúmar tíu mínútur þótt ótrú- lega kunni að hljóma. Vienne Be- hnke var þá búin að skora þrennu áður en Sierra Lelii bætti við marki. Tæplega eru mörg dæmi um það í meistaraflokki á Íslandi að leikmaður skori þrennu á fyrstu tíu mínútum leiks í Íslandsmóti. Dag- rún Birta Karlsdóttir skoraði svo fyrir hlé en sjálfsmark Hauka gerði það að verkum að staðan var 5:1 að loknum fyrri hálfleik. Margrét Sif Magnúsdóttir og Birta Georgsdóttir löguðu stöðuna fyrir FH eftir hlé, en niðurstaðan 5:3 fyrir Hauka. FH er í öðru sæti með 35 stig en Haukar eru nú í þriðja sætinu með 27 stig. Tindastóll á einnig möguleika á því að komast upp, en liðið á leik til góða í fjórða sætinu með 25 stig. sport@mbl.is Þróttur upp í efstu deild kvenna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skoraði Akurnesingum tókst ekki að stöðva Lindu Líf Boama. „Þetta er liðsíþrótt,“ heyrir maður þjálfara oft segja í við- tölum eftir tapleiki. „Við spil- uðum ekki sem lið hérna í dag,“ er líka frasi sem heyrist mjög oft. Ef ég á að vera alveg hrein- skilinn þá verð ég að játa það að ég fylgist mest með stærstu boltaíþróttunum hér heima á Ís- landi. Það er kannski ekkert sér- staklega skrítið enda þeir leikir sem eru alla jafna mannaðir í hverri einustu viku af okkur á íþróttadeildinni. Það er eitt sem truflar mig. Vissulega eru fótbolti, handbolti og körfubolti allt liðsíþróttir en samt sem áður eru til ákveðnir leikmenn sem geta gert gæfu- muninn. Leikmenn sem eru með ákveðna nærveru, leikmenn sem eru yfirburða, leikmenn sem eru sterkir í klefanum og svo auðvit- að leikmenn sem eru fæddir sig- urvegarar. Hinn 15. nóvember 2018 skrif- aði leikmaður að nafni Helena Sverrisdóttir undir samning við kvennalið Vals í körfunni. Ég man ekki nákvæmlega hvar Vals- konur voru í töflunni áður en Helena spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið en í minningunni voru þær í sjötta sæti. Valskonur höfðu allavega spilað átta leiki í deildinni, unnið þrjá leiki og tap- að fimm. Með tilkomu Helenu urðu Valskonur svo deildar-, bik- ar-, og Íslandsmeistarar. Lið sem aldrei hafði unnið titil í kvenna- körfunni var allt í einu þrefaldur meistari. Hvort Helena Sverrisdóttir sé undantekningin sem sannar regluna um það að boltaíþrótt- irnar séu liðsíþróttir veit ég ekki. Frá því að þetta gerðist hef ég reynt að finna svipuð dæmi um íþróttamenn sem hafa á afger- andi hátt breytt liðum sínum úr fallbaráttuliði í líklega Íslands- meistara en dettur lítið í hug. Allar ábendingar eru vel þegnar. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.