Morgunblaðið - 24.08.2019, Page 52
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Komandi starfsár mótast af afmæl-
um og tveimur stórum utanlands-
ferðum með tilheyrandi upptakti hér
heima,“ segir Árni Heimir Ingólfs-
son, tónlistarfræðingur, listrænn ráð-
gjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
(SÍ) og formaður verkefnavals-
nefndar sveitarinnar. Í mars fagnar
hljómsveitin 70 ára afmæli sínu með
tónleikum þar sem Eva Ollikainen,
nýráðinn aðalhljómsveitarstjóri SÍ,
stjórnar verkinu Úr myndabók Jón-
asar Hallgrímssonar eftir Pál
Ísólfsson, fiðlukonsert eftir Jean
Sibelius þar sem Augustin Hadelich
leikur einleik og sinfóníu nr. 1 eftir
Gustav Mahler. „Á tyllidögum leyfum
við okkur að flytja sinfóníska tónlist
með stækkaðri hljómsveit,“ segir
Árni Heimir og tekur fram að viðeig-
andi sé að verk Páls fái að heyrast
aftur eftir langt hlé þar sem Páll hafi
verið einn þeirra sem komu að stofn-
un hljómsveitarinnar á sínum tíma.
„En afmælin á starfsárinu eru
fleiri. Í september fagnar Ungsveit
Sinfóníuhljómsveitar Íslands 10 ára
afmæli sínu með flutningi á 9. sinfón-
íu Beethovens ásamt ungum ein-
söngvurum og fjölda kóra undir
stjórn Daniels Raiskin,“ segir Árni
Heimir og bendir á að Ungsveitin sé
mikilvægur þáttur í fræðslustarfi SÍ.
„Í maí flytjum við Valkyrjuna eftir
Richard Wagner undir stjórn Alex-
anders Vedernikov í samstarfi við
Íslensku óperuna sem fagnar 40 ára
afmæli og Listahátíð í Reykjavík sem
fagnar 50 ára afmæli. Við gætum
aldrei staðið að þessu verkefni ein,
enda er það mjög stórt. Af þeim sök-
um er þetta tilvalið afmælisverkefni
fyrir allar þessar þrjár stofnanir sem
standa að því,“ segir Árni Heimir og
tekur fram að ánægjulegt sé að geta
flutt óperu eftir Wagner í fullri lengd
en það gerðist síðast hér á landi fyrir
tæpum tveimur áratugum.
Starfsár SÍ hefst formlega með
tvennum tónleikum í dag, á menning-
arnótt. Klukkan 15 heimsækir Max-
ímús Músíkús hljómsveitina og kl. 17
verða maraþontónleikar með hressi-
legri tónlist til heiðurs hlaupagörpum
dagsins. Stjórnandi hvorra tveggja
tónleika er Bjarni Frímann Bjarna-
son, nýr aðstoðarhljómsveitarstjóri
SÍ. Föstudaginn 30. ágúst verður
boðið upp á tónleika undir yfirskrift-
inni Klassíkin okkar undir stjórn
Daníels Bjarnasonar, aðalgesta-
stjórnanda SÍ, og verða þeir í beinni
sjónvarpsútsendingu á RÚV. Í byrj-
un september leggst hljómsveitin í
flakk innanlands og heldur annars
vegar tónleika í Reykjanesbæ 3. sept-
ember og á Ísafirði 5. september, en
seinni tónleikarnir eru hluti af
hátíðarhöldum vegna 70 ára afmælis
Tónlistarfélags Ísafjarðar.
Kynna íslenska tónlist stolt
„Talandi um afmæli þá er í raun
eitt tónskáld sem vantar á efnisskrá
komandi starfsárs, en það er Ludwig
van Beethoven. Það er með vilja gert
því í desember 2020 verða 250 ár liðin
frá fæðingu tónskáldsins. Við viljum
halda okkar flugeldasýningu nær
sjálfum afmælisdeginum og erum
þannig meðvitað að byggja upp eftir-
væntingu fyrir afmælisfagnað hans.“
Árni Heimir undirstrikar að fjöl-
breytnin sé að vanda mikil í bæði stíl
og verkefnavali komandi starfsárs.
„Við bjóðum upp á tónlist frá barokk-
inu og klassíska tímanum til dagsins í
dag,“ segir Árni Heimir og bendir á
að sérstök áhersla sé lögð á íslenska
tónlist. „Þannig förum við í tvær tón-
leikaferðir til Evrópu þar sem Aerial-
ity eftir Önnu Þorvaldsdóttur verður
flutt á öllum tónleikum okkar í báðum
ferðum. Það er ekkert launungarmál
að Anna er orðin mjög stórt nafn í
Hljómsveit á
tímamótum
Sinfóníuhljómsveit Íslands fagnar 70
ára afmæli Tónleikaferðir áberandi
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Evrópa „Þetta er í fyrsta
skiptið sem við höldum röð
tónleika í Bretlandi og
lengsta tónleikaferð okkar í
Evrópu síðan árið 1980.“
Árni Heimir Ingólfsson.
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 2019
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is
Aldrei haft jafn þykkt hár
„Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume
frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng
augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að
hætta að taka þetta bætiefni inn.“
Edda Dungal
Hair Volume inniheldur
jurtir og bætiefni sem sem
eru mikilvæg fyrir hárið og
getur gert það líflegra
og fallegra.
Er hárlos eða þunnt hár að plaga þig?
Sem liður í því að auka hlut
kvenna á efnisskrá Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands verða þrenn-
ir tónleikar starfsársins helgaðir
rússneska tónskáldinu Sofiu
Gubaidulinu. „Hún hefur verið
eitt fremsta kventónskáld í hinum
vestræna heimi í um hálfa öld.
Okkur fannst því upplagt að
kynna verk hennar betur fyrir
íslenskum áheyrendum,“ segir
Árni Heimir og bendir á að þema
tónleikanna þrennra sé að flétta
saman tónverkum Gubaidulinu og
landa hennar Sergejs Rakhman-
ínov.
„Þótt hann sé landi hennar er
hann líklega eins langt frá hennar
stíl og hægt er að komast. Samt
eiga þau það sameiginlegt að vera
útlagar frá Sovétríkjunum sálugu
stóran hluta af sínum ferli,“ segir
Árni Heimir og bendir á að á
fyrstu tónleikunum í janúar verði
flutt æskuverk tónskáldanna
tveggja. Aðrir tónleikar raðar-
innar verða í mars þar sem Vadim
Gluzman flytur fiðlukonsertinn
Offertorium eftir Gubaidulinu
auk þess sem sinfónía nr. 2 eftir
Rakhmanínov verður flutt. Á sein-
ustu tónleikunum í júní verða flutt
síðasta verk Rakhmanínov og eitt
af allra nýjustu verkum Gubai-
dulinu. „Tónlist Sofiu Gubai-
dulinu býr yfir einhverjum and-
legum krafti, sem er alltaf mjög
erfitt að útskýra með orðum. Það
mætti helst lýsa þessu sem fal-
legum og innblásnum innri styrk.
Þótt hún hafi mjög sterkt per-
sónulegt tónmál heyrir maður
líka áhrif annars staðar frá,“ seg-
ir Árni Heimir og nefnir í því sam-
hengi bæði Bach og Shostakovitsj.
Í vetrarbæklingi SÍ má finna
viðtal Árna Heimis við Gubaidul-
inu, en hún veitir nær aldrei við-
töl. „Ég er mjög ánægður með að
hafa fengið þetta viðtal og tel það
til marks um að henni þyki vænt
um að við séum að setja fókus á
tónlist hennar,“ segir Árni Heimir
og rifjar upp að hann hafi sent
henni spurningar á rússnesku og
fengið til baka handskrifuð svör
Gubaidulinu sem fylltu um tíu
blaðsíður.
„Býr yfir andlegum krafti“
Tónskáld Sofia Gubaidulina.
Páll Stefánsson ljósmyndari opnar
ljósmyndasýninguna 1958 m í dag
kl. 17 í nýju galleríi á neðri hæð
verslunarinnar nomad sem er á
horni Laugavegar og Frakkastígs.
Eigandi nomad er ljósmyndarinn
Ingimar Þórhallsson en hann stund-
aði ljósmyndanám í University of the
Arts í London. „Hugmyndin er að
efla menningarlíf og list á Lauga-
veginum en sýningarpláss af þessum
toga eru ekki mörg í miðbænum.
Það verður lærdómsríkt að fá ljós-
myndara á borð við Pál Stefánsson
til að opna sýninguna og hlakka ég
til samstarfs við fleiri listamenn á
komandi mánuðum,“ er haft eftir
honum í tilkynningu. Páll hefur síð-
ustu áratugi ferðast um allan heim
og myndað mannlíf og landslag.
Hann hefur gefið út 38 bækur og
haldið einkasýningar víða um lönd.
Nýtt gallerí opnað með sýningu Páls
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fyrstur Páll Stefánsson er fyrsti lista-
maðurinn sem sýnir í hinu nýja galleríi.
Alþjóðlegu org-
elsumri í Hall-
grímskirkju lýk-
ur á morgun
með tónleikum í
kirkjunni sem
hefjast kl. 17. Á
þeim leikur
Mattias Wager,
organisti í Dóm-
kirkjunni í
Stokkhólmi, og verða á efnis-
skránni verk eftir Oskar Lindberg,
Johann Sebastian Bach, Florence
B. Price, Wolfgang Amadeus Moz-
art og Julius Reubke.
Auk þess að starfa sem dómorg-
anisti í Stokkhólmi hefur Wager
komið fram á tónleikum, master-
klassnámskeiðum og orgelhátíðum
víða um Evrópu og í Brasilíu,
kennt orgelleik og spuna við fjóra
helstu tónlistarháskóla Svíþjóðar.
Hann hefur líka samið tónlist fyrir
nokkur leikrit sem hafa notið vel-
gengni og frá árinu 2017 kennt við
The Royal Swedish Academy of
Music.
Hann hefur margoft komið til
Íslands til að halda tónleika og
taka upp hljómplötur auk þess að
kenna. Hann er gestatónlistarstjóri
Alþjóðlegs orgelsumars 2019
ásamt Herði Áskelssyni.
Orgelsumri lýkur í Hallgrímskirkju
Mattias Wager